Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1993, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
17
Iþróttír
Háværar deilur hjá Feyenoord:
Lausn virðist
í sjónmáli
- aðstoðarþjálfarinn kokhraustur
Eyþór Eövarðsson, DV, HoBandi:
Allt útlit er fyrir að deilan mllli
þjálfara Feyenoord, andstæðinga
Skagamanna í Evrópukeppni
meistaraliða, Van Hanegem, og
varnarmanns liðsins, John
Metgod, sé aö leysast. Fram-
kvæmdasjóri Feyenoord ræddi við
báða aðila og ákveðið var að
Metgod yrði áfram hjá liðinu.
Hollensku dagblöðin hafa und-
anfarna daga veriö að greina frá
miklum deilum innan Feyenoord
milli þjálfarans Wim Van Hanegem
og varamannsins Johnny Metgod.
Upphaf deilunnar, samkvæmt
Metgod, má rekja til ummæla Van
Hanegem um Metgod fyrir 15 árum
þess efnis að einhvern tímann
myndi hann „eyða honum". Van
Hanegem hefur neitað ummælun-
um og sagt að Metgod sé sár ytir
því að vera á varamannabekknum
og vilji að hann hætti hjá liðinu
vegna ummælanna.
Ilollensku dagblöðin segja að tap
liðsins á islandi hafi dregið deil-
urnar upp á yfirborðið. Rotterdam
biaðið AD segir að deilurnar séu
farnar að hafa áhrif á leikraennína
í Feyenoord. Dagbiaðið TROUW,
sem mikið hefur skrifað um leikinn
gegn Akranesi, segir að hinn hlægi-
legi ósigur liljóti að vekja upp
spurningar um Van Hanegem.
Námskeið í kurteisi
Á forsíðu hollenska dagblaösins
Trouw í gær er haft eftir Metgod
að deilan milli þeirra hafi verið
leyst. Ennfremur er haft eftir hon-
um aö það mynda hjálpa ef Van
Hanegem tæki námskeið í kurteisi
svo hann gæti tekið á þessu vanda-
máli. Van Hanegem hefði hagað sér
eins og þrjóskur skólakrakki sem
hefði orðið dónalegri raeö hverri
spurningu sem hann hetði verið
spurður.
Almennt telja fótboltasérfræð-
ingar dagblaðanna liann vera mjög
góöan þjálfara. Tvíburarnir Arnar
og Bjarki sögðu meðal annars i
opnuviðtali við fótboltablaðið VO-
ETBAL NEDERLAND að Van
Hanegem væri frábær þjálfari en
mjög sérstakur og með góðan húm-
or.
Valtað yfir Skagamenn
Aðstoðarþjálfari Feyenoord segir í
viðtali við Telegraaf um helgina að
ef Feyenoord fái 30 þúsund stuðn-
ingsmenn á leikinn og hðið skori
snemma í leiknum sé líklegt aö það
valti yfir Akranesliðiö.
J!
u
„Ég lít ekki á mig sem neinn
kraftaverkamann, enda kem ég
ekki einn til með aö vinna öll þau
störf sem gerð eru að umræðuefni
á unglingasíðu DV í gær. Við verð-
ur þrír ábyrgir fyrir þessum störf-
um en raunum vinna þau í sam-
vinnu við trúnaðarmenn okkar
víða um land. Það verður því breið
fylking manna sem vinna mun að
þessum málum en ekki einn mað-
ur,“ sagði Gústaf Björnsson sem
ráðinn var í síðustu viku sem
landsliðsþjálfari í knattspyrnu
ásamt Ásgeiri Eiiassyni.
Á unglingasíöunni í gær lýsti
umsjónarmaður síöunnar þeirri
skoöun sinni að einn maður gæti
ekki komist yfir öll þau störf sem
Gústaf væri ætluð.
„Það verður mjög mikill munur
á störfum okkar og þeirra Þórðar
Lárussonar og Magnúsar Einars-
sonar sem báðir skiluðu góðu
starfi. Þeir voru báðir í fullu starfi
annars staðar og þjálfuðu 16 ára
landsliðiö í hlutastarfi. Við Ásgeir
verðum háðir í fullu starfi hjá KSÍ
og það er töluvert mikiil munur á
því. Ásgeir verður aðalþjálíari
drengjaiandsliðsins og égaöstoðar-
maður hans. Guöni Kjartansson,
sem þjálfa mun 18 ára landsliðiö,
mun síöan koma inn í störf okkar
eftir því sem þurfa þykir,“ sagði
Gústaf.
