Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Page 30
íí 42 íþróttir LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993 Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik: „Verðlaunamissir á ÓL mestu vonbrigðin" - það er margt annað 1 lífinu sem kitlar en handbolti, segir landsliðsþjálfarinn Þorbergur Aðalsteinsson, landsliös- þjálfari í handknattleik, stýrði mönnum sínum til sigurs gegn Króa- tíu í Evrópukeppninni. Það verður í nógu að snúast hjá Þorbergi með landsliðið á komandi mánuðum. Sig- urinn gegn Króatíu var aðeins ein hindrunin af mörgum sem á vegi liösins verða í þeim stórverkefnum sem bíða á næstunni. - Hvernig tilfinning var það, Þor- bergur, að leggja Króatana að velli í Evrópukeppninni í vikunni sem leið? „Það var bara mjög góð tilfmning, sérstaklega eftir að púlsinn hafði far- ið upp úr öllu valdi, að vinna þá þetta naumlega. Þaö var mikið í húfi en ég var ekki beint órólegur allan dag- inn en leikurinn fór samt ekki úr huganum. Það voru alhr með fiðring í maganum. Meö tapi hefðum við veriö nánast úr leik, þó ekki alveg samt. Við uröum að beijast til síð- asta manns og var ég afskaplega ánægður þegar fyrsta hindrunin var að baki í Evrópukeppninni. Við lögðum upp fyrir leikinn tvenns konar vörn, annars vegar aft- arlega til aö sjá hvað við kæmumst langt með þá þannig og síðan settum við hins vegar einn mann út á völl- inn. Síðari kosturinn varð ofan á og þetta tókst í alla staði mjög vel. Hraðaupphiaupin gengu einnig upp en á köflum riðlaðist sóknin en á endanum fór þetta allt vel.“ - Hefur þú trú á því að þetta lið, sem þú ert með höndunum, geri stóra hluti i komandi stórverkum, það er í Evrópukeppni og heimsmeistara- keppinni á Islandi 1995? „Eg er ekki í nokkrum vafa um að þessi hópur, sem breytist varla mikið úr þessu, á eftir að gera góða hluti. Meö leikjum í vetur og hugsanlega úrslitakeppinni í Portúgal næsta sumar og góðri vinnu næsta sumar á það að verða raunhæfur mögu- leiki. Lykilhnn að þessu er góð vinna næsta sumar, þann árstíma verður að nýta vel. Með þessu er ég að segja að htið frí verður fram að heims- meistarakeppninni vorið 1995 hér á landi,“ sagði Þorbergur. - Hver er þá mesta gleðin og stærstu vonbrigðin í starfi þínu sem lands- liðsþjálfari þegar þú lítur yfir farinn veg? „Það hafa verið margar stórar stundir í þessu starfi. Þó held ég að mesta gleðin hafa orðið í Egyptalandi með 21-árs liðið í haust í heimsmeist- arakeppninni. Þar unnum við brons- verðlaun sem var stórkostlegur ár- angur. Strákamir lögðu ótrúlega vinnu að sér og uppskeran var eftir því. Við æfðum tvisvar á dag í þrjá mánuöi og árangurinn skilaði sér að fullu. Það var ótrúleg tilfinning að uppskera bronsverðlaunin. Mestu vonbrigðin eru hins vegar á ólympíu- leikunum í Barcelona þar sem við misstum af bronsinu. Það var svaka- lega súrt að sjá á eftir því. Við verð- um að hafa í huga að leikmenn eða þjálfari fá þennan möguleika aðeins sinu sinni, kannski tvisvar, og því er eftirsjáin enn meiri.“ - HvernigþjálfarierÞorbergur Aðal- steinsson? „Ég reyni að vinna mjög mark- visst, set upp nákvæmlega hvað við ætlum okkur fyrir viðkomandi leik. Ég vil að það séu reglur á hlutunum og menn vinni vel og fast. Fyrir utan æfingar og leiki reyni ég auðvitað að halda uppi gleði og léttleika og að öllum líði vel. Léttleikinn verður að vera til staðar. Hann er hluti af ferl- inu og hjálpar til ef eitthvaö er.