Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 Sviðsljós 17 Richard Gere er 43ja ára og ennþá þykir hann meöal kynþokkafyllstu karla I Hollywood. Hjartaknúsarinn Richard Gere: Fer eftir ströng- ustu reglum búddatrúarinnar Eiginkona Richards, Cindy Crawford, vill eignast barn en eiginmaðurinn er ekki sammála um það. Leikarinn Richard Gere segist hafa átt erfitt með að sætta sig við frægð sína fyrst eftir að hann náði heimsfrægð. Honum þótti óþægi- legt að konur horfðu á eftir sér. Eða þegar menn stoppuðu hann á götu og vildu spjalla. „Ég hef aldrei vilj- að vera kyntröll," segir hann. „Reyndar þykir konu minni ég vera ósköp venjulegur," heldur hann áfram. Sem frægt er orðið kvæntist Richard, sem er 43ja ára gamaU, fyrirsætunni frægu, Cindy Crawford. Richard Gere varð fyrst frægur í kvikmyndinni American Gigolo árið 1980. Hann hafði gaman af að hneyksla fólk og þá sérstaklega blaðamenn. Um það leyti sem hann varð frægur fékk hann oft þá spurningu hver væri leyndardóm- urinn á bak við það að vera svo kynþokkafullur. Hann reif niður buxurnar og benti á ákveðinn lík- amspart. „Þetta,“ svaraði hann til að hneyksla blaðamanninn. Þegar minnst er á þetta atvik nú brosir hann og svarar að hann hafi verið orðinn svo hræðilega leiöur á þess- ari spurningu. Þótt Richard Gere hafi elst tals- vert síðan þetta var þykir hann enn vera meðal kynþokkafyllstu karla- manna í Hollywood. Hann þótti t.d. mikill sjarmör í kvikmyndinni Pretty Woman. „Ég hef aldrei verið á móti því að leika í rúmsenum," segir leikarinn sem hefur sýnt sig nakinn oftar en einu sinni í kvik- myndum. „Verst er að þegar maður hefur leikið í slíkum atriðum hefur maður ekki orku í meira þegar heim kemur," segir hann. „Þá vill maður bara fara að sofa enda byrj- ar vinnudagurinn venjulega klukkan fimm á morgnana." Cindy og Richard kynntust í veislu hjá Elton John árið 1988. Hún er sextán árum yngri en leik- arinn en ekki vill hann viðurkenna að það hafi verið ást viö fyrstu. sýn. „Þetta var bara smáskot fyrst,“ segir hann. „En þegar við ákváðum í desember 1991 að gifta okkur þá gerðum við það sama dag. Við vildum ekki að fjölmiðlar yrðu á eftir okkur og þess vegna ákváðum við þetta í skyndingu. Við giftum okkur í Las Vegas og það var hálfskrýtið að Cindy væri ekki hvít brúður því hún hefur svo margoft sýnt brúðarkjóla sem fyr- irsæta.“ Richard Gere hefur lengi verið búddatrúar. Hann drekkur ekki áfengi og er grænmetisæta. Hann fer eftir ströngustu reglum trúar- innar. Það getur verið erfitt að halda sér á stjörnuhimninum og það hefur Richard fengið að reyna. Nafn hans var að dala rétt áður en •hann fékk hlutverkið í Pretty Wo- man. „Ég velti oft fyrir mér að hætta kvikmyndaleik," segir hann. „Ég var ekki nógu sniðugur að velja mér réttu kvikmyndirnar. Tveimur vinsælustu kvikmyndun- um, sem ég lék í, ætlaði ég að hafna. Það var umboðsmaður minn sem skipaði mér á að taka hlutverkið í Pretty Woman." Richard Gere hefur nóg að gera um þessar mundir og hefur skotist upp á stjörnuhimininn á nýjan leik. Hann og Cindy eiga íbúð í New York, hús við ströndina í Malibu og hús í sveitinni fyrir utan New York. Cindy langar að eignast barn en Richard Gere er ekkert sérstak- lega hrifinn af því að verða pabbi og vill helst sleppa því að umgang- ast vælandi böm. Vertu með -draumurinn gæti orðið að veruleika
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.