Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
3
Fréttir
Deilt um styrki til sauðfj árframleiðslu í flárlagagerðinni:
Halldór Blöndal dregur
lappirnar í sparnaði
- rætt um að snuða skattgreiðendur um ávinning af búvörusamningi
Djúpstæður ágreiningur hefur
komið upp innan ríkisstjórnarinnar
í tengslum við fjárlagagerð næsta árs
vegna framlaga til landbúnaðarmála.
Samkvæmt búvörusamningi eiga
greiðslur ríkissjóðs til sauöfjárfram-
leiðslu að minnka um hundruð millj-
óna á næsta ári vegna minnkandi
sölu á kindakjöti. Samkvæmt heim-
ildum DV telur Halldór Blöndal slíkt
þó ekki réttlætanlegt og leggur til aö
hluti skerðingarinnar komi til fram-
kvæmda á næstu tveimur árum.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra mun vera sammála Halldóri
og telur að í búvörusamningnum sé
að finna ákvæði sem heimili aukin
útgjöld. Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra er þessu hins vegar
andvígur og hefur mótmælt hug-
myndinni innan ríkisstjórnarinnar.
Ekki náðist í ráðherrana vegna þessa
máls í gær.
Meðal krata ríkir reiði í garð fjár-
málaráðherra og landbúnaðarráð-
herra vegna þessa máls. Telja ýmsir
þeirra að í raun sé verið að koma í
veg fyrir að skattgreiðendur fái að
njóta ávinnings af þeim búvöru-
samningi sem þeir hafa þegar greitt
dýru verði fyrir. í þessu sambandi
má geta að búvörusamningurinn
kostar ríkissjóð eitthvað á fimmta
tug milljarða á samningstímanum,
eða fram til ársins 1998.
Samkvæmt fjárlögum er gert ráð
fyrir að á yfirstandandi ári verji rík-
issjóður ríflega 1,7 milljörðum í bein-
greiðslur til sauðfjárbænda og ríflega
milljarði í aðrar stuðningsaðgerðir
vegna sauðfjárframleiðslunnar.
Beingreiðslurnar miðuðust við 8.150
tonna framleiðslu. í landbúnaðar-
ráðuneytinu telst mönnum til að sal-
an gefi ekki tilefni til beingreiðslu
nema með 7.650 tonnum. Fyrirsjáan-
legur sölusamdráttur upp á 500 tonn
ætti samkvæmt búvörusamningi að
minnka beingreiðslurnar um nokkur
hundruð milljónir þegar á næsta ári.
Af því verður þó ekki nái vilji land-
búnaðarráðherra fram að ganga.
Samkvæmt fjárlögum mun ríkis-
sjóður verja vel á áttunda milljarð
til landbúnaðarmála í ár. Alls eru
starfandi ríflega 4 þúsund bændur á
landinu. Væri þessum útgjöldum rík-
issjóðs skipt beint milli starfandi
bænda kæmi vel á aðra milljón króna
íhluthversogeins. -kaa
Ingólfur Bárðarson, forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur, Vigdís Finnbogadóttir, Kristján Pálsson og þau Einar Már
Jóhannesson, Tryggvi Hansen, Helga Óskarsdóttir og Helga Ingimundardóttir en þau voru í hlutverki ábúenda i
torfbænum. DV-mynd Ægir Már
Síðasti torf bærinn í
N jarðvík endurbyggður
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Það var á afmæhsári Njarðvík-
inga í fyrra sem ákveðið var á hátíð-
arfundi með forseta íslands, frú Vig-
dísi Finnbogadóttur, að endurbyggja
síðasta torfbæinn í byggð í Njarðvík
í upprunalegri mynd. Bærinn heitir
Stekkjarkot og var búið þar til 1924.
Hann var reistur að tahð er snemma
á síðustu öld sem þurrabúð," sagði
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarð-
vík, þegar Stekkjarkot var opnað
formlega 19. ágúst. Frú Vigdís var
viðstödd ásamt fjölda gesta.
Endurbyggingin á Stekkjarkoti er
kostuð i atvinnuátaki Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs og Njarðvíkurbæjar.
Ráðnir voru 15 manns í verkið sem
hófst um miðjan maí og er að mestu
lokið innanhúss. Kostnaður á árinu
er um 5 milljónir króna. Stærð húss-
ins er 49 m* 1 2 með kjahara sem er 8 m2.
Skipstjórarnir tekjuhæstir
Emil Thorarensen, DV, Esldfirðx:
Samkvæmt álagningarskrá skatt-
yfirvalda eru tekjuhæstu einstakl-
ingar á Eskifirði 1992 eftirtaldir:
1. Þorsteinn Kristjánsson skip- og
framkvæmdastjóri, kr. 8.137.533.
2. Grétar Rögnvarsson skipstjóri,
7.593.533.
3. Kristinn Aðalsteinsson umboðs-
maður, 5.454.373.
4. Sigurður Eiríksson sýslumaður,
5.243.800.
5. Guðni Þór Elíasson yfirvélstjóri,
5.220.026.
6. Jóhann S. Kristjánsson stýri-
maður, 5.148.586.
Heyskap lokið í Árneshreppi
Regína Thoiarensen, DV, Gjögri;
Heyskap er nú lokið á nær öhum
bæjum í Árneshreppi. Heyskapur
stendur oftast stutt - í 10-14 daga -
þegar tíðin er eins góð og verið hefur
Hin árlega stikuferð Ferðaklúbbsins 4x4
og sjálfboðaliðasamtaka um náttúruvernd
verður farin helgina 28. - 29. ágúst.
Verkefni helgarinnar verða að stika leiðir á
Kaldadal og við Hlöðufell ásamt því að
loka villuslóðum og fjarlægja rusl.
Skráning verður á opnu húsi í Mörkinni í
kvöld og í síma 91-672989 (Kristín).
Styrktaraðilar ferðarinnar eru:
síðustu þrjár vikurnar hér. Sprettan
var hins vegar með minnsta móti
vegna kulda í vor og framan af
sumri.-Eitthvað er um kal í túnum
en þó alls ekki mikið.
Sveitarfélög hvött til að sækja um:
Stof nun reynslusveitar-
félaga í undirbúningi
tUraunaverkefni meö sameiningu í flögur ár, 1995-1998
Félagsmálaráðuneytið hefur skip-
að verkefnisstjórn til að undirbúa
stofnun fimm reynslusveitarfélaga
og er umsóknarfrestur um þátttöku
til 1. október. Sveitarfélög, sem hafa
áhuga á sameiningu, eru hvött til að
sækja sameiginlega um þátttöku í
verkefninu. Gert er ráð fyrir að
samningum við reynslusveitarfélög
verði lokið vorið 1994 og lög þar að
lútandi samþykkt á Alþingi þá um
vorið. Verkefninu er ætlaö að standa
í fjögur ár, frá 1995 tíl 1998.
ÓUum sveitarfélögum er heimUt að
sækja um þátttöku í verkefninu en
gert er ráð fyrir að sveitarfélögin,
sem taka þátt, hafi yfir 1000 íbúa. Þó
er heimUt að velja til þátttöku eitt
sveitarfélag með færri íbúa. Sveitar-
félög, sem sækja um verkefnið í
tengslum við sameiningu, hafa for-
gang, sérstaklega þegar sveitarfélög
á stóru svæði sameinast.
Ekki er gert ráð fyrir að sveitar-
stjórnir útfæri í umsókn siniii hug-
myndir um innihald verkefnisins
heldur verði það gert í viðræðum
verkefnisstjómar við umsækjendur
í október og nóvember. Sveitarfélög
verðá ekki valin endanlega til þátt-
töku fyrr en í lok nóvember að
afloknum kosningum um samein-
ingu sveitarfélaga.
I verkefnisstjóm eru þau Sigfús
Jónsson landfræðingur og formaður
stjórnarinnar, Húnbogi Þorsteinsson
skrifstofustjóri, Ingimundur Sigur-
pálsson bæjarstjóri og Sigríður Stef-
ánsdóttir bæjarfuUtrúi.
Haustdagar
í VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
A ájk VIÐ SMIÐJUVEG
\%
AFSLATTUR AF:
iPGARDENA
GARÐÁHÖLDUM
STENDUR AÐEINS í NOKKRA DAGA
ÞAÐ ER EKKI SEINNA VÆNNA!
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
GRÓÐURVÖRUR SF. SMIÐJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 43211
-GHS