„Fræðslumálin fylgja mikið
skólaárinu, október til raars, og á
þeim tíma er engin keppni í gangi
Við erum að fara af stað með hæfi-
leikamótun þar sem við skiptura
landinu upp í svæði. Við verðum
með trúnaöarmenn á hverju svæði
sem létta munu okkur starfið og
koma efnilegum leikmönnum á
framiæri.“ -BL
Iþróttir
Skagamenn hafa haft ríka ástæðu til að kætast í allt sumar. Mörg félög hafa áhuga á leikmönnum meistaraliðsins af Skaganum. Frá vinstri: Ólafur Þórðarson, sem
ætlar að tala við forráðamenn norska liðsins Lyn I næstu viku, Þórður Guðjónsson, sem fer fljótlega til þýska 2. deildarliðsins Bochum, Sigurður Jónsson, sem
samkvæmt heimildum DV hefur fengið tilboð frá skandinaviskum liðum, og Mihajlo Bibercic. DV-mynd Sveinn
Skagamenn eftirsóttir
- Ólafur ræðir við Lyn en neitaði boði frá Sviss - Þórður fer til Bochum
Margir leikmenn Akranessliðsins í
knattspymu eru undir smásjá erlendra
félagsliða eftir frábært gengi hðsins í
sumar og sigurinn gegn Feyenoord á
dögunum. Á miðvikudag í næstu viku
leika Skagamenn gegn Feyenoord í síð-
ari leik liðanna í Evrópukeppni meist-
araliða í Hollandi og vitað er að margir
„njósnarar" verða á leiknum gagngert
til að fylgjast með leikmönnum LA.
Eins og kom fram í DV í gær er Þórð-
ur Guðjónsson á leið út og mun ekki
leika með Skagamönnum á næsta ári.
Hann hefur fengið margar fyrirspumir
erlendis frá, meðal annars frá þýska 2.
deildarhðinu Bochum, og afráðið er að
hann fari til félagsins til reynslu fljót-
lega eftir leikinn gegn Feyenoord í
næstu viku.
Þá gæti Sigurður Jónsson verið á leið
í atvinnumennskuna að nýju. DV hefur
heimildir fyrir því að félög í Skandinav-
íu hafi sýnt Sigurði áhuga og vitað er
að Brann í Noregi hefur verið að bera
víumar í hann auk félaga í Danmörku.
Eins og kom fram í DV á dögunum
hefur Ólafur Þórðarson fengið tilboð frá
norska félaginu Lyn um að leika með
félaginu á næsta keppnistímabili. Ólaf-
ur er ekki alveg ókunnugur herbúðum
Lyn því að hann lék með liðinu áður
en hann kom heim til íslands.
„Ég hef ekki ákveðið hvað ég geri í
þessum málum en ég ætla þó að fara
út og ræða við forráðamenn Lyn eftir
leikinn gegn Feyenoord," sagði Ólafur
í samtali við DV.
Lyn er í mikilli fallhættu í norsku 1.
deildinni og ef hðið fellur þá segir ólaf-
ur það ekki koma til greina að fara til
félagsins.
Fékk upphringingu
frá svissnesku félagi
Lyn er ekki eina félagið sem sýnt hefur
Ólafi áhuga. Á dögunum fékk hann
upphringingu frá svissneka hðinu So-
lothurn, liðinu sem Sævar Jónsson lék
með fyrir nokkrum árum en Ólafur gaf
þeim afsvar.
-GH
Boðum um þjálf un
rignir yf ir Teit
Það má segja að þjálfaratilboðum
rigni yfir Teit Þórðarson, fyrrum
þjálfara Brann og Lyn í Noregi. Lyn
hefur þegar boðið Teiti að taka við
hðinu sem er í næstneðsta sæti 1.
deildar þegar þremur umferðum er
ólokið. Þá hefur Teitur tilboð upp á
vasann frá einu af besta félagi í Sví-
þjóð en að svo stöddu vih hann ekki
greina frá því hvaða félag það er.
Nýjasta tilboðið barst til Teits nú um
helgina en þá buðu forráðamenn
Öster honum að taka við liðinu eftir
að þjálfari hðins hafði verið rekinn
eftir tap gegn norska hðinu Kong-
svinger í Evrópukeppninni í síðustu
viku. Teitur er ekki alveg ókunnugur
hjá Öster því hann lék með liðinu
fyrir 8 árum.
