Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
Iþróttir
Gylfi Orrason fékk bestu umsagnirnar í DV af dómurum Getraunadeildarinn- Guðjón Þórðarson úg Lúkas Kostic fengu viðurkenningar sínar i matsal Savoy-hótelsins í Rotterdam á miðvikudag-
ar i sumar. inn, fyrir Evrópuleikinn gegn Feyenoord. DV-mynd Brynjar Gauti
DV, Nike og íslenskar getraunir útnefna leikmann, þjálfara og dómara ársins:
Lúkas sá besti
- Guðjón Þórðarson þjálfari ársins og Gylfi Orrason dómari ársins
Lúkas Kostic, fyrirliði IA, er leik-
maður ársins, Guðjón Þórðarson,
þjálfari LA, er þjálfari ársins, og Gylfi
Orrason úr Fram er dómari ársins.
Þetta er lokaniðurstaðan í samstarfi
DV, Nike og íslenskra getrauna sem
staðið hefur yfir í sumar með mánað-
arlegum útnefningum, og það þarf
engum að koma á óvart að flestar
viðurkenningar ársins skuli hafa
fallið íslands- og bikarmeisturum ÍA
í skaut.
Lúkas Kostic hefur verið kjölfestan
í meistaraliði IA undanfarin þrjú ár
og þó hann sé aldursforseti liðsins,
orðinn 35 ára gamall, hefur hann
sjaldan verið betri en í sumar. Hann
fékk flest stig í einkunnagjöf DV en
í 14 leikjum af 18 fékk hann einkunn-
irnar 2 eða 3, sem þýða góður leikur
og mjög góöur leikur. Lúkas hefur
nú leikið í fimm ár á íslandi, tvö þau
fyrstu með Þór á Akureyri, og fékk
íslenskan ríkisborgararétt snemma á
þessu ári.
Guðjón Þórðarson hefur náð ein-
stökum árangri sem þjálfari ÍA frá
því hann tók við liðinu þegar það var
fallið í 2. deild haustið 1990. Meistara-
titlar hafa unnist öll þijú árin, fyrst
sigraði ÍA í 2. deild og síðan hefur
liðið orðið íslandsmeistari tvö ár í
röð - í ár með miklum yfirburðum.
ÍA varð ennfremur bikarmeistari í
ár eftir sjö ára hlé og vann tvo leiki
í Evrópukeppni meistaraliða, annan
gegn hollensku meisturunum Feye-
noord.
Gylfi Orrason er einn af yngri dóm-
urum í 1. deild en hefur samt sem
áður verið í hópi þeirra bestu síðustu
árin. Gylfi er einn af milliríkjadóm-
urum íslands og hefur oft fengið góð-
ar einkunnir fyrir störf sín erlendis.
Hann fékk að jafnaði bestu umsagn-
irnar í DV eftir leikina í Getrauna-
deildinni í sumar.
DV, Nike og íslenskar getraunir
völdu leikmenn, þjálfara og dómara
mánaðarins þrívegis í sumar. Leik-
mennimir sem urðu fyrir vahnu
voru Sigurður Jónsson, LA, Ólafur
Þórðarson, LA, og Ólafur Kristjáns-
son, FH. Þjálfararnir voru Guðjón
Þóröarson, ÍA, Ásgeir Sigurvinsson,
Fram, og Hörður Hilmarsson, FH,
og dómararnir voru Guðmundur
Stefán Maríasson, Eyjólfur Ólafsson
og Gylfi Qrrason.
Hér fyrir neðan eru svo myndir af
Nike-liðum ársins í karla- og kvenna-
flokki, sem vahn voru af íþrótta-
fréttamönnum DV og kynnt í loka-
hófi knattspymufólks á Hótel íslandi
ádögunum. -GH/SK/BL/VS
Lið ársins í Getraunadeildinni 1993. Aftast er markvörðurinn Friðrik Friðriksson, IBV. Fyrir fram-
an hann varnarmennirnir Hlynur Birgisson, Þór, Lúkas Kostic, ÍA, Ólafur Kristjánsson, FH, og
Sigursteinn Gíslason, ÍA. Þá koma miðjumennirnir Ólafur Þórðarson, ÍA, Sigurður Jónsson,
ÍA, Andri Marteinsson, FH, og Haraldur Ingólfsson, ÍA. Fremstir eru sóknarmennirnir Þórður
Guðjónsson, ÍA, og Helgi Sigurðsson, Fram. DV-mynd GS
Lið ársins í 1. deild kvenna 1993. Aftast er markvörðurinn Steindóra Steinsdóttir, UBK, þá
varnarmennirnir Guðlaug Jónsdóttir, KR, Guðrún Sæmundsdóttir, Val, Vanda Sigurgeirsdóttir,
UBK, og Auður Skúladóttir, Stjörnunni. Miðjuleikmenn eru Ásta B. Gunnlaugsdóttir, UBK,
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, KR, Ásthildur Helgadóttir, UBK, og Margrét Ólafsdóttir, UBK.
Fremstar eru framherjarnir Jónína Viglundsdóttir, ÍA, og Guðný Guðnadóttir, Stjörnunni.
DV-mynd GS