Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 Trimm Ráðleggingar Sigurðar P. Sigmundssonar fyrir hlaupið á morgun: Hafið ekki oftrú á blönduðum drykkjum -■vatn oftbetri valkostur, minni hætta á hlaupasting Útbúnaður Skórnir ættu ekki aö vera of gaml- ir eða of nýir. Þiö ættuö að hafa hlaupið yfir 20 km í þeim a.m.k. einu sinni því að skór sem fara vel í 8-10 km gera það ekki alltaf í maraþon- hlaupi. Sokkar ættu að vera úr bóm- ull, nylonsokkar hitna oft mikið og geta orsakað blöðrur. Bolur og buxur mega ekki vera of þröng. Berið vasel- ín eða aöra feiti á þá staði sem verða fyrir núningi, s.s. nára, geirvörtur og handarkrika. Athugið að tvíbinda skóreimar. Hlaupa- dagurinn Hraði Eftir að hafa hitað upp með léttu skokki og teygjum í a.m.k. 15-20 mín. Betra er að stoppa alveg þegar drukkið er. standiö þá á ráslínunni. Þeir sem eru að keppa í fyrsta sinn á vegalengd- inni ættu að fara rólega af stað og freista þess aö vinna sig upp síðar. Þeir sem eru reyndari eiga auðveld- ara með að skipuleggja hraða sinn. Umfram allt: farið af stað með ákveðna áætlun í huga. Drykkir í 10-15 C ° hita þarf ekki að drekka mikið, þó er það einstaklingsbundið. Meginreglan er sú að drekka frekar VOLVO 850 1 DAGUR TILSTEFNU - stattu þig! Styrktaraðili Reykjav íkurmaraþons Sigurður P. Sigmundsson. oft en lítið í einu. Byrjið ekki of seint og hafið ekki oftrú á blönduðum drykkjum, vatn er oft betri valkost- ur, t.d. minni hætta á hlaupasting. Oft er betra að nema staðar heldur en að reyna að drekka á hlaupum. Það er tilvalið að birgja sig upp af kolvetnum og mæta í pastaveisluna sem að þessu sinni verður haldin í stóru tjaldi á Þórsplaninu við hliðina á Alþingishúsinu í dag. Fólk getur þá slegið tvær flugur í einu höggi, sótt keppnisgögnin sín í Ráðhúsinu og farið síðan í pastamálsverð á Þórs- planinu. Afhending keppnisgagna hefst kl. 11 og stendur til kl. 17 og pastamálsveröurinn stendur frá 15-19. Það eru allra síðustu forvöð að skrá sig í dag í Reykjavíkur- Maraþonið og verður fólk þá að gera það í Ráðhúsinu, sagðí Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkur-Maraþons og íslands- methafi í hálfu og heilu maraþoni en búist er viö metþátttöku á morgun í hlaupinu. Fyrir hlaup Mataræði Daginn fyrir hlaup ætti alls ekki að borða kjöt og varast skyldi að borða sig pakksaddan. Létt spag- hettimáltíð hentar best. Þar sem hlaupið er í ár kl. 11 ætti morgunmat- urinn ekki að vera seinna en kl. 8. Ristað brauð með sultu eða marmel- aði hentar vel ásamt tei. Varist að borða súkkulaöi rétt fyrir hlaup - það raskar jafnvægi blóðsykursins. Leiðin Verið klár á hlaupaleiðinni þannig að þið getið áttað ykkur á hvar erfið- astí hluti leiðarinnar er og hvar vind- ur mun reynast mestur. Eftir hlaupið Aðstaða við mark Notið ykkur þá aðstoð sem veitt er. Fáið ykkur drykk eða súpu, setjiö teppi utan ykkur meðan þiö leitið að utanyfirfötum. Umfram allt haldið ykkur á hreyfingu. Æfingar aftur Maður verður aldrei jafn stífur og eftir maraþonhlaup en ekki má taka slíkt of nærri sér. Að sjálfsögðu nær fólk sér fyrr eftir hálfmaraþon. Mikilvægt er að að reyna að skokka eða ganga 2-3 km strax daginn eftir og 4-5 km næsta dag á grasi. Með því hreinsast úrgangsefnin fyrr úr lík- amanum og strengir linast fyrr. Síð- an er gott aö taka hvíldardag. Farið ekki of geyst aö byggja upp aftur. Ráðlegt er að taka 2 vikur mjög léttar eftir maraþonhlaup. Maraþon- hlaupið íslandsmót Reykjavíkur-Maraþonhlaupið er jafnframt íslandsmót og ís- landsmeistaratitill er þannig í boði fyrir fyrsta karl og konu. Undanfarin ár hefur ekki orðið nein innbyrðis keppni milh ís- lendinga þar sem okkar bestu hlauparar hafa yfirleitt ekki tekið þátt í fullu maraþoni. Jóhann Heiðar Jóhannsson varð eftir- minnilega íslandsmeistari í hitti- fyrra, þá 46 ára gamall, og er til alls líklegur þetta árið. Þá er lík- legt að Jóhann Ingibergsson, Sig- hvatur Dýri Guðmundsson og Eymundur Matthíasson muni veita Jóhanni harða keppni. í kvennaflokki er það Anna Cosser sem líkleg er til afreka en í fyrra setti hún íslandsmet í maraþon- hlaupi kvenna og er líkleg til að bæta það verulega þar sem hún er í mjög góðri æfingu að sögn. Broslegt Eins og margir vita byggist vel- gengni Reykjavíkur-Maraþons meðal annars á velvilja margra styrktaraðila. Eitt af hlutverkum framkvæmdastjóra er að semja við styrktaraðila og fer oft mikill tími í þann erindrekstur. Árið 1990, þegar undirritaður var framkvæmdastjóri, hafði lítið gengið í öflun styrktaraðila í byrj- un. í einhverju bríaríi ákvað ég að fara á skrifstofu Hitaveitu Reykjavíkur og ná tali af hita- veitustjóra og spyrja hann hvort þeir væru ekki tilbúnir að styrkja okkur. Hitaveitustjóri varð alveg dolfallinn enda hafði enginn ver- ið svo bíræfmn að leita þangað um styrk. Þótti honum þetta ærið skondið og ákvað að styrkja sjálf- ur hlaupið með 10.000 kr. styrk úr eigin vasa. Það er því betra að hafa ráð undir hverju rifi þegar staðiðer ífjáröflun. -J.B.H. Trimla Nú skunda þú út og skokk og sönglaðu gamalt rokk það er árshátíö eða svona hávertíð fyrir hlaupara sem erí sokk. J.B.H.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.