Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
43
„Honum fannst ekkert fram undan nema svartnættið eitt.“
Þunglyndur
pípulagn-
ingalærlingur
Einhverju sinni var hringt til
læknis nokkurs á Melunum. Hann
lá á fleti sínu, klæddur bleikum
hlýrabol einum fata og las leiðara
Alþýðublaðsins. í símanum var
drykkfefldur pípulagningamaður
sem hafði miklar áhyggjur af lærl-
ingi sínum í pípulögn.
„Hann er orðinn svo þunglynd-
ur,“ sagði píparinn, „hættur að
mæta til vinnu, reykir og rær fram
í gráðið og hefur ekki áhuga á
neinu.“ „Hvað hefur þetta varað
lengi?“ sagði læknirinn og lagði frá
sér blaðið. „í nokkrar vikur, en
þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann
er svona niöurdreginn. Gætirðu
kannski farið núna og kíkt á hann?“
Læknirinn dró við sig svarið. Pípar-
inn lofaði þá að annast afla pípulögn
á lækningastofu hans með forgangs-
hra'ði, vildarkjörum og venjulegu
viröisaukasvindli. Læknirinn
klæddi sig þá í útifötin sín og hélt
afstað.
Þegar læknirinn kom til mannsins
sat hann viö eldhúsborðið og starði
fram fyrir sig döprúm augum.
„Hvernig líður?“ sagði læknirinn
blíðum rómi. „Illa,“ sagði lærlingur-
inn lágt. „Hvað er að?“ mælti lækn-
irinn. „Það er allt að,“ sagði maður-
inn, „lífið er vonlaust." Hann talaði
hægt eins og verið væri að draga
upp úr honum orðin með rörtöng.
Þeir sátu lengi í húminu og spjöll-
uðu saman. Honum fannst ekkert
fram undan nema svartnættið eitt.
„Ég vakna eldsnemma á mórgn-
ana og þá er ástandið verst,“ sagði
hann. „Þetta lagast þegar líða tekur
á daginn" „Hefurðu einhvern tíma
velt fyrir þér sjálfsmorði?" sagði
læknirinn..„Oft,“ sagðihann. „Ég
hugsa í sífellu um dauðann." „Hef-
urðu reynt eitthvað í þá áttina?“
sagði læknirinn. „ Já, einu sinni,“
sagði hinn lágri röddu. „Ég tók inn
töflur en sá efdr öllu saman og
hringdi í Þjóðarsálina á rás tvö.
Þeir létu sjúkrabíl ná í mig. Það var
dælt upp úr mér á slysavarðstof-
unni. Ég er hættur að komast í
vinnu," bætti hann við. „Mér finnst
ég vera bölvaður aumingi," hélt
hann áfram og stundi þungan. „Ég
væri best kominn dauöur." Hann
var dapurlega til fara, órakaður,
háriö ósnyrt og hafði misst allan
Á læknavaktiimi
Óttar
Guðmundsson
læknir
gljáa, fmgumir gulir af reykingum.
„Þú ert greinilega mjög þunglynd-
ur,“ sagðilæknirinn. „Mérfinnst
að þú eigir að fara inn á geðdeild."
Eftir nokkurt þref var það ákveðið.
Helstu einkenni
þunglyndis
Þessi lærlingur í pípulögn var með
einkenni alvarlegs þunglyndis.
Hann hafði lága sjálfsvirðingu og
lélegt sjálfsmat og fannst allt von-
laust. Hann taldi sig sekan um ein-
hvem óljósan glæp. Lærlingurinn
fann fyrir þreytu og dapurleika og
velti fyrir sér sjálfsmoröi. Hann var
tvístígandi, gat ekki tekið ákvarðan-
ir, gleðilaus og svaf illa, vaknaði
snemma á morgnana og fannst dag-
urinn rísa gegn sér eins og svartur
veggur.
Þegar svona er komið þarf yfir-
leitt að leggja sjúklinginn inn.
Stundum þarf að taka af honum
völdin og svipta hann sjálfræði um
stundarsakir. Sjálfsmorðshugsanir
sem fylgja vonleysinu og depurðinni
er hættulegastar þessum sjúkling-
um. Þeim finnst lífið einskisvirði og
því væri réttast og best fyrir alla að
hverfa af sjónarsviðinu. Slíkur sjúk-
ingur getur auðveldlega gripið til
örþrifaráða og svipt sig lífi. Talið er
að 20-40% allra sem falla fyrir eigin
hendi séu haldnir þunglyndi, svo
sjúkdómurinn er lífshættulegur.
Þunglynt stórskáld
í íslendingasögum er að finna frá-
sagnir um þunglyndi en frægust er
sögnin um Egfl Skallagrímsson.
