Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Síða 35
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
„Það þarf engar stjörnur til að segja fólki að það fari á bíó um helgina."
Um
stjömuspár
„Meyjan (23/8-22/9) verður að
gæta sín þessa viku. Mannýgt naut
(20/4-20/5) gefur henni lostafullt
auga. Þetta tryllta naut býr í næsta
stigagangi og hefur lengi fylgst með
meyjum hverfisins á öllum aldri.
Þessi aðvörun gildir þó ekki einung-
is fyrir þessa viku heldur allt árið,
jafnvel lengur."
Margir eru þeir sem lesa stjörnu-
spár blaðanna og velta fyrir sér
þeim áhrifum sem himintungl hafa
á örlög og athafnir manna. Flest ís-
lensk dagblöð, vikurit og glanstíma-
rit hafa einhverja stjörnuspá fyrir
lesendur sína enda er um gífurlega
vinsælt efni að ræða. Margir segjast
ekki trúa á stjörnuspár en lesa þær
samt. Aðrir trúa á spárnar í bhndni
og skipuleggja líf sitt í samræmi við
þær.
Maður nokkur leitaði aldrei fanga
á öldurhúsum borgarinnar nema
lesa í stjörnuspá hrútanna (21/3-
19/4) hvernig veiðihorfur væru í
dimmum Smugum baranna. Ákveð-
inn hópur manna trúir á spárnar
þegar það hentar þeim. Þetta fólk
kaupir fiölmörg blöð og tímarit og
leitar að bestu spánni en afneitar
hinum. Þeir sem skrifa þessar spár
verða að gæta þess vel að hafa spána
ótrúlega loðna og óljósa og segja
aldrei of mikið. Lesandinn getur þá
túlkað stjörnuspána að vild.
„Ættingi þarf á stuðningi og upp-
örvun að halda" (Bogmaðurinn,
Mbl. 16/11) segir ekki mikið. Alhr
eiga sér einhvers staðar ættingja
sem þarf á fjárhagslegum stuðningi
eða undirskrift á víxileyðublað að
halda.
Mikill arfur
„Aukaútgjöld geta komið upp í
sambandi við barnauppeldi"
(Krabbi, Mbl. 16/11). Hver kannast
ekki við endalaus útgjöld vegna
barnauppeldis: geisladiska, ofbeld-
isleikfóng og hraðpitsur. Fæstir
þora að vera ákveðnir og djarfir í
spánni. Það þætti t.d. mikill ábyrgð-
arhluti að segja lesendum í tvíbura-
merkinu (21/5-20/6) að stór og mikill
arfur muni faha þeim í skaut í vik-
unni. Það er harla ótrúlegt að allir
sem fæddir eru i þessu merki fái arf
í sömu vikunni. Til að svo mætti
verða þyrfti einhver ríkisbubbi að
deyja skyndilega og mæla svo fyrir
í erfðaskrá að öllum auðæfunum
skuh skipt milli tvíbura landsins.
Ættingjar mannsins myndu líklega
Á læknavaktinni
Óttar
Guðmundsson
læknir
óghda slíka erfðaskrá fyrir dómstól-
um með stuðningi illa launaðra
embættismanna og samviskulausra
geðlækna, öllum tvíburum til mik-
illarsorgar.
Flestar stjörnuspár eru því ákaf-
lega óljósar og loðnar og hafa ekk-
ert bragðsterkt krydd að geyma.
Steingeld og bragðlaus spá gæti litið
svona út: „Þú hittir í vikunni gaml-
an vin. Þið spjahið saman um stund
og kveðjist síðan með orðunum:
„Blessaður, við verðum að hittast
fljótlega." í vinnunni gengur aht
sinn vanagang. Þú ræðir við yfir-
mann þinn um vaxandi atvinnu-
leysi og ófærð á vegum úti. í lok
vikunnar ferðu í bíó með maka þín-
um og hann segir á leiðinni út:
„Þetta var ansi góð mynd.“ Um helg-
ina horfið þið saman á sjónvarp og
fáið ykkur í glas. Kynlífið gengur
ekki vel og veldur dehum um lág-
nættið."
Þetta er auðvitað engin stjörnuspá
heldur dagbók íslensku þjóðarinn-
ar. Ég hef aldrei getað skiliö fólk
sem nennir að lesa svona vitleysu
viku eftir viku. Það þarf engar
stjörnur th að segja fólki að það fari
á bíó um helgina eða fái sér í glas á
laugardagskvöldi. Skemmtilegra
væri að lesa svona stjörnuspá: „Þú
hittir í vikunni háan og glæsilegan
mann sem býður þér aðalhlutverk
í nýrri kvikmynd. í miðri viku vinn-
ur þú 15 milljónir í Víkingalottói og
ferð í leikhús um helgina. Ástalífiö
gengur vel, sérstaklega eftir að
fregnir um stóra vinninginn berast
um Bíóbarinn. Þú ferð í kirkju á
sunnudagsmorgni." Best væri ef
vikuritiö sem birti slíka spá bæri
ábyrgð á henni og lofaði lesendum
í viðkomandi merki endurgreiðslu á
tímaritinu ef spáin rættist ekki. En
það gerist sennilega seint.
Ákveðið hlutverk
En stjörnuspáin gegnir ákveðnu
hlutverki í samfélaginu. Hver vhl
ekki losna við alla ábyrgð á eigin
lífi og örlögum? Hver vill ekki geta
kennt stjörnunum um aha sína
vanlíðan og ósigra? Ef stjörnurnar
stjórna öllu er lítil ástæða til að bera
ábyrgð á eigin tilveru.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirtalinni fasteign verður háð á henni sjálfri fimmtu-
daginn 25. nóvember 1993 sem hér segir:
Hólavegur 11, Siglufirði, þingl. eig. Ólafur Pétursson og Kristrún Ástvalds-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, kl. 14.30.
SÝSLUMAÐURINN SIGLUFIRÐI
TIL SÖLU
MMC Pajero turbo, dísil, stuttur, árg. ’85, 31" dekk,
krómfelgur. Gott eintak.
Upplýsingar í síma 666655 e. kl. 17
Kr. 9.806,-
Vönduð albúm fylgja
10 myndir
í stærðinni 9xI2
2 stækkanir
í stærðinni 13x18
Ljósmyndastofa Reykjavíkur
Hverfisgötu 105, 2. hæð - s. 621166
Glæsibæ
K \ ENF ATAVERSLUN sími 34060
Glæsilegar
nvjar
vetrarvörur