Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
Reynslunni ríkari eftir ferð til Kóreu:
„Þetta var ótrúleg upplifun. Það
var farið með okkur eins og við vær-
um stjörnur. Við bjuggum á ofboðs-
lega flottu hóteli og allur aðbúnaður
var frábær," segja þær Heiðrún
Anna Björnsdóttir og Unnur Guðný
Gunnarsdóttir sem eru nýkomnar
heim frá Kóreu þar sem Unnur var
meðal þátttakenda í keppninni Miss
World University en Heiðrún Anna
krýndi sigurvegarann enda sigráði
hún í þessari keppni fyrir ári.
Heiðrún Anna haföi ekki gert sér
vonir um að henni yrði boðið til
Kóreu til að krýna arftaka sinn og
var því heldur lukkuleg þegar hringt
var í hana og henni boðið að koma
sér að kostnaðarlausu. Unnur Guðný
ákvað að taka þátt í keppninni eftir
að mæðgurnar Henný Hermanns-
dóttir og Unnur Arngrímsdóttir
hvöttu hana til þess. Henný er um-
boðsmaður keppninnar og valdi hún
Unni til aö vera fulltrúi íslands að
þessu sinni. Hins vegar var það
ferðakóngurinn Ingólfur Guð-
brandsson sem útvegaði Unni farið
til Kóreu en ella hefði hún ekki kom-
ist í ferðina því fargjaldið þurfa hér-
lendir aðilar að borga.
Unnur Guðný hélt til Kóreu tveim-
ur vikum fyrir keppnina og fékk
mikla þjálfun við undirbúning. Hún
segist ekki hafa óskað eftir lánuðum
fatnaði frá verslunum hér vegna þess
að slíkt hefur gengið erfiðlega hjá
þeim stúlkum sem reynt jiafa. Heið-
rún Anna tekur undir það og segir
að íslensk fyrirtæki séu mjög treg að
hjálpa stúlkum með kostun. Þaö er
hins vegar regla hjá fulltrúum ann-
arra þjóða að hafa nokkra aðila sem
kosta t.d. klæðnað fegurðardísanna.
Valin heimsálfa
Unnur Guðný kom ekki tómhent
heim því henni hlotnaðist sá heiður
að vera kjörin í tíu stúlkna úrslit og
fékk heimsálfutitilinn Miss Europe.
Meðal verðlauna var glæsilegur
módelkjóll eftir tískuhönnuöinn
Gloria Kim en hún hannar öll föt á
Michael Jackson. Auk þess fengu
þær báðar, Heiðrún Anná og Unnur,
íjölda tilboða um fleiri keppnir en
nóg virðist af þeim í heiminum. Má
þar nefna keppnina Miss Internati-
onal sem fram fer á Sri Lanka 9.
október en Heiðrún Anna fer þangað
sem dómari. Báðar fengu þær tilboö
um að taka þátt í keppninni Calender
Girl sem Donald Trump heldur og
kostar. Loks er það keppnin Hawaii
Tropical en það var einmitt verið að
velja stúlkur í þá keppni á Hótel Sögu
um síðustu helgi. „Þaö var okkur
óviðkomandi enda er það erlendur
aðih sem býður okkur þátttöku en
hann sagði að það væri einmitt verið
að leita að norrænu útliti," segir
Heiðrún Anna sem hefur ferðast til
níu landa frá því hún tók þátt í feg-
urðarsamkeppni íslands á síðasta ári
en þar hafnaði hún í öðru sæti. Og
eru þá ekki tahn með öll þau lönd
sem hún hefur mihilent í og dvalið
sólarhring eins og Indland eða borgir
eins og London og Tokyo.
Brúður heimsins
Heiðrún Anna var nýkomin heim
frá Kína er hún hélt til Kóreu. Hún
tók þátt í keppninni Brúður heimsins
eða Miss World Bride í Peking. „Mað-
ur sem heitir Charlie Sheen er um-
boðsmaður minn eftir að ég tók þátt
í keppninni Miss World University í
fyrra. Hann finnur keppni fyrir mig
og kemur mér á framfæri th að gera
mig á endanum að söngkonu. Það er
draumur minn enda kem ég fram í
öllum keppnum og syng,“ segir
Heiðrún Anna.
„Alhr brúðarkjólar sem sýndir
voru komu frá París og eru eftir
fræga hönnuði. Fjörutíu stúlkur
tóku þátt í þeirri keppni en síðan
segja fegurðardísimar Heiðrún Anna og Unnur Guðný
Unnur Guðný fékk titilinn World Miss
University of Europe.
Heiðrún Anna sigraði i keppninni í
fyrra en krýndi arftaka sinn að þessu
sinni með mikilli prýði.
Heiðrún Anna Björnsdóttir og Unnur Guðný Gunnarsdóttir eru reynslunni ríkari eftir skemmtilega dvöl í Kóreu.
DV-mynd ÞÖK
S
Heiðrún Anna var nýkomin frá Peking, þar sem hún tók þátt í keppni um
fallegustu brúðina og brúðarkjólinn, þegar hún héit til Kóreu.
voru valdar tólf í úrsht. Ég hafnaði
í sjöunda sæti og fékk að eiga brúðar-
kjóhnn sem ég sýndi í verðlaun en
hann kostar um tvö þúsund dollara.
Okkur sem lentum í sjö efstu sætun-
um var síðan boðið að koma til Sin-
gapore í janúar 94 og sýna á brúðar-
kjólatískusýningu þar okkur að
kostnaðarlausu. Auk þess sem við
fáum laun,“ segir Heiðrún. Þess má
geta að herbergi Heiðrúnar er orðið
sneisafullt af ahs kyns borðum og
verðlaunagripum.
Draumur Heiðrúnar, sem er tvítug,
er þó að verða söngkona og í Kóreu
á dögunum söng hún fyrir fimm þús-
und manns í sal og um tuttugu mhlj-
ónir í sjónvarpi. Miss World Univers-
ity fór fram á heimssýningunni Expó
93.
Eiginhandaráritanir
Unnur Guðný varð átján ára fyrir
viku. Hún hefur starfað með Módel-
samtökunum frá því hún var fjórtán
ára og tekið þátt í mörgum sýningum
á vegum samtakanna. Unnur Guðný
mun taka þátt í Fegurðarsamkeppni
íslands næsta vor.
„Þegar ég sá myndband hjá Heið-
rúnu Önnu um keppnina í fyrra var
ég strax ákveöin aö fara því hún var
svo glæsheg," segir Unnur. „Þetta er
mikhl viðburður í Kóreu og aht lagt
undir.“
Unnur segist hafa orðið mjög'hissa
þegar Henný bauð henni að fara þar
sem miklar kröfur eru gerðar th
þeirra stúlkna sem fara í þessa
keppni. Þó keppnin sé hæfileika-
keppni er ekki skhyrði að stúlkumar
komi fram með atriði. Unnur Guðný
kaus að gera það ekki.
„Þetta var allt eins og ævintýri. Viö
vöktum gífurlega athygli og þegar
við vorum að ganga um heimssýn-
inguna hópaðist að okkur fólk sem
vhdi taka myndir og fá eiginhandará-
ritanir," segja fegurðardísimar sem
aftur hafa tekið við sín venjuleg
störf. Unnur Guðný hætti í skóla um
síðustu áramót og starfar hjá Fram-
tíðarsýn en Heiðrún stundar nám í
Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
-ELA