Þegar sonur hans Böðvar var látinn
lokaði Egill sig af í lokrekkju og
ætlaði að svelta sig til bana. Þor-
gerður dóttir hans kom í veg fyrir
þá fyrirætlan og lagði til aö Egill
semdi kvæði um Böðvar. Hann orti
kvæðið Sonartorrek, sem er eitt-
hvert magnaðasta verk íslenskra
fombókmennta.
í kvæðinu harmar Egill dauða
Böðvars og áfellist goðin fyrir mis-
kunnarleysi þeirra og harðýðgi.
Annars staðar í Egils sögu er greint
frá því að hann hafi fengið ógleði
mikla eftir jólin svo að hann kvað
eigi orð. Egill hefur greinilega átt
vanda til að fá þunglyndissveiflur.
Meðferð
Meðferðin em svokölluð þung-
lyndislyf sem gefa ágæta raun. Ef
lyfjameöferðin viröist ekki gefa
nægilega góða raun má grípa til raf-
lostsmeðferðar sem reynist vel í
mörgum tilfellum. Yfirleitt er hægt
að hjálpa þessum sjúklingum og
þeir geta náð ágætri heilsu á ný en
meðan á þunglyndinu stendur em
þeir í bráðri lífshættu.
Heilsugæslulæknirinn í Borgar-
nesi hefði sennilegast lagt Egil inn
á geödeild ef ættingjamir hefðu leit-
að aðstoðar vegna þessa aldna,
drykkfellda og þunglynda skálds.
Enginn veit hvort geðlyf hefðu
reynst jafnvel og Sonartorrek.
fLeikskólar
Reykjavíkurborgar
Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til
starfa á neðangreinda leikskóla:
Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360
Hraunborg v/Hraunberg, s. 79770
Eingöngu í-50% starf e.h. á leikskólana:
Hálsakot v/Hálsasel, s. 77275
Seljáborg v/Tungusel, s. 76680
Þá vantar starfsmann með sérmenntun í 50% stuðn-
ingsstarf e.h. á leikskólann:
Holtaborg v/Sólheima, s. 31440.
Nánari upplýsingargefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
PRENTARAR ATHUGIÐ
Til sölu
AGFA
Studio Set 2000 plus
(Postskrift filmusetningarvél)
METROSPEED
Framköllunarvél, 76 cm
ESKOFOT - 263 U
66x80 kóperingarammi
fyrir filmur og plötur
LJÓSABORÐ
ELITE 86x130 cm
FRAMKÖLLUNARVÉL
Fyrir samlokur A3
Á sama stað óskast keypt
Macintosh Qadra 950
ERENT
ÞJONUSTAN
Upplýsingar í síma 687760
Bygging íbúðarhúsnæðis
á Blönduósi og Húsavík
Innkaupastofnun ríkisins, f.h. félagsmálaráðuneytisins, óskar eftir
tilboðum í byggingu íbúðarhúsa á Blönduósi og Húsavík.
Skúlabraut 22, Blönduósi. Útboðsnr. 4007/3.
Brúttóflatarmál hússins er um 272 m2.
Brúttórúmmál hússins er um 1.008 m3.
Húsið er á einni hæð, byggt úr steinsteypu og klætt að utan.
Verkið tekur til allrar vinnu við gröft, lagnir, uppsteypu, smíði og
frágang hússins að utan sem innan, ásamt frágangi lóðar.
Verkið skal hefjast nú í haust og skal því vera að fullu lokið 15.
ágúst 1994. Lóðafrágangi skal lokið eigi síðar en 1. júlí 1994.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 10.00 þriðjudaginn 19. október 1993
á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð kl. 11.00 þann sama dag.
Pálsgarður 2, Húsavík. Útboðsnr. 4008/3.
Brúttóflatarmál hússins er um 272 m2.
Brúttórúmmál hússins er um 1.008 m3.
Húsið er á einni hæð, byggt úr steinsteypu og klætt að utan.
Verkið tekur til allrar vinnu við gröft, lagnir, uppsteypu, smíði og
frágang hússins að utan sem innan, ásamt frágangi lóðar.
Verkið skal hefjast nú f haust og skal þvi vera að fullu lokið 15.
ágúst 1994. Lóðafrágangi skal lokið eigi síðar en 1. júli 1994.
Tilþoðum skal skilað fyrir kl. 10.00, þriðjudaginn 19. októþer
1993, á skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboðin verða
opnuð kl. 11.30 þann sama dag í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
Útboðsgögn verða seld í ofangreind útboð á skrifstofu Innkaupa-
stofnunar ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, frá og með mánudegin-
um 4. október 1993 kl. 13.00 á kr. 12.450 með virðisaukaskatti.
Il\Il\lKAUPASTOFl\!Ul\l RÍKISINS
BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK