Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1993 Spumingin Finnst þér gaman að dansa? Lesendur Einkenni íslenskra stjómmálamanna: Hrafnhildur Guðrúnardóttir: Já, já, alveg ágætt, sérstaklega við venju- lega danstónlist. Guðrún Einarsdóttur: Já, ég var í dansskóla og það var fínt. Dóra Dúna Sigfúsdóttir: Já, mér finnst ágætt að dansa. Davíð Gill: Já, ég er í dansskóla hjá Jóni Pétri og Köru og tsja-tsja-tsja er skemmtilegastur. Jóhanna Guðmundsdóttir: Nei, ég kann ekki að dansa. Ásta Lára Jónsdóttir: Mjög gaman, og samkvæmisdansar eru skemmti- legastir. Hortugheit og óskammfeilni Gunnar Guðmundsson skrifar: Þaö hefur verið lenska hér á landi að stjómmálamenn hafa nánast get- að farið sínu fram að vild. Þeir hafa leikið lausum hala gagnvart lögum og réttarfari varöandi yfirsjónir, afglöp í starfi og brot á hinum al- mennu hegningarlögum. Óþarfi er að nefna um þetta afmörkuð dæmi enda þjónar það engum tilgangi í þessum línum. - Hins vegar eru dæmin mörg. Siðleysið hefur verið mest áberandi og hefur aukist verulega í seinni tíð og hafa stjórnmálamenn ekki kallað allt ömmu sína í þeim efnum. Al- menningiu- á enga kosti í að hrinda óvæmnni af höndum sér nema þann, ef kost skyldi kalla, að kjósa aðra í næstu kosningum. Það er þó lélegur kostur því bæði er það að ekki við- hafa allir flokkar hér próíkjör og svo hitt að til framboðs veljast svo oftar en ekki beinir afkomendur þing- mannanna sjálfra eða annarra emb- ættismanna. Lítil breyting hefur því orðið á landstjóm okkar íslendinga á síðastliðnum tveimur öldum hvað ættarveldi og afkomendadýrkun áhrærir. Síðustu atburðir í stjórmálum eru vitnisburðir um þetta. Hortugheit og óskammfeilni sýnast helstu einkenni íslenskra stjómmálamanna nú, ekki síður en á árum áður. - Ráðningamál yfirmanna Ríkissjónvarps og afskipti ráðherra em þar til vitnis. Endur- skipulagning á ráöherragengi Al- þýðuflokksins sömuleiðis. Auglýst er staða seðlabankastjóra en þegar búiö að ákveða hver á að fá stöðuna! Er þetta yfirleitt löglegt? Umhverfisráðherra snuprar frétta- menn fyrir aö leita fregna um ráð- herraskiptin. Er ekki ráðherra skylt Situr spillingin í fyrirrúmi í öllum ákvörðunum íslenskra stjórnmálamanna? að svara almennum spurningum án þess að hreyta frá sér ónotum inn á heimili landsmanna? - Góður verð- andi sendiherra þaö! Ráðherra fjár- mála segir að ríkið þurfi að spara og skera niður kostnað. í hinu orðinu lætur hann líklega við opinbera starfsmenn um að þeir þurfi ekki að óttast uppsagnir, þar verði frekar um aukningu á störfum að ræða! Allt er á sömu bókina lært. Ég fullyrði að það er enginn núver- andi stjórnmálamaður sem á það skilið að verða endurkosinn. Þar verður að gera vemlegan uppskurð ef breyta á þeim hugsunarhætti landsmanna að núverandi stjóm- málamenn séu allir eins. Þpir séu allir spilltir. Girðingarstaurar teknir Björk Thomsen skrifar: Skátasveit úr skátafélaginu Ægisbúum fór í æfingaútilegu fyrir landsmót upp að Hafravatni síðast- liðiö fóstudagskvöld. Skátamir voru meðal annars aö æfa sig í súrringum (binda saman trönur og staura) og komu þá með staurana til þess. Úti- legunni lauk klukkan 13 á sunnudag og fóru þá allir af svæöinu með allt sitt hafurtask nema 15-20 staura (rúnnaðir, yddaðir, gagnvarðir, um það bil 180 cm langir) sem átti að sækja um kvöldiö. Þegar skátarnir komu svo um kvöldið til að sækja staurana voru þeir horfnir. Þetta kemur sér mjög illa fyrir krakkana því staurana átti að nota mikið fram að landsmóti og á landsmótinu í lok júlí og nýir staur- ar em dýrir. Ef einhver hefur séð til manna- ferða við að setja staura í bíl viö lóð skáta austan viö Hafravatn síöasta sunnudag, 6. júní, milli klukkan 13.30 og 20, er sá hinn sami beðinn um að láta vita hjá Bandalagi íslenskra skáta í síma 23190. Lóðin er rétt aust- an við Hafravatnsrétt. Tölvustýrð heymartæki: Eru þegar komin á markaðinn Birgir Ás Guðmundsson hringdi: í síðasta helgarblaði DV, 5. júní, birtist grein um tölvustýrt heyrnar- tæki sem gert er ráð fyrir aö komi á markað eftir tvö ár. Samkvæmt greininni hefur verið þróað, með hjálp tölvutækninnar, heyrnartæki sem útilokar óæskileg hljóð, þannig að hinn heymarskerti nemi hljóðin