Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
Royal Academy of Art valdi verk hennar til sýningar:
Auðveldara að vera
listamaður á íslandi
- segir Karólína Lárusdóttir sem er komin í hóp þekktari myndlistarmanna í Bretlandi
„Þetta er bæöi listaverkabók og
saga mín. Ég segi frá þegar ég byrj-
aði aö mála eftir hlé en einnig rifja
ég upp bernskuárin á íslandi. Þegar
ég útskrifaöist úr listaskóla giftist ég
og eignaðist börn. Síðan helgaði ég
heimilinu alla mína krafta og datt
aldrei í hug að taka upp pensil. Ég
býst við að konum á íslandi finnist
það skrítið," segir Karólína Lárus-
dóttir myndlistarkona sem er að gefa
út á næstu dögum bók sem Jónína
Michaelsdóttir skráir. Karólína hef-
ur verið búsett í Englandi frá árinu
1964 er hún hóf nám i listaháskólan-
um Ruskin School of Art í Oxford.
Eftir að hún lauk prófi þar árið 1967
fór hún í þriggja ára grafíknám við
Barking College of Art.
„Mér þótti aldrei neinn möguleiki
að vinna meðan börnin voru lítil,"
segir hún. „Hins vegar byrja börnin
fimm ára í skóla í Englandi og eru
frá níu á morgnana til klukkan þrjú
á daginn. Þegar yngra barnið mitt
byrjaði í skóla átti ég því ailt í einu
gríðarmikinn tíma fyrir sjálfa mig,“
segir hún ennfremur. Karólína á tvö
börn, Stephen William og Samantha
íris, sem eru 25 og 23ja ára. Þau hafa
bæði stundað listnám. Karólína er
tvígift; seinni maður hennar er dr.
Frederick Henry Roberts sálfræðing-
ur.
„Sonur minn stundaöi nám í sama
listaskóla og ég. Hann stundar núna
fulla vinnu með myndlistinni. Það
þekkist ekki í Englandi að fólk sem
er nýútskrifað úr listaskóla setjist
niður heima hjá sér og fari að mála.
Menn verða að vinna fyrir sér fyrstu
árin,“ segir hún.
Væntingarnar
minni í London
Karólína segir að hún hafi verið
beðin að gera bók í þrjú ár en alltaf
frestað henni þangað til nú. „Ég er
mjög ánægð með útkomuna og
hvernig bókin var unnin. Hins vegar
veit ég ekki hvernig aðrir munu taka
henni. Ég veit í rauninni ekkert
hversu margir þekkja mig hér á
landi,“ segir hún. „Jónína reynir að
fá fram í bókinni hvernig það sé fyr-
ir listamann að starfa erlendis og
hvort það sé ekki mjög ólíkt því sem
þekkist hér á landi. Listamenn í út-
löndum gera sér ekki jafn miklar
vonir og menn hér. Þó íslenskir lista-
menn telji stundum ekki nægilega
mikiö fyrir þá gert hafa þeir þó allir
jafna möguleika. Hér eru öll galierí
á Utlu svæði og auðvelt að koma upp
sýningum eða að skoða þær. í Eng-
landi er allt svo stórt og vegalengdir
langar á milli staöa. A vissan hátt
er þvi miklu auðveldara að vera lista-
maður á íslandi, auk þess sem allir
þekkja aUa,“ segir Karólína en bætir
við að möguleikarnir séu þó náttúr-
lega meiri í Englandi.
Turninn á Hótel Borg
Karólína segir að það hafi í raun
staðið henni nærri að setjast að er-
lendis og um það fíallar hún mikið í
bókinni. Móðir hennar, Daisy Saga
Jósefsson, var alin upp í Bandaríkj-
unum til fíórtán ára aldurs. Hún var
dóttir Karólínu og Jóhannesar Jós-
efssonar sem byggði Hótel Borg.
„Móðir mín fékk mikið kúltúrsjokk
þegar hún kom hingað til lands og
sætti sig eiginlega aldrei við að hafa
flutt, enda var hún á viðkvæmum
aldri,“ segir Karólína sem er skírð í
Ferðunum til íslands hefur fjölgað á
undanförnum árum og nú hefur
Karólina fastan samastað I Reykja-
vik, enda kemur hún hingað tvisvar
á ári. Hér er listakonan komin í
uppvaskið. DV-myndir Brynjar Gauti
Karólina Lárusdóttir myndlistarmaður hefur verið búsett i Englandi frá ár-
inu 1964 og hefur vakið mikla athygli þar fyrir list sina.
höfuðið á ömmu sinni. Karólína á tvö
systkini, Hildi, sem er búsett í Jó-
hannesarborg í Afríku, og Lúðvik
sem er barnasálfræðingur í Kaup-
mannahöfn. „Við systkinin búum öll
erlendis. Móðir mín lést árið 1988 en
faðir minn, Lárus Lúðvíksson, er enn
á lífi. Hann verður áttræður í mars
og ég fimmtug og þá höfum við systk-
inin ákveðið að hittast,“ segir Karó-
lína. „Ég fann mikið af fallegum og
skemmtilegum myndum frá því í
gamla daga sem birtast munu í bók-
inni. Þar á meðal eru myndir frá
Hótel Borg. Af ömmu sem bjó í turn-
inum en þar dvaldi ég oft. Amma
Karólína var alltaf mikill þráður í
mínu lífi meðan hún var á lífi.“
Karólína kom ekki til íslands í
langan tíma eftir að hún flutti til
Englands og tengsl hennar við landið
urðu því ekki mikil á tímabili. Hin
síðari ár hafa ferðir hennar þó orðið
mun fleiri, enda hefur Karólína kom-
ið sér upp íbúð þannig aö hún á sinn
fasta samastað í Reykjavík.
Karólína hefur haldið fíórar sýn-
ingar hér á landi sem allar hafa vak-
ið mikla athygli. Tvær þeirra voru á
Kjarvalsstöðum, ein í Nýhöfn og ein
í Gallerí Borg.
ísland hefur breyst
„Mér hefur þótt þessi tími sem ég
hef verið í Englandi alveg ótrúlega
fljótur að líða. Þaö hefur svo margt
breyst á íslandi frá því ég flutti héð-
an. Mér finnst fólk miklu opnara og
fijálslegra og ekki lengur í gildi öll
þau boð og bönn sem hér ríktu áður
fyrr. Það er mjög gott að koma hing-
að þó ég finni oft hversu rniklu ég
hef misst af.“
Karólína segir að hún hafi byrjað
að mála smátt og smátt og var lengi
að kynnast og komast inn í breska
listaheiminn. „Þetta gerist á löngum
tíma,“ segir hún. „Ég fór á námskeið
og gekk í listafélög og fór upp frá því
að kynnast öðrum listamönnum.
Núna bý ég nálægt Cambridge þar
sem mér líður mjög vel og er með
mína eigin vinnustofu. Ég vinn mikið
fyrir sýningar og reyni að vera með
eitthvað nýtt á hverri þeirra. Ég
mála í olíu og vatnslitum en hef gert
lítið af grafík undanfarið. Listafélög-
in í Bretlandi hafa haldið mér gang-
andi því þau óska stöðugt eftir verk-
um,“ segir hún.
Völdu verk
eftir Karólínu
Karólína hefur verið mjög eftirsótt-
ur listmálari. Sjálf telur hún að síð-
astliðin tvö ár hafi verið mikill upp-
gangstími fyrir sig. Hún hefur selt
mikið af verkum og eftir henni er
tekið. Verk eftir Karólínu var t.d.
valiö tíl kynningar á Royal Academy
Sommer Show og birtist í auglýsing-
um í öllum helstu blöðum Bretlands
um þá frægu og merku sýningu. „Það
hefur haft mikil áhrif, t.d. hef ég feng-
ið allnokkur boð um að halda sýning-
ar. Royal Academy of Arts er með-
limafélag sem ég er ekki aðili að.
Þegar hringt var i mig og spurt hvort
nota mætti mynd eftir mig í auglýs-
ingar var ég upp með mér en taldi
að mín mynd yrði meðal annarra.
Ég varð þvi heldur betur undrandi
þegar ég sá að myndin mín var sú
eina sem skreytti auglýsinguna,"
segir myndlistarmaðurinn Karólína
Lárusdóttir.
-ELA