Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 55 Frábær vetrardekk - Einstakt verd HANKOOK vmABnnaam á lága verðinu ■5R12 i5R12 15R13 5R13 ■5R1 3 5R13 5/70R13 5/70R13 5R14 horn stgr. Verðsýnishorn stgr. KR.3540 KR.3186 185R14 KR.5680 KR.5112 KR. 3770 KR.3393 175/70R14 KR.5100 KR.4590 KR.3540 KR.3186 185/70R14 KR. 5440 KR.4896 KR.3660 KR.3294 195/70R14 KR.6280 KR.5652 KR. 3980 KR.3582 205/75R14 KR.7580 KR.6822 KR.4100 KR.3690 175/65R14 KR.5550 KR.4995 KR. 4440 KR.3990 185/60R14 KR. 5980 KR.5382 KR.4880 KR.4392 165R15 KR.4770 KR.4293 KR.4980 KR.4482 185/65R15 KR.6420 KR.5778 Barðinn hf. Skútuvogi 2 - sími 683080 Sendum gegn póstkröfu. Menning Fréttir Ríkissjóði stefnt vegna mistaka við skurðaðgerð á Landspítalanum: Lést á skurðarborði í brjósklosaðgerð - Landlæknir og Læknaráð viðurkenna að mistök hafi átt sér stað Ekkill konu á sextugsaldri, sem lést í brjósklosaðgerð á Landspíta- lanum, hefur stefnt ríkissjóði til greiðslu skaðabóta vegna mistaka sem hann telur hafa orðið viö aðgerð- ina. Landlæknir hefur staðfest með bréfi að rekja hefði mátt dauða kon- unnar til mistaka í aðgerð. Krafist er skaðabóta upp á á fimmtu milljón króna með vöxtum frá 1990. Konan kenndi sér bakmeins og var kölluð inn til rannsóknar á Land- spítalann í mars 1990. Talið var að bakmeinið ætti rætur sínar að rekja til liðhlaups í liðþófa og var greining- in staðfest með röntgenmyndatöku daginn eftir að hún kom á sjúkrahús- ið. Degi síðar tilkynnti læknir á stofugangi að konan ætti að fara í skurðaðgerð sem var framkvæmd um einum sólarhring síðar. Ekkillinn telur að þetta hafi komið konu sinni á óvart - hún hafi reiknað með að fara af spítalanum eftir rann- sóknina og reyna að fá sig góða með sjúkranuddi og æfrngum. Fimmtu- daginn 22. mars var aðgerðin fram- kvæmd. Konan var svæfð en þegar verið var að fjarlægja liðhlaupið úr liðþófanum er læknirinn talinn hafa rekið áhald áfram í gegnum hðþóf- ann og inn í afturhluta kviðarhols konunnar. Það hefði leitt til þess að 0,5 cm gat kom á bakvegg stóru ós- æðar. Af þessu stafaöi mikil innvort- is blæðing sem leiddi til dauða kon- unnar. Hún var síðan úrskurðuð lát- in á skurðarborðinu. Ríkislögmaður hafnaði bótaskyldu vegna andláts konunnar og var mál- inu því stefnt fyrir Héraösdóm Reykjavíkur. Málinu var vísað til siðamálanefndar Læknaráðs en nefndin taldi við skoðun sína á því að dauöa konunnar hefði mátt rekja til mistaka í aðgerð og studdist þar við krufningarskýrslu - hins vegar hefði verið rétt brugðist við eftir að blæðing hefði byrjaö. Tæki það sem skurðlæknir hefði notað til aö hreinsa vefjaleifar úr hryggbili, þar sem brjósklosið kom fram, heföi sett gat á ósæð. Málsmeðferð er þegar hafin í málinu í Héraðsdómi Reykja- víkur en búast má við að dómur gangi í byijun næsta árs. -ÓTT Tveir bilar skullu saman á mótum Grettisgötu og Frakkastígs í fyrrakvöld. Annar bilanna endaði á húsvegg og brotnaði rúða við það. Báðir bilarnir skemmdust mikið og þurfti að flytja þá af vettvangi með dráttarbil. Einn maður slasaðist í óhappinu og var hann fluttur á slysadeild til rannsóknar en meiðsl hans reyndust ekki alvarleg. pp/DV-mynd Sveinn íslenskur Kaín Þessi skáldsaga hefur stuttan og sláandi titil sem lýtur að því að mikið fer fyrir taflmennsku í henni. Sagan er í meginatriðum samkvæmt mynstri þroskasögu. Hún hefst í litlu þorpi á Austfjörð- um þegar sögumaður og bróðir hans, ári yngri, eru að komast á unglingsaldur og heíja tafl. Síðan er ferill þeirra rakinn fram á full- orðinsár, um menntaskóla, há- skóla, blaðamennsku og tafl. Hér eru kunnugleg vandamál mótunar- ára, örðugt samband við hitt kynið, metnaður og vanmetakennd, tóm- leikakennd og leit að markmiði. Allt fáum við frá sjónarmiði sögu- mannsins, en þannig að við skiljum hann betur en hann gerir sjálfur. T.d. skilur hann ekki hvað honum gengur til með heldur misheppnað grín á Akureyri (7. k.) en lesendur hljóta að sjá í gegnum hann, aö hann lætur stýrast af vanmeta- kennd og öfund. Og fleira kemur til af þessu tagi, maðurinn er afar sjálfhæhnn, hvort sem um er að ræða útlit hans, hófsemi, fram- komu eða framsýni. En jafnframt verður hann lesendum nákominn vegna sögumannshlutverks síns, og verður það framvegis þegar Bókmenntir Örn Ólafsson kemur að æ alvarlegri glæpaverk- um. Við ættum þá að öðlast skiln- ing á slíkum manni, að hann er í grundvallaratriðum eins og ég og þú. Sagan nær þannig til veigamik- illa atriða í samtímanum. Því teng- ist að hún er sett fram eins og á mörkum skáldskapar og raunveru- leika. M.a. er bókin tileinkuð einni sögupersónu af sögumanni sem segist skrifa þetta í útlegð 20 árum eftir atburðina og fela nafngreind- um rithöfundi að gefa út í eigin nafni. Sögusnið Fyrri skáldsögur Kristjáns (Haustið er rautt, 1981, og Undir húfu toflarans, 1987) virtust mér kunnáttusamlega byggðar en ekki að sama skapi lifandi. Og sama verð ég að segja um þessa skáld- sögu sem raunar er skrifuð á lýta- lausri íslensku og oft komist vel að orði. í sögunni er töluvert um atvik sem engar afleiðingar hafa, ekki beinlínis þýðingu fyrir framrás sögunnar. Þau tengjast þá helst við að varpa ljósi á persónuleika sögu- manns. Hann yfirgnæfir allt í sög- unni, og gerir það aðallega í frásögn og hugleiðingum. Aðrar persónur falla svo mjög í skuggann að erfitt er að taka þær trúanlegar. Til dæmis hittir hann þrjár systur sín- ar eftir margra ára aöskilnað og leggur samstundis til að þær fari út í vændi hjá hernum. Þær ætla að rifna af hneykslun, en áður en þær koma upp orði telur hann þeim hughvarf með einni ómerkilegri málsgrein - það var varla mínútu verk. Annað