Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
Vísnaþáttur
Hefur
gránað
hauður
frítt
„Þegar kyrrð haustsins er orðin
skáldleg í stað þess að vera sjálf-
sögð, síðasti dagur lóunnar efni í
persónulegan söknuð, hesturinn
kominn í samband við hstsöguna
og goðafræðina, hemið á bæar-
læknum í afturelding farið að
minna á kristal og reykurinn upp-
úr strompinum orðinn boðskapur
tíl vor frá þeim sem fundu upp eld-
inn, þá er kominn tími til að kveðja:
heimsbakterían hefur unnið bug á
þér, sveitin er orðin bókmenntir,
skáldskapur og list; þú átt þar ekki
heima.... Ég er fyrir laungu farin
að telja dagana þángaðtil ég kemst
aftur að heiman, þar sem ég er
ókunnug, út í hið ókunna, þar sem
ég á heima.“
Það er Ugla, aðalpersónan í
Atómstöðinni, sem er að leggja af
stað suður eftir sumarlanga dvöl í
heimasveit sinni, sem kemst þann-
ig að orði og víst má telja að marg-
ir þeir sem ahst hafa upp í sveit en
dvahð um hríð í höfuðborginni, séu
sama sinnis við slíkar aðstæður.
Gísli Ólafsson skáld frá Eiríks-
stöðum í Svartárdal lýsir komu
haustsins á svofelldan hátt:
Dalsins þrönga dimmir skaut;
draumalöngun stækkar.
Fuglasöngur svífur braut.
Sóhn göngu lækkar.
Foldavanga fæ ég séð.
Frost þar ganga að verki.
Blöðin hanga héluð með
haustsins fangamerki.
Sigurjón Friðjónsson á Litlu-
Laugum í Reykjadal nefnir eftirfar-
andi stökur sínar Síðasta sumar-
kvöld:
Bliknar kvöldsins bjarmaglóð.
Bjartur hlýr og fagur
hnígur þar á Heljarslóð
hinzti sumardagur.
Stígur nótt á stjömuvöh
stara fold og lögur.
Raknar sundur eilífð öh
endalaus og íögur.
Þorsteinn Magnússon, bóndi í
Gilhaga í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði - Haustkvöld:
Standa köld með beltin blá
byrgð í kvöldum svörtum
fjöllin tjöldum - hnjúka há -
höfuðföldum björtum.
Þá kemur haustvísa eftir Þórleif
Jónsson frá Efri-Skálateigi í Norð-
firði, sem var lögregluþjónn í Hafn-
arfirði um hríð:
Hahar degi, haustar að
húmið brýzt th valda,
rósir fölna, bliknar blað,
bleiku hhöar tjalda.
Og hann kveður svo um vetur-
nætur:
Sumar hðið, lengist nátt,
lokast rósabráin.
Leggur haustið hélugrátt
hramm á blessuð stráin.
Kristján Ólafsson, skrifstofumað-
ur á Húsavík, gerir svofehdan sam-
anburð á vori og hausti:
Vorsins glaða vaxtarþrá
vermdi yndislega,
en í haustsins svip ég sá
söknuð minn og trega.
Og hann bætir við:
Haustsins mál þig orkar á
innsti sálarkjarni,
eins og þrá og eftirsjá
eftir dánu barni.
Þegar Egih Jónasson á Húsavík
heyrði vísu Kristjáns kvað hann:
Sóhn lækkar hægt og hægt,
hallast gönguhna,
svona orðar veröld vægt
vetrarboðun sína.
Páhna Guðrún Jóhannesdóttir,
kona Karls Kristjánssonar alþing-
ismanns (1896-1986), var prýðilega
hagmælt eins og eftirfarandi staka
ber með sér:
Allir elska vorið og þrá
þann góða gest,
gleyma vetrarhörmum við
sól og blómaangan.
En svona er þaö skrítið,
að haustið hreif mig mest,
og hlýjast hafa laufvindar
strokið mér um vangann.
Torfi Jónsson
Þorsteinn Kristleifsson frá
Stóra-Kroppi í Borgarfirði yrkir
svo um haustið:
Sífeht lækkar sóhn kær,
svanir fækka og blómin,
báran stækkar, boðinn hlær,
blærinn hækkar róminn.
Páll Bergþórsson veðurstofu-
stjóri orti svo um október í Borgar-
firði:
Orðalaust við eyru mér
ótal raustum syngur,
hm og haust af birki ber
bhður austræningur.
Jón Pétursson frá Nautabúi í
Skagafirði:
Hefur gránað hauður frítt,
hrím á dánum rósum.
Himins blánar veldi vítt.
vafið mánaljósum.
í vísnaþætti með fyrirsögnina
„hlt er að finna eðlisrætur" varð
mér á að hóvika Fremri-Þorsteins-
stöðum í Haukadal yfir í Laxárdal
í Dölum, ahsendis óvart, því ég
vissi betur. Höfundur vísunnar
„Óskasteinn er stijálastur" í síð-
asta þætti er Gunnlaugur Péturs-
son frá Selhaga í Stafholtstungum.
„Vísa hver sem vel er gerð“ er eftir
Guðmund Gunnarsson á Tindum,
ekki Bjarna Gíslason, eins og mér
varð á að halda fram. Vonast eftir
fyrirgefningu syndanna eftjr þessa
játningu.
Torfi Jónsson
Matgæðingur vikunnar dv
Gljáðurham-
borgarhryggur
- og koníaksbúðingur
„Af því að verð á svínakjöti er ahtaf á niðurieið þá
datt mér í hug að hafa uppskrift að slíku kjöti. Það
var svo gljáður hamborgarhryggur sem varð fyrir
valinu,“ sagði Katrín Gústafsdóttir ræstingastjóri sem
er matgæðingur DV að þessu sinni. Það sem þarf er:
1 stk. hamborgarhryggur.
'A bolh apríkósusulta.
2 matsk. cideredik.
1 matsk. Dijonsinnep.
1 tesk. Marple-síróp.
Rifinn börkur af einni appelsínu.
Hryggurinn er soðinn í 3 kortér th eina klukku-
stund. Sultunni, edikinu, sinnepinu, sírópinu og app-
elsínuberkinum er hrært saman og smurt yfir hrygg-
inn. Hann er síðan brúnaður við 170 gráða hita í 15-20
mínútur.
Með þessu er borið fram salat, ananas og kartöflur.
Einnig sósa sem hrærð er saman úr 3/4 bolla Dijons-
innepi og 6 matskeiðum Marple-sírópi.
Koníaksbúðingur
Katrín gefur einnig uppskrift að koníaksbúðingi.
Uppskriftin er fyrir sex manns. í hana fer:
6 eggjarauður.
100 g sykur.
1 'A dl koníak.
6 blöð matarlím.
'A htri af ijóma.
Matarhmið er lagt í bleyti og brætt í vatnsbaði. Eggja-
rauður og sykur hrært vel saman og koníakinu bætt
saman við. Matarhminu, sem hefur verið kælt aðeins,
er hrært út í eggjablönduna ásamt þeytta ijómanum.
Búðingurinn er látinn í vatnsskolaöa skál eða litlar
desertskálar og látinn stífna. Hann er síðan skreyttur
með þeyttum ijóma og súkkulaöidropum.
Katrín Gústafsdóttir matgæðingur.
Bent skal á aö það má gjaman skipta út koníakinu
og setja romm í búöinginn í staðinn.
Auðveldur gestamatur
„Þetta er mjög auðveldur og góður gestamatur," seg-
ir Katrín. „Það er hægt að sjóða hamborgarhrygginn
daginn áður ef vih og setja glassúrinn á hann rétt
áður en fólkið kemur. Hann þarf þá að vera a.m.k.
tuttugu mínútur inni í ofni.“
Katrín skorar á Jórunni Jónsdóttur. „Hún og maður-
inn hennar, Guðmundur Oddsson, eru miklir kokkar."
Hmhliðin____________________________________________________________
Leiðinlegast
að þurrka af
- segir Guðrún Möller, flugfreyja með meiru
„Mér finnst skemmthegast að
vera í góðra vina hópi en leiðinleg-
ast að þurrka af,“ segir Guðrún
Möller, flugfreyja og fyrirsæta, sem
sýnir á sér hina hhöina í dag. Guð-
rún hefur fleira fyrir stafni en það
sem þegar hefur verið talið. Hún
mætir 1 sjónvarpssal þegar dregið
er í Víkingalottói og les upp tölur
heppinna þátttakenda.
Fæðingardagur og ár: 30.10.’64.
Fuht nafn: Guörún Möller.
Maki: Ólafur Ámason.
Börn: Kristófer, 6 ára.
Bifreið: Honda Civic, ’86.
Starf: Flugfreyja, fyrirsæta og starf
við Víkingalottó.
Laun: Ég myndi segja að þau væm
góð.
Áhugamál: Hestamennska og úti-
vera ahs konar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég held að ég hafi
fengið mest þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera í góðra vina hópi og láta
mér hða vel.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Þurrka af.
Uppáhaldsmatur: Ahur kínverskur
matur er í uppáhaldi hjá mér.
Uppáhaldsdrykkur: íslenskt vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
Guðrún Möller.
standa fremstur í dag? Geir Sveins-
son.
Uppáhaldstímarit: Ekkert sérstakt.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Þaö er th svo
mikið af fahegum karlmönnum að
ég get ekki gert upp á mihi þeirra.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest th
að hitta? Kevin Kostner.
Uppáhaldsleikari: Arnar Jónsson.
Uppáhaldsleikkona: Tinna Gunn-
laugsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Pabbi minn,
hann Berti Möher.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Mér
finnst Davið Oddsson þræl-
skemmthegur karakter.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Ahir í Jungle Book eins og hún
leggur sig.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég er
alæta á sjónvarpsefni.
Ertu hlynnt eða andvig veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlynnt.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón Axel
og Gulh.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?Kári
veðurfræðingur í Imbakassanum.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer
afskaplega htið á skemmtistaði, en
ef ég læt verða af því kíki ég í Ing-
ólfskaffi eða Café Romance.
Uppáhaldsfélag i íþróttum: Víking-
ur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni að því að láta
gott af mér leiða og láta sjálfri mér
og fólki kringum mig hða vel.
Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég
var heima.