Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 47
59 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993 Afmæli SigríðurV. Jakobsdóttir Sigríður Vilborg Jakobsdóttir hús- móðir, Minni-Vogum í Vogum, Vatnsleysustrandarhreppi, er sjö- tugídag. Starfsferill Sigríður er fædd í Hafnarfirði og ólst þar upp fyrstu sex árin en síðan að Auðnum á Vatnsleysuströnd og Sólheimum í Vogum. Hún stundaði bamaskólanám í Brunnastaða- skóla, var einn vetur í Flensborgar- skóla í Hafnarfirði og einn vetur í Reykholtsskóla íBorgarfirði. Sigríður kenndi sund í Keflavík í eitt sumar. Sigríður hefur verið í Kirkjukór Kálfatjamarkirkju í meira en hálfa öld. Hún stundaði leiklist á yngri árum og hefur spilað á harmóníku frá ungiingsaldri. Fjölskylda Sigríður giftist 27.2.1943 Agli Sæ- mundssyni, f. 3.2.1918, sjómanni. Foreldrar hans: Sæmundur Krist- inn Klemensson og Guðrún Aðal- björg Ingimundardóttir. Böm Sigríðar og Egils: Sveinbjöm Jakob, f. 27.7.1943, d. 6.2.1944; Sig- uröur Vilberg, f. 19.7.1945, skipa- smiður, kvæntur Selmu Jónsdóttur, húsmóður, Selma á tvö börn frá fyrra hjónabandi; Sveinbjörn, f. 26.7. 1947, stýrimaður, hans kona var Svandís Guðmundsdóttir, þau skildu, þau eiga þrjú börn; Klemens, f. 29.3.1950, vélstjóri, kvæntur Önnu Margréti Gunnlaugsdóttur, hús- móður, þau eiga eina dóttur, Anna Margrét átti son fyrir; Guðrún, f. 31.5.1954, skrifstofumaður, gift Jóni Inga Baldvinssyni kennara, þau eiga tvo syni, Guðrún átti dóttur fyrir; Sæmundur Kristinn, f. 12.9. 1962, rafeindavirki. Systkini Sigríðar: María, f. 16.4. 1927, matráðskona og húsmóðir, gift Magnúsi Þorsteinssyni bifreiða- stjóra; Kristín, f. 16.4.1927, húsmóð- ir, gift Rico Guidice; Birna Vilborg, f. 18.10.1929, stöðvarstjóri hjá Pósti og síma; Gústaf Adólf, f. 5.6.1932, bifreiðastjóri, kvæntur Guðrúnu Ragnarsdóttur; Margrét, f. 30.11. 1940, útibússtjóri, gift Páli Jónssyni, sparisjóðsstjóra; Björn Hcifsteinn, f. 28.7.1946, rafvirki, sambýliskona hans er Sigríður Bergsteinsdóttir. Foreldrar Sigríðar: Jakob Adólf Sigurðsson, f. 29.8.1901, d. 20.9.1969, sundkennari, fiskverkandi og kaup- maður, og kona hans, Margrét Kristjánsdóttir, f. 12.2.1899, d. 15.10. 1968. Þau bjuggu í Hafnarfirði, á Vatnsleysuströnd, Sólheimum í Vogum, Akranesi og í Keflavík. Ætt og frændgarður Jakob var sonur Sigurðar Bjarna- sonar, kaupfélagsstjóra í Hafnar- firði. Meöal móðursystkina afmælis- barnsins má nefna Sigurjón á For- sæti, hagleikssmið og hugvitsmann. Margrét var dóttir Kristjáns, b. á Minna-Mosfelli í Mosfellss veit og á Forsæti í Flóa, Jónssonar, b. í Unn- arholti í Hrunamannahreppi, Odds- sonar, í Austurhlíð í Eystrihreppi, Jónssonar. Móðir Kristjáns var Margrét, systir Ingveldar, langömmu Steinþórs Gestssonar al- þingismanns, föður Gests skatt- stjóra. Ingveldur var einnig lang- amma Helgu, móöur Benedikts Sveinssonar hrl., Ingimundar Sveinssonar arkitekts og Einars Sveinssonar, forstjóra Sjóvár- Almennra, föður Astu Sigríöar feg- urðardrottningar. Margrét var dótt- ir Einars, b. í Laxárdal í Eystri- hreppi, Jónssonar, ættföður Laxár- dalsættar í Eystrihreppi. Móðir Margrétar Kristjánsdóttur var María, systir Kristbjargar, ömmu Eyglóar Viktorsdóttur óperusöngkonu. Önnur systir Mar- íu var Kristín, amma Unnar Svein- bjarnardóttur fiöluleikara. María var dóttir Einars, b. í Hellisholtum í Hrunamannahreppi, Jóhannsson- ar, b. í Efra-Langholti. Móðir Maríu var Vigdís Einarsdóttir, b. á Helga- Sigríóur Vilborg Jakobsdóttir. stöðum