betur. Notendur muni á vissan hátt fá átta heymartæki í einu. Með því að þrýsta á hnapp sé hægt að skipta á milli þeirra hljóða sem æskilegt er að nema miðað við það umhverfi sem notandinn er staddur í. Ég er yfirheyrnarfræðingur Heymar- og talmeinastöðvarinnar og hef fengið fjölda upphringinga frá því að þessi grein birtist. Vegna þess- arar greinar vil ég taka eftirfarandi fram: Samsvarandi tæki og talað er um í greininni var þróaö í Lundi í Vísindi Tölvustýrt heyrnartæki Norskur prófessor hefur ásamt að- -1— -..,■'.1... i... ^íntitr, hrnqft tnlvil- Greinin sem birtist í DV um tölvu- stýrt heyrnartæki hefur vakið athygli. Svíþjóö fyrir um fjómm árum. Bandarískir vísindamenn keyptu hugmyndina og það er nokkuð síðan það var sett á markað. Tækið hefur hins vegar ekki verið til sölu hér á landi. Vandamálið er að það er óheyrilega dýrt, kostar 3-4 sinnum meira en dýrustu heymartæki sem við emm með til sölu í Heymar- og talmeinastöðinni. Það myndi kosta ekki minna en 120 þúsund krónur. Því hefur það ekki verið til sölu hér á landi, allavega ekki enn sem komið er. Það er stór spurning hvort þessi tæki séu í raun svo góð að þau séu þess virði að vera þetta miklu dýrari en önnur heymartæki. Þróunin í framleiðslu á heyrnartækjum er hins vegar á þann veg að þau eru sífellt að verða tölvuvirkari og verða vænt- anlega smám saman altölvustýrð. hleypurbrott Björn Sigurðsson hringdi: Þaö kemur mörgum kunnug- lega fyrir aö þegar stokkað er upp í ráðherraliði annars stjórnar- flokksins um þessar mundir er eins og það sé gert roeð ákveðin sjónarmið í huga. Sjónarmið sem þó em kannski ekki öllum Ijós í dag. - Mér segir svo hugur að bæði ráöherraefni Alþýðuflokks- ins séu valin með tilliti til þess að eiga þar innhlaup fyrir eigin „afrek" ef aírek skyldi kalia. Fyrrverandi þingflokksformaöur tíl að eiga betri samskiptí viö grænfriöunga í hvalveiðimálum. Fyrverandi bæjarstjóri í Hafnar- firði hefur þó miklu meiri hags- muna aö gæta að geta hlaupið brott frá sívaxandi skuldum bæj- arins og óánægju íbúanna meö yfirstandandi framkvæmdir. Dugmikillborg- arfulltrúi Sigríður Bima Björnsdóttir: Eg hef lengi fylgst með einum borgarfulltrúa hér í Reykjavík sem ég tel að vinni af heilum hug að málefnum borgarinnar. Það er Ólína Þorvarðardóttir. Hún tekur alltaf málefnalega afstöðu í þeím málum sem hún kemur nálægt og hjá henni er þaö hagur borgarbúa sjálíra sem hún setur í öndvegi og lætur ekki flokks- sjónarmið ráða ferðinni. Því mið- ur er það of algengt að góðum málum sé fyrirkomið. Ólína er prýðilega máli farin, ritfær og hefur kjark, sem litli maöurinn metur mikils. Kjark- leysi hrjáir of marga fulltrúa og embættismenn en það er helsta einkenni möppudýranna. Ólína er fulltrúi nýrra viðhorfa, hag- sýni og festu í málefnum borg- arbúa. Engirlausir golfvellir Örn hringdi: Það er til fullt af áhugamönnum um golf sem hafa gaman af að bregöa sér þegar færi gefst á völl- inn til að spila nokkrar holur án þess aö borga árgjald. Ég er einn af þeim, en ég tel aö þeir eigi mjög erfitt um vik hér á höfuð- borgarsvæðinu. Alflestar helgar sumarsins eru einhver golfmót i gangi og ekki hægt að komast að. Um síðustu helgi var í gangi golfmót á Nesi, í Grafarholti, Mosfellsbæ, á Bakkakotsvelli í Mosfellsbæ og á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Eini staðurinn þar sem hægt var að bregða sér í golf var við Korpúlfs- staði, en völluriim þar er svo lé- legur að maður nennir varla að spila á honum. Óræktá Arnarhóli Trausti hringdi: Reykjavíkurborg skartar tjöl- mörgum grænum svæðum þar sem borgarbúar geta notíð útí- veru á góðviðrisdögum. Einn af þeim reitum er Arnarhóllinn. Ég átti leið þar framhjá á þriðjudag- inn og varð hverft við þvi að óræktin í túnunum þar er með eindæmum. Við manni blöstu þúsundir túnfífla sem þöktu hvem fermetra á hólnum. Ég skora á borgaryfirvöld að gera eitthvað í málinu. Endursýniðmynd Steinar hringdi: Ríkissjónvarpið sýndi fyrir tæpum mánuði bíómynd sem heitir Inspector Klute og ég missti af. Mér skilst aö þar hafi ég misst af mjög góðri bíómynd og mér þætti því vænt um ef Ríkissjón- varpiö endursýndi þessa mynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.