Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1993, Side 36
Frjálst,óháð dagblað
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993.
Hótelræning-
inn gekk laus
á skilorði
Maðurinn, sem lögreglan í Reykja-
vik handtók í fyrrinótt grunaöan um
ránið í Hótel Reykjavík síðdegis á
mánudag, játaði við yflrheyrslur
Rannsóknarlögreglu að hafa framið
ránið og verið einn á ferð.
Maðurinn, sem er 29 ára Reykvík-
ingur, rændi um 300 þúsund krónum
og hafði hann eytt nær ölium pening-
unum þegar hann var handtekinn á
veitingastaðnum Kjallara keisarans
en hafði í fórum sínum ferðatékka
sem honum tókst ekki að innleysa.
Hami hefur einu sinni áður komið
við sögu rannsóknarlögreglu og
, hiaut dóm árið 1991 fyrir nauðgun.
Fyrir þaö brot fékk hann tveggja ára
dóm og var búinn að afplána stóran
hluta af honum en var látinn laus í
sumar til reynslu skilorðsbundið. -pp
Gagnrýninni vís-
aðábug
Fjármálaráðuneytið hefur svarað
tveimur bréfum Verslunarráðs þar
sem sett var fram gagnrýni á eftir-
' _j> litsátak skatteftirhtsins. Þar vísar
ráðuneytið á bug ásökunum um smá-
smygli og geðþóttaákvarðanir skatt-
eftirlitsmanna við framkvæmd
skatteftirUts. Af 1500 fyrirtækjum og
einnstakUngum með rekstur, sem
skoðuð voru frá í júní, voru breyting-
ar á tekjuskattsstofninum nauðsyn-
legar hjá 386. AUs námu breytingam-
ar að fjárhæð um 388 miUjónir.
Fjármálaráðuneytið tekur þó undir
hluta gagnrýni Verslunarráðs. Það
lýsir sig jafnframt tilbúið tU samráðs
við það tU að skatteftirUt megi ná
tUgangi sínum. -DBE
Bakvaktirkeyptar
meðþágufalli
„Það vUdu ekki alUr skrifa undir
þennan samning og aðrir skrifuðu
undir tU þess að halda friðinn. Að-
eins tveir treystu sér ekki tU þess að
kaupa bakvaktirnar þessu verði.
Veðurfræðingarnir fá greitt fyrir
bakvaktir og þurftu ekki aö fóma
neinu fyrir þær,“ segir Guðrún Halla
Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður
veðurfræðings.
Aðstoðarmenn veðurfræðinga, að
undanskUdum tveimur, hafa faUist á
kröfu Páls Bergþórssonar veður-
stofustjóra að lesa veðurlýsingarnar
í þágufaUi á móti þvi að fá greitt fyr-
ir bakvaktir. Hefð var fyrir því að
lesa veðurlýsingarnar í nefnifalh. Að
sögn Guörúnar Höllu stríðir þetta
gegn málkennd aðstoðarmannanna.
-em
LOKI
Veikjastmenn nú ekki
af þágufallssýki?
fundið útihús við
Arnarhólsbæ
„Við erum komin að húsi héma.
Þetta er greinilega mannvirki og
er svona að spretta upp. Við erum
örugg á því að þetta er hús. Þetta
er þó ekki mannabústaöur heldur
hleðslur af útihúsi. Hvernig útihús
á eftir að koma í ljós. Þetta hefur
vertð rifið á sínum tíma og síðan ;
skiUö efUr,“ sagði Ragnar Edvard-
son fornleUáfræðingur í samtali
við DV.
Fornleifafræðingar á vegum Ár-
bæjarsafns hafa i sumar unnið að
uppgreftri samhhða framkvæmd-
um Reykjavíkurborgar við Amar-
hól. Á „háhólnum“, á svipuðum
stað og stytta Ingólfs Arnarsonar
hefur staðíð, hafa komiö í Ijós rúst-
ir sem Ragnar telur vera af útihúsi
í tengslum við Arnarhólsbæ sem
riflnn var árið 1828.
„Þetta er örugglega i tengslum
við gamla bæinn en gæti bæði ver-
ið eldra eða yngra. Við erum búin
að finna nokkra muni - vaðstein
sem notaður var sem sökka á net,
kritarpípuhausa, beltissylgju og
tleira," sagði Ragnar.
Stefnt er að því að fomleifafræð-
mgar ijúki störfum við Amarhól
þann 17. ágúst. Öðmm fram-
kvæmdum við Arnarhól mun einn-
ig ljúka í ágúst. Allar hleðslur, sem
fornleifafræðingarnir hafa fundið,
verða skráöar nákvæmlega og
teiknaðar upp en ekki verður hald-
ið upp á steinana. Allir munir, sem
finnast, verða hins vegar færðir til
varðveislu á Árbæjarsafiú. -Ótt
Ragnar Edvardson fornleifafræðingur með vaðstein sem fannst í Arnarhólnum.
DV-mynd BG
Veðriðámorgun:
Sunnan-
kaldi og
rigning
Á morgun verður sunnankaldi
og rigning um landið suöaustan-
vert en suðlæg gola eða kaldi og
skúrir í öðrum landshlutum. Vest-
anlands verður þó úrkomulítið er
líður á daginn. Hiti verður 9-14 stig.
Veðrið í dag er á bls. 44.
Davíð Oddsson:
Engar hótanir
settarfram
„Starfandi utanríkisráðherra
Bandarikjanna gerði grein fyrir því
að Bandaríkjamenn hefðu lýst yfir
andstöðu við hvalveiðar en lagði
jafnframt áherslu á að þeir vonuðust
til að sú afstaða þeirra hefði ekki
slæm áhrif á samskipti og samstarf
þjóðanna. Þannig að það vom engar
hótanir settar fram af hálfu Banda-
ríkjamanna," segir Davíð Oddsson
forsætisráðherra.
Davíð hitti starfandi utanríkisráð-
herra og varaforseta Bandaríkjanna
í Washington í gær eftir ferðalag til
Manitóba í Kanada. í viðræðunum
bar einkum á góma samstarfið í
Nato, framtíð Atlantshafsbandalags-
ins og starfsemi herstöðvarinnar í
Keflavík og breytingarnar þar vegna
breyttra öryggismála í veröldinni. í
viðræðum ráðamannanna kom fram
nauðsyn þess að náið samstarf yrði
milli íslendinga og Bandaríkja-
manna varðandi breytingar í Kefla-
vík. -GHS
Hreinsað úr
bíl ferðalanga
„Ég hélt bara að svona lagað gerð-
ist ekki á íslandi," sagði María Jóns-
dóttir í samtali við DV í gær. Brotist
var inn í bíl Maríu og fjölskyldu
hennar og hreinlega hreinsað úr
bílnum.
Bíllinn er af Mitsubishi Spacewag-
on gerð og segist María, sem er frá
Akureyri, hafa verið á ferð í Reykja-
vík þegar brotist var inn í bílinn við
Óðinstorg einhvern tímann frá
klukkan tvö til fimm síðdegis á
þriðjudag. Stohð var ferðatöskum,
myndavélatösku með myndavél og
hnsum og tösku með blautum sund-
fatnaði og plastpoka með fatnaði.
María segist þess fullviss að hún
hafi læst bílnum og því hafi hún ekki
tekið eftir að farangurinn vantaði
fyrr en hún lagði af stað norður.
María biður alla þá sem geta gefið
upplýsingar um þjófnaðinn að hafa
sambandviðlögreglu. -pp
Hjartaþegi lést
íSvíþjóð
Aslaug Þorsteinsdóttir, 17 ára
hjarta- og lungnasjúkhngur úr Kópa-
vogi, lést í Sahlgrenska sjúkrahúsinu
í Gautaborg 2. ágúst síðasthðinn.
Áslaug fór ásamt Hróðmari Helga-
syni bamahjartasérfræðingi til Sví-
þjóðar í júh til að gangast undir
hjarta- og lungnaskiptaaðgerð í
Gautaborg. -GHS
TVOFALDUR1. vinningur
ÖFenner 4
Reimar og reimskífur
SuSurtandsbraut 10. S. 680499.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.