Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993 Fólk í fréttum Kristján Bergur Helgason Kristján Bergur Helgason, bill- jarðspilari, Njörvasundi 35, Reykja- vík, varð heimsmeistari spilara yngri en 21 árs í snóker á sunnudag- inn. Starfsferill Kristján er fæddur 27.3.74 í Reykja- vík og ólst upp að Njörvasundi 35. Hann lauk grunnskólanámi í Lang- holtsskóla, fór þaðan í Menntaskól- ann við Sund en hætti námi til að geta lagt stund á áhugamál sitt, bill- jarðinn. Kristján varð íslandsmeist- ari unglinga undir 21 árs í vetur í snóker er hann vann Jóhannes B. Jóhannesson í úrslitakeppni. Kristj- án er einnig íslandsmeistari yngri spilara í tvíliðaleik í snóker. Hann tók þátt í heimsmeistaramóti yngri spilara í Brunei 1992 en komst ekki í úrsht. Kristján varð í þriðja sæti á íslandsmótinu í snóker í opnum flokki á þessu ári og varð heims- meistari í snóker er hann vann sig- ur, 11-7, á Sri Lanka-búanum Indika Dodangoda á heimsmeistaramóti sem fram fór í Reykjavík. Fjölskylda Systkini Kristjáns eru: Ásgerður, f. 7.1.1960; Kristín, f. 22.11.1961, ogá hún 3 syni, Hrólf Magna, Hlyn Frey og Haíþór Ara; Helga Guðrún, f. 24.8.1964; Ólafur Böðvar, f. 23.6. 1969. Hálfbróðir Kristjáns er Þor- valdur Brynjólfur Helgason, f. 16.8. 1955, búsettur í Perth í Ástralíu, fað- irþriggjabarna. Foreldrar Kristjáns eru Helgi Jón- as Ólafsson, f. 29.4.1930, verkamað- ur í Reykjavík, fæddur í Borgar- nesi, og Eyrún Kristjánsdóttir, f. 15.3.1934, skrifstofumaðurí Rvik, fædd á Suðureyri í Súgandafirði. Ætt Foreldrar Helga voru Sæmundur Ólafur Guðmundsson, f. 8.2.1876, d. 27.8.1961, verkamaður í Borgarnesi, fæddur að Brennistöðum í Borgar- firði, og Ásgerður Helgadóttir, f. 3.2. 1896, d. 6.2.1987, húsmóðir, fædd á Rauðanesi í Borgarhreppi. Foreldrar Eyrúnar: Kristján Bergur Eiríksson, f. 26.11.1894, d. 7.9.1973, trésmiður, Botni í Súgandafirði, og Helga Guð- rún Þóröardóttir, f. 21.9.1903. Foreldrar Ólafs voru: Guðmundur Jónsson bóndi, Beigalda í Borgar- hreppi í Mýrasýslu, og Þóra Sæ- mundsdóttir frá Laxholti í Borgar- hreppi. Foreldrar Ásgerðar voru Helgi Jónas Jónsson, f. 19.8. 1871, d. 6.12. 1938, bóndi á Þursstöðum, Borgarhreppi í Mýrasýslu, og Hall- dóra Vilhjáilmsdóttir, f. 13.8. 1876, d. 6.5. 1959, frá Ánabrekku, Hraunhr., Mýrasýslu. Foreldrar Kristjáns voru Eiríkur Egilsson, f. 1857, d. 1903, frá Hjarð- ardal í Önundarfirði og Guðfinna Ólöf Daníelsdóttir f. 9.7.1863, d. 1912, Dalshúsum í Önundarfirði. Foreldr- ar Helgu Guðrúnar voru Þórður Þórðarson og Elín Einarsdóttir frá Suðureyri við Súgandafjörð. Kristján Bergur Helgason. Afmæli KjartanTh. Inghmmdarson Kjartan Th. Ingimundarson skip- stjóri, Flúðaseh 88, Reykjavík, er sjötugurídag. Starfsferill Kjartan er fæddur á Sunnuhvoli á Barðaströnd. Kjartan hóf ungur sjó- mennsku með föður sínum frá Tálknafirði. Hann hóf vinnu á ein- um hvalbáti hvalstöðvarinnar á Tálknafirði árið 1937. Kjartan tók meira fiskimannapróf frá Stýri- mannakólanum árið 1957. Hann var bátsmaður á Ólafi Jóhannessyni og stýrimaður á síldarskipinu Sólrúnu frá Bolungarvík og síðan stýrimað- ur og skipstjóri í afleysingum á ýmsum skipum. Fjölskylda Kjartan kvæntist Hrefnu Sigurðar- dóttur, f. 21.5.1920, húsmóður og