Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1993, Blaðsíða 18
26
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1993
Iþróttir unglinga
Ólöf María Jónsdóttir, GK:
Hélt að spennan
yrði miklu meiri
Gylfi Kristjánssoœi, DV, Akureyri;
„Ég hélt fyrir mótið að það yrði
miklu meiri keppni, sérstaklega
reiknaði ég með meiri baráttu milli
mín og Herborgar Amarsdóttur en
hún átti ekki góða daga,“ sagði Ólöf
María Jónsdóttir úr GK sem vann
öruggan sigur í stúlknaflokki.
„Eg er mjög ánægð með frammi-
stöðu mína á þessu móti og reyndar
sumarið í heild,“ sagði Olöf María.
Hún hefur reyndar fulla ástæðu til
þess, hefur lækkað um 4 í forgjöf í
sumar og komin í allra fremstu röð
kvenkylfinga okkar, aðeins 17 ára
að aldri. Hún segir að stelpum sem
iðka golf fari fjölgandi. „Það hefur
aukist mjög mikið að stelpur fari í
golf og það er mjög gott því golfið
er fín íþrótt fyrir stelpur, ekki síður
en stráka," sagði Ólöf María.
Unglingameistaramót Islands í golfi á Akureyri:
Ólöf Maria Jónsdóttir, GK,
i stúlknaflokki.
DV-mynd gk
Tryggvi lék golf í
hæsta gæðaf lokki
Kristín Erla Erlendsdóttir, GA:
Hélt ég ætti enga möguleika
á því að verða íslandsmeistari
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
„Ég byijaði í golfi í sumar, fór
þá á námskeið og það var eiginlega
pabbi sem dró mig í þetta,“ sagði
Kristín Erla Erlendsdóttir, GA,
sem sigraði í telpnaflokki, 14 ára
og yngri. Kristín, sem er aðeins 11
ára, vann öruggan sigur og pabb-
inn, Erlendur Hermannsson, fyrr-
um handboltamaður úr Víkingi,
stóð í ströngu mótsdagana sem
kylfusveinn.
„Ég hélt að ég ætti ekki mögu-
leika á því að verða íslandsmeistari
- og er þetta alveg æðislega
skemmtilegt. Ég er alveg ákveðin
að halda áfram í golfinu því þetta
er mjög góð íþrótt fyrir stelpur. Nú
er bara að vera dugleg að æfa,“
sagði Kristín.
Hún tók þama þátt í sínu fyrsta
stórmóti og helstu keppinautar
hennar voru ekki mikið eldri. Svo
virðist sem ný og öflug kynslóð
kvenkylfinga sé að koma fram og
er það vel. Kristín lækkaði sig um
7-8 í forgjöf í mótinu og hinar stúlk-
umar einnig eitthvað, svo þama
er að koma fram sterkur hópur
komungra stúlkna sem hlúa þarf
að svo breiddin í kvennagolfinu
fari að aukast.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Kristín Erla Erlendsdóttir, GA, ís-
landsmelstari I telpnaflokki.
DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
á eftir tith sínum sem hann vann í
fyrra.
„Það small allt saman hjá mér
núna og 3. hringurinn gerði útslag-
ið,“ sagði Tryggvi en þá lék hann á
68 höggum eða þremur undir pari.
„Ég lenti í bakmeiðslum í sumar sem
háðu mér lengi en nú gekk allt upp
sem ég ætlaði að gera, púttin duttu
niður og ég er alsæll með þetta,"
sagði Tryggvi.
Ólafía sigraði í stúlknaflokki
Ólöf María Jónsdóttir úr Keili vann
ömggan sigur í stúlknaflokki, hafði
16 högga forskot þegar upp var stað-
ið. í telpnaflokki, sem var óvenju fjöl-
mennur að þessu sinni, sigraöi 11 ára
stúlka frá Akureyri. Kristín Elsa
Erlendsdóttir ömgglega og Ómar
Halldórsson, Akureyri, sigraði einn-
ig örugglega í drengjaflokki.
Þátttakendur í mótinu vom um 120
talsins, 18 ára og yngri, og léku við
ágætis aðstæöur. Greinilegt er að
Qöldi ungra stórefnilegra kylfinga er
„á leiðinni" og framtíðin er björt.
