Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1993, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
3
Fréttir
Hálfi falsaði hundraðkrónaseðillinn sem Hinrik Auðunsson fékk í hendurnar
á laugardag. DV-mynd Brynjar Gauti
HáKur falsaður
hundraðkall
„Það kom hérna ungur drengur
sem var greinilega í vímu. Hann ætl-
aði að kaupa þtjá pakka af tóbaki og
dró upp bunka af hundraðköllum og
lagði þá á borðið og labbaði út. Hann
hafði ekki borgað nóg fyrir tóbakið
og auk þess var einn hundraðkall-
anna hálfur svo ég fór á eftir honum
og náði í tóbakið og sagði honum að
koma og ná í peningana en hann
hafði engan áhuga á því,“ segir Hin-
rik Auðunsson, starfsmaður í sölu-
turninum Svarta svaninum, sem á
laugardaginn tók við hálfum Fólsuð-
um hundraðkrónaseðli.
Hinrik segist hafa sett peningaseðl-
ana í kassann en hálfa seðilinn hafi
hann sett til hliðar. Þaö hafi ekki
verið fyrr en klukkan íjögur, þegar
hann gerði upp kassann og leit betur
á hálfa seðilinn, að hann sá að hann
var Ijósritaður og var nokkuð góð
eftirlíking. Seðlamir, sem hann setti
í kassann, hafi verið gefnir til baka
um daginn og því geti hann ekki sagt
til um hvort þeir hafi einnig verið
falsaðir.
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn hjá RLR, segist ekki hafa vitn-
eskju um hvort fleiri falsaðir hundr-
Vaxtalækkun hjá
Búnaðarbanka
Búnaðarbankinn lækkar vexti einn
banka í dag. Lækkunin nemur alls
staðar 1,5 prósenti. Um er að ræða
innlánsvexti á vísitölubundnum
reikningum, bæði óbundnum og
bundnum skiptikjarareikningum og
útlánsvexti á almennum víxillánum.
Sparisjóðirnir hafa ekki breytt
vöxtum hjá sér undanfarinn mánuð;
íslandsbanki lækkaði vexti fyrir 10
dögum og Landsbankinn um síðustu
mánaðamót. -bjb
Menntamálaráöuneytiö:
Nýr skrKstof u-
stjóri ráðinn
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra hefur ákveðið að ráða dr.
Stefán Baldursson, framkvæmda-
stjóra rannsóknasviðs Háskóla ís-
lands, í stöðu skrifstofustjóra
menntamála og vísinda við mennta-
málaráðuneytiö en staðan var aug-
lýst laus til umsóknar nýlega. Alls
bárust níu umsóknir um stöðuna.
-GHS
Bíll á staur
Tvennt var flutt á slysadeild á tólfta
tímanum í gærkvöld eftir að bifreið
þeirra lenti á ljósastaur við Klepps-
veg.
Bæði reyndust lítið slösuö og fengu
að fara heim í nótt. Bifreiðin var hins
vegar mikið skemmd og var flutt af
vettvangi með kranabíl.
-PP
aðkrónaseðlar séu í umferð. Hins
vegar hafi einn falsaður þúsund-
krónaseðill komið í þeirra hendur á
dögunum. -PP
Chevrelet Corsica Luxury 93'
Á kr. 1.869.000.- á götuna með ryðvörn og skráningu. ^
Aukalega í Luxury:
• Alfelgur.
• VindskeiS.
• MótaSar aurhlífar.
• BreiS dekk meS hvítum stöfum.
Alger nýjung
lánum 3/4 jjf
M
StaSalbúnaSur í Gor:
bremair, sjólf:
ið
3B mánuði.
íabilinu er hægt
allt að sex sinnum og
Þú greiðir þá bara vexti.
:tur lánið orðið til 42 mánaða.
il aS auSvelda þér bílakaupin enn frekar, tökum
viS vel meS farna notaSa bíla uppí.
Bílheimar hf.
FOSSHÁLSI 1 - SÍMI 63 4000
daga til
d. 9-18
laugardaga
ímarit fyrir alla
A NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA í ÁSKRIFT
í SÍMA
63-27-00
BROSTIN
BÖND
bls. 113
Skop........................................... 2
Nóg ást til skiptanna.......................... 3
Leyndardómur frænda míns...................... 10
*
Er trúin eðlislæg?............................ 14
Utangarðsmaður verður ofurlögga............... 23
Hvað veistu um augu?.......................... 29
Það sem allar konur þurfa að vita um estrógen. 31
Drengurinn sem heyrði inn í framtíðina........ 37
Lausn á krosstölugátu......................... 42
Týndi heimurinn............................... 43
Djörf áætlun um björgun Rússlands............. 50
Koffín og neysla þess......................... 58
Hvað er að heyra!............................. 68
Hugsun í orðum................................ 72
Raunasaga úr tölvuheiminum.................... 74
Sprengjuvargur í véum......................... 82
Létti kúrinn.................................. 91
Máttur draumsins.............................. 96
Krosstölugátan................................100
Lokuð inni í peningaskáp.................... 101
Aflvaki afreksmanns...........................107
Brostinbönd...................................113
Ferðalag lífs okkar...........................120
Saga Víðidals eystra..........................147