„Mig langar mikið að byija að
þjálfa aftur og núna er ég svona að
fara yfir stöðuna. Ég er mest spennt-
ur fyrir því að vera áfram hér í Nor-
egi og þá er Lyn sterklega inni í
myndinni nái liðið að bjarga sér frá
falh,“ sagði Teitur í samtali við DV
í gær.
Fari svo að þú takir að þér þjálfun
á ný hefðir þú þá ekki áhuga á að fá
til liðs við þig leikmenn úr Skagahð-
inu?
„Það er ekki óhklegt eins og þeir
hafa verið að leika í sumar. Eg hef
lítið séð til þeirra en þekki marga af
þeim. Það kæmi mér alls ekki á óvart
þótt ÍA kæmist í eina umferð enn í
Evrópukeppninni," sagði Teitur.
-GH
Tveir Valsmenn til liðs við KA í handboltanum?
Jón og Vakli
norður í dag
Hugsanlegt er að Valsmennimir
Valdimar Grímsson og Jón Kristj-
ánsson leiki með KA í 1. deildinni
í handbolta í vetur. Þeir félagar
halda norður yfir heiðar í dag til
viðræðna við forráðamenn KA.
„Þetta er fyrst og fremst spurning
um atvinnu. KA-menn hafa boðið
mér atvinnu sem ég ætla að hta á.
Ég er atvinnulaus héma í bænum
og ef mér líst vel á þessa atvinnu
sem er í boði þá er mjög líklegt að
ég fari til KA,“ sagði Valdimar við
DV í gærkvöldi.
Valdimar sagði ennfremur að ef
aht gengi upp þá myndi hann skrifa
undir á miðvikudag og væri þá orð-
inn löglegur fyrir fyrsta leikinn
sem er á fimmtudag.
„Ég á algjörlega eftir að heyra frá
Valsmönnum. Þeir hafa verið að
leita að vinnu fyrir mig hér í bæn-
um og það getur gerst einn tveir
og þrír að þeir finni eitthvað sem
mér hst á og þá getur þessi staða
alveg breyst," sagði Valdimar.
Það sama hangir á spýtunni hjá
Jóni. Hann hefur verið án atvinnu
hér í bænum og eftir að KA-menn
buðu honum að koma og skoða
vinnu sem þeir hafa útvegað hon-
um fer hann norður í dag. Jón er
ekki ókunngur KA því hann lék
með hðinu áður en hann gekk til
hðs við Val fyrir nokkrum árum.
„Það er ekkert komið á hreint í I
þesu sambandi en aht snýst þetta
um vinnu. Ég fer norður í dag til
að líta á aðstæður og kanna þetta
starf sem mér hefur boðist og síðan
verður bara að koma í ljós hvað |
verður,“ sagði Jón við DV í gær-
kvöldi.
Jón meiddist á baki undir lok síð-
asta keppnistímabils og gat ekki j
leikið nema einn af fjórum úrshta-
leikjunum við FH. Hann sagði í I
samtali við DV að hann væri ahur
að braggast þó svo að hann væri |
ekki kominn í næghega góöa æf-
ingu. -GH j
Þorbjörn Jensson.
Valdimar Grímsson.
Jón Kristjánsson.
„Það hlýtur að vera peninga-
uppspretta þarna fyrir norðan“
- segir Þorbjöm Jensson, þjálfari Vals, óhress með gang mála I
„Við ráðum ekkert við þetta. Það
virðist vera meira um vinnu fyrir
norðan en hér í bænum og það hlýt-
ur bara að vera peningauppspretta
þarna fyrir noröan. Það gerir okk-
ur ekki samkeppnisfæra við KA-
menn,“ sagði Þorbjöm Jensson,
þjálfari Vals, þegar hann var
spurður hvort Valsmenn ætluðu
að sleppa þeim Valdimari og Jóni
thKA.
„Ég vona að ahir Valsmenn séu
á fullu að leita að vinnu fyrir þessa
menn. Það er alltaf talað um að
Valur sé stórt félag og að í félaginu
sé stjórnmálamenn og fyrirtækis-
menn og mér þykir það nú djöfuh
slappt ef að það er ekki hægt að
útvega vinnu fyrir tvo menn,“
sagði Þorbjörn við DV í gær.
