Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Side 14
14 Útgáfufélag: FRJALS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÚNAS KRISTjANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SiMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Marklausir landsfundir Hundruð manna sækja aðalfundi stjórnmálaflokka og láta sér sæmilega líka, þótt slíkir fundir séu hættir að skipta nokkru máli í stjórnmálaumræðu þjóðarinnar. Sú umræða hefur að mestu flutzt á síður DV og Morgun- blaðsins og að nokkru í samtök og stofnanir úti í bæ. Áratugum saman hefur verið feiknarleg umræða á opinberum vettvangi um landbúnað. Hún hefur fundið sér farveg utan stjórnmálaflokka og smám saman leitt til nokkurn veginn sömu niðurstöðu flestra þeirra, sem ekki eru beinlínis að tala í umboði sérhagsmuna. í hálfan annan áratug hefur einnig verið svipuð um- ræða á opinberum vettvangi um sjávarútveg. Hún hefur líka fundið sér farveg utan flokkakerfisins og leitt til nokkurn veginn samhljóða niðurstöðu flestra þeirra, sem ekki eru beinlínis að tala í umboði sérhagsmuna. Þess sér engin merki á stjómmálaflokki á borð við Sjálfstæðisflokkinn, að þar viti menn um þessa umræðu og niðurstöður hennar. Og enn síður sér þess merki, að sá flokkur eða nokkur annar hyggist taka mark á niður- stöðum þessarar stjórnmálaumræðu eða annarrar. Menn geta treyst því, að Sjálfstæðisflokkurinn muni áfram, eins og aðrir flokkar, jafnan standa með sérhags- munum gegn almannahagsmunum, einkum gegn skatt- greiðendum og neytendum. Raunar stendur sá flokkur fremst í ofbeldi ríkisins gegn almannahagsmunum. Menn geta treyst því, að innihald Sjálfstæðisflokksins verði áfram eins og annarra flokka. Þetta em allt saman tæki til að koma atvinnumönnum stjómmála í stöður og stóla. Það er vel við hæfi, að fjárreiður flokkanna em eitt bezt varðveitta leyndarmáhð í íslenzkum nútíma. Skoðanakannanir sýna, að kjósendur eru famir að átta sig á þessum staðreyndum og forðast flokkana í auknum mæh. Einkum hafa þeir orðið fyrir vonbrigðum með Sjálfstæðisflokkinn, enda hefur hann haft gott tæki- færi th að sýna áhugamál sín í landsstjórninni. Breytingar á þessu ástandi koma ekki frá fuhtrúum á landsfundum og öðrum aðalfundum stjórnmálaflokka. Þar mætir fólk ekki til að taka þátt í stjómmálaumræðu og niðurstöðum slíkrar umræðu. Það er þvert á móti mætt til að fylkja hði um flokk og flokkseigendur. Flestir gera þetta sjálfvirkt, af því að þeir em mættir í sínum klúbbi, sumir fæddir þar. Þeir virða verkaskipt- ingu, þar sem sumir em settir til að hugsa, aðrir til að stjóma, en flestir til að rétta upp hendi. Þeir hafa daufar eða engar skoðanir á raunverulegum stjómmálum. Sumir fuhtrúa ætla sér einhvem hlut af kökunni, sem flokkurinn aflar sínum mönnum. Þetta em hinir frama- gjömu, sem komast í nefndir og hafa von um for- mennsku í nefnd. í hhhngum birtist framboð í byggða- kosningum og jafnvel sæti á hsta í alþingiskosningum. Stjómmálaflokkar og aðalfundir þeirra em líka vett- vangur framapotara, sem ætla smám saman að klifra th valda og íjár á baki handauppréttingamanna flokksins. Hvorki framapotarar né handauppréttingamenn aðal- funda hafa nokkuð th málanna að leggja í stjómmálum. í nokkur hundmð manna hópi er svo eitthvað um sérvitringa, sem halda uppi því, sem sumir kaha málefna- lega þverbresti í stjómmálaflokkum. Sameiginlegt með þessum sérvitringum er, að þeir em hver fyrir sig og sameiginlega gersamlega áhrifalausir í sínum flokki. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur að þessu sinni verið enn ein staðfesting þeirrar skhgreiningar á stjórn- málaflokkum og aðalfundum þeirra, sem hér hefur birzt. Jónas Kristjánsson LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993 Benazir Bhutto rís úr öskustó Fyrir þrem árum var Benazir Bhutto, fyrsta konan til aö fara með stjórnarforustu hjá íslamskri þjóð, hrakin úr forsætisráðherraemb- ætti Pakistans með forsetaúr- skurði. Gaf Ghulam Ishaq Khan forseti henni og stjórn hennar að sök vanhæfni, fjármálaspillingu og fleiri ávirðingar. Eftir kosningar fyrir hálfum mánuði er Bhutto sest í sæti forsætisráðherra á ný og nú við mun sterkari stjórnmálaað- stöðu en fyrra sinnið. Bhutto stýrir Alþýðuflokki Pa- kistans sem faðir hennar, Ali, leiddi til valda fyrir tveim áratug- um, á einu af millibilsskeiðum milli hernaðareinræðis sem ríkt hefur hálfa 46 ára tilveru Pakistans. Hershöfðinginn Zia ul-Haq steypti Ali Bhutto af stóli og lét hengja hann. Eftir að einveldi Zia lauk í flug- vélarsprengingu, sem aldrei hefur verið skýrð, tók Benazir upp merki föður síns, sigraði í kosningum en varð að lúta í lægra haldi fyrir refj- um Nawas Sharifs, foringja Mú- slímabandalagsins, sem