Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 21
LAÚGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993 21 Sprengitilboó á timbri UGERÍfTSAU Dæmi um verð i heilum búntum: 38x125 72 kr. 38x150 85 kr. 38x175 100 kr. 38x250 142 kr. 50x225 170 kr. 75x150 170 kr. 75x175 196 kr. 75x200 224 kr. 19x75.. 20 kr. Allt verö miðaó vió lengdarmetra meö vsk. Seljum einnig í lausasölu meö mikl- um afslætti. Eigum von á spóna- plötum frá Svíþjóð á góðu verði. Opið: laugardag og sunnudag kl. 10-16. NES-PACK Bygggörðum 6 170 Seltjarnarnesi Símar: 627066 - 611115 Fax 611120 Það er söngur, líf og fjör í þáttunum Ljúft er að láta sig dreyma. Hér eru það Louise Germain og Douglas Henshall sem eru í hlutverkum sínum. Nýr verðlaunamyndaflokkur í Sjónvarpinu annað kvöld: Ástarmálog gamlir slagarar Það verður söngur og fjör á skerminum í ríkissjónvarpinu annað kvöld klukkan 22.30. Þá hefj- ast sýningar á breska verðlauna- myndaflokknum Lipstick on Your Collar eftir Dennis Potter. Hann er íslenskum sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnur, því hann er höf- undur Söngelska spæjarans og Skildinga af himnum sem Sjón- varpið hefur sýnt. Þessir nýju þættir, sem hlotið hafa heitið Ljúft er að láta sig dreyma í íslensku þýðingunni, eru djarfir gamanþættir með róman- tísku ívafi. Þeir gerast á Bretlandi á sjötta áratugnum þegar breyting- ar í þjóðfélagi og stjórnmálum riðu yfir eins og úthafsalda. Saman við atburðarásina er fléttað tónhst þessa tíma. Sagt er frá lífi og ástar- málum fjögurra ungmenna. Mick Hopper er 21 árs og telur hverja mínútu þess tíma sem hann á eftir að gegna herskyldu sinni á her- málaskrifstofunni. Þegar hinn ein- faldi bókaormur Francis staulast klaufalega inn á skrifstofuna til þess að taka við af Hopper er vand- séð að þeir tveir eigi margt sameig- inlegt. En löngunin til að öðlast tjáningarfrelsi dregur þá saman og þeir verða vinir. Ástin blómstrar Hermálaskrifstofan fer ekki var- hluta af ástandinu í þjóðfélaginu. Þeir atburðir sem eiga sér stað koma þó ekki í veg fyrir að Francis hugi að einkalíflnu. Fyrr en varir er hann orðinn ástfanginn af stúlku sem býr í íbúðinni fyrir ofan hann. Sú staðreynd að hún er harð- gift hinum hataða og fyrirlitna lið- þjálfa á skrifstofunni verður hreint ekki til að slæva ástarblossana. Hopper er búinn að hitta hina fógru millistéttarstúlku Lisu þegar hér er komið sögu. Hann býður henni í leikhús og verður gjörsam- lega heillaður af henni. En af ein- hverjum ástæðum hefur hún miklu meiri áhuga á leikritinu heldur en Hopper. Það þarf talsvert til að koma þessum óheppnu ástarsjúkl- ingum niður á jörðina, en kannski má þó búast við hamingjuríkum endalokum, þrátt fyrir allt. HAFRAGRÍN ■ ‘> «• 'ji „Pabbi segir að AXA haframjölið sé algjört hafragrín. Þegar hann var búinn að sannfœrast um gœðin gerði hann nefnilega verðsamanburð og þótti verðið á AXA haframjölinu svo hlœgilega lágt. Hollur matur þarf greinilega ekki að vera dýr, segir hann glaður í bragði ogfœr sér aftur í skálina.“ (22) HAFRAMJÖL Meiri kraftur - minna verð! \ dag er langur tilboðs-laugardagur á Laugavegi og í Bankastræti Opið til kl. 17 ( flestum verslunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.