Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1993, Qupperneq 12
12
Spumingin
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1993
Hvernig heldur þú
þér í formi?
Bryndís Björgvinsdóttir: Ég geng
með bamavagninn á hverjum degi.
Nína Friðþjófsdóttir: Með hlaupi.
Birna Sóley Sigurðardóttir: Ég geri
alls ekki neitt.
Þórhallur Arnórsson: Með íþróttum,
aðaUega Taik won du.
Lilja Ómarsdóttir: Ég fer á hestbak.
Lesendur
Símon Peres
og Biblían
Gestur Sturluson skrifar:
Eins og flestir vita væ- Símon Per-
es, utanríkisráðherra ísraels, á ferð
hér á landi í boði forsætisráðherra,
Davíðs Oddssonar. Var sú heimsókn
nokkuð umdeild en í þá deilu ætla
ég ekki að blanda mér.
Það eru hins vegar nokkur orð
Símons Peresar í blaðaviðtaii einu
sem mig langar að taka til athugún-
ar. - Þar er Peres spurður hvort gyð-
ingar séu rasistar, þ.e. kynþáttahat-
arar, Peres neitar því algjörlega.
Hann segir gyðingatrú og kynþátta-
fordóma ekki fara saman. Gyðingar
hafi aldrei kúgað aörar þjóöir. Og hér
vitnar hann í Biblíuna, þ.e. Móses.
Móses sagði Gyðingum að gleyma því
aldrei að í öðrum löndum værum við
gestir og við yrðum ávallt að virða
aðrar þjóðir.
Þama vil ég staldra við. Það er þá
fyrst sú kenning að gyðingar séu
ekki rasistar. Þegar við gluggum í
Gamia testamentið sjáum við að gyð-
ingdómur byggist að miklu leyti á
rasisma. Gyðingar segjast nefnilega
vera Guðs útvalin þjóð. Hvorki meira
né minna. Hvað era kynþáttafor-
dómar ef ekki að telja sig öðmm þjóð-
um æðri?
Símon Peres vitnaði í Móses þar
sem hann hvetur Gyðinga til að viröa
aðrar þjóðir. En annars staöar í
Mósebókum stendur líka allt annað.
Þar fær Móses og þá Gyðingaþjóðin
öll skilaboð frá hinum algóða og mis-
kunnsama Guði ísraela, hvemig þeir
eigi að meðhöndla sigraðar þjóðir. í
fimmtu bók Móse stendur; Þegar
Drottinn Guð þinn leiðir þig inn í
landið sem þú heldur nú inn í til að
taka það tíi eignar, og Hann hefur
stökkt burt undan þér mörgum þjóð-
um, Hettítum, Girgasítum, Amonít-
um, Kanaítum, Peresítum, Hefetíum
og Jebúsítum, sjö þjóðir sem em fjöl-
mennari, og er Drottinn Guð þinn
gefur þér á vald sitt, og þú sigrast á
þeim, skalt þú gjöreyða þeim. Þú
skalt ekki gjöra við þær sáttmála né
sýna þeim vægð. Hér eins og í Bibl-
íunni em miklar mótsagnir sem mér
finnst erfitt að koma heim og saman.
Og þá dettur mér í hug nokkuð sem
ég las einú sinni fyrir löngu. Ka-
þólskir voru það klókari en lúthersk-
ir að þeir kærðu sig ekkert um að
þýða Biblíuna á þjóðtungur heldur
hafa hana áfram á latínu. Þeir kærðu
sig ekkert um að almenningur kæm-
ist í hana því að allar mótsagnirnar
sem þar em gætu valdið heilabrotum
sem svo leiddu til efasemda.
Með þvi að glugga í Gamla testamentið sjáum við að gyðingdómur byggist að miklu leyti á rasisma, segir m.a. í
bréfi Gests.
Myndlistin fær langt nef
G.R. Lúðvíksson skrifar:
Þá hefur íslenski myndlistarheim-
urinn fengið það óþvegið frá hendi
DV. Ekki verður sagt að íslensk
myndlist eða íslensk menning sé hátt
skrifuð hjá þeim DV ritstjórum, þeg-
ar nú ríður út á ritvöllinn hinn al-
kunni kúltúristi og fagurkeri Úlfar
Þormóðsson. - Úlfar þessi er betur
þekktur sem útgefandi, rithöfundur,
ritstjóri og listhöndlari.
Ef satt er sem mér er tjáð að sjálfur
Jónas Kristjánsson hafi skipað Úlfar
í þetta embætti til aö fjalla um
myndlist líðandi sfimdar, þá hefur
ritstjórinn ekki aðeins gefið íslensk-
um listamönnum langt nef, heldur
líka það sem er öllu verra, að sú við-
urkenning sem DV hefur veitt ár-
lega, og hefur verið nokkur viður-
kenning fyrir viðkomandi, er nú gerö
dauð og ómerk. -
Ég hef ætíð haft gaman af Úlfari
sem lífskúnstner en það réttlætir
ekki það að þótt einhver hafi gaman
af einhveiju þá nægi það til þess aö
setjast við ritdóma, jafnvel á síðum
virtra dagblaöa. Auövitað má Úlfar
Þormóðsson hafa sína skoðun á hlut-
unum en það er ekki það sem mynd-
listarmenn þarfnast eða menningin.
Myndlistarmenn og hstin þarfnast
faglegrar og vitsmunalegrar gagn-
rýni og umfjöllunar.
Hinn 30. ágúst ritaði Úlfar pistil,
og þar var farið í gamla farið: „Mynd
nr. 13 fannst mér kröftugust." Hvað
segir þetta manni, og hverjum er
þetta ætlaö? Hverjum er ekki ná-
kvæmlega sama hvað hverjum þyk-
ir, hvað best sé - þegar engin fagleg
gamrýni er sett fram eða þekking til
þess er fyrir hendi. Menn skulu ekki
gleyma því að listin hangir líka sam-
an á sögulegu samhengi.
Ágætu ritstjórar DV: látið miklu
fremur af því að rita nokkuð um
myndlist yfirleitt ef þið teljið að
blessað fúskið sé betra en ekkert, eða
að ekki fáist nokkur sem geti fjallað
um eða gagnrýnt myndlist af viti. -
Það er engum, og síst myndlistinni,
gerður greiði með svona leikaraskap.
Á Egilsstaðaflugvelli. - Fullkominn
eða ófullkomin varaflugvöllur?
Hringið í síma
milli kl. l4og 16
-eðaskrifið
Nafn og símanr. vcrður að fylgja bréfum
Óf ullkominn varaf lug-
völlur á Egilsstöðum
Ásmundur hringdi:
í Mbl. í morgun (1. sept.) er frétt
sem hefur fyrirsögnina: „Fullkom-
inn varaflugvöllur á Egilsstöðum". -
Þetta er gleðifrétt að mörgu leyti en
þegar maður les smáa letrið, þ.e. inn-
tak fréttarinnar, er það frekar nei-
kvætt. Þama er ekkert sem gefur
fréttinni það gildi að hana megi
merkja sem fullkominn varflugvöll-
ur á Egilsstöðum.
í fyrsta lagi er það ekki fullkominn
varaflugvöllur sem er lokaður hálfan
sólarhringinn. Sagt er að aðeins sé
um dagvakt að ræða á þessum eina
stærsta flugvelli utan Keflavíkur og
Reykjavíkur. Stóm farþegaflugvél-
amar okkar þurfa því enn að treysta
á Akureyrarflugvöll en ekki Egil-
staðaflugvöll ef ólendandi er í Kefla-
vík vegna veðurs. Ég efast einnig um
að hinar stærri Boeing-flugvélar
Flugleiða geti notað Egilsstaðaflug-
völl fullhlaðnar. - Allt er þetta því
að kenna að fyrrv. samgöngumála-
ráðherra Alþýðubandalagsins, neit-
aði að leyfa byggingu fullkomins
varaflugvallar á Egilsstöðum þegar
það stóð tíl boða.
