Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Page 5
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1993 5 PV Fréttir Brottrekstur af Heijólfi: Alvarlegtef verkfalliðorsak- aði brottrekstur í DV í gær var greint frá uppsögn Jónasar Ragnarssonar, stýrimanns á Herjólfi. Blaðið hefur ekki ennþá fengið haldgóða skýringu á uppsögn stýrimannsins og ennþá hefur ekki náðst í framkvæmdastjóra Heijólfs, Magnús Jónasson, en hann er í fríi. Benedikt Valsson, framkvæmda- stjóri Farmanna- og flskimannasam- bandsins, var í gær spurður hvort Farmanna- og fiskimannasambandið hygðist beita sér eitthvað í málinu. „Auðvitað er mjög alvarlegt þegar forystumenn launþegasamtaka eru reknir. Ef ástæðan fyrir brottrekstr- inum er þátttaka hans í verkfallinu er það alvarlegt mál. Við munum ekki gera neitt nema ef beiðni frá Stýrimannafélaginu herst. Við höf- um ekki fengið slíka beiðni. “ -em Reglugerð á „vaskinn“: Blöðin borin út en rukkað samt Fjármálaráðuneytið gaf í gær út reglugerð um innheimtu virðisauka- skatts á erlend blöð og tímarit í áskrift. Áskrifendur munu eins og áður fá hlöðin sín send heim en munu engu að síður þurfa að koma á pósthúsin og greiða skattinn þar. Samkvæmt reglugerðinni verður áskrifendum gert kleift að gera upp virðisaukaskattinn fyrir allt áskrift- artímabihð. Eiga þeir að framvísa tilskildum gögnum og inna af hendi greiðslu innan mánaðar frá því að áskrift er greidd. Vegna áskriftar sem hófst fyrir 1. júlí 1993 er frestur til að gera skil til 1. nóvember 1993. Pósturinn mun áfram bera út blöðin án þess að krefjast greiðslu hverju sinni. Með skipulegum athugunum verður kannað hvort áskrifendur hafa staðið í skilum. Reynist ekki vera svo verður skatturinn innheimtur og heimilt er að stöðva afhendingu þar til skil hafa verið gerð. -bj b Nýútkomið niðjatal: Proppéættin Proppéættin á íslandi er heiti á riti sem nýkomið er út. í ritinu er ann- ars vegar niðjatal Proppéættarinnar á íslandi en hins vegar ýmis fróðleik- ur um uppruna ættarinnar. Ættar- mót Proppéættarinnar verðin- haldið 28. desember og í því tilefni er ritið geflð út. Proppéættin á íslandi er öll afkom- endur Helgu Jónsdóttur Proppé frá Gijóteyri í Kjós og Claus Eggerts Dietrichs Proppé, bakarameistara í Hafnarfirði. Claus var fæddur í Neu- munster, Holstein í Þýskalandi árið 1839. Hann flutti til íslands áriö 1867 og stofnaði Havnefjords-bageri, oft- ast nefnt Proppé-bakarí árið 1875. Claus rak bakaríið til dauðadags, árið 1898 en Helga tók við rekstrinum fram til 1904. Þau hjónin eignuöust 7 hörn sem aUt Proppéfólkið hérlendis er komið af. Ritið Proppéættin á íslandi er 52 bls. í tímaritsbroti. Ábyrgðarmenn þess eru Fríða Proppé blaðamaður ogprófessorÓlafurProppé. -ÍS LHið f iskirí og engin ber Regína Thorarensen, DV, Gjögri: Fiskirí hefur verið Utið hjá triUu- körlum hér í Árneshreppi í sumar enda veðráttan mislynd og oft slæm. Það eru borgaðar 58 krónur fyrir kílóið af fiski hjá Gunnsteini Gísla- syni í Norðurfirði. Lýður HaUberts- son,Djúpuvík,borgar 60 krónur fyrir kUó af þorski og aUt er þetta hand- færafiskur. Engin ber verða tínd hér í hreppn- um nú því hvergi sjást grænjaxlar vegna kuldans. Hér áður fyrr var aðra sögu að segja því þá var mikið beijaland í hreppnum. ÞAÐ ER BJART YFIR... Nissan síbreytiskipting (N.CVT) Háþróuð sjálfskipting N.CVT Háþróuð Nissan sjálfskipting meö tölvustýrðri kúplingu, sem gefur mjúkt þrepalaust viðbragð. Býður uppá einstaka sparneytni og fyrirhafnarlausan akstur. ..NYJA BILNUM FRA NISSAN ÞETTA ER AUÐVITAÐ BÍLL ÁRSINS 1993, GLÆIMÝR OG SPRÆKUR STÚRSÝNING UM HELGINA FRÁ KL. 14-17 VERIÐ UELKOMIN. Ingvar Helgason hf. Sævarhöfði 2,112 Reykjavík Sími674000 VERÐ AÐEINS 855.000.- KR. STGR. Fólk með viti les smáa letrið og notar öryggisbeltin alltaf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.