Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 Kvikmyndir Hér er Denni dæmalausi að angra Mr. Wilson. Denni dæma- lausi Það virðist vera nóg um myndir þessa dagana sem eiga að höfða til yngri kyn- slóðarinnar. Flestar eru þær aö vísu gerðar fyrir eldri hluta ungu kynslóðar- innar, eins og Jurassic Park, Super Mario Bros og Hot Shots 2, en einnig má finna margar góðar myndir fyrir yngstu áhorf- endurna. Þar má nefna Snow White, sem enn einu sinni er komin á hvíta tjaldið vestan hafs, og svo nýju myndina um hann Denna dæmalausa, Dennis the Menace. Eins og svo margar bamamynd- ir er myndin um Denna dæmalausa byggð á samnefndri teiknimyndaseríu eftir Hank Ketcham. Þannig hafa einnig verið gerðar kvikmyndir eftir teikni- myndapersónum eins og Superman, Bat- man og svo tölvuleikjabræðrunum Mario og Lurgi. Raunar er þetta ekki fyrsta kvikmyndin sem gerö er um Denna dæmalausa. Árið 1987 var gerð sjón- varpsmynd um þennan prakkara sem hlaut litla eftirtekt. Þaö var líka gerð sjónvarpsþáttaröð um Denna upp úr 1960 sem sýnd var í fjögur ár við miklar vin- sældir ungu kynslóöarinnar. Framleið- endur Dennis the Menace ætla einnig að fylgja eftir myndinni með nýrri teikni- myndasyrpu sem verður frumsýnd hjá CBS sjónvarpsstöðinni í haust. Mikið lagtundir En í þetta sinn hefur verið lagt miklu meira undir. John Hughes er framleið- andi og handritshöfundur myndarinnar en hann er þekktur fyrir barna- og ungl- ingamyndir, eins og Curly Sue. John Hughes var einnig framleiðandi og skrif- aði handritiö að Home Alone n þannig að líklegt má telja aö hann hafi ætlað sér að endurtaka sigurgöngu Home Alone myndarinnar með sögunni um Denna dæmalausa. En hefur honum tekist þaö? Kannski ekki alveg en ef aðsóknartölur eru skoðaðar getur hann ekki veriö ann- að en ánægður. Myndin er talin of vitlaus á köflum til að höfða til eldri kynslóðar- innar en yngri kynslóðin virðist skemmta sér hið besta. Það er ekki síst vegna þeirra leikara sem fara meö hlut- verk hins 5 ára gamla prakkara, Dennis Mitchell, og svo Mr. WÚson, nágrannans sem Dennis virðist í sífellu vera aö angra. Þetta eru leikaramir Mason Gamble og sjálf gamla kempan Walter Matthau. Röð af bröndurum Svo virðist sem John Hughes hafi skoð- að flestallar teiknimyndaseríumar sem Umsjón Baldur Hjaltason Ketcham gerði og tekiö bestu hugmynd- imar og skeytt saman í bíómynd. Þetta hefur bæði kosti og galla í fór með sér. Myndin verður klisjukenndari og sam- anstendur af miklum fjölda prakkara- strika og bröndurum sem eru misfyndnir eins og gefur að skilja. Þetta leiðir til þess að það er enginn raunverulegur efn- isþráður. Hins vegar em inn á milli góð- ir kaflar, ekki síst hjá Walter Matthau, sem virðist hafa notað öll þau svipbrigði og látbragð sem hægt er að hugsa sér hjá einum leikara til aö tjá sig gagnvart Dennis og brellum hans. Myndin hefst á því þegar Dennis er að angra nágranna sinn Mr. Wilson, þar sem hann liggur í rúminu, með því að reyna að skjóta upp í hann verkjatöflu með teygjubyssu. Hann fær áminningu frá foreldrum sínum (sem em leikin af Lea Thompson og Robert Stanton) um að láta Mr. Wilson í friði en það stendur ekki lengi yflr. Viö fáum að fylgjast með Dennis þegar hann er aö ryksuga upp málningu, sem endar síðan ofan á ham- borgara hjá Mr. Wilson, hvemig hann fer með fölsku tennumar hjá Mr. Wilson þegar hann blandar uppþvottalegi í munnskolvatniö og hvemig honum tekst að hleypa öllu upp í loft í garðveislu sem haldin er hjá Mr. Wilson, svo að eitthvað sé nefnt. Þessi lýsing ætti að gefa lesend- um hugmynd um efni myndarinnar. Bamarærýngi En John Hughes reynir einnig að skapa spennu í myndinni með því að bæta inn í söguþráðinn skrítnum persónuleika sem kallast Vasahnífa-Sam. Eftir aö áhorfendur hafa séð