í Biskupstungum, bróður Eiríks í Vorsabæ, langafa Sigríðar, móður Vigdísar forseta. Eiríkur var einnig langafi Guðmundar Einars- sonar frá Miðdal, myndlistarmanns, föður Errós og Ara Trausta jarð- fræðings. Þá var Eiríkur langafi Sig- ríðar, móður Bergs Guðnasonar lög- fræðings, föður Guðna knatt- spyrnumanns. Móöir Vigdísar Ein- arsdóttur var Kristbjörg, systir Jóns, langafa Valdimars, langafa Þrastar Ámasonar skákmeistara. Sigríður er að heiman. Guðlaugur S. Eyjólfsson Guðlaugur S. Eyjólfsson, svæðis- stjóri Vátryggingafélags íslands, til heimilis að Norðurvöllum 10, Kefla- vík, er sextugur í dag. Starfsferill Guðlaugur fæddist í Keflavík og ólst þar upp. Eftir skyldunám fór hann að vinna og stundaði ýmis al- menn verkamannastörf. Hann lauk prófi sem fiskmatsmaður, stundaði sjómennsku, var lengi bifreiðastjóri hjá Olíusamlagi Keflavíkur og starf- aði við hafnarvogina. Guðlaugur varð umboðsmaður Brunabótafélags íslands í Njarðvík 1969 og síðan einnig í Keflavík. Hann hefur svo verið svæðisstjóri Vá- tryggingafélags íslands frá stofnun fyrirtækisins 1989. Guðlaugur hefur alla tíö verið búsettur í Keflavík. Fjölskylda Guðlaugur kvæntist 26.10.1957 Höllu Gísladóttur, f. 27.10.1938, hús- móður og skrifstofumanni. Hún er dóttir Gísla Kristinssonar verka- manns og Sumarrósar Sigurðar- dótturhúsmóöur. Börn Guölaugs og Höllu em Sum- arrós H. Ragnarsdóttir, f. 22.9.1956, gift Bergi Finnssyni og eiga þau eitt barn; Gunnar Gísli Guðlaugsson, f. 10.1.1958, kvæntur Guðbjörgu Brynju Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú böm; Anna María Guð- laugsdóttir, f. 3.1.1959, á hún eitt barn; Stefán Kr. Guðlaugsson, f. 18.6.1960, kvæntur Önnu Lóu Ólafs- dóttur og eiga þau þrjú börn; Guð- laugur H. Guðlaugsson, f. 27.8.1961, kvæntur Guðbjörgu Pétursdóttur og eiga þau þrjú börn. Systkini Guðlaugs: Guðjón Eyj- ólfsson, f. 23.6.1930, endurskoðandi í Reykjavík, kvæntur Guðlaugu Ott- ósdóttur húsmóður og eiga þau fimm böm; María Eyjólfsdóttir, f. 2.7.1931, skrifstofumaður í Reykja- vík, og á hún þrjú böm; Sigurður Eyjólfsson, f. 11.6.1936, forstjóri í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Jóns- Guðlaugur S. Eyjólfsson. dóttur húsmóður og eiga þau íjögur böm. Foreldrar Guðlaugs voru Eyjólfur Guðlaugsson, f. 17.10.1903, d. 12.4. 1989, afgreiðslumaður og sjómaður í Keflavík, og Guðlaug Stefánsdóttir, f. 2.10.1905, d. 25.9.1976, húsmóðir. Guölaugur er í útlöndum. Kristján Helgi Benediktsson Til hamingju með afmælið 23. október 80 ára 50 ára HelgiS. Einarsson, Kumbaravogi, Stokkseyri. Guðríður Guðmundsdóttir, Bólstaðarhlíö 41, Reykjavík. Sigrún Jónsdóttir, Arahólum 2, Reykjavík. Ingveldur Dagbjartsdóttir, Melabraut 9, Seltjarnamesi. Póll Davíðsson, Stakkholti 3, Reykjavík. Ósk Pétursdóttir, Bárugötu22, Reykjavík. Enok Guðmundsson, Heiðarhrauni 48, Grindavík. Bragi Bergsteinsson, Sunnuvegi 23, Reykjavík. Pétur Steingrímsson, Ásbúð 44, Garðabæ. 75 ára Sigríður Guðmundsdóttir, Hringbraut 91, Reykjavík. 40 ára Pálína Erna Ásgeirsdóttir, Skáianesgötu 14, Vopnafirði. 