Jafnframt fór fram skólakeppni Golf-
sambandsins. Þar sigraði sveit Verk-
menntaskólans á Akureyri. Sveit
Fjölbrautaskólans á Akranesi var í
2. sæti en öðlaðist þó þátttökurétt á
Evrópumóti skólaliða sem fram fer á
St. Andrews í Skotlandi þar sem
Akureyrarpiltarnir em of gamhr
fyrir það mót. í einstaklingskeppni
skólakeppninnar sigraði Birgir Leif-
ur Hafþórsson frá Akranesi sem lék
á 70 höggum.
„Þetta var stórkostlegt, það er ekk-
ert annað orð til yfir það,“ sagði
Tryggvi Pétursson úr Golfklúbbi
Reykjavíkur eftir að hafa tryggt sér
sigur í flokki 15-18 ára á Unghnga-
meistaramóti íslands í golfi á Akur-
eyri um helgina.
Tryggvi lék golf í hæsta gæðaflokki
á mótinu, lék 72 holurnar á 286 högg-
um eða aðeins 2 yfir pari. Einhvem
tíma hefði árangur Birgis Leifs Haf-
þórssonar frá Akranesi eða Sigur-
páls Sveinssonar frá Akureyri, sem
urðu í næstu sætum, nægt til vinn-
ings í stórmóti á JaðarsvelU en ekki
núna.
„Það er aUt í lagi að tapa þegar
svona golf er spUað, Tryggvi lék frá-
bærlega," sagði Birgir Leifur sem sá
Tryggvi Pétursson, GR, lék frábært golf á Akureyri um helgina og tryggði
sér íslandsmeistaratitiI í flokki 15-18 ára. DV-mynd gk
Ómar HaUdórsson, GA:
Var ákveðinn í að vinna
Gyifi Kristjánsaon, DV, Akureyri:
„Takmarkið hjá mér var að bæta
árangur minn frá Akureyrarmót-
inu á dögunum, þá lék ég á 305
höggum en nú á 303 svo það tókst,"
sagði Ömar Halldórsson, GA, sem
sigraði í flokki 14 ára og yngri.
„Ég var líka alveg ákveðinn í að
sigra og taldi mig hafa möguleika á
þvi fyritfram. Eg spilaöi vtð alla
þessa stráka á rnóti fyrir sunnan
fyrir stuttu og vann þá svo ég vissí
að ég átti möguleika. Mér tóksl aö
spila ágætlega, nema á flötunum, en
það kom ekkí aö sök aö þessu sinni,“
sagöi Ómar.
Hann var nu á síðasta ári 1 yngri
flokki á íslandsmóti en í fýrra varð
hann í 10. sæti. Omar haföi umtals-
veröa yíirburði að þessu sinni og
segist reyndar hafa veriö btiinn aö
vinna eftir 54 holur. „Þá var eigin-
iega formsatriðí að klára þetta og
það gekk ágætlega," sagði Omar.
Ómar Halldórsson,
meistari drengja, 14 ára og yngri.
DV-mynd gk
Golfúrslit ff á Akui'eyri
Drengir, 14 ára og yngri:
1. ÓroarHalldórsson, GA...............................76-78-74-75=305
2. GuðjónEmilsson, GR...............................82-77-82-73 = 314
3. Pétur Ö. Sigurðsson, GR.............................81-78-82-82 = 323
4. Ingvar R. Guðmundsson, GA .....................................327
5. Gunnlaugur Ðúi Ólafsson, GA....................................327
Telpur, 14 ára og yngri
1. Kristín Elsa Erlendsdóttir, GA.................................434
2. Katla Kristjánsdóttir, GR.......................................449
3. HaUa Björk Eriendsdóttir, GSS..................................459
. 4. EsterÝr Jónsdóttir, GOS.......................................473
5. Bjarney Ólafsdóttir, GR 495
Stúikur 15-18 ára
1. Ólöf María Jónsdóttir, GK..........................78-76-80-78=312
2. Herborg Amarsdóttir, GR...........................85-80-81-82 = 328
3. Rut Þorsteinsdóttir, GS............................87-91-86-88=352
4. Erla Þorsteinsdóttir, GS.......................................361
5. Anný BjörgPálmadóttir, GH......................................367
Piltar, 15-18 ára
1. TryggviPétursson, GR...............................73-74-68-71=286
2. BirgirL. Hafþórsson, GL............................74-72-74-72=292
3. SigurpáU Sveinsson, GA..............................71-74-77-73=295
4. Birgir Haraidsson, GA..........................................305
5. Þórleifur Karisson, GA.........................................306