Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Side 17
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1993 17 Fréttir Sigurður B. Þorsteinsson smitsjúkdómalæknir: Smit af völdum blóðgjaf- anna ekki verið staðf est „Máliö er ekki lengra komið en svo að ekki er búið að staðfesta að einn einasti maður hafi smitast af völdum umræddra blóðgjafa. Það á eftir að gera öll staðfestingarpróf. Þau verða gerð á næstunni og lækni viðkom- andi sjúklinga þá gert viðvart," sagði Sigurður B. Þorsteinsson smitsjúk- dómalæknir við DV. Einstaklingum, sem greinst hafa með mótefni við lifrarbólguveiru C eftir skimun í Blóðbankanum, hefur veriö vísað til Sigurðar. Var lækna- Smituöu blóðgjafamir Gáfu blóð 37 sinnum áður en smit upp* götvaðist Þeir fjórir einstaklingar sem gefið höfðu blóð, smitað lifrarbólguveiru C, og DV greindi frá í vikunni, höfðu gefið 37 blóðeiningar, það er gefið blóð 37 sinnum áður en smitið upp- götvaðist Af þeim 37 einstaklingum, sem þágu blóð úr þessum einstakl- ingum, eru 11 látnir. Munu þeir hafa látist af völdum þess sjúkdóms sem grundvallaði blóðgjöfina. Af þeim 26 sem lifandi eru hefur náðst í 19 tíl rannsóknar. Þar af eru 15 eða 16 sem virðast vera með mót- efni gegn lifrarbólguveiru C. Ekki er endanlega búið að ganga úr skugga um smit þeirra þar sem staðfesting- arpróf hafa enn ekki farið fi*am. Þau verða gerð á næstunnni. Lifrarbóluveira C smitast á sama hátt og eyðni, með kynmökum eða blóðblöndun. í mörgum tilfellum verður hinn smitaði fyrir langvar- andi sýkingu, lifrarbólgu, en tiltölu- lega lítill hluti fær þó virka viðvar- andi lifrarbólgu. Langoftast verður ekki um meiri háttar sýkingu að ræða. Þótt sýkingin sé fyrir hendi þarf hún því ekki að gera viðkom- andi mikið mein en verður engu að síður smitandi ævilangt. -hlh Héraðsdómur: Steramáliðá dagskráí næsta mánuði Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri: Ásgeir Pétur Ásgeirsson, dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra, segir að „steramálið" svokallaða verði dómtekið að nýju í næsta mán- uði en frekari tímasetning liggur ekki fyrir enn sem komið er. Um 35 vaxtarræktar- og lyftinga- menn höfðuðu á sínum tíma mál á hendur Pétri Péturssyni, lækni á Akureyri, vegna ummæla hans um meinta steranotkun þeirra við æfing- ar. Málinu var á sínum tíma vísað frá dómi á Akureyri en Hæstiréttur úrskurðaði að máhð skyldi tekið fyr- ir að nýju í héraðsdómi og dómur kveðinn upp. Ólafur Sigurgeirsson, lögmaður vaxtarræktar- og lyftingamannanna, höfðaði einnig einkamál á hendur Pétri vegna ummæla sem Pétur hafði um lögmannsstörf Ólafs. Ásgeir Pét- ur Ásgeirsson lögmaður segir að það mál verði tekið fyrir um leið og hitt málið á hendur Pétri. nema falið að leita aftur í tímann til að sjá hvort umræddir fjórir ein- staklingar hefðu gefið blóð áður og hvað hefði orðið um þá einstaklinga sem höfðu þegið úr þeim blóð. Sig- urður segir að um athugun á byrjun- arstigi sé að ræða. „Umræddir blóðgjafar, sem DV lýs- ir sem sprautufíklum, eru nýtir þjóð- félagsþegnar. Þeir eru ekki meiri sprautufíklar en hver sem er þó þeir hafi einhvern tíma smitast af lifrar- bólguveiru C. Enginn þeirra hefur komið nálægt sprautum í mörg ár. Þeir voru grunlausir um að þeir Væru smitaðir og gáfu blóð á mjög eðlilegum forsendum. Því er gjör- samlega óviðunandi að stilla þeim upp eins og einhverjum glæpamönn- um. Ef einhver ber ábyrgð í þessu máli þá erum það við eða Blóðbank- inn, að koma því ekki nógu skil- merkilega á framfæri við fólk sem ætlar að gefa blóð að hafi því svo mikið sem dottið í hug að koma ná- lægt sprautunál eigi það ekki að gefa blóð. Spumingar sem blóðgjafar svara í Blóðbankanum hnykkja ekki nægilega á þessu.“ Sigurður ítrekaði að allt frum- kvæði til að hefja skimun vegna lifr- arbólguveiru C hafi komið frá Blóð- bankanum sem eigi allan heiðurinn af því að hún hófst. Sigurður segir nauðsynlegt að halda skimuninni áfram og hugsanlega megi breyta skipulaginu í Blóðbankanum þannig að þeir sem gefa blóð skilji ábyrgð sína betur en núverandi spurninga- Usti tryggir. Sigurður segir að þrátt fyrir alla skimun sé þó almennt full ástæða til að fara varlega með blóðgjöf, fleiri veirur geti þess vegna verið í um- ferð, veirur sem ekki eru þekktar. -hlh Ef einhver ber ábyrgð i þessu máli þá erum það við eða Blóðbankinn, að koma því ekki nógu skilmerkilega á framfæri við fólk sem ættar að gefa blóð að hafi því svo mikið sem dottið í hug að koma nálægt sprautunál eigi það ekki að gefa blóð, segir Sigurður B. Þorsteinsson smitsjúkdóma- læknir. framhal mmmoQítr~ EMIUÖ ESTEVEZ SAMUEL L JACtóON HATIONAt LAM ^^v.^PEMDEMiNC ' DON HOLiiY ■„ ZBM mm 5 ASÍS ENTISTAli _.. ts imm wm \ jonlcmtz w. MSCHEL ROY HÖWARO KtÓN * ERWIN ST» mm«***« smm todð « IMENT CtiRRY KATHY- iRELANO * WLLIAM SHATNER *F ÖON' HÖLICY, TOR! TILILM CENE®SNTANO m REGNBOGiNN Frumsýning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.