60 ára Þorsteinn J. Vilmundarson, Lindarhvammi 4, Hafnarflrði. Ingibjörg Kristinsdóttir, Melbraut9,Garði. Kristín Gunnlaugsdót t ir, Asparfelli 2, Reykjavik. PéturSigurðsson, Skeggsstöðum, Bólstaöarhlíðar- hreppi. Halldóra Jóhannesdóttir, Heiðarbraut 17, Keflavík. Guðmundur Ragnarsson, Jöklatúni 24, Sauöárkróki. Vilhelmína Ásdis Kjartansdóttir, Garðarsbraut 79, Húsavík. Svana Pólsdóttir, Miklubraut 36, Reykjavík. Kristján Helgi Benediktsson mál- arameistari, Norðurbyggð 3, Akur- eyri, er sjötugur í dag. Starfsferill Kristján fæddist að Jarlsstöðum í' Grýtubakkahreppi í Suður-Þingeyj- arsýslu og ólst þar upp. Hann lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1944, stundaði ýmis almenn störf á ámn- nm 1944-49 en hóf þá nám í húsa- málun hjá Jóni Arasyni á Akureyri og lauk þar sveinsprófi vorið 1953. Kristján var málarasveinn næstu tvö árin en hóf þá búskap í Litla- gerði í Grýtubakkahreppi sem hann stundaði 1955-80. Þá flutti hann aft- ur til Akureyrar og tók til við mál- araiðnina sem hann hefur stundað síðan. Kristján öðlaðist meistararéttindi 1964. Hann hefúr haft sex lærlinga I iðninni sem allir luku námi og hefur verið prófdómari í greininni. Þá sat hann um skeiö í stjóm Mál- arafélags Akureyrar. Fjölskylda Kristján kvæntist 1.1.1950 Stein- unni Helgu Bjömsdóttur, f. 23.9. 1930, húsmóður. Hún er dóttir Bjöms Erlends Einarssonar og Oddnýjar Jónsdóttur sem fyrst bjuggu í Skagafiröi en síöar á Akur- eyri. Böm Kristjáns og Steinunnar Helgu em Oddný Ragnheiður, f. 9.2. 1956, kennari við Síðuskóla á Akur- eyri, og er sonur hennar Helgi Gunnlaugsson; Einar Birgir, f. 13.6. 1959, íþróttakennari og húsamálari á Akureyri, kvæntur Asdísi Sigur- vinsdóttur, húsmóður og íþrótta- kennara, og eru böm þeirra Kári og Gígja; Steinlaug, f. 25.3.1962, hús- móðir og verslunarmaöur á Akur- eyri, en maður hennar er Steingrím- ur Helgi Steingrímsson húsamálari og eru börn þeirra Gunnhildur, ísak og Steinunn; Eygló, f. 27.6.1965, húsmóðir á Grenivík, en sambýlis- maöur hennar er Hafsteinn Sigfús- son bifvélavirki og em synir þeirra Kristján Helgi og Hákon. Systkini Kristjáns: Sigurbjöm, f. 1899, nú látinn, lengst af b. I Ártúni í Grýtubakkahreppi, kvæntur Sig- urbjörgu Snæbjamardóttur og er synir þeirra fjórir; Sigurður, f. 1902, nú látinn, b. í Litlagerði í Grýtu- bakkahreppi og síðar starfsmaður við trésmíðaverkstæði í Kópavogi, kvæntur Hrefnu Sigurbjörnsdóttur og eru böm þeirra tvö; Ingólfur, f. 1908, nú látinn, húsamálari á Greni- vík, kvæntur Hólmfríöi Bjömsdótt- ur og eru börn þeirra tíu; Bjami, f. 1914, lengi b. á Jarlsstöðum, kvænt- ur Guðrúnu Friðriksdóttur og em böm þeirra fjögur; Jóhann, f. 1920, lengi b. á Eyrarlandi í Öngulsstaða- hreppi, kvæntur Ingibjörgu Einars- Kristján Helgi Benediktsson. dóttur og em börn þeirra tvö. Foreldrar Kristjáns: Jóhann Benedikt Sigurbjömsson, f. 1876, d. 1963, b. á Jarlsstöðum, og kona hans, Steinlaug Guðmundsdóttir, f. 1878, d. 1960, húsfreyja. Kristján og Steinunn Helga taka á móti gestum í þjónustumiöstöð aldr- aðra, Víðilundi 24 á Akureyri, á af- mælisdaginn milli kl 15.00 og 17.00. Umsjónarmaður Félagasamtök í Reykjavík óska eftir umsjónarmanni til starfa við húseign sína. Um er að ræða fullt starf. Launakjör skv. samningum opinberra starfsmanna. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 1. nóvember 1993 á afgreiðslu blaðsins, merkt umsjónarmaður. Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neöangreinda leikskóla: Sunnuborg v/Sólheima, s. 36385 Völvuborg v/Völvufell, s. 73040 Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólann: Rofaborg v/Skólabæ, s. 672290 Þá vantar starfsmann með sérmenntun í 50% stuðningsstarf e.h. á leikskólann: Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860 Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskóla- stjórar. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.