„Það yrði náttúrlega hrikalega
blóðugt fyrir okkur aö missa tvo
af lykilmönnum hðsins th viðbótar
þeim Geir og Jakobi sem eru farn-
ir. Þetta yrði alveg út í hött fyrir
mig sem þjálfara sem er að und-
irbúa lið fyrir íslandsmót og Evr-
ópukeppni sem verður eftir 10
daga. Þessi fíflalög sem vora sam-
þykkt á HSÍ gera það að verkum
að nú geta menn verið að skipta
um félög aht til 1. nóvember sem
nær ekki nokkurri átt,“
„Við virðumst vera þannig I
Reykjavíkurfélögin að við stöndum I
mjög illa að vígi gagnvart sveitarfé- [
lögunum í kring. Þau virðast geta I
ausið ómældu fé í þetta en við erum I
að berjast í bökkum. Við eigum I
nógan mannskap og höfum ahð
góða leikmenn í okkar félögum og I
lagt áherslu á yngri flokkana en|
það virðist ekki vera hjá hinum.
Þau bara koma með peninga ogl
kaupa aha góðu leikmennina sem I
við höfum,“ sagði Þorbjörn að lok-
um.
-GH
Teitur Þórðarson ásamt eiginkonu sinni.
Jafnthjá MTK
MTK Búdapest, mótlierji KR í
UEFA-bikarnum, gerði jafntefli,
l -l, viö Videoton í ungversku 1.
deildhmi í knattspyrnu um helg-
ina og er I fimmta neðsta sædtiu
og hefur enn ekki unnið leik.
EnnóvístineðLanger
Enn er óvíst hvort Þjóðvetjinn
snjalli, Bernhard Langer, geti
leikið með Evrópuúrvalinu gegn
Bandaríkjunum í Ryder-bikar-
keppninni í golfi um næstu helgi,
vegna meiðsla í hálsi.
Levskiátoppnum
Levski er efst í 1. deild búlg-
örsku knattspyrnunnar eftir 6.
umferö um helgina með 16 stig.
AEKíefstasæti
í Grikklandi er AEK efst með
13 stig eftir 5 umferðir en Olymp-
iakos keraur næst með 11 stig,
Parma meistari?
Faustino Asprilla frá Kólumbíu
sagði að Parma gæti orðið ítalsk-
ur meistari í knattspyrnu í vetur,
eftir að hann skoraði öh mörk
Parma í 3-0 sigri á Tórínó.
Þjálfari Real rekinn?
Benito Floro, þjálfari spænska
knattspyrnustórveldisins Real
Madrid, gæti misst starfið vegna
stórtaps gegn Deportivo Coruna
á sunnudaginn, 4-0. Vujadin
Boskov og Terry Venables hafa
verið nefndir sem eftirmenn.
Futretil Real
Útlit er fyrir að Real Madrid fái
Portúgalann Paulo Futre á láns-
samningi frá Marseihe út þetta
timabil.
MeiðsEi hjá United
Eric Cantona, Paul Parker,
Steve Bruce og Paul Ince eru allir
meiddir og geta hklega ekki spil-
að með Manchester United gegn
Þorvaldi Örlygssyni og félögum í
Stoke í deildabikarnum annað
kvöld.
GuðmiinduríFjclni
Lið Fjölnis, sem leikur í 2. dehd-
inni í handknattleik, hefur fengið
th sín Guðraund Pálmason, fyrr-
um KR-ing, sem lék með HK í
fyrra. Félagaskipti hans hafa þó
ekki veriö frágengin.
Booker gerdi 38 stig
Frank Booker skoraði 38 stiog
fyrir Val þegar Valur vann KR í
leik hðanna í Reykjavikurraótinu
í körfuknattleik í fyrrakvöld.
Valur sigraði, 84-94. á Nesinu
eftir framletigdan leik. Mirko
Niokolic skoraði 35 stig fyrir KR.
-SK/-VS
Ásgeir Sigurvinsson íhugar að styrkja lið Fram fyrir næsta sumar.
Ásgeirhættir
ekki með Fram
„Það er alveg klárt frá okkar bæjardyrum séð að ég verð áfram þjálf-
ari Framliðsins og það er ekki rétt að ég sé að hætta með liöið," sagði
Ásgeir Sigurvinsson í samtali við DV í gærkvöldi. Þær raddir hafa heyrst
síðustu daga að í kjölfar slakra leikja hjá Fram hafi verið ákveöið að
Ásgeir hætti með liðið.
„Ég er auðvitað ahs ekki ánægður meö gengi Framliðsins í sumar þrátt
fyrir að við höfum náð þriðja sæti í deildinni. Við höfum verið að leika
ágætlega inni á mhh en stöðugleika hefur vantað í hðið. Að mínu viti
hafa aðeins tvö hð verið að spila góða knattspyrnu í sumar."
- Ætlar þú að fara fram á þaö að th hðsins verði keyptir nýir leikmenn?
