Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993
45
Við skoðun hjá heimilislækni hafði komið í Ijós að Oddsteinn hafði mörg önnur einkenni, s.s. höfuðverk,
óskiljanlega óttakennd, einkennilega matarlyst sem kom og fór og óljósan þyngslaverk neðarlega í kviðnum.
Ófrískur
karlmaður
Einn vordag í hríðarmuggu kom
Oddsteinn Klettan jámsmiður til
tannlæknis. Oddsteinn varþekktur
tugþrautarmaður á miðjum fer-
tugsaldri sem í æsku hafði leikið í
auglýsingamynd fyrir þekktan gos-
drykkjaframleiðanda. Framleið-
andinn varð gjaldþrota og Odd-
steinn hafði aldrei annað en sára
raun af þessari frumraun í heimi
flölmiðla, auglýsinga og sýndar-
mennsku. Hann var mikill maður
vexti með skolleitt, hrokkið hár,
klæddur í blágrænan glansgalla og
ódýra íþróttaskó. Oddsteinn kvart-
aði undan sárum tannverk og taldi
líklegast að hann væri með graft-
arigerð undir tönn. Þetta hafði
hann eftir Grími „Púma“ þjálfara
sem um árabil hafði verið í læknis-
leik með íslenskum íþróttamönn-
um á öllum aldri. Grímur þessi
hafði sjúkdómsgreint mikinn flölda
afreksfólks á liönum árum og
áunnið sér óskipta virðingu bæði
lækna og fjölmiðlafólks. Meðal af-
reka hans mætti nefna ótal
klemmdar taugar sem hann hafði
leyst úr prísundinni med hnykk
eða blíðu nuddi. Tannlæknirinn
leit upp í Oddstein en fann engin
merlti um sýkingu eða sjúkdóma í
tönnum eða tannholdi. Hann tók
skemmtilegar og ágætlega verð-
lagðar röntgenmyndir af kjálkum,
tönnum og tannstæði en fann ekk-
ert athugavert. Tannlæknirinn
fuUvissaði Oddstein um að ekkert
væri að, krafðist hóflegrar greiðslu
eins og tannlækna er siður og sendi
hann heim. Nokkrum dögum síðar
kom Oddsteinn aftur og sagðist
ekki vera betri. Hann heimtaði að
tannlæknirinn drægi úr honum
bæði jaxla og augntennur. Þegar
fingrafimur tannlæknirinn neitaði
því reiddist Oddsteinn og hótaði að
troða bæði bomum og skolskálun-
um upp í hann. Tannlækninum
ofbuðu þessar hótanir enda var
honum annt um borinn sinn og
ákvað að vísa Oddsteini til heimil-
islæknisins.
Hjá heimilislækni
Við skoðun hjá Garpi heimilis-
lækni kom í ljós að Oddsteinn hafði
mörg önnur einkenni, s.s. höfuð-
verk, óskiljanlega óttakennd, ein-
kennilega matarlyst sem kom og
Á læknavaktiimi
fór og óljósan þyngslaverk neðar-
lega í kviðnum. Á síðustu 4 mánuð-
um hafði hann þyngst um 5 kg.
Oddsteinn haföi alltaf verið viö
ágæta heilsu. Hann var nýgiftur og
eiginkonan þunguð og komin 6
mánuði á leið. Þegar heimilislækn-
irinn fór að rseða þessi mál kom í
ljós að að Oddsteinn kveið mjög
fæðingunni. Hann hafði samþykkt
að vera viðstaddur en óttaðist mjög
að verða sér til skammar með yfirl-
iði eða ógleði. Auk þess hafði hann
lesið bækur um alls kyns fæðingar-
galla og sjúkdóma og óttaðist mjög
að meðganga og fæðing yrðu ekki
eðlileg. Allar rannsóknir voru í lagi
svo að læknirinn taldi liklegast að
þungun eiginkonunnar hefði haft
þessi áhrif á Oddstein.
Couvade-einkenni
Þetta ástand á sér sérstakt heiti
í læknisfræðinni og kallast co-
uvade-einkenni. Orðið er komið úr
frönsku, couver=að liggja á. Co-
uvade er hluti af trúarlegri athöfn
meðal sumra frumstæðra þjóða.