hann ráfa um borg- ina ákveður Sam að ræna Denna dæma- lausa. En hann veit ekki hvem hann á í höggi viö og í lokin stendur Denni dæma- lausi uppi sem hetja í augum borgarbúa og góði strákurinn. Þessi hluti myndar- innar minnir óneitanlega dálítið á sögu- þráðinn í Home Alone þar sem strákur- inn átti í útistöðum við innbrotsþjófa en í þessu tilviki er vondi kallinn mannræn- ingi. Þetta tilbrigði í söguþræðinum gefur leikstjóranum og handritshöfundinum gott tækifæri til að setja inn í myndina mörg skemmtileg atriöi þegar Dennis glímir við vascihnífa Sam meö öllum sín- um klækjum og prakkarastrikum. Þótt Dennis the Menace verði ekki ein af vinsælustu myndum ársins hefur hún hlotið góðar viðtökur vestanhafs og á án efa eftir að skemmta íslenskum ung- mennum í náinni framtíð. Andvaka Seattle Á hverju sumri koma kvenna hafa samband og fram á sjónarsviðið kvik- bjóðast til að ftjálpa Sam að myndir sem láta lítið yfir komastyfir sorginaogtóm- sér.ennásíðanmiklumvin- leikann. sældum vepia jákvæðs um tals frá þeim sem hafa séð „.„j þær. Þessar myndir eru oft Samtelld mynd kallaðar „svefnpurkur" Meðal þeirra sem voru að vegna þess hve langan tíma hlusta á þáttinn er Annie tekur fyrir þær að ná vin- (Meg Ryan). Hún er blaða- sældum, en þegar upp er maður og er nýlega búin að staðið eru þær meðal vin- opinbera trúlofun sína við sælustu mynda ársins. Gott ákaflega jarðbundinn og dæmi um þetta var Pretty órómantískan mann aö Woman sem enginn bjóst nafni Walter (Bill Pullman). við að næði þvílíkum vin- Þessi þáttur fær Annie til sældumsemraunbarvitni. að hugsa að hennar bíði Nú virðist í uppsighngu ekki sérstaklega spennandi önnur svefhpurka, eða lífíhjónabandinu.Húnlæt- Sleepless in Seattle. Þetta er ur efasemdir sínar í ljós við mynd sem leikstýrt er af vinnufélaga sem endar með Nora Ephron, sem einnig að mikil spenna og pirring- skrifaði handritið. Nora ur kemst í samband hennar varð þekkt á einni nóttu á viö Walter. Áhorfendur geta sínum tíma fyrir hina róm- síðan lagt saman tvo og tvo antísku og gamansömu og útkoman hlýtur að vera mynd When Harry Met á einn vpg. Sally, Nú hefúr hún ákveðið Sleepless in Seattle er af- að fara inn á sömu braut og skaplega samfelid mynd og hefur fengið til liðs við sig ætti að höfða til allra sem leikarana Tom Hanks og hafa gaman af rómantík Meg Ryan. meö gamansömu jvafi og eru orðnir leiöir á hörkutól- , , . um eins og Arnold Schwarz- Romantísk enegger og Sylvester Stall- mvnrl one 603 ri536050111- Leik- myilu stjórinn hefur einnig bætt Söguþráðurinn er klass- inn í myndina nokkrum at- ískur. Sam (Tom Hanks) er riðum úr rayndinni An ekkill sem enn syrgir konu Affair to Remember (1957) sína, sem áhorfendur fa að með þeim Cary Grand og Sjá þegar leikstjórinn Deborah Kerr í aðalhlut- skyggnist í einu myndsviö- verkum. Þessi tilvitnun í inu aftur til fortiðarinnar. gamla rómantíska mynd Sonur Sam ákveður eitt undirstrikar áhuga leik- kvöld að hringja í útvarps- stjórans á að vekja aftur til stöö, þar sem hlustendur virðingar myndir sem geta komið á framfæri skoð- byggjast hvorki á ofbeldi né unum sínum, sorgum og vélmennum og láta áhorf- sigrum. Hann segir hlust- endur yfirgefa kvikmynda- endum frá því að faöir hans húsin hrærða í hjarta og búi enn í sorg og eina leiðin svolítið rómantiskari held- til að hjálpa honum sé að urenáöur.Svovirðisteinn- hann giftist aftur. Sam fellst ig sem áhorfendur vilji sjá á að ræða við stjórnanda þessar myndirþví Sleepless þáttarins og fyrr en varir er in Seattle hefur fengið af- hann búinn að senda út á skaplega góðar viðtökur og öidum Ijósvakans sálarstríð gengurvelþótthúnhafifar- sitt og áhyggjur. Þetta hefur iö hægt af staö. þau áhrif að þúsundir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.