Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1993, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
17
Niðurskurður eða lántökur hjá Reykjavíkurborg?
110 milljón krónum
lægri bætur frá ríkinu
Borgarsjóöur hefur 110 milljónum
króna minni tekjur en gert var ráö
fyrir samkvæmt fjárhagsáætlun 1993
þar sem aðstöðugjöld á þessu ári
heföu orðið 110 milljónum króna
lægri en í fyrra ef lögin um aðstöðu-
gjöld hefðu haldist óbreytt og sveitar-
félögin haldið áfram að fá þau í kass-
ann. Þetta er um fimm prósenta
tekjusamdráttur ef miðað er við tekj-
ur Reykjavíkurborgar af aðstöðu-
gjöldum en rétt innan við eitt prósent
af öllum tekjum borgarsjóðs. Þetta
segir Jón G. Tómasson borgarritari.
„Við erum búnir að fá niðurstöðu-
tölur sem benda til þess að aðstöðu-
gjaldið hefði orðið 110 milijónum
króna lægra í ár en í fyrra. í okkar
áætlunum reiknuðum við með að
aðstöðugjöldin yrðu óbreytt milh
ára,“ segir Jón.
í fyrra voru aðstöðugjöldin felld
niður sem tekjustofn sveitarfélaga
og tók hið opinbera að sér með lögum
að bæta sveitarfélögum missinn með
því að greiða 80 hundraðshluta af
álögðu aðstöðugjaldi. Hið opinbera
mun því borga Reykjavíkurborg 110
milljónum króna minna í bætur á
þessu ári vegna aðstöðugjaldanna en
áætlað var.
„Það er ljóst að ef tekjur lækka um
110 milljónir þá verða menn annað
tveggja að skera niður eða útvega
peningana með öðrum hætti, sem
heita þá væntanlega lántökur. Ég vil
engu um það spá til hvaða ráða borg-
aryfirvöld grípa, hvort einhveijum
útboðum eða stærri verkrnn verður
frestað eða hvort reynt verður að
halda í horfinu og fá lántökur á
mód,“ segir Jón.
Samkvæmt fiárhagsáætlun þessa
Framkvæmd-
ir að hefjast
við Iðnó
Borgarráð samþykkti í gær að taka
tilboði verktakafyrirtækisins ístaks
hf. upp á 30,5 milljónir króna í fyrsta
áfanga í endurbyggingu Iðnó utan-
húss.
Tilboð ístaks var um 17 prósent um
fram fjárhagsáætlun en samkvæmt
áætlun var gert ráð fyrir að 27 millj-
ónir króna færu í fyrsta áfanga.
Fimm tilboð bárust í verkið og var
Húsafl með hæsta tilboðið en það
nam rúmum 43 milljónum króna.
Framkvæmdir við Iðnó hefjast
fljótlega en fyrirhugað er að hafa í
húsinu menningarstarfsemi af ýmsu
tagi,kaffihúsogfleira. -GHS
ÓlafsQörður:
Skerðingin
togarakvóti
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi;
Nýtt kvótaár tekur gildi 1. septemb-
er og samkvæmt upplýsingum, sem
DV hefur aflað sér, mun kvótaskerð-
ingin hér verða um 1640 tonn. Það
er rúmlega einn togarakvóti og til
samanburðar má geta að eftir skerð-
inguna verður kvóti Sólbergs ÓF
1616 tonn. Þetta er gífurleg skerðing.
Verðmæti kvóta, sem skerðist, er
235 millj. króna á markaðsverði í
dag. Á því kvótaári, sem brátt lýkur,
var kvóti Ólafsfjarðarskipa og báta
11.000 tonn en verður 9.360 tonn á
næsta kvótaári, sem er 15% skerðing.
árs eru tekjur borgarsjóðs 12,2 millj-
arðar. Gert var ráð fyrir að tekjur
borgarinnar vegna aðstöðugjaldsins
yrðu tæplega 2,2 milljarðar króna.
Jón segir að tekjulækkunin vegna
aðstöðugjaldanna hljóti að þýða að
velta fyrirtækjanna í borginni hafi
verið minni 1992 en 1991 þar sem
aðstöðugjöld séu veltuskattur á fyr-
irtæki í borginni, „sem náttúrlega
hlýtur að endurspegla samdrátt,"
segirhann. -GHS
Fréttir
Regína Thorarensen, DV, Gjögri;
Séra Jóm ísleifssyni, þeim mik-
ilhæfa presti, varð aö ósk sinni í
kirkjunni hér í Ámeshreppi sL
sunnudag þegar hann bað himna-
föðurinn um gott veður, því síðan
hefur verið sól og þurrkur hér í
hreppnum.
Bændur hófu þegar slátt og
hafa slegið dag og nótt síðan. Aka
grasþurru heyinu heim i flat-
gryfiumar,
Já, svona eiga prestar að vera
eins og séra Jón.
nandí
Meðþuíaðsniella afá Kodakfilmu
ísumargeturðu unnið úlglœsilegra verðlauna
í Ijósmyndasamkeppni Kodak og
Hvort sem þú ert á ferðalagi
innanlands eða erlendis skaltu
setja Kodakfilmu í myndavélina
og gera þannig góðar minningar
að varanlegri eign. Veldu síðan
bestu sumarmyndina þína og
sendu til DV, Þverholti 11 í
Reykjavík, fyrir 15. september í
haust.
'4,,:;
Myndval: Mjódd.
Hafnarfjörður:
Filmur og Framköllun.
Keflavík: Hljómval.
Akranes: Bókaverslun
Andrésar Níelssonar.
ísafjörður: Bókaverslun
Jónasar Tómassonar.
Aðalverðlaun: fyrir bestu
innsendu sumarmyndina á
Kodakfilmu.
★ Canon EOS-IOO Ijósmyndavél,
að verðmæti 70.000 kr.
Önnur verðlaun: fyrir þrjár
bestu sumarmyndirnar á
Kodakfilmu frá ferðalagi erlendis
og þrjár bestu sumarmyndirnar frá
ferðalagi innanlands
★ 3 ferðir innanlands fyrir 2
í áætlunarflugi Flugleiða og
gisting á hóteli í 2 nætur og
★ 3 flugmiðar fyrir 2 í áætlunar-
flug Flugleiða til útlanda, 2 til
Evrópu og 1 til Bandaríkjanna.
Sérstök unglingaverðlaun:
fyrir fjórar skemmtilegustu
myndirnar á Kodakfilmu hjá
15 ára og yngri.
★ Canon Prima 5 Ijósmyndavél.
Skilafrestur er til
15. september 1993.
Myndum ber að skila til
DV, Þverholti 11.
• **•••*■* e s a e
Tryggðu þér litríkar ogskarpar
minningar með Kodak Express
gœðaframköllun.
Höfuðborgarsvæðið:
Verslanir Hans Petersen hf:
Austurveri, Bankastræti, Glæsibæ,
Grafarvogi, Hamraborg (Kópavogi),
Hólagarði, Kringlunni,
Laugavegi 1 78, Lynghálsi
og Skeifunni.
Tokyo: Hlemmi.
Myndhraði: Eiðistorgi.
Ferðastmeð
Flugleiðum innanlands
Sauðárkrókur: Bókaverslun
Brynjars.
Akureyri: Pedrómyndir.
Egilsstaðir: Hraðmynd.
Selfoss: Vöruhús K.Á.
Stœkkuð Ijósmynd gefur meira.
Kynntu þér möguleikana á
stækkun hjá Kodak Express.
Kodak
GÆÐA FRAMKOLLUN
Gott verð Kodak gæði Þinn hagur