Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1993, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
Fréttir
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
Er ekki orðsjúkur en
sárna ummæli Davíðs
- svara ekki ásökunum um óheiðarleika fyrr en mér er runnin reiðin
„Málið er úr mínum höndum. Ég
ætla ekki að tjá mig um þessar aðfar-
ir fjármálaráðherra og hans manna.
Þó er ljóst að nú gefst enn eitt tilefni
til lögsóknar af hálfu almennra borg-
ara á hendur ríkissjóði. Ég vona að
skaðabótunum sem ríkissjóður verð-
ur fyrir verði haldið innan einhvers
hófs því það er erfitt ástand í ríkis-
fjármálunum," segir Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra.
í gær lagði ríkistollstjóraembættið
hald á soðin kalkúnalæri sem Bónus
flutti inn á sunnudaginn eftir að hafa
fengið innflutningsleyfi hjá utanrík-
isráðherra. Samkvæmt heimildum
DV greip ríkistollstjóri til þessara
aðgerða að höfðu nánu samráði við
yfirmann sinn, Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra.
Aðspurður kveðst utanríkisráð-
herra ekki hafa gerst sekur um lög-
brot meö því að heimila innflutning-
inn. Sem stjórnvald hafi hann ein-
faldlega staðið frammi fyrir því að
afgreiöa máliö samkvæmt bestu
samvisku og á grundvelli laga.
Jón Baldvin segst vera þeirrar
skoðunar aö enn hafi ekki orðið shk-
ur trúnaðarbrestur milli sín og for-
sætisráðherra að til stjórnarslita
þurfi að koma.
„Ég er ekki orðsjúkur maður. Ég
viöurkenni að mér sárna þau um-
mæh forsætisráðherra, í viðtali við
Morgunblaðið, þar sem hann bendlar
mig og minn flokk við óheiðarleika.
Það eru þyngstu orð sem fallið hafa
í þessum deilum en ég ætla ekki að
svara þeim fyrr en mér er alveg ör-
ugglega runnin reiðin.“
Að sögn Jóns Baldvins byggir
ákvörðun hans um að veita Bónusi
innflutningsheimildina á tvennu.
Annars vegar að úrskurður forsætis-
ráðherra um að forræði á innflutn-
ingi landbúnaðarvara skuli standa
þar til réttbær stjórnvöld ákveði ann-
að. Ljóst sé þó að ný reglugerð Hall-
dórs Blöndals um innflutningstak-
markanir eigi sér ekki lagastoð og
brjóti að auki gegn milliríkjasamn-
ingum. Því beri að afturkalla hana.
Ef ekki verði að láta reyna á rétt-
mæti hennar fyrir dómstólum. Far-
sælast væri þó að ná samkomulagi í
anda GATT.
Mannúðleg lögfræði
Að öðru leyti segist Jón Baldvin
byggja ákvörðun sína á þeirri mann-
úðlegu lögfræði að túlka réttaróviss-
una innflytjendum í hag, enda hafi
þeir tekið sínar ákvarðanir í góðri
trú um að innflutningur væri heim-
01. Að þessu leyti hafi ákvörðunin
ekki fordæmisgOdi.
„í þessu sambandi styðst ég við þá
þróun sem átt hefur sér stað í ís-
lenskum rétti og í löggjöf og þá tO-
hneigingu í dómaframkvæmd
Hæstaréttar að túlka stjómvalds-
ákvarðanir, sem takmarka frelsi
borgaranna og byggja ekki á fuU-
nægjandi lagastoð, einstaklingnum í
hag. Mannréttindaákvæði em sett
einstaklingnum til verndar en ekki
stjórnvöldum. Ég styðst líka við það
sjónarmið að stjórnvöld axli sjálf
ábyrgö af því þegar réttaróvissa ríkir
af þeirra völdum en velti ekki
ábyrgðinni yfir á einstaklingana.
Þetta kaOa ég mannúðlega og skyn-
samlega lögfræði."
Jón Baldvin segir brýnt að eyða
þeirri réttaróvissu sem komið hafi
upp vegna ágreinings mOli landbún-
aöarráðherra annars vegar og sín og
viðskiptaráðherra hins vegar um
túlkun laga. Pólitísk niðurstaða nú-
verandi stjórnarmeirihluta geti ekki
orðið önnur en að faOa frá úreltu
fyrirkomulagi um bann og heimUa
viðskipti eins og stefnt er að í GATT-
viðræðunum. Afla þurfi lagaheim-
Oda fyrir veröjöfnunargjöldum til að
tryggja samkeppnisstöðu innlendra
framieiðenda í upphafi. í kjölfarið
verði þessi gjöld að lækka í áföngum.
„TUgangurinn með þessu er tví-
þættur; að veita innlendum framleið-
endum aðhald með samkeppni og
lækka verð á lífsnauðsynjum tO al-
mennings. Um þetta ætti að geta
náðstpóUtísksamstaða." -kaa
Stuttar fréttir
K vef pestir í gangi
Slæmar kvefpestir hafa gengið
að undanfömu en engin flensutU-
feUi hafa veriö greind. Sam-
kvæmt Morgunblaðinu minna
sum kveftilfeUanna þó á flensu.
Meðgöngutími kvefpesta er 3 til 4
dagar áöur en einkenni koma í
jjós.
Ekkifrimínútur
Kennurum verður ekki greitt
fyrir gæsiu skólabama í frímín-
útum á næsta ári. Samkvæmt
Tímanum er þetta ein af þeim
spamaðarleiðum sem mennta-
málaráðherra greip tO í tengslum
við fjárlagagerðina.
Deildt um greiðsiumaHc
Tekist hefur verið á um
greiöslumark tO bænda í nefnd
sem annast framkvæmd búvöra-
santnings. Bændur vilja ekki taka
á sig þá skerðingu sem þeim ber.
Samkæmt RÚV mun landbúnað-
arráöherra úrskurða í málinu
náist ekki samkomulag í dag.
Útlent kjöt í loftinu
Flugleiðir bjóða farþepm sin-
um upp á erlent kjöt í milOlanda-
flugi. Samkvæmt Morgunblaðinu
notar félagið einnig innlent kjöt
en keyptir séu tilbúnir matar-
skammtar á flugvöllum erlendis.
Sameining félaga
Dagsbrún og Framsókn hafa
skipað viöræöunefnd tO aö ræða
sameiningu verkalýðsfélaganna.
Tfminn hefur eftír Guðmundi J.
Guðmundssyni að kynjaskipt
stéttarfélög séu tímaskekkja.
Raforkuverð lækkað
Raforkuverð tíl heimila á Eyr-
arbakka, Stokkseyri og Selfossi
hefur verið lækkað um 4%. Sam-
kværat Mbl. er raunlækkunin þó
um 8% því nýleg hækkun á heOd-
söluverði var ekki velt út í verð-
lagið.
Fluglelðabréflækka
Gengi hlutabréfa í Flugleiðum
hefur ekki verið skráð lægra á
Veröbréfaþingi þaö sem af er
þessu ári. Samkvæmt Mbl. hafa
bréfin lækkaö um 30% á árinu
að teknu tflliti til arðgreiöslu.
Kalla þurfti til hundaeftirlitsmann og lögreglu við Glæsibæ í gær þegar
hundur viö verslunarmiðstöðina tók upp á því að glefsa í fólk. Hundurinn
bar enga virðingu fyrir laganna vörðum og glefsaði meðal annars i lögreglu-
þjón. Eftir að tekist hafði að róa hundinn niður var hann fluttur á Dýraspital-
ann þar sem hann var skoðaður nánar. DV-mynd Sveinn
Friörik Sophusson um aðgerö Jóns Baldvins:
Utanrikisráð-
herra er að leita
eftir sáttum
- nóg af ágreiningsefnum í landbúnaöarmálum
„Eg held að það sé augljóst mál að
utanríkisráðherrann er að leita eftir
sáttum með þessari aðgerö og viður-
kenna reglugerðina og úrskurðinn.
Hann er jafnframt að leitast við að
standa við þá yfirlýsingu sem hann
lét hafa eftir sér í fjölmiölum um að
hægt væri að flytja inn í gegnum
Keflavíkurflugvöll. Ég held að þetta
hafi ekkert með stjórn eða sljórnar-
sht að gera. Það er ágreiningur á
mifli þessara flokka. Það er meira
að segja ágreiningur á milfl manna
um landbúnaðarmál innan sama
flokksins. Aðalatriðið í þessu máh
er að það sé viðurkennt aö það séu
gfld lög í landinu, að sömu lögin gOdi
um land allt og gildi á hverjum ein-
asta vikudegi, nema að þaö séu gerð-
ar sérstakar breytingar á lögum eða
reglum," sagði Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra á blaðamanna-
fundi í ráöuneytinu í gær vegna inn-
flutnings Bónuss á kalkúnalærum.
Friðrik kynnti niðurstöðu ríkistofl-
stjóra um að embættið hefði heimOað
endanlega toflafgreiðslu kalkúna-
kjötsins ef umsagnar og staðfesting-
ar Framleiðsluráðs landhúnaðarins
yrði aflað og leyfir fengist fyrir inn-
flutningnum.
Friðrik sagði það hafa komið mjög
skýrt fram af hálfu Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra
að hann hefði gefið fyrirmæh til
sýslumannsins á KeflavíkurflugvelO
um að virða reglugerð landbúnaðar-
ráðuneytisins varðandi innflutning á
landbúnaðarvömm. Friðrik sagði að
„sá ágreiningur væri úr sögunni“.
„Eftir sem áður höfum við nóg af
ágreiningsefnum um landbúnaðar-
máOn þangað til þingið kemur sam-
an og setur lög sem væntanlega duga
til framtíðarinnar," sagöi Friðrik.
„Upphaf þessa máls er auðvitað að
menn greinir á um hvort lögum hafi
vérið breytt á þinginu í nóvember á
síðastliðnu ári með þeim réttaráhrif-
um að það sé heimilt að flytja þessar
landbúnaöarvörur inn án leyfis.
Þann ágreining getum við auðvitaö
ekki leyst öðruvísi en við höfum gert
í dag. En um það munu dómstólar
skera úr ef þeir verða um það bærir.
Mér skOst að Hagkaup muni gera það
innan tíðar,“ sagöi Friðrik Sophus-
son. -Ótt
Gunnar G. Schram, prófessor í stjómskipunarrétti:
Hæpið að telja ákvörðun ráðherra ólögmæta
- reglugerð Halldórs Blöndals stangast á við samning íslands og EB
Það er hæpið að telja ákvörðun
utanríkisráðherra um að heimila
innflutninginn ólögmæta, segir
Gunnar G. Schram, prófessor í
stjórnskipunarrétti við Háskóla ís-
lands.
Samkvæmt heimildum DV leitaði
Jón Baldvin Hannibalsson eftir áOti
hjá virtum fræðimönnum á sviði lög-
fræði áður en hann veitti Bónusi
heimOd tfl að flytja inn 144 kfló af
kalkúnalæmm um helgina. í þeim
hópi voru meðal annars kennarar
við lagadeild Háskóla íslands.
Gunnar segir að í íslenskum stjóm-
skipunarrétti sé þaö grundvallar-
regla að reglugerðir veröi að eiga sér
ótvíræða lagastoð. í því sambandi
bendir hann á að reglugerð landbún-
aðarráðuneytisins frá 9. september
um takmörkun á innflutningi land-
búnaðarvara virðist stangast á við
samning íslands við Evrópubanda-
lagið um innflutning landbúnaöar-
vara sem gerður var 2. maí 1992. Þá
segir Gunnar miklu máli skipta að
fá úr því skorið fyrir dómstólum
hvort reglugerö landbúnaðarráðu-
neytisins hafi nægjanlega lagastoð.
Gunnar segir að ef reglugerð er
sett í andstöðu viö samninga íslands
við önnur ríki, sem gildi hafa hlotið,
sérstaklega ef lagastoö hennar er
hæpin, þá komi til grenia að víkja
henni tímabundið til hOðar meðan
botn er fenginn í máOð. Hann segir
þaö hlutverk utanakisráðuneytisins
að annast framkvæmd samninga ís-
lands við önnur ríki.
„Þetta sýnist mér vera sú röksemd
sem þyngst vegur þegar menn velta
fyrir sér réttmæti þeirrar ákvörðun-
ar utanríkisráðherra aö veita Bónusi
umrædda innflutningsheimild," seg-
irGunnar. -kaa