„Við náttúrlega höfum áhuga á að bæta viö mönnum en þaö verður að
koma í ljós hvetjar þær breytingar verða. Það eru í ghdi reglur þar sem
félögum er óheimilt að ræða við menn úr öðrum félögum fyrir lok keppn-
istímabilsins og við munum halda þær reglur. Hve marga leikmenn við
munum tala við treysti ég mér ekki th að tala um á þessari stundu en
til þess að ná betri árangri næsta sumar þurfum við að skoða þessi mál
þegar rétti tíminn kemur," sagði Ásgeir Sigurvinsson. -SK
Handbolti:
Fyrsta umferðin í
spænsku 1. deildinni í
handbolta var leikin
um helgina. Avidesa,
liö þeirra Geir Sveinssonar og
Júlíusar Jónassonar, tapaði leik
sínum, 20-19.
Geir skoraði fjögur mörk en
Júlíus korast ekki á blaö.
Barcelona og Bidasoa áttust viö
og Börsungar höfðu betur, 28-23.
Öðrum leikjum var frestaö vegna
Evrópuleikja.
Teka, sem varð þrefaldur
meistarí í fyrra, er spáð velgengni
og einnig Barcelona sem fengiö
hetúr til liðs viö sig Pólveijann
Bogdan Wenta.
-GH
Handbolta-
kynning í
DV á morgun
Á morgun, miðvikudag, fylgir með DV
sérstakt kynningarblað um íslandsmótið í
handknattleik.
Þar eru kynnt hðin sem leika í 1. deild
karla og kvenna í vetur og leikjatöflur dehd-
anna birtar. Þar gefur einnig að hta spá
þjálfara, forráðamanna og fyrirhða 1. dehd-
ar liðanna um gengi hðanna í vetur.
Enn sigrar Wimbledon
Wimbledon sigraði Manchester City, 1-0,
í ensku úrvalsdehdinni í knattspyrnu í
gærkvöldi og komst þar með í 5. sæti dehd-
arinnar. Það var Robbie Earle sem skoraði
sigurmarkið á 54. mínútu við mikinn fógnuð
8.500 áhorfenda. -GH
Feyenoord-ÍA:
Sýndur beint
á íslandi?
„Það hefur verið unnið að því
aö sýna leikinn beint, alveg frá
því eftir fyrri leikinn. Öh grunn-
vinna hefur verið unrtin og aðeins
eftir að semja um greiðslur við
hollenska sjónvarpið,“ sagði Ing-
ólfur Hannesson, deildarstjóri
íþróttadehdar RÚV, við DV í gær.
Hann taldi möguleikana á því að
leikur Feyenoord og Akraness
yrði sýndur bein, nokkuð góða.
„Það hafa mjög margir haft
samband við mig og lýst yfir
áhuga á að fá leikinn sýndan
beint. Okkur er þó nokkuð þröng-
ur stakkur skorinn varðandi
kostnað en höfum fengiö nokkuð
góðar undirtektir frá fyrirtækj-
um sem vhja taka þátt í kostun á
sýningu þessa leiks.“ -BL
Golf:
Úlfar hafnaði
ofan við miðju
- á fyrsta atvinnumannamótinu
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Úlfar Jónsson, kylfingur úr Hafn-
arfirði, tók um helgina þátt í sínu
fyrsta móti sem atvinnumaður í
Bandaríkjunum. Úlfar var ekki allt
of ánægður með útkomuna. Mótið
var í „Nike-mótaröðinni“ svoköll-
uðu og hafnaði Úlfar í 35. sæti af
97 keppendum.
Fyrri daginn lék Úlfar á 72 högg-
um eða einu höggi yfir pari vallar-
ins sem er 6300 metra langur og
mjög þröngur og erfiður. Þá lék
hann að eigin sögn ekki mjög vel
en „púttin“ gengu ágætlega. Síðari
daginn lék Ulfar svo á 74 höggum
og spilaði þá gott golf en gekk verr
með „púttin“. Samtals lék Úlfar því
á 4 höggum yfir pari og var hann
2 höggum frá peningaverðlaunum
í mótinu.
Sá sem sigraði var Andy Dihard
en hann lék á 7 undir pari. Dhlard
þessi hefur m.a,,unnið það th af-
reka að hafna í 17. sæti á US-Open
mótinu á síðasta ári. Þess má geta
að á æfingavehi fyrir mótið um
helgina lék Úlfar 27 holur og var
þá 11 höggum undir pari. Það eitt
og sér sýnir að hann er th ahs lík-
legur í alvörumótunum þegar hann
verður farinn að finna sig þar.