Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
19
Sviðsljós
Nicolas hugsar vel um dætur sínar og kappkostar að veita þeim það sem
hann fór á mis við sem ungur drengur.
Bamaböm Bardot í Noregi:
Hafa aðeins séð
V e r i ð velkomin á
OSTA
DAGANA
ömmu sína einu sinni
Tvær litlar ljóshærðar stúlkur
vekja enga sérstaka athygh þar sem
þær eru á ferð með föður sínum í
Ósló. Ekki fyrr en fólk veit að þær
eru með stjörnublóð í æöum. Amma
þeirra er nefnilega engin önnur en
kvikmyndastjarnan fræga, Brigitte
Bardot. Hún eignaðist son fyrir ein-
um 34 árum með Jacques Charrier.
Sá var skírður Nicolas og býr nú í
Noregi ásamt eiginkonu sinni, Anne
Line Bjerken. Þau eiga dæturnar
tvær, Önnu sem er 9 ára og Theu,
þriggja ára. Og kynbomban fyrrver-
andi, Bardot, er amman, eins og áður
sagði.
Nicolas og Anne Line lifa ofur eðli-
legu lífi. í Ósló. Eldri dóttirin er í
skóla en hin í leikskóla. Nicolas vinn-
ur á skrifstofu og fjölskyldan á hug
hans allan. Vinir hans segja að hann
njóti þess að vera með dætrum sínum
og sé óþreytandi við aö finna upp á
einhverju þeim til skemmtunar um
helgar.
Móðirin fór
Nicolas fæddist sjö mánuðum eftir
að Bardot og Jacques Charrier gengu
í það heilaga 18. júní 1959. Brigitte
varð að fæða barnið heima, því fyrir
utan heimili hennar slógust meira
en 250 ljósmyndarar um það hver
yrði fyrstur með fréttina.
Lith Nicolas var aðeins þriggja ára
þegar foreldrar hans skildu að skipt-
um eftir heiftarlegar deilur. Bardot
gaf þegar eftir umráðaréttinn yfir
baminu og var ákveðið að það yrði
hjá föður sínum. Mæðginin hafa alla
tíð haft lítið sem ekkert samband.
Nicolas hefur þó heimsótt móður
sína til St. Tropez í örfá skipti. En
það var til dæmis fyrir hreina tilvilj-
un sem hún frétti að hann hefði
kvænst Anne Line Bjerken. Þau tvö
höfðu hist í París þar sem hún vann
sem ljósmyndafyrirsæta og það var
ást við fyrstu sýn.
Amma í heimsókn
Litlu stelpurnar hafa aðeins einu
sinni séð ömmu sína. Það var í fyrra-
sumar þegar hún kom í heimsókn til
Óslóar ásamt vini sínum, Bernard
d’Omale. Bardot snæddi þá á fínum
veitingastað ásamt sínum heittelsk-
aða, syni sínum og fáeinum vinum.
Sonardæturnar htlu voru hjá móður-
afa og -ömmu á meðan, en þau búa
við hliðina á dóttur sinni og tengda-
syni og gæta gjarnan telpnanna fyrir
þau á kvöldin.
Fjölskyldan Charrier-Bjerken býr
í sátt og samlyndi í höfuðborginni.
Anna og Thea fá ástúðlegt og gott
uppeldi, enda veit faðir þeirra hve
mikilvægt það er fyrir ung böm að
búa viö traust og hlýju. Allt það sem
hann fór á mis við sem ungur dreng-
ur vill hann nú veita dætrum sínum
í ríkum mæli.
Anne Line Bjerken var Ijósmynda-
fyrirsæta í París þegar hún hitti sinn
heittelskaða.
Brigitte Bardot missti fljótt áhugann
á litla syninum sem hún eignaðist
með Jacques Charrier.
Litlu stúlkurnar hafa fengið Ijósu lokkana frá móður sinni.
UM HELGINA
LJÚFMETIAF LÉTTARA TAGINU
verður á boðstólum úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar.
KYNNTU ÞÉR ÍSLENSKA GÆÐAMATIÐ
Birtar verða niðurstöður íslenska
gæðamatsins á ostunum sem teknir voru til mats nú í vikunni.
•
Ostameistari íslands útnefndur.
%
Ostameistararnir verða á staðnum og sitjafyrir svörum um allt það sem
lýtur að ostum og ostagerð og bjóða þér aðbragða á ostunum sínum.
OSTARNIR VERÐAÁ KYNNINGARVERÐI
- notaðu tækifærið!
OSTALYST 2
- kynning ánýrri bók.
VERÐLAUNASAMKEPPNI
- stöðugt verið að draga úr pottinum.
OPIÐ HÚS
að Bitruhálsi kl. 1 -6
laugardag 2. okt. & sunnudag 3. okt.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE