Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993
Skák
Fyrsta umferð áskorendaeinvígjanna:
Anand gegn Júsupov er
athyglisverðasta einvígið
- Lautier mætir Karpov eða Timman
Staðan í skákheiminum er dálítið
kyndug um þessar mundir eftir að
Kasparov og Short sögðu skilið við
FIDE. Áskorendumir tíu frá Biel
eru í raun og veru einungis búnir
að vinna sér rétt til þess aö skora
á næsta áskoranda - Karpov eða
Timman - en „heimsmeistarinn"
Kasparov er stikkfrí. Skákunnend-
ur geta trauðla litiö öðravísi á ein-
vígi Kasparovs við Short, sem hefst
7. september í London, en sem ein-
vígi um heimsmeistaratitihnn, þótt
FIDE hafi svipt Kasparov titlinum.
Trúlegt er að einvígi Karpovs við
Timman, sem heíjast á í Hollandi
á sama tíma, hverfi í skuggann.
Ákveðið hefur verið að fyrsta lota
áskorendaeinvígjanna fari fram í
Wijk aan Zee í HoUandi í janúar á
næsta ári. Nú þegar Uggur fyrir
hverjir mætast innbyrðis en farið
er eftir fyrirfram ákveðnum regl-
um. Þátttökurétt eiga áskorend-
urnir tíu, sem unnu sér rétt á milU-
svæðamótinu í Biel og Júsupov
(sem komst lengst í síðustu hrinu
áskorendakeppninnar) auk þess
sem bíður lægri hlut í einvígi
Karpovs og Timmans. Þessir tólf
tefla þar tU þrír standa uppi. Þá
bætist sigurvegarinn úr einvígi
Karpovs og Timmans í hópinn og
teflt verður um heimsmeistaratitU
FIDE.
Skoðum hverjir munu bítast í
fyrstu umferð:.
Karpov eða Timman - Lautier
Salov - Khalifman
Anand - Júsupov
Gelfand - Adams
Kramnik - Júdasín
Kamsky - van der Sterren
Kramnik og Kamsky hljóta aö
teljast líklegir til að bera andstæð-
inga sína ofurUði og raunar kæmi
annað verulega á óvart. Á hinn
bóginn er erfiðara að spá um úrslit
í öðrum einvígjum. Rússarnir
Salov og Khalifman munu eflaust
eiga í tvísýnni baráttu og sömuleið-
is Gelfand og Englendingurinn
Adams, þótt sá fyrrnefndi sé lík-
legri til afreka, miðað við glæstan
sigur á milUsvæðamótinu - inn-
byrðisskák þeirra þar lauk þó með
jafntefU og mátti Gelfand þakka
fyrir.
Einna athyglisverðast er einvígi
Indverjans knáa, Viswanathans
Anands, við Artúr Júsupov. Tveir
þungavigtarmenn sem glíma trú-
lega við erfiðasta hjallinn í fyrstu
umferð. Anand hefur sýnt að hann
er sterkur einvígismaður en Jú-
supov hefur mikla reynslu og er
ekki auðveld bráð.
Mjög kæmi á óvart ef Karpov
tækist ekki að vinna Timman í ein-
vígi þeirra í næsta mánuði - eink-
um eftir ófarir þess síðarnefnda í
æfmgaeinvígi við Skembris á
grísku eyjunni Korfu fyrir
skömmu. Þá kæmi í hlut Timmans
að glíma við Frakkann unga, Joel
Lautier, sem miklar vonir eru
bundnar við í heimalandinu.
Lautier neitaði að leiða lið
Frakka í landskeppninni við ís-
lendinga í mars sl. og bar því við
aö hann óttaðist um stig sín þar
sem væntanlegir mótherjar hefðu
ekki nógu mörg. Þetta lýsir metn-
aði hans vel en hann ætlar sér stóra
hluti og virðist vaxa við hverja
raun. Honum tókst að leggja
Karpov að velli á skákmótinu í
Dortmund um páskana og eflaust
Viswanathan Anand, sem glímir
við Artúr Júsupov í fyrstu umferð.
Anand hefur sýnt að hann er sterk-
ur einvígismaður en Júsupov hef-
ur mikla reynslu og er ekki auð-
veld bráð.
hefur það ekki síður verið góður
sálfræðilegur sigur.
Lautier komst í áskorendakeppn-
ina með því að vinna Mikhail
Gurevich í lokaumferðinni í Biel
og gerði það smekklega, eins og sjá
má hér á eftir.
Hvítt: Joel Lautier
Svart: Mikhail Gurevich
Slavneskt bragð.
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 c6 4. e4!?
dxe4 5. Rxe4 Bb4+ 6. Bd2
Peðsfórn, sem hentar vel við slík-
ar aðstæður, þar sem ekkert kemur
til greina nema sigur.
6. - Dxd4 7. Bxb4 Dxe4 8. Be2
í skiptum fyrir peðið á hvítur
biskupaparið og er fljótari að skipa
mönnum sínum út. Varasamt er
fyrir svartan að seilast eftir öðru
peði með 8. - Dxg2?! sem leiðir til
enn meiri yfirburða hvíts í hðsskip-
an. Reynslan hefur sýnt að 9. Dd6,
9. Dd4, eða 9. Bf3 gefa allir hvítum
öflugt frumkvæði.
8. - Ra6 9. Bc3 Re7 10. Bxg7 Hg8 11.
Bf6Df4
í Júgóslavnesku alfræðibyijana-
bókinni metur Bent Larsen þessa
stöðu sem betri á svart en Lautier
er ekki sammála.
12. Bc3! Hxg2 13. Rf3 f6
Hvítur hótaði m.a. Be5-g3 og
hremma hrókinn framsækna.
Gurevich hyggst stilla upp vamar-
múr á svörtu reitunum.
14. Dd2! Dxd2 15. Rxd2 e5?
Hann er samkvæmur sjálfum sér.
Eftir á að hyggja verður svartur
að reyna 15. - f5 þrátt fyrir að veil-
umar á svörtu reitunum blasi þá
við.
16. Re4 Kf7
ABCDE FGH
í þessari stöðu myndu velflestir
áreiðanlega nota tækifærið og læsa
hrókinn inni með 17. Rg3 og svart-
ur getur ekki hindrað 18. Bf3 eða
18. Bfl og hlýtur því að tapa hði.
Við nánari aðgæslu kemur ljós að
svartur þarf ekki að örvænta. Eftir
17. Rg3 gæti teflst 17. - Bh3 18. Bfl
Rg6 (18. - Hd8 er svarað með 19.
Umsjón
Jón L. Árnason
Hdl) 19. Bxg2 Bxg2 20. Hgl Rf4 21.
0-0-0 Rc5 22. Kc2 a5 og svartur
hefur peð fyrir skiptamun og heil-
brigða stöðu.
Lautier kýs þess vegna að láta
hrókinn eiga sig og blása heldur til
sóknar.
17. Hdl! Hg8 18. f4!
Opnar hnur að svarta kónginum
og nú fara biskuparnir að njóta sín.
18. - Rg619. Hd6 Ke7 20. HxfB Rxf4?
Betra er 20. - exf4 sem hvítur
gæti svarað með 21. h4 og svartur
er ekki laus úr klípunni.
21. Bxe5 Rxe2 22. Bd6+!
Þessi snjalh milhleikur hindrar í
eitt skipti fyrir öll aö svartur nái
að koma drottningarhróknum í
leikinn.
22. - Ke8 23. Kxe2 Bh3 24. Hh6 Bg4+
25. Ke3
Svarta staðan er töpuð.
25. - Bf5 26. Rf6+ Kf7 27. Rxg8 Hxg8
28. Kf4 Bg6 29. Hel Hd8 30. He7+
Kfl6 31. c5 Rb4 32. Hexh7 Rd5+ 33.
Kf3 He8 34. h4 He3+ 35. Kf2 Kf5 36.
Hg7 He6 37. h5
- Og Gurevich gafst upp.
-JLÁ
Bridge
Bridgeheilræðakeppni BOLS:
,,Bridge er bara spil"
Það er einn af fastagestum Bridge-
hátíðar, Daninn Ib Lundby, sem gef-
ur heilræði dagsins. Lundby hefur
sótt hverja einustu bridgehátíð svo
lengi sem ég man og heilræði hans
er á léttu nótunum eins og bridge-
skrif hans yfirleitt. Ég gef Lundby
orðið:
„Zia Mahmood: „Ástæða þess að
þú spilar bridge er þýðingarmeiri en
árangurinn. Eg spha bridge af því
að það er gaman að því.“
Bridge er bara leikur og þú átt að
hafa gaman af því eins og Zia, hvem-
ig sem árangurinn er. Frá því að þú
byrjar að spha í þinni fyrstu keppni
og þar th þú sphar um æðstu metorð
munt þú fá mest út úr spihnu ef þú
minnist þess að bridge er aöeins leik-
ur. Af hverju ert þú ekki eins og Zia
og sphar bridge vegna þess að það
er svo gaman?
Hér er sph frá heimsmeistaramóti
bridgeblaðamanna 1992. Það var
frekar auðvelt - lokasamningurinn á
öhum borðum var fjögur hjörtu í
suður. Útspihð var einnig frekar auð-
velt - vestur átti þrjá hæstu fjórðu í
tígh og hann skiptist jafnt milh
- hafðu gaman afþví, segir Daninn Ib Lundby
hinna. Tíu slagir á öhum borðum
nema hjá mér. Af hverju?
Jæja, eins og allir aðrir fékk ég tíg-
ul út en frá rangri hendi. Austur
hafði fundið tígulútspihð og þótt
hann ætti skihð verðlaun fyrir það
fékk hann núll því ég notfærði mér
að geta bannað útsph í htnum.
Auðvitað baðst austur afsökunar á
mistökunum en það er ástæða til
þess að geta svars vesturs: „Þetta er
aht í lagi, vinur. Ég er heldur ekki
viss um að ég hefði sphað út tígh
sjálfur."
Þeir fengu núll en bridge er aðeins
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
leikur - og þið ættuð að hafa gaman
af því eins og þeir.
En skoðum næsta sph.
S/N-S
* D763
A974
♦ ÁD7
KD
* ÁG8 ♦ K1054
D8 ¥ G106
♦ 1086432 ♦ 9
+ 109 + 65432
* 92
* K532
♦ KG5
4» ÁG87
N-S voru Alan Truscott, bridge-
blaöamaður hjá The New York
Times, og Phihp Alder en austur var
Peter Lund meðan ég sat í vestur:
Suður Vestur Norður Austur
lgrand pass 2lauf pass
2hjörtu pass 4hjörtu pass
pass pass
Ég sphaði út litlum tígh, ásinn átti
slaginn og suður sphaði strax litlu
trompi á kónginn. Ég fylgdi lit með
drpttningunni.
Á eftir taldi makker að ég hefði
látið hana í ógáti. Hann hefir aldrei
virt mig sem spilara í sínum klassa
(reyndar er hann einn í honum). En
spilamennska mín gaf okkur mögu-
leika á því að hnekkja spihnu þannig
að eitthvert púður ætti að vera í
mér. Hvað gerðist?
Suður hélt áfram með tromp og
þegar áttan kom frá mér hikaði hann.
Hvað var að ske?
Að lokum ákvað suöur að sporna
gegn því að ég væri að reyna Gros-
venorbragð th þess að koma spihnu
í daglega bridgedálkinn minn. Þá gat
ég hafa sett drottninguna frá D G 10
8 th þess að plata hann!
Hann lét því af ÖRYGGI níuna úr
blindum án þess að gera sér grein
fyrir hættunni. Austur fékk því
óvæntan slag á tíuna og hann varð
að vinna úr restinni: Spaði th baka,
tíguh trompaður með gosanum (eða
th þess að auðvelda makker vömina,
spaðakóngur, meiri spaði á ás og tíg-
uh trompaður).
Því miður fann makker minn ekki
vörnina. Hann spilaði laufi og blekk-
ing mín var árangurslaus.
Jafnvel eftir þetta er mitt motto:
„Bridge er bara spil - hafðu gaman
að því.“ “
Framhaldsaðalfundur verður
haldinn hjá Bridgefélagi Reykja-
1. Lagabreytingar.
2. Kosning stjórnar, endurskoð-
víkur miðvikudaginn 25. ágúst í anda og annarra fuhtrúa.
Lionssalnum, Sigtúni 9, klukkan 3. Ákvörðun um félagsgjald og
17.00. Athygh cr vakin á lagabreyt- keppmsgjöld starfsárið 1993-94.
ingum. Dagskrá fundar er þannig: 4. Onnur mál.