“ - Hefðir þú viljað haga æfingum og vali á landsliðinu öðruvísi þegar þú lítur til baka? „Nei, en þaö er samt erfitt að segja til um það í fáum orðum. Vissulega hefði ég þó viljað hafa alla leikmenn hér heima á íslandi og þá á einhverj- um hálfatvinnumannasamningum. Þannig hefði maður haft fastari hóp en síðan ég tók við starfinu hef ég notað um 45 leikmenn. Alls kyns vandamál hafa komið upp á þessum tíma en með betri aðgang að leik- mönnum hefði mátt stýra þessu meira félagslega en það er ekki hægt að biðja um allt í þessu starfi." - Hvaða leikmaður hefur komið þér mest á óvart í landsliðshópnum? „Nafn Dags Sigurðssonar kemur fyrst upp í hugann. Hann hefur staðið vel fyrir sínu þrátt fyrir að vera nýhði í A-liðinu sem leikstjómandi. Hann er búinn að leika 2 leiki með A-liðinu, verið mjög yfirvegaður og sýnt mikinn leikskilning. Júlíus Jónasson kom skemmtilega á óvart gegn Króatiu, það er ekki hægt að segja annað. Júlíus hefur átt svona leiki inn á milh en þessi tímasetning gegn Króatiu var góð svo ekki sé meira sagt. Annars er hópurinn, sem ég er með í höndunum í dag, líklegur til afreka. Hann hefur alla burði till að gera vel. Ef við náum að vinna vel sumar- ið 1994 er allt opið. Þetta kostar mikla vinnu og fórn. Ekki má gleyma sjálfri umgjörðinni, allir verða að leggjast á eitt til að ná settu marki. Stór þátt- ur í framhaldinu er að tryggja liðinu sæti í úrshtakeppni Evrópukeppn- innar í Portúgal næsta sumar. Það verður barist til síðasta manns en leikirnir við Hvít-Rússa í janúar ráða öllu í þvi sambandi." - Þú hefur þitt lifibrauð eingöngu af handboltanum? „Handbolti hefur verið mitt lifi- brauð í 10 ár. Starf landshðsþjálfara er mjög krefjandi en auk A-liðsins er ég með 21-árs hðið. Undirbúnings- vinna er mikil, þátttaka í námskeið- um hér og erlendis og að fylgjast með andstæðingunum þannig að álagið er mikið, ekki bara á mér heldur öh- um sem koma nálægt landsliðinu. Ég legg mikla áherslu á HM ’95 á ís- landi. Þegar því lýkur hef ég verið í starfi í fimm ár og þá ræðst hvað við tekur. Það er ekki óhugsandi að halda áfram með hðið, ég vil bara helst ekki svara þvi í dag. Það verður bara að takast á við það á þeim tímapunkti. Það er margt annað í lífinu en handbolti sem kitlar," sagði Þorbergur Aðal- steinssonlandshðsþjálfari. -JKS Þorbergur Aðalsteinsson fylgist grannt með gangi mála gegn Frökkum á ólympíuleikunum í Barcelona i fyrra. Tapið þar eru mestu vonbrigði Þorbergs í starfinu. Með honum á myndinni er Einar Þorvarð- arson, aðstoðarmaður hans. Plús vikunnar fær Gunnar Kjartansson handknattleiks- dómari sem viðurkenndi í Morgunblaðinu að hann hefði gert afdrifarík mistök á loka- sekúndum leiks Afturelding- ar og FH. Gaman að sjá dóm- ara sýna shkan kjark. MÍNUS Mínus vikunnar fá FH-ingar fyrir að kæra mistök dómara í ofangreindum leik gegn Aft- ureldingu. Úrskurði dómara verður aldrei breytt og það eiga FH-ingar að vita. Kæru- mál af slíku tilefni setur að- eins neikvæðan blett á íþrótt- ina. íþróttamaður vikurinar Júlíus Jónasson - „var staðráðtnn í að standa mlg vel í leiknum“ Július Jónasson, stórskyttan i is- lenska landsliðinu. Arangur íslenska landshðsins í Evrópukeppni landshða gegn Króatíu í vikunni er sá atburður sem stendur upp úr þegar rennt er yfir íþróttaviðburöi vikunnar. Nafn eins manns í íslenska hðinu kemur í hugann fyrir sérlega glæsi- legan framgang í umræddum leik. Það er nafn Júhusar Jónassonar ' sem átti stóran þátt í því að Króat- ar voru lagðir að velli með eftir- minnilegum hætti. Júhus Jónasson leikur með spænska hðinu Alzira frá Valencia en með hðinu leikur einnig lands- hðsfyrirhðinn Geir Sveinsson. Júl- íus gekk í raðir Alzira fyrir þetta tímabil en áður hafði hann leikið í Frakklandi og eitt tímabil á Spáni með Bidasoa. Áður en hann hélt í atvinnumennskuna lék hann með Val. Júhus á að baki 202 landsleiki og hefur skorað í þeim 562 mörk en það eru að meðaltali 2,78 mörk í leik. „Best að koma sér strax niður á jörðina" „Ég kom vel stemmdur til leiksins, einbeitti mér vel og var staðráðinn í aö standa mig. Ég var ekkert að spá í það hvaö mörkin yrðu mörg í leiknum en því er ekki að leyna að það gekk aUt upp hjá mér í þess- um leik. Þetta var erfiöur leikur og því var afskaplega gott að leggj- ast á koddann þegar heim var kom- ið. Maður lifir ekki á þessum leik einum saman og því er best að koma sér niður á jörðina strax. Við eigum mörg erfið verkefni fram- undan. Þetta var vissulega áfanga- sigur sem kemur sér vonandi vel í keppninni," sagöi JúUus Jónasson, íþróttamaður vikunnar. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.