Þar tíðkast að verðandi faðir legg-
ist í rúmið og leiki bæði verki og
rembing konunnar þegar fæðing-
arhríðir hennar hefjast. Á þennan
hátt blekkir hann illa anda sem
hlaupið gætu í bamið á fæðingar-
stundinni. Eftir fæðinguna á mað-
urinn að taka að sér hlutverk móð-
urinnar og annast barnið um tíma
meðan hún hvílist. í heimi geð-
læknisfræðinnar er angist og kvíði
verðandi föður kallað couvade.
Þessi einkenni ganga yfirleitt til
baka fljótlega eftir að bamið er
fætt. Margir skilja angistina sem
ómeðvitaða löngun til að taka þátt
í meðgöngunni og hjálpa konunni
yfir erfiðustu hjallana. Þetta virðist
gerast hvort heldur bamið er vel-
komið eða ekki. Karlmenn sem
þjást af þessum einkennum með-
göngu era oft háðari móður sinni
enaðrir.
Góðurendir
Oddsteinn fékk að vita að þessi
einkenni væra fullkomlega eðlileg.
Hann lagaðist fljótlega og tók að
æfa hástökk og grindahlaup af
miklum móð. Þegar nær dró fæð-
ingunni versnaði honum aftur.
Hann var viðstaddur sjálfa fæðing-
una og tók þátt í öllu sem fram fór
af alefli. „Fæðing er eins og tug-
þrautarkeppni," sagði hann síðar.
„Maður stekkur, hleypur og kast-
ar. Ég var alveg gjörsamlega búinn
þegar þessu var lokið.“ Þegar barn-
ið var tveggja mánaða gamalt vora
öll einkenni um „couvade" algjör-
lega horfin og Oddsteinn Klettan
aftur orðinn samur við sig. Hann
stefndi óðfluga á verðlaunapall í
tugþrautakeppni eyja-örþjóða
næsta vor á óþekktri smáeyju í
óþekktuhafi.
Aukinökuréttindi
Fyrsta námskeið í Reykjavík hefst laugar-
daginn 4. september ef næg þátttaka fæst.
Einnig er fyrirhugað námskeið í Keflavík.
Skrifstofan verður opin alla helgina að Suð-
urlandsbraut 16. Vinsamlegast komið og
gangið frá umsóknum.
••
Okuskóli Signrðar Gislasonar
Símar 689510 og 985-24124.
Útboð
Vestmannaeyjar - þjóðbrautir
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
7,7 km af þjóðbrautum í Vestmannaeyjum.
Helstu magntölur: Fyllingar og fláar 42.000 m3,
burðarlög 16.000 m3 og slitlag 25.000 m2.
Verki skal að fullu lokið 15. júní 1994.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Selfossi og í Borgartúni 5, Reykjavík (hjá aðal-
gjaldkera), frá og með 24. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 6. september 1993.
Vegamálastjóri
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði
fyrir lögregiustöð á Raufarhöfn, um 100-150 m2 að
stærð.
Tilboð, er greini Staðsetningu, stærð, byggingarár
og efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd
og áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhváli, 150 Reykjavík, fyr-
ir 1. september 1993.
Fjármálaráðuneytið, 20. ágúst 1993
Tjaldvagnar fyrir
verslunar- og skrifstofufólk
Ákveðið er að leigja út tjaldvagna til félagsmanna
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur fram til 14. sept-
ember nk. Hægt er að leigja tjaldvagn um helgar (3
dagar lágmark) eða til lengri tíma. Félagsmenn verða
að koma á skrifstofu félagsins í Húsi verslunarinnar
og ganga frá leigusamningi. Leigugjald er kr. 1.000
á dag. Ekki er hægt að taka við pöntunum í síma.
Nú er tækifærið til að tryggja sér tjaldvagn til að
fara með í berjatínsluferðina eða í réttirnar. Allar nán-
ari upplýsingar eru veittar í síma 687100.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
INNANHÚSS- 98
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bíéfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtisku eldhús, gólflagnir,, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INN ANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn ........................
Heimilisfang .......................
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark