Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1993, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
23
Háskólabíó - Indókína: ★★
Ástirá
óróatímum
Þaö er tvennt, kannski þrennt, sem gerir þaö að
verkum aö Indókína fellur ekki í gleymsku og dá um
leið og ljósin í kvikmyndahúsinu hafa verið kveikt að
sýningu lokinni.
Fyrst skal telja stórkostlega fallega kvikmyndatöku
og lýsingu Francois Catonné. í annan stað alla um-
gjörð myndarinnar, hvort sem það eru leikmyndir,
búningar eða ægifagurt landslag Víetnams (ef myndin
er tekin þar sem hún á að gerast). í þriðja lagi er svo
cilltaf ákveðinn klassi yíir leikkonunni Catherine
Deneuve sem hér fer með aðalhlutverkið.
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
Indókína segir frá miklum atburðum í mannkyns-
sögu síðustu áratuga, nefnilega þeim þegar Frakkar
fóru aö missa tökin á nýlendu sinni Víetnam upp úr
1930 og þar til þeir hurfu á brott og samið var um
skiptingu landsins í tvennt á friðarráðstefnu í Genf
árið 1954.
Aðalpersóna myndarinnar er Ehane Devries (Dene-
uve), ung og falleg kona sem rekur gúmmíplantekru
sem hún á í félagi við föður sinn. Stóra ástin í lífi
hennar er ættleidd víetnömsk dóttir hennar, fædd
prinsessa, Camille að nafni (Pham). Ekki það að plan-
tekrueigandann skorti aðdáendur, síður en svo. Þar
fer fremstur í flokki lögreglustjóri staðarins (Yanne),
þótt hann hafi ekki erindi sem erfiöi.
Atvik haga því svo að mæðgurnar verða ástfangnar
af einum og sama manninum, frönskum liðsforingja
að nafni Jean-Baptiste Le Guen (Pérez), sem kominn
er til Saigon í leit að frægð og frama, fyrst móðirin
en síðan dóttirin. Ungi maðurinn er loks sendur burt
á afskekktar slóðir en unga stúlkan eltir hann, finnur
hann og saman leggja þau á flótta undan löggunni og
ganga í hð með uppreisnarmönnum kommúnista eftir
að stúlkan verður frönskum foringja að bana.
Það kann yfirleitt ekki góðri lukku að stýra þegar
höfundar eins kvikmyndahandrits (jafnvel þótt langt
sé) eru orðnir fjórir eins og hér. Slíkt þýðir yfirleitt
aöeins eitt: menn voru komnir út í ógöngur. Og í þessu
thviki komust þeir aldrei út úr þeim. Samspil ástarsög-
unnar og hinna miklu pólitísku atburða er ákaflega
óburðugt, svo og hvor meginburðarstoðin um sig. Lít-
ih kraftur er í sögunni og persónurnar virka fjarlægar
og óspennandi.
Erfitt er að átta sig á því hvers vegna svona mynd
fær jafn mörg verðláun og raun ber vitni, m.a. óskars-
verðlaun sem besta erlenda myndin á þessu ári og
fjölda tilnefninga til frönsku césar-verðlaunanna.
Kannski er skýringarinnar að leita í því að bæöi
Bandaríkjamenn og Frakkar hafa vonda samvisku
gagnvart Víetnam.
Indókína (Indochine).
Handrit: Erik Orsenna, Louis Gardel, Catherine Cohen, Régis
Wargnier.
Kvikmyndataka: Francois Catonné.
Leikstjóri: Régis Wargnier.
Leikendur: Catherine Deneuve, Vincent Pérez, Linh Dan
Pham, Jean Yanne.
Menning
Fúgulistin
í Bústaðakirkju
Tónleikar voru í Bústaðakirkju í
gærkvöldi á vegum Kammermús-
íkklúbbsins. Sinnhoffer kvartett-
inn frá Miinchen lék ásamt Ortulf
Pnmner orgelleikara. Kvartettinn
skipa þeir Ingo Sinnhoffer, fiðla,
Aldo Volpini, fiðla, Roland Metz-
ger, lágfiðla, og Peter Wöpke, kné-
fiðla. A efnisskránni var Die Kunst
der Fuge eftir Johann Sebastian
Bach og sálmalagið „Vor deinen
Thron tret ich hiermit" eftir sama
höfund.
íslendingar hafa haft fleiri tæki-
færi til að hlýða á fúguhst Bachs á
þessu ári en oftast áður. í sumar
var meginhluti verksins fluttur í
Skálholti og nú afitur á vegum Kam-
mermúsíkklúbbsins. Þetta merki-
lega verk höfðar til fólks af fleiri
ástæðum en hstrænum. Það er síð-
asta verkið sem Bach samdi eigin
hendi. Honum tókst ekki að Ijúka
því alveg en inn í lokafúguna flétt-
aði hann nafn sitt í nótnaheitum.
Þá er verkið hreinn fjársjóður frá
fræðilegu sjónarmiði því það hefur
inni að halda ahar helstu aðferðir
fjölröddunarhstar sem þekktar eru
frá upphafi. Þannig er verkið samið
sem kennsluverk í tónsmíðum og
er það ekki eina verkið eftir Bach
sem svo er um. Bach hafði tilhneig-
ingu th að fella verk í heildarsam-
hengi þar sem alhr möguleikar
voru tæmdir. Má nefna sem dæmi
Das Wohltempierte Klavier sem er
ahsherjar úttekt á dúr og moll kerf-
inu. Fúguhstin er sams konar út-
tekt á fúgunni.
