Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 39 Á Raufarhöfn er lögreglan Jói lögga - segir Jóhann Þórarinsson, lögregliimaður á Raufarhöfn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þaö er auðvitað tvennt ólíkt að vera lögreglumaður í hinu flölmenna liði lögreglunnar í Reykjavík eða að vera aleinn hér á Raufarhöfn. Helsti munurinn er sennilega sá að í Reykjavík eða á öðrum stöðum þar sem eru fleiri en einn lögreglumaöur ganga menn vaktir og eiga sína frí- daga óskipta. Hér þarf lögreglumað- ur að ganga í öll störf sem til falla Jóhann Þórarinsson, lögreglumaður á Raufarhöfn, við bifreið sína. DV-mynd gk Náttúrugripasafnið á Ólafsfirði: Hátt í 200 teg- undir fugla komnar í safnið Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Náttúrugripasafnið á Ólafasfirði var opnað á sjómannadaginn á þessu ári. Það er í eigu bæjarins og for- stöðumaður safnsins er Kamilla Ragnarsdóttir. Kamilla segir að til þessa hafi höf- uðáhersla verið lögð á að fá ýmsar tegundir fugla í safnið, þar séu nú hátt í 200 tegundir fugla og búið að merkja yfir 140 tegundir. Þar fyrir utan eru um 50 fuglar auk mikils safns af eggjum sem safninu var gef- ið í heilu lagi. Ýmisir sjaldséðir fuglar eru í safn- inu og Kamilla nefndi sem dæmi svartan svan, ísmáfa, ískjóa, skrækskaða, orra, fagurgæs og grá- hegra. Ymislegt fleira en fuglar er þó í safninu. Nefna má ísbjörn, sem var skotinn á Grímseyjarsundi, og refa- greni sem hefur verið sett upp með refum og yrðhngum. og er alltaf bundinn yfir starfmu. Helsti kosturinn er hins vegar sá að maður er dáhtið frjáls með vinnulag og vinnutími ekki negldur niður,“ segir Jóhann Þórarinsson, lögreglu- maður á Raufarhöfn. í ahri N-Þingeyjarsýslu eru aðeins tveir starfandi lögreglumenn, annar staðsettur á Þórshöfn en hinn á Rauf- arhöfn. Hins vegar er hægt að kaha til héraðslögreglumenn þegar eitt- hvað sérstakt er um að vera, t.d. varðandi dansleiki. Svæði þessara tveggja lögreglumanna, sem heyra reyndar undir lögregluna á Húsavík, nær aht frá Tjömesi og austur um th Þórshafnar og á þeirri leið eru m.a. þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfr- um, Ásbyrgi, Öxarfjörður, Kópasker, Melrakkaslétta, Raufarhöfn og Þórs- höfn. „Ég neita því ekki að lögreglumað- ur sem er einn að störfum á stað eins og Raufarhöfn er félagslega einangr- aður og maður finnur það jafnvel hjá kunningjunum að þeir em með ein- hvem varnagla gagnvart manni. Svo ef þaö þarf t.d. að handtaka mann og setja hann inn þá verður sú reiði sem brýst fram hjá viðkomandi eða aðstandendum hans oft mjög per- sónuleg. í Reykjavík er lögreglan bara lögregla en á Raufarhöfn er lög- reglan Jói lögga. Lögreglan er sem sagt persónugerð og það er mjög erf- itt fyrir lögreglumanninn. En sem betur fer búa hér löghlýðnir borgar- ar og óvinsamleg samskipti þeirra og lögreglu eru fátíð." Jóhann getur talað af reynslu um muninn á því að starfa einn eða í fjöl- mennu lögregluliði. Hann hefur starfað í Reykjavík, á Húsavík sem segja má að sé eins konar millistig og svo á Raufarhöfn. „Það er ágæt samvinna milh mín og lögreglu- mannsins á Þórshöfn, við sækjum t.d. dansleikjavaktir hvor hjá öðrum og ef við fórum í vegaeftirht reynum við að fara saman eða fá með okkur héraðslögreglumenn. En þótt svæði okkar lögreglumannanna í N-Þing- eyjarsýslu sé stórt og oft erfitt yfir- ferðar þá er það rólegt og hér koma sem betur fer ekki oft upp nein stór- mál,“ sagði Jóhann. Ferðalangarnir að skola af vélfákum sínum á planinu í Ásbyrgi. DV-mynd gk Vegimir héma alveg hræðilegir Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Vegirnir hér á landi eru alveg hræöilegir. Við vissum það reyndar áður en við komum hingað að þeir væru slæmir en okkur datt ekki í hug að þeir væru svona skrautlegir," sögðu þrír erlendis mótorhjólamenn sem voru að þvo „fáka“ sína á þvotta- planinu í Ásbyrgi. Þetta voru þeir Knut Olav Böe og Roy Vold frá Noregi og Jan Johann- isse frá Hollandi en þeir hafa verið að ferðast um landið á mótorhjólum sínum siðan 24. júni. Þeir Knut og Roy komu með ferjunni til Seyðis- fjarðar, fóru þaðan suður fyrir og til Reykjavíkur, síðan til Akureyrar og voru á ferð um Norðurland síðustu dagana. Alls hafa þeir lagt að baki um 2500 km á þessum tíma og Hol- lendingurinn Jan gott betur þvi hann hafði ferðast tæplega 4 þúsund km á sínu hjóli. Þeir voru hressir þrátt fyrir slæma vegi og sögðust hafa skemmt sér kon- unglega. Þeir vildu sérstaklega koma á framfæri þökkum til félaga í Snigl- unum sem þeir segja aö hafi aðstoðað þá á ýmsan hátt og auðveldað þeim dvölina hér. Kamilla Ragnarsdóttir i Náttúrugripasafninu á Ólafsfiröi. DV-mynd gk Undantekning ef íslend- ingar koma í útsýnisflug - segir Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs hf. í Mývatnssveit Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Reksturinn hefur gengið vel og síðasta ár var það besta í sögu fyrir- tækisins," segir Leifur Hahgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs hf. í Mý- vatnssveit. Mýflug var stofnað árið 1985 og er með alhliða flugstarfsemi, útsýnisflug, flugkennslu, leiguflug og áætlunarflug á leiðinni Reykjavík- Mývatn-Reykjavík alla daga yfir sumarmánuðina. Hluthafar eru um 20 talsins, einstaklingar í Mývatns- sveit, Akureyri og í Reykjavik, og félagið á tvær flugvélar sem taka 6 og 9 farþega. Leifur segir að útsýnisflugið hafi gengið mjög vel á síðasta ári og í júh hafi verið farið útsýnisflug í 25 daga. „Það eru svo til eingöngu útlending- ar sem notfæra sér útsýnisflugið og að langmestu leyti Þjóðverjar. Það kemur aldrei Bandaríkjamaður í þetta flug og það koma ekki nema svona 4-5 íslendingar á hverju ári,“ segir Leifur. Hann segir að vinsælasta leiðin, Leifur Hallgrímsson og Baldur Vilhjálmsson við aðra vél Mýflugs. DV-mynd gk sem farin sé í útsýnisfluginu, sé eins Heröuhreiðarhndir og séu útlending- og hálfs tíma flug að Öskju og Kverk- amir mjög hrifnir af því sem þeir fjöllum og í bakaleið er flogið yfir sjái í þessum ferðum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.