í svari fulltrúa Flugmálastjómar
kom fram að rétt væri að hinn nýi
varaflugvöllur væri lokaður á vet-
uma í vetur en það mætti rekja til
fjárskorts. Hitt væri ekki rétt að
Boeing-vélar Flugleiða, 757-200 teg-
undin, gæti ekki notað varaflugvöll-
iim. Þær gætu lent þar og hafið flug-
tak fullhlaðnar.
Eiríkur skrifar:
Margt eram við íslendingar
þekktari fyrir en stórmennsku. í
Þjóöarsálinni einn daginn
hringdu inn einhverjir sem töldu
það óhæfu að ekki væru boraar
fram kökur með eftirmiðdags-
kafflnu á opinberum sjúkrahús-
um hér. - Sjúklingar fengju bók-
staflega ekkert aö borða milli
hádegis- og kvöldveröar! En
hvort ætli sjúklingar hafi nú
betra af því að maula kökulufsur
með kaffl um miðjan daginn eða
svelta þennan tima? Ég er i fullri
vinnu og drekk aldrei svokallað
miðdagskaffl en borða þrisvar á
dag að öðru leyti. Hvað þá með
sjúklinga sem liggja og eyöa engri
eða lítilli orku?
Samkeppnisráð
mámissasig
Gunnar Guðmundsson skrifar:
Hið svokallaða samkeppnisráð,
sem stofhað var með lögum og
er arftaki hins vita gagnslausa
verðlagsráðs, er líka þannig
stofnun að hún má alveg missa
sig. Því er það góðs viti að meiri-
hluti samkeppnisráðs skuli hafa
veriö dæmdur vanhæfur. Meira
að segja svo rækilega að þeim
dómi veröur ekki áfrýjað.
Ummæli hirrna vanhæfú að
vandséð sé hvort nokkur í at-
vinnulifinu geti fjaliað um for-
sendur samkeppni er bara inn-
legg þeirra til aö halda sæti og
launum í einni nefnd til viöbótar.
FjármagntilPal-
estinumanna?
Magnús hringdi:
Það er undarlegt ef hægt er að
bjóöa Palestinmönnum fjárhags-
aðstoð rétt si svona og án þess
að það fari fyrst fyrir þing og þjóð
til samþykkis. - Hvaða skuld eig-
um við Palestínumönnum að
gjalda? Væri ekki nær að veita
þeim þjóðum sem við erum að
basla við aö hjálpa betri og meiri
aöstoð? Ég veit ekki betur en hér
heyrist harmakvein yfir þvi að
bjóða nokkrum illa særðum
börnum sjúkrarúm og aðhlynn-
ingu. Vitum við annars okkar
rjúkandi ráð þegar hjálparstarf
er annars vegar? - Gleymum nú
Palestínu í bili og höldum okkur
á jörðinni.
Brynja á allar
skrúfukynslóðirnar
Verslunarstjóri Brynju hringdi:
Ég vil að gefnu tilefhi lesenda-
bréfs í DV í dag, um að einhverjar
verslanir séu að hætta meö þess-
ar venjulegu skrúfur meö rauf-
inni, svo og stjörnuskrúfur, taka
fram að hér í versluninni Brynju
hafa þessar báðar tegundir ávallt
verið til og verður svo framvegis.
Engin ráöagerð er uppi um aö
hætta aö selja þessar skrúfur í
versluninni, þótt ný tegund af
skrúfum ryðji sér til rúms á
markaðinum og sé jafnframt til
sölu hér.
Kristjana skrifar:
Mikið er leiöinlegt aö hlusta á
þessar árstíðabundnu fréttir. Nú
er það skólaganga litlu krakk-
anna sem þurfa tösku, úlpu,
peysu og skó í skólann. Og ailtaf
sama væhð, þetta er svo dýrt og
erfitt allt. En sama fólk er
kannski nýkomið úr siglingu meö
öll bömin og það kostar víst ekk-
ert! Og bráðum koma fréttirnar
um réttirnarogslálrunina, síðan
jólaglöggið og bókaflóðið og eftir
áramótin þorrabakkinn, síöan
bollubakstur bakaranna og loks
baunimar á sprengidaginn.
Óskaplega staðnaö og rútínu-
kennt allt.