fékk í lið með sér forsetann og forustu hers- ins. Brátt kom þó upp fullur íjand- skapur milli forsetans og forsætis- ráðherrans nýja, sem leiddi í stjórnarfarslegar ógöngur samfara fjárhagsöngþveiti og magnaðri þjóðfélagsspillingu, og eru þó Pa- kistanir ýmsu vanir í þeim efnum. Að tilstilli herstjórnarinnar urðu forsetinn, Sharif og Bhutto sam- mála um að leita til utanaðkomandi aðila og fela honum forsetavald og framkvæmdavald fram yfir nýjar kosningar. Fyrir valinu varð Moeen Qures- hi, sem um skeið var næstráðandi í Alþjóðbankanum en var staddur í Singapore í júlí í sumar í kaup- Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson sýsluerindum þegar hringt var til hans frá Islamabad og hann beðinn að taka við stjórn Pakistans. Þá þrjá mánuði sem síðan eru liðnir hefur Qureshi komið meiru í verk en nokkurn hafði órað fyrir. Fram hafa farið kosningar, að kunnugustu manna dómi þær frjálslegustu og heiðarlegustu í sögu Pakistans. Þar að auki hefur veriö ráðist gegn margs konar þjóðfélagsmein- um sem fengið hafa að grafa um sig afskiptalaust til þessa. Qureshi birti skrá um tugi stjórnmála- manna sem fengið hafa stórlán hjá ríkisbankanum án þess að þurfa að standa skil á þeim. Önnur skrá sýnir hvernig fyrri forsætisráð- herrar hafa gefið ættingjum sínum, kunningjum, fréttamönnum og áhangendum ríkislendur í stórum stíl. Skattur hefur í fyrsta skipti veriö lagður í stórjarðeigendur, gjöld heimt af þjónustufyrirtækjum í einokunaraðstöðu og gengið lækk- að. Síðast en ekki síst hefur verið skorin upp herör gegn fíkniefna- bröskurum, einnig meðal herfor- ingja og stjórnmálamanna. Ráðstafanir Qureshi verða ekki varanlegar fyrr en nýkjörið þing hefur staðfest þær. Fjölskylda Bhutto er í hópi stórjarðeigenda og margir öflugustu stuðningsmanna hennar eru af sömu stétt, svo að afstaða til skattlagningar á slíkar eignir verður prófsteinn á umbóta- vilja stjórnar hennar. Sakargiftir, sem á Benazir Bhutto voru bomar þegar henni var vikið frá völdum, runnu út í sandinn. Alvarlegasta atlagan var gerð að eiginmanni hennar, sem sat lengi í varðhaldi sakaður um að hafa skipulagt póhtískt morð, sömu sök og Ali Bhutto var borinn á sínum tíma. í þetta skipti féll málið niður vegna sannanaleysis. Nawaz Sharif reyndi um skeið að styrkja stöðu sína með bandalagi við flokk heittrúarmanna sem gera vilja Pakistan að íslamsríki í hví- vetna. í nýafstöðnum kosningum fór flokkur þeirra hrakför. Þykir sýnt að Pakistanir séu farnir að fælast boðskap heittrúarmanna eftir vitneskju um reynslu granna sinna í íran og Afghanistan af þeirri stefnu. Á Pakistanþingi hefur Alþýðu- flokkur Bhutto með nánum banda- mönnum 96 sæti af 217 og hlaut stuðning 122 þingmanna alls til að mynda stjórn. Samsteypustjórnir í Pakistan reynast einatt brothættar en nú styrkist staða Bhutto við að hún hefur á sínu bandi samsteypu- stjórn í Punjab, fjölmennasta og auðugasta fylki Pakistans, auk þess sem flokkur hennar hefur hreinan meirihluta í Sind, næstfjölmenn- asta fylkinu. Benazir Bhutto, nýkjörinn forsætisráðherra, kveður Moeen Qureshi bráðabirgðaforsætisráðherra með blóm- um á flugvelli Islamabad við heimför hans til Bandaríkjanna. Símamynd Reuter Skoðanir anrnrra Þrýstum á íran „Tilræðiö við bókaútgefandann William Nygaard hefur minnt okkur eftirminnilega á viöurstyggilegan dauðadóm yfir öflum þeim sem hafa komið nálægt útgáfu bókar Salmans Rushdies, Söngva satans. Víða í lýðræðisríkjunum hafa samtök sem hafa það hlut- verk aö veija málfrelsið borið fram hörð mótmæli. Það á einnig við um samtök norskra útgefenda sem fara fram á það við stjómvöld aö þau beiti áhrifum sínum til að auka þrýstinginn á írönsk stjómvöld á alþjóðavettvangi.“ Úr forystugrein Dagbladet 19. október. Friðarnóbel á réttan stað „Þaö þarf tvo til aö semja um frið. Þess vepia er það alveg rökrétt að friðarverðlaun Nóbels í ár fari til tveggja manna. Og engir eiga þau fremur skilið en Nelson Mandela, forseti Afríska þjóðarráðs- ins, og Fredrik de Klerk, forseti Suður-Afríku. Þeir hafa unnið að því í sameiningu að binda enda á kyn- þáttaaðskilnaðarstefnuna og færa Suður-Afríku í átt til lýðræðislegra stjórnarhátta.“ Úr forystugrein Politiken 16. október. Dulbúið einveldi „Það er undir Evrópubandalagslöndunum tólf komið að vinna að því að helsti homsteinn Maas- tricht-sáttmálans, sameiginiegt myntkerfi banda- lagsríkjanna, verði ekki að þýsku gjaldmiðflseinveldi í dularklæðum. Ef menn í Evrópu framtíðarinnar eiga ekki eftir að horfa með angurværð aftur til þess tíma þegar múrar, gaddavír og jarðsprengjusvæði tryggðu að þýsku ríkin væru tvö.“ Úr forystugrein BT 18. október. + I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.