ljóöskáldi. Börn þeirra Kjartans og Hrefnu eru Hreinn Hrafnkell Kjart- ansson verkam, f. 24.5.1946, ókvæntur og bamlaus; Helga Þóra Kjartansdóttir hjúkrunarfræðing- ur, f. 26.3.1945, giftist Guðmundi Kristjánssyni og eiga þau þrjú börn, þau shtu samvistum; Jóhannes Jens Kjartansson læknir, f. 16.8.1951, hann kvæntist Þóreyju Björnsdótt- ur og eiga þau fjögur börn; Þórunn Kjartansdóttir hjúkrunarfræðing- ur, f. 22.9.1956, hún giftist Sigtryggi Jónssyni og saman eiga þau eitt bam. Systkini Kjartans: Magnús, kvæntist Maríu Sigurðardóttur, d.; Þórður, kvæntur Guðnýju Einars- dóttur; Kristín, gift Andrési Torfa- syni; Jóhanna, giftist Ólafi Þórar- inssyni, d.; Lilja, giftist ívari Helga- syni, d.; Ólafur, kvæntur Guðbjörgu Ágústsdóttur; Hjálmar, kvæntur Sigríði Ámadóttur; fóstursystir hans Sigrún Jónsdóttir, gift Þóri H. Einarssyni. Kjartan er sonur Guðbjargar Jó- hannesdóttur, f. 28.10.1887, d. 22.3.1962, og Ingimundar Jóhannes- sonar, f. 3.3.1895, d. 8.3.1972, bónda í Ystu-Tungu í Tálknafirði. Kjartan er aö heiman á afmælisdaginn. 24. ágúst Ásta Guðmundsdóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. Elín Þorsteinsdóttir, Skógum, Austur-Eyjafjallahreppi. 70ára Kristj ana Jónsdóttir, Háaleitisbraut 101, Reykjavík, Sigríður Methúsalemsdóttir, Boðageröi 1, Öxartjaröarhreppi. Esther Árnadóttir, Þórufelh 12, Reykjavík. Árni B. Jóhannsson, Hjarðarhágá 62, Reykjavík. Árni Þorvaldur Jónsson, Fíarðarstræti 2, ísafirði. Ragnar Björnsson, Hjaltabakka 4, Reykjavík. Árskógum 7, Egilsstöðum. Halla Soffia Jónasdóttir, Hraunbæ 98, Reykjavik. Sæmundur Kristjánsson, Háarifi 43, Rifi. Steinunn Jóns- dóttir, Vesturbergi 124, Reykjavík. Húntekurámóti gestumáafmæl- isdaginniSíðum- úlallkl. 16-20. Einar Gunnar Óskarsson, Seljavegi 33, Reykjavík. Hanntekurá móti gestum á Sléttuvegi7laug- ardaginn28.8.frá kl. 19-22. 40ára 60 ára Alfreð Rasmus Jónsson, Grensásvegi 58, Reykjavík. Guðmundur S. Hafliðason, Jórufelh 4, Reykjavík. Þorsteinn Guðlaugsson, Kambsvegi29, Reykjavík. Þórir Vignir Björnsson, Þónistig2, Njarðvík. Svava Margrét Þorleifsdóttir, Hraunkoti, Skaftárhreppi. 50 ára Sigurður Þórarinsson, Árdís Jónasdóltir, Norðurbyggð 22a, Ölfushreppi. Bergþóra Jónsdóttir, Goðahrauni 7, Vestmannaeyjum. Máriiaraidsson, Háholti, Gnúpverjahreppi. Guðmundur Kjartan Da víðsson, Sóleyjargötu 31, Reykjavík. Guðmundur F. Haraldsson, Hlíðarbraut 16, Blönduósi. Hermann Björnsson, Bakkahlíð 15, Akureyri. Guðjón Ingi Hauksson, Hlaðhömrum 6, Reykjavík. Björn Heiinir Sigurbjörnsson, Heimagötu 30, Vestmannaeyjum. Sólveig Ottósdóttir, Króktúni 18, Hvolsvelli. Sviðsljós Finnskir ungl- ingar á ferð Þessi myndarlegi hópur kemur frá Finnlandi, nánar tiltekið bænum Lieto sem er vinabær Seltjarnarness. Hann kom í rútu með ferjunni Norrænu og hefur ferðast vítt og breitt um landið. Á meðan unglingarnir eru hér á höfuðborgarsvæðinu búa þeir á heimilum hjá jafnöldrum sinum á Seltjarnarnes- inu og kynnast þannig betur lífi íslenskra unglinga. Það er búið að taka þá tvö ár að safna fyrir þessari ferð en að þeirra sögn hefur það verið þess virði. Héðan er ferðinni heitið til Færeyja og svo heim þar sem skólinn bíður. -HMR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.