Þegar það er haft í huga aö Fúgu-
hstin er samin um miðbik átjándu
aldar má furða sig á því hversu
fornt verkið er að yfirbragði og í
anda. Tónamálið hefur á sér sterk-
an brag kirkjutóntegunda og lag-
ferlið í sinni óendanlegu fjölbreytni
og sveigjanleika stendur iðulega
nærri tónlist endurreisnartímans.
Bach er að þessu leyti algjörlega
úr takt við samtíma sinn því önnur
tónskáld stefndu hraðbyri í átt tíl
rókókósths og klassíkur. Ekki voru
mörg verk samin á þessum tíma
sem hafa staðist betur timans tönn
en fúguhstin og sýnir það vel hve
tíska hvers tíma skiptir htlu þegar
hstin er annars vegar.
Allar þessar ytri aðstæður fúgu-
hstarinnar stuðla að áhuga fólks á
verkinu en mikhvægast er þó ein-
faldlega hve mikh unun er að
hlusta á það. Og eins og oft er um
góða tónhst verður verkið manni æ
hugstæðara því oftar sem maður
heyrir það.
Sinnhoffer kvartettinn flutti
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Fúguhstina í Bústaðakirkju á veg-
um Kammermúsíkklúbbsins fyrir
nokkrum árum og gerði það þá á
töluvert eftirminnhegan hátt.
Flutningurinn nú var engu lakari.
Það sem gerir túlkun þessa kvart-
etts aðlaðandi er aö hann leikur
eins og gamhr félagar séu saman
komnir til að skemmta sér. Hin
tónhstarlega nautn er aðalatriðið
og af henni er nóg. Minna er um
það skeytt þótt smávægheg óná-
kvæmni verði á stöku stað og ekki
sé alit hnökralaust. Þetta fyrirgefst
auðveldlega þegar nóg er af því
fyrmefnda.
LAGERVERÐ Á
VERKFÆRUM
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
Kaplahrauni 5, 220 Hafnaríjórður
simi 653090 - fax 6501 m
rK-i
kompass
■ Til bygginga
Vinnuskipti. Byggingaraðili óskast til
að byggja hús. Greiðsla í formi jarð-
vinnu og/eða efnissölu og akstri. Haf-
ið samb. v/DV í s. 91-632700. H-3351.
Ódýrí þakjárn. Framleiðum þakjárn
eftir máli, galvaniserað, hvitt og rautt.
Timbur og stál hf., Smiðjuvegi 11,
sími 91-45544.
Óska eftir að kaupa sambyggða
trésmíðavél (sög og hefil) og bútsög.
Uppl. í síma 92-68436 eftir íd. 19, Jón.
■ Húsaviðgerðir
Gerum upp hús, utan sem innan. Járn-
klæðningar, þakviðg., sprunguviðg.,
gler, gluggar, steyptar . þakrennur.
Vanir og vandvirkir. S. 24504/643049.
■ Nudd
Nudd til heilsubótar. Nudd við verkjum,
vöðvastreitu og klassískt slökunar-
nudd. Uppl. í síma 91-610116.
heimurj
íáslorifl
Smáauglýsingar - Sími 632700
íslenskt atvinnulíf
Býð upp á alhliða vöðva- og slökunar-
nudd. Nota eing. bólgueyðandi og
heitar olíur, sturta og sauna fylgir,
bæði dag- og kvöldt., gott v. S. 22174.
■ Heilsa
Appelsinuhúð? Aukakiló? Vöðvabólga?
Trimform. Orkuleysi? Vítamínskort-
ur? Exem? Balansering. Heilsuval,
Barónsstíg 20, s. 626275 og 11275.
■ Tilsölu
STURTUKLEFAR
s 15% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
•Vald. Poulsen, Suðurlandsbraut 10,
sími 686499.
Pylsuvagn með kleinuhringjavél til sölu.
Vagninn er nýstandsettur og vel bú-
inn tækjum. Verðið er sérlega hag-
stætt, aðeins kr. 1.100.000. Fyrirtækja-
sala Húsafells, Langholtsvegi 115, s.
680445. Halldór Svavarsson sölustjóri.
■ Vagnar - kerrur
Dráttabeisli, kerrur.
Framleiðum'allar gerðir af kerrum og
vögnum. Dráttarbeisli á allar teg. bíla.
Áratuga reynsla. Allir hlutir í kerrur
og vagna. Ódýrar hestakerrur og
sturtuvagnar á lager. Veljum íslenskt.
Verið velkomin í sýningarsal okkar.
Víkurvagnar, s. 684911, Síðumúla 19.
Til sölu Dodge, árg. ’53, skoðaður ’94,
mikið af varahlutum. Tilboð óskast.
Uppl. í vs. 91-17194 eða hs. 91-656696.
■ Líkamsrækt
Heilsustúdíó Maríu býður upp á cellu-
lite meðferð, 10 t., kr. 18.500,
Trim-Form, 10 t., kr. 5.900, háraeðaslit-
meðferð, vöðvabólgumeðferð, gervi-
neglur o.fl. Tímapant. í s. 36377.
þarf að tengjast
KOMPASS-kerfínu
í markaðs- og vöruleit.
Sími 91-654690
Fax 91-654692
Bæjarhrauni 10 - 200 Hafnarfirði
Vmning laugart Cí)
18.09. 1993 I
{s)
VINNINGAR fjOldi VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5afS . 1 2.204.281
! 2. flP 5 76.590
3. 4af5 127 5.201
! 4. 3af5 3.732 413
j Heildarvinningsupphæð þessaviku: 4.789.074 kr.
Æ ■
upplýsingar:s!msvari91 -681511LUKKULINA991002