Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 31
43 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993 „Aftanákeyrslur eru tíöari i íslenskri umferð en í öðrum iöndum. Allt lýsir þetta algjöru virðingarleysi fyrir verðmætum bæði lifandi og dauðurn." Virðingar- leysi fyrir verðmætum Ofbeldisverk í miðbæ Reykjavík- ur á liðnum vikum hafa vakið mikla athygli. Fólk hefur velt því fyrir sér hvert stefni í íslensku þjóðfélagi. Unglingsstúlkur ráðast á jafnöldru sina og misþyrma henni hrottalega, ungir menn kýla 18 ára pilt í götuna og kjálkabijóta hann liggjandi með spörkum og höggum. Um hveija helgi fyllist biðstofa slysadeildar af drukknu og ódrukknu fólki sem orðiö hefur fyrir meiðingum. Flestir hafa lent í slagsmálum eða slysum, veriö barðir niöur, keyrðir niður, dottið niður eða lent í öðrum hremming- um. Á sunnudagsmorgnum má oft sjá glaðbeitta smiði í miðbænum gera við rúður sem brotnar höíðu verið um nóttina í einhverjum drykkjulátum. Eftir verslunar- mannahelgar segja allir fjölmiðlar frá gegndarlausum drykkjulátum, rush og slagsmálum. Olvunarakst- ur og handtökur eru algengari á íslandi en víðast annars staöar. Aftanákeyrslur eru tíðari í ís- lenskri umferð en í öðrum löndum. Allt lýsir þetta algjöru virðingar- leysi fyrir verðmætum bæði lifandi ogdauðum. Engin einhlít skýr- ing Enginn veit hvaða skýringar eru fyrir hendi á þessum fyrirbærum. Sumir segja að þetta lýsi inni- byrgðri reiði unglinganna í mið- bænum sem brjótist fram á þennan veg. Aðrir vilja kenna foreldrum og heimilum um allt saman. Enn aörir segja aö sjónvarpið sé raunveruleg- ur sökudólgur, með vaxandi fram- boði obeldisefnis aukist alls konar yfirgangur í þjóðfélaginu. Stjómar- andstæðingar segja að allt sé þetta stjóminni að kenna. Engin einhlít skýring er þó fyrir hendi en þeir sem vilja rannsaka oíbeldið og þjóðarsá- lina ættu að virða fyrir sér umferð- ina í Reykjavík og nágrannabyggð- unum. „Áfram veginn á hjólinu ek ég" Tjörvi læknir hefur um áratuga skeið farið allra ferða sinna á reið- hjóli um bæinn. Á þennan hátt heldur hann sér í ágætu líkamlegu formi, sparar bensín og minnkar mengun í fæðingarborg sinni. Margir samferðamenn hans á göt- um bæjarins líta þetta athæfi mannvinarins óblíðum augum. Þeir telja að göturnar séu einungis fyrir bíla en engin önnur faratæki. Gatnagerðarmenn og verkfræðing- ar borgarinnar em þeim reyndar hjartanlega sammála enda hefur Á laekriavaktinni enginn þeirra gert sér grein fyrir þvi að til séu reiðhjól og skellinöðr- ur. Á leiðinni miili Reykjavíkur og Hafnarfjarðar er reyndar ekki einu sinni gert ráð fyrir gangandi veg- farendum heldur einungis bílum og aftur bílum. Engar samhang- andi hjólabrautir eru fyrir hendi svo að hjólunum er vísað út á ak- brautavígvöllinn. En Tjörvi eins og aðrir hjólreiðamenn hefur ákveöið að láta andúð ökumanna, bílainn- flytjenda, verkfræðinga, bensín- sölumanna og yfirvalda eins og vind um eymn þjóta og heldur því áfram aö hjóla úr og í vinnu á hveijum degi. Allt hefur þetta gengið vel til þessa en margir em þeir bílstjórar sem vinna á honum ofbeldisverk á hveijum degi. Sumir sýna gífurlegt virðingarleysi; beygja þvert í veg fyrir hjóhð, taka fram úr hjólinu á miklum hraða og láta bíÚnn sinn rétt stijúkast við mannvininn eða flauta hressilega á hann. Tjörvi verður alltafjafn hissa á þessum ökuþórum og veltir því fyrir sér hvort hann skipti þá engu máli. Eru allir að flýtasér svo mikið að þeim finnist allt í lagi að vinna ofbeldisverk á vesælum hjól- reiöamanni til að hraða fór sinni? Fæstir virðast átta sig á því að komi eitthvað fyrir verður oft stórslys. Hjólreiðamaðurinn er svo óvarinn í umferðinni að hann slasast stund- um mikið og ökumaðurinn kemst ekki leiðar sinnar um langa hríö sakir yfirheyrslna hjá lögreglu og alls konar vandræða sem það hefur í fór með sér að keyra á aöra mann- eskju í umferðinni. Á hjólinu skynjar Tjörvi vel þjóðarsál íslend- ingsins, tilhtsleysið, óþohnmæð- ina, flýtinn og ósveigjanleikann. Knapinn sem áður var konungur á hestbaki er nú sestur í ríki sitt undir stýri á kraftmiklum bfl. Allir virðast telja sig eiga einhvern rétt í umferðinni sem er öhum öðrum verðmætum yfirsterkari. Bíllinn á götumar og þess vegna er hjóhð eins og hvert annað aðskotadýr sem keyra má í klessu. Hjólreiða- maðurinn getur passað sig sjálfur. Börn sem alast upp í bílnum hjá mörgum þessara ökumanna læra að mannleg verðmæti skipta engu máh. Þaö eina sem hefur einhveija þýðingu eru stundarhagsmunir bílsins og þeirra sem í honum sitja. En Tjörvi gefst ekki upp. Hann seg- ist eiga rétt á gatnakerfi borgarinn- ar eins og unga stúlkan sem var barin niður á Lækjartorgi átti fuh- an rétt á því aö vera vera þar þessa nótt. Ofbeldismenn era á öðru máh, en eiga þeir aö vinna endanlegan sigur á öllum öðram verömætum enþeirraeigin? Útboð Landvegur, Hallstún-Holtsmúli Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn- ingu 3,7 km kafla á Landvegi frá Hallstúni aó Holtsmúla. Helstu magntölur: Fyllingar og neðra buröar- lag 45.000 m3 og fláafleygar 21.000 m3. Verki skal lokið 15. júlí 1994. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rik- isins á Selfossi og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera), frá og með 25. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14 þann 8. nóvember 1993. Vegamálastjóri K^RARIK Útboð RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS w w Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboóum í eftirfarandi: Rarik 93007 20 MVA, 63/11 kV aflspenni,- Útboósgögn veróa seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og meö mánudegi 25. október 1993 og kosta 1.000 kr. hvert eintak. Tilboóum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, Reykjavík, fyrir kl. 14.00 fimmtudaginn 25. nóvember 1993. Veröa þau þá opnuó aö vióstöddum þeim bjóóendum sem þess óska. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík Kjörskrá til kosninga um sameiningu sveitarféiaga, er fram eiga að fara 20. nóvember nk„ liggur frammi almenn- ingi til sýnis í Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2, 2. hæð, á almennum skrifstofutíma, frá 27. október til 20. nóvember nk. Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist skrif- stofu borgarstjóra eigi síðar en kl. 12 á hádegi laugar- daginn 6. nóvember nk. Menn eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Reykjavík, 20. október 1993. Borgarstjórinn í Reykjavík ','r. r •-'.rsL- r ’T: r r- UMSÓKNIR Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir umsóknum um kaup á 230 nýjum og eldri félagslegum eignar- íbúðum sem koma til afhendingar fram á haustið 1995. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um 35 nýjar félagslegar kaupleiguíbúðir sem afhentar verða á sama tíma. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr. 86/1988 með áorðnum breytingum. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu Hús- næðisnefndar Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 9-12 og 13-16. Umsóknum skal skila eigi síðar en 19. nóv. 1993. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.