Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Page 10
10
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993
„Það er nú ekki á hverjum degi
sem maður sér frænku sína leika í
amerískri stórmynd í cinemascope.
Hún hlýtur að leika Evu - konuna
hans Adólfs. Þær eru ekkert ósvipað-
ar. Og hvað sem menn vilja nú segja
um hann Hitler þá hafði hann að
minnsta kosti smekk fyrir konum og
ég skil vel að þeir skuli láta íslenska
fegurðardrottningu leika hana.“
Þetta eru orð móðurinnar í Bíódög-
um rétt áður en fjölskyldan fer uppá-
búin aö sjá stórmyndina Síðustu
daga Hitlers. En faðirinn á heimilinu
lætur sér fátt um fmnast, þegar móð-
irin spyr strákana sína hvort þeir séu
ekki spenntir, og segir: „Það er ekki
beint auðvelt að vera spenntur fyrir
síðustu dögum Hitlers."
Aftur til fortíðar
Kvikmyndatökum á Bíódögum
miðar vel áfram. Þessa viku hafa
upptökur farið fram innandyra og
var verið að taka eitt atriði myndar-
innar þegar helgarblaðið skrapp í
heimsókn í gær. Friðrik Þór Frið-
riksson tók á leigu íbúð við Stórholt
og hefur henni verið hreytt í íslenskt
alþýðuheimih árið 1964. Menn urðu
að sætta sig við Utið pláss við kvik-
myndatökuna enda eru tæki og tól
fyrirferðarmikil þegar búin ér til
stórmynd. Á milU 20 og 30 manns
voru þarna við vinnu og margs þurfti
að gæta þegar andrúmsloft í upphafi
sjöunda áratugarins var búið til.
Friðrik Þór Friðriksson ásamt tveimur aðalleikurum Bíódaga, þeim Örvari Jens Arnarssyni og Orra Helgasyni
leika í bíómynd og flestir hafi mikinn
áhuga á því sem hann er að gera.
- En er þetta skemmtíleg bíómynd?
„Já, það flnnst mérr~Þetta er
skemmtileg saga sem mér finnst
mjög Uklegt að eigi eftir að slá í
gegn,“ segir Orri og Örvar tekur
undir það. „Það getur öU fjölskyldan
haft gaman af þessari mynd,“ bætir
sá yngri við. Þegar þeir voru spurðir
hvort þessi mynd ætti kannski Uka
eftir að fara tU HoUywood og keppa
um Óskarinn eins og Böm náttúr-
unnar gátu þeir ekki varist hlátri en
sögðust nú ekki geta svarað svoleiðis
spurningu. Strákarnir em sammála
um að þetta sé búið að vera skemmti-
legt sumar þótt ekki megi aUtaf nota
orð sem þeim er tamt að segja eins
og „ýktur“ og „cool“ ...en það má
segja „æðislegur“. Þeim er dvöUn í
sveitinni minnisstæð og sérstaklega
atriði þegar Örvar kastar bolta í
kamar og bóndinn, sem leUíinn er
af Jóni Sigurbjömssyni, kemur alveg
brjálaður út á nærbuxunum. „Það
verður að koma fram hvað starfs-
fólkið aUt er gott sem vinnur við
myndina," sögðu þessir ungu kvik-
myndaleikarar.
Engir löggu- og
sjúkrabílar til
Friðrik Þór er mjög ánægður með
hversu vel hefur gengið en tökum á
að ljúka 15. september. Eftir helgi
Töknm á Bíódögum miðar vel:
Á leið í bíó að sjá Hitler
- skemmtilegt að upplifa árið 1964, segja Örvar og Orri sem leika aðalhlutverkin
Reykur var nptaður tU að milda lýs-
ingu í mynd þannig að starfsfólk
varð bæði að sætta sig við mikinn
hita frá ljósum og kæfandi reyk ann-
að slagið. Þetta er því ekki allt tek-
ið út með sældinni þótt spennandi
sé.
Langaði að leika
í bíómynd
Örvar Jens Amarsson, tíu ára, fer
meö aðalhlutverk myndarinnar.
Hann var vaUnn úr nærri tvö hundr-
uð strákum til aö leika hlutverkið.
Örvar er allsendis óvanur leikUst og
aldrei fyrr hefur hann séð bíómynd
búna til. „Ég var einu sinni beðinn
að koma í viðtal út af hlutverki í
myndinni um EnUl og Skunda. Ég
fékk ekki hlutverkið en það kveikti
áhuga hjá mér á kvikmyndaleik. Þeg-
ar ég frétti að verið væri að leita að
strák í Bíódaga ákvaö ég að sækja
um,“ segir Örvar sem er í Öldutúns-
skóla. Hann er sonur Amars Jens-
sonar lögreglumanns og Rögnu
Bjarkar Haraldsdóttur. „Þetta er erf-
iðara en ég átti von á en miklu
skemmtUegra. Ég var í þrjár vikur í
Skagafirði. Þá komst ég auövitað
ekkert heim á meðan. Þaö var gaman
þennan tíma og sérstaklega að kynn-
ast öllum leikúrunum," segir Örvar.
Hann viðurkennir þó að stundum
hafi það verið svoUtið erfitt að vera
fjarri fjölskyldu sinni. Örvar segir
það vera misjafnt hvemig vinir hans
taki því að hann leiki í bíómynd.
„Besti vinur minn tekur þessu vel,“
segir hann.
Skemmtilegur tími
Örvar segist vera litið farinn að
hugsa um hvernig það verði næsta
Sigrún Hjálmtýsdóttir leikur móður-
ina í Biódögum og lifir sig inn í árið
1964 eins og aðrir sem vinna við
myndina. DV-myndirJAK
sumar þegar myndin verður sýnd en
vonast tU að það verði bara spenn-
andi. „Það getur vérið svolítið þreyt-
andi þegar taka þarf sama atriðið upp
mjög oft en það venst. Mér finnst
samt aUt skemmtUegt í kringum
þetta. Það hefur þó komið mér mest
á óvart hve langan tíma tekur aö
taka hvert atriði," segir hann. Örvari
finnst skemmtUegt að hverfa aftur
tU ársins 1964 og kynnast því hvemig
lífið var þá. „Þetta er nokkuð gaman.
Ég hefði vel getað hugsað mér að
vera uppi á þeim tíma. Sveitin var
heUlandi i þessa daga,“ segir hann
og bætir við að langskemmtUegast
sé þó aö leika.
Orri Helgason leikur eldri bróður-
Margs ber að gæta þegar horfið er aftur til fortíðar. Hvorki má heyra auka-
hljóð né nokkur bera þaö á sér sem ekki var til árið 1964. Þegar flugvél
flaug yfir húsið í Stórholti, þar sem tökur fara fram, varð að stöðva þær.
Hér biður Ari Kristinsson eftir rétta augnablikinu.
inn í mýndinni. Hann er íjórtán ára
og sótti um að leika í kvikmyndinni
eins og Örvar. Orri er þó öUu vanari
að leika því hann hefur leUíið tals-
vert á sviði, bæði Þjóöleikhússins og
Borgarleikhússins. Orri er sonur
leikarans og söngvarans Helga
Björnssonar og VUborgar Halldórs-
dóttur leikkonu.
„Mér finnst frábært að kynnast þvi
hvemig bíómynd er gerð því þetta
er allt öðm vísi en að leika á sviði.
Það er líka margt sem hefur komið
mér á óvart eins og til dæmis hvað
öU smáatriði skipta miklu máU,“ seg-
ir hann og mikiU tími fer í upptökur.
„Maður kemst stundum ekki í bíó
með vinunum út af upptökum. Ann-
ars er það aUt í lagi því þetta er svo
garnan."
í nælonskyrtu
með bindi
Orri segir að árið 1964 hljóti að
hafa verið skemmtilegt ár þótt ekki
sé neitt sérstaklega þægilegt að vera
í nælonskyrtu og með bindi. „Það
getur nú verið svolítið óþolandi að
vera í þessu,“ segir hann. „Manni
finnst hálfskrýtið að fólk skuli fara
sparibúið í bíó. Annars hlakka ég tU
að sjá myndina þegar hún verður til-
búin.“ Orri segir að félagar hans
hafi töluvert spurt hvemig sé að
verður farið aftur í Skagafjörðinn og
í lok mánaðarins hefjast tökur í
Skeggjagötu í Reykjavík. Þar verða
teknar útisenur og þarf að dreifa möl
yfir malbik götunnar til þess að hún
verði í anda kvikmyndarinnar. Bíó-
dagar eru ein af dýrustu kvikmynd-
um sem gerðar hafa verið á íslandi
en áætlaður kostnaður við gerð
hennar er um 130 milljónir. Á annaö
þúsund statistar koma fram í mynd-
inni.
Að sögn Friðriks hefur gengið til-
tölulega vel aö afla hinna ýmsu hluta
í myndina, að minnsta kosti þeirra
sem smærri eru. Þó reyndist erfitt
að finna skuggamyndavél. „Suma
hluti höfum við alls ekki fengið eins
og sjúkrabíla, lögreglubíla, strætis-
vagn og öskubíl. Það er eins og búið
sé að farga öllum þessum hlutum og
það er synd. Þjóöminjasafnið ætti að
gera meira að því að varðveita muni
frá hinum ýmsu tímabilum," segir
Friðrik Þór. „Það er eins og menn
hafi ekki tahð þessa hluti nægilega
gamla til að varðveita þá. Hins vegar
bjargaði lögreglan okkur um gamalt
Harley Davidson motorhjól sem
hafði verið geymt.“
Margir þekktir leikarar koma fram
í myndinni og má þar nefna Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur sem leikur móöurina
og Rúrik Haraldsson sem er í fóður-
hlutverkinu. Þá koma fram leikar-
arnir Guörún Ásmundsdóttir, Sig-
urður Sigurjónsson og Hjalti Rögn-
valdsson auk margra annarra. Þá er
margt bama sem kemur fram í mynd-
inni. Friörik Þór hefur ekki áður unn-
ið með börnum og þegar hann var
spurður hvort það væri ekki erfitt
svaraði hann: „Ég hef góðán aðstoð-
arleikstjóra, Maríu Sigurðardóttur,
og einnig hefur Ari Kristinsson kvik-
myndatökumaður gott lag á börnum
enda er hánn vanur þeim svo þetta
hefurgengiðvel.“ -ELA
(
í
I