Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Side 30
42 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993 Veiðivon Þeir Jón Þ. Jónsson og Sverrir Kristinsson veiddu fyrstu laxana á Munaðar- nessvæðinu. í gærkveldi hafði svæðið gefið 5 laxa en áin öll 35 laxa. DV-mynd Halldór Norðurá: 35 laxar komnir á land „Þetta er engin mokveiði ennþá en þetta er aðeins að glæðast. Síðasta holl veiddi 15 fiska en ekki voru allar stangirnar í gangi,“ sagði Halldór Nikulásson, veiðivörður við Norð- urá, í gærkveldi. „Ein stöngin náði 11 löxum en þeir fengu 6 laxa í beit á Stokkhylsbrotinu á stuttum tíma. Áin er jökulhtuð núna og það er frekar hrollkalt. Það fékkst grálúsugur lax á Brotinu í kvöld. Guðlaugur Bergmann veiddi 13 punda lax í dag, gullfallegan hæng. Á þessari stundu hefur öU áin gefið 35 laxa,“ sagði Halldór í lokin. Þverá í Borgarfirði hefur gefið kring- um 20 laxa en bændadagar hafa ver- ið síðustu daga í ánni og erfitt að gera sér grein fyrir stöðunni. -G.Bender Laxar hafa sést í Laxá í Aðaldal „Það eru bændur við Laxá í Aðal- dal sem opna ána, við höfum séð laxa í ánni,“ sagði Vigfús B. Albertsson á Laxamýri n í gærkvöldi. „Veðurfarið er ágætt héma, 9 gráða hiti 'og suddi. Við segjum ekkert til hvernig veiðin gengur fyrirfram. Við vonum það besta. Laxinn er mættur og við reynum klukkan sjö í fyrra- máUð,“ sagði Vigfús. Laxá í Kjós opnaði í morgun klukk- an 7 en lítið hefur sést af laxi ennþá. Þeir sem opna Laxá í Kjós eru meðal annarra Árni Baldursson, BolU Kristinsson, SkúU Jóhannsson, PáU Magnússon og SigurgísU Pálmason. „Viö erum orðnir spenntir að opna, við sáum þrjá laxa vera að renna sér upp í Kvíslarfossa rétt áðan,“ sagði Árni Baldursson, leigutaki Laxár í Kjós, í gærkvöldi. Elliðárnar opnuðu ekki í morgun eins og þær hafa gert síðustu árin. Það var ákveðið að seinka opnun þeirra þangað til þriðjudaginn 15. júní. -G.Bender Orri Vigfússon veiðir eins oft í Laxá og hann getur á hverju sumri. Hér er hann með erlendum veiðimanni við Æðarfossa. DV-mynd FR Hann Guðmundur Gunnarsson veiddi þennan urriða á spón í Elliða- vatni fyrir fáum dögum. DV-mynd VV EUiðavatn: Stórurriðarnir veiðast vel Þeir hafa veiðst nokkir vænir í EU- iðavatni síðan vatnið var opnað fyrir rúmlega mánuði. 12, 7 og nokkrir 5 punda fiskar hafa gefið sig. Guðmundur Gunnarsson veiddi 5,5 punda urriða á spún fyrir framan bæinn ElUðavatn fyrir fáeinum dög- um. Silungsveiði hefur verið ágæt á flugu í vatninu undanfarna daga í álnum framan við bæinn og reyndar víðar í vatninu. -G.Bender Tilkyimingar Kvenfélagið Freyja Spilar félagsvist að Digranesvegi 12 í dag, fimmtudag, kl. 20.30. Kaffiveitingar og verðlaun. Skemmtun í sérflokki sem ætti að höfða til allra aldurshópa því dagskráin býður upp á mikla breidd í tónlistarflutningi og spannar allt frá léttri klassík upp í dúndrandi rokksveiflu. Flutningur er í höndum þekktra tónlistarmanna. Sýn- ingin verður ekki endurtekin og þvi gefst aðeins þetta eina tækifæri, 12. júní, nk. í Súlnasal Hótels Sögu. Félag eldri borgara í Reykjavík Bridgekeppni, tvímenningur kl. 13. Opið hús kl. 13-17 í Risinu. Pétur Þorsteinsson er til viðtals á þriðjudögum. Panta þarf tíma í síma 28812. Reiki-heilun Opið hús öll fimmtudagskvöld kl. 20 í Bolholti 4, 4. hæð. Velkomnir bæði þeir sem hafa lært reiki og hinir sem vilja fá heUun og kynnast reiki. Ólafur Þórðarson á Hótei Sögu Þann 12. júní nk. gefst tækifæri tU að rifja upp gamlar minningar og taka þátt í dúndurstemmningu meö Ólafi Þórarins- syni - Labba í Mánum og stórhljómsveit- inni Karma í Súlnasal Hótels Sögu. Sýningar Brúðubílsins BrúðubUinn verður á morgun fóstudag kl. 10 í Hvassaleiti og kl. 14 í IðufeUi. Forsýning á fjórum nýjum sjónvarpsmyndum Fullkláraðar hafa verið úórar nýjar sjón- varpsmyndir og verða þær sýndar á Tveimur vinum í kvöld. Jón Tryggvason skrifaði handritin og leikstýrði þremur myndanna, Guðmundur Þórarinsson leikstýrði einni mynd en saman fara Jón og Guðmundur með aðalhlutverkin í Loforð út, svik á mánuði, rest í lögfræð- ing. Hinar myndimar þijár eru Engin miskunn með ÞórhaUi Sigurðssyni, Erlu Rut Harðardóttur og Þresti Leó Gunnars- syni, Sóló með ÞórhalU Sigurðssyni og Glæpahyski með Helga Bjömssyni og Vilborgu Halldórsdóttur. Myndimar em um það bU 25 mínútur að lengd hver. 17. JÚNÍ SÖLUTJÖLD - SÖLUBÚÐIR Álblöðrur fyrir helíum. Álblöðrur með loftí. Blöðrur með íslenska fánanum. Fánar, venjulegar blöðrur o.fl. Einnig sólgleraugu í miklu úrvali á góðu verði. Einar G. Ólafsson hf., heildverslun Arnarbakka 2 - sími 670799. Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum fasteignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Bíldudalshreppur: 1. Sælundur, Bíldudal, þinglýst eign Bjarna Gissurarsonar, eftir kröfu Lífeyr- issjóðs Vestfirðinga, mánudaginn 14. júní 1993 kl. 14.00. Barðastrandarhreppur: 2. Hrefnustöð b á Flókagrund, Brjánslæk II, Barðaströnd, þinglýst eign Þrotabús Flóka hf„ eftir kröfu skiptastjóra þrotabúsins, Þorsteins Einarsson- ar hdl., og Landsbanka Islands, mánudaginn 14. júní 1993 kl. 15.30. Sýslumaðurinn á Patreksfirði 8. júní 1993 Svifflug á Sandskeiði Hjá Svifflugfélagi íslands er nú sumar- starfið hafið í 57. sinn. Kynning og kennsla í svifflugi er á hveiju kvöldi frá kl. 19-22 virka daga og um helgar frá kl. 13-18. Svifflug hefur veriö stundað á Sandskeiði um 57 ára bil við góðan orðs- tír, fjöldi ungs fólks, stúlkna og pilta hef- ur þar lagt grunn að námi í atvinnu- flugi. En svifflug er fyrst og fremst íþrótt. íslandsmót em haldin annað hvert ár. Hefur það verið haldiö á Hellu á Rangár- völlum um áratuga skeið eða síðan 1958. Önnur keppnismót em lendingarkeppni á Melgerðismelum í Eyjafirði og á Sand- skeiði. Svifflugmót kennt við Heklu er á Geitarmel á Rangárvöllum, á Grímsstöð- um á Mýrum hafa verið seinnihluta sum- ars svifflugsmót án þess að um keppni væri að ræða. Allir sem áhuga hafa em hvattir til að kynna sér flugið og starf- semi félagsins á Sandskeiði en þar er veruleg starfsemi. Félagið hefur tíl um- ráða tvær kennsluvélar og mótorsvif- flugu ásamt því að aðrar svifflugur em fimm talsins til afnota fyrir félagsmenn. Fyrirhugað er að halda sérstakt nám- skeið í svifflugi á Sandskeiði og mun það hefjast 14. júni og ljúka 9. júlí. Nánari upplýsingar um verð og tillhögun nám- skeiðsins gefnar í síma 674233. Tombóla Nýlega héldu þessir strákar tombólu til styrktar Rauða krossi íslands og söfnuðu þeir kr. 1.280. Þeir heita Skarphéðinn Jónasson og Halldór Jónasson. A mynd- ina vantar Bjama Margeirsson. Leikhús dv ÞJÓDLEIKHÚSID Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00: KÆRA JELENA eftir Ljúdmílu Razumovskaju. í kvöld, fáein sæti. Ath. aðeins þessi eina sýning fram að leikferð. KJAFTAGANGUR eftir Neil Simon. Lau. 12/6, örtá sæti laus, sun. 13/6, örfá sætl laus. Siðustu sýningar þessa leikárs. MY FAIR LADY söngleikur eftir Lerner og Loeve. Ailra siðasta sýning. Fös. 11/6, nokkur sæti laus. LEIKFERÐ RÍTA GENGUR MENNTA- VEGINN eftir Willy Russel íkvöldkl. 20.30-Ólafsvik. Á morgun kl. 20.30 - Stykkishólmur. Mlðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýnlngardaga. Miða- pantanir frá kl. 10.00 virka daga i síma 11200. Greiðslukortaþj. -Græna linan 996160. LEIKHÚSLÍNAN 991015. Þjóðleikhúsið-góða skemmtun. Fyrirlestur um jóga Indverski jóginn Dada Gunakarananda verður með fyrirlestur um hvernig hug- leiðsla og líkamlegar jógaæfingar geta haft áhrif á líkamann og hvernig jóga getur flýtt fyrir sálrænum og andlegum þroska. Fyrirlesturinn verður í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 að Lindargötu 14. Tónleikar Djasskvöld í Djúpinu Jazztríó Vesturbæjar verður með jazz 1 Djúpinu, Hafnarstræti 15, í kvöld, fimmtudagskvöld. Tríóið skipa: Ómar Einarsson gítar, Stefán Stefánsson á saxófón og Gunnar Hrafnsson á bassa. Þeir félagar hefja leikinn stundvíslega kl. 21. Fjölbreytt dagskrá. Snælandskórinn Kór Kirkjukórasambands Austurlands heldur tónleika í Bústaðakirkju í dag, 10. júní, kl. 20.30. Á efnisskránni eru íslensk dægurlög og þjóðlög. Stjómendur kórsins eru Ágúst Armann Þorláksson og Svavar Sigurðsson en einsöngvari er Ingveldur Hjaltested. Kórinn er skipaður fólki af Austurlandi, allt trá Vopnafirði suður til Djúpavogs. Snælandskórinn er nú á fór- um í hálfsmánaðar söngferð til Tékk- lands og Slóvakíu þar sem hann mun m.a. syngja viö opnunarhátíð á íslenskri viku sem hefst 17. júní í Prag. Formaður Kirkjukórasambands Austurlands er Hermann Guðmundsson, Seyðisfirði. Nýjar bækur Tvíblinda, ný úrvalsbók Úrvalsbókin Tvíblinda eftir David Laing Dawson er komin út. Höfúndurinn er klínískur geðlæknir í Ontario í Kanada. Sögusviöið, sem hann velur bókum sín- um, er úr því umhverfi sem hann gjör- þekkir. Aðalpersóna Tvíblindu er læknir að nafni Snow. Hann er ósköp venjulegur maður en breyskleiki hans er áfengið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.