Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 13 Verðið á 1. flokks lambakjöti í hálfum skrokkum lækkar um heil 20%. Fáðu þér ljúffengt lambakjöt næstu verslun á frábæru verði, aðeins 398 krónur kílóið. Í 398 *Leiöbeinandi smásöluverð Skemmtilegasta sumarmyndin: „Sendi ykkur eina sumarmynd sem ég tók í sumar af henni frænku minni þegar hún var að spóka sig úti í náttúrunni," skrifar Ragnhildur Benedikts- dóttir, Lambhaga 10 á Selfossi, með þessari mynd. Frænkan heitir Ástrós Eva Gunnarsdóttir og myndin er kölluð Náttúrubarn. Stefnir í metþátttöku Kviksandur nefnist þessi mynd sem tekin er af Ingó á ströndinni í Canc- un í Mexíkó. Sendandi er Felix Gylfason, Glæsibæ 8 í Reykjavík. Enn streyma skemmtilegar sumar- myndir til DV og stefnir í metþátt- töku. Myndirnar eru margar góðar og vafaiaust verður erfitt fyrir dóm- nefndina að velja úr. Enn geta menn sent inn myndir í keppnina því að skilafrestur er til 15. september. Verðlaun í keppninni eru glæsi- legri en nokkru sinni áður. Veitt eru ein aðalverðlaun en alls eru veitt verðlaun í fjórum flokkum. Fyrstu verðlaun eru glæsileg myndavél, Canon EOSlOO, að verðmæti kr. 69.900. Þá verða veitt þrenn verðlaun fyrir skemmtilegustu sumarmynd- irnar, teknar innanlands, og önnur þrenn fyrir skemmtilegustu mynd- irnar, teknar í útlöndum. Sérstök verðlaun verða veitt fyrir myndir sem teknar eru af unglingum. í þeim flokki eru verðlaunin Prima 5 myndavélar en ferðavinningar eru í boði fyrir bestu ferðamyndimar. Dómnefnd keppninnar skipa þeir Gunnar V. Andrésson og Brynjar Gauti Sveinsson, ljósmyndarar DV, og Gunnar Finnbjömsson frá Kodak. Myndimar, sem hér birtast, em aðeins lítið sýnishorn úr öllum þeim fjölda sem borist hefur. Eins og sjá má fylgir lítil saga sumum þeirra og er gaman að því. Þeim sem enn eiga eftir að senda myndir skal bent á að merkja þær vandlega með nafni og heimilisfangi sendanda. Utanáskriftin er: Skemmtilegasta sumarmyndin DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Þessi mynd er tekin í ungbarnasundi og nefnisl Forskot inn í framtíðina. Sendandi er Ragnhildur Eiríksdóttir, Eyjabakka 16, Reykjavík. „Ég ætla að gefa þessari mynd nafnið Sundgleði," skrifar sendandi með þessari ágætu mynd. „Hún er af syni minum, Ragnari Þór, Eygló ömmu og Bedda afa harts. Hún er tekin á Hótel Örk í sumar en að fara i sund er það skemmtilegasta sem Ragnar Þór gerir.“ Sendandi er Júlía Bergmanns- dóttir, lllugagötu 15, Vestmannaeyjum. • • LffiKKflRUÍI) HEILflR mEI KROIIUR Bestu haupin í lambakjöti á adeins 398kr./kg. ínœstuvershm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.