Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 24
24
Sviðsljós
Tískukóngurinn Oleg Cassini:
Hönnuður kvik-
myndastj arnanna
Tískukóngurinn Oleg Cassini er
oröinn 79 ára en þykir Eifar hress
og unglegur. Cassini stundar golf
og tennis á hveijum degi. Hann býr
á Long Island, stutt frá New York,
þar sem hann hefur sinn eigin bú-
garö sem þykir víst ekkert slor.
Oleg Cassini varð heimsfrægur
þegar forsetafrúin Jackie Kennedy
kynnti hann sem hönnuö sinn.
Oleg og Jackie höföu verið vinir frá
því áður en hún kynntist John
Kennedy og hafði hann hannað öll
hennar fot. Hann bjó í raun til út-
lit hennar sem forsetafrúar Banda-
ríkjanna. Flestum er eflaust í
fersku minni fallegur fatnaður
Jackie sem varð allsráðandi sem
tískufatnaður sjöunda áratugarins.
Auk fatnaðar var hann ráðgjafi
forsetafrúarinnar í sambandi við
hárgreiðslu og förðun. Cassini varð
góður vinur Johns F. Kennedy og
dvaldi oft um helgar hjá forseta-
hjónunum í Hvíta húsinu.
Oleg Cassini fæddist í París. Fað-
ir hans var rússneskur sendiherra
en móðirin ítölsk greifynja. Oleg
ólst að mestu upp á Ítalíu þar sem
fjölskylda hans hafði flúið frá Rúss-
landi. Hann lærði hönnun fyrst af
móður sinni sem keypti „originaf“
Tiskuhönnuðurinn Oleg Cassini var trúlofaður Grace Kelly en upp úr
slitnaði. Litlu seinna giftist hún Rainier fursta. Cassini hannaði þó alltaf
föt á hana.
fatnað frá Paris og lét sauma eftir
honum fyrir verslun sína í Florence.
Oleg opnaði sína eigin verslun í
Róm en stuttu síðar fluttist hann
til Ameríku. Hann starfaði fyrst
fyrir leikhúsin á Broadway en hélt
síðan til Hollywood þar sem kvik-
myndaheimurinn beið hans. Þar
starfaði hann fyrir kvikmyndafyr-
irtækið Paramount.
Ævisagan
vakti athygli
Oleg Cassini hefur hannað fatnað
á aflar helstu stjörnur þess tíma,
eins og Ritu Hayworth, Katharine
Hepburn, Lönu Tumer, Dorothy
Lamour, Veronicu Lake, Zsa Zsa
Gabor, Brigitte Bardot, Marifyn
Monroe, Gerafdine Chaplin, Urs-
ulu Andress, Jill St. John og Lindu
Evans. Þá má nefna Victoriu
Principal, Bo Derek og Deborah
Raffin.
Oleg Cassini sendi frá sér ævi-
sögu sína, In My Own Fashion, fyr-
ir nokkrum árum. Þar segir hann
frá ýmsum ástarævintýrum sínum,
t.d. ellefu ára hjónabandi hans og
leikkonunnar Gene Tiemey og trú-
Oleg Cassini bjó til útlit Jackie Kennedy sem forsetafrúar Bandarikj-
anna og varð heimsfrægur fyrir það.
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
Oleg Cassini lagði mikið á sig til
að framleiða ilmvatn sem hann
gæti verið stoltur af. Eftir tveggja
ára vinnu varð Cassini til og varð
það söluhæsta ilmvatn í Harrods
í London árið 1990.
lofun hans og Grace Kelly rétt áður
en hún kynntist Rainier fursta.
Oleg Cassini setti á markað fyrir
nokkrum árum nýtt ilmvatn sem
hann hafði þróað í meira en tvö ár
og var uppáhaldsverkefni hans.
Ilmvatnið nefndi hann einungis
Cassini og hefur það náð miklum
vinsældum víða um heim. Það var
til að mynda söluhæsta ilmvatnið
hjá Harrods í London árið 1990.
Oleg Cassini hefur heOlað marg-
ar fallegar konur þótt hann sé
ókvæntur maður í dag. Honum
flnnst hann ávallt ungur þótt ekki
hafi hann í hyggju að kvænast á
nýjan leik. Þessi aldraði tískuhönn-
uöur hefur sannarlega sett mark
sitt á tískuna undanfarna áratugi
og varla er hann hættur enn.
Frábœr skemmtun frá Disney
fyrir alla fjölskylduna!
SAMm
KrAkKaR*
Á sunnudaginn kl. 17 veröur hin
stórkostlega mynd Ævintýraferöin
forsýnd í Sambíóunum, Álfabakka. Milli
kl. 4 og 4.30 veröa gefnir 100 miðar á
þessa sýningu. Allir sem eru félagar í
Krakkaklúbbi DV geta komiö og
framvísað skírteininu sínu og fá þeir 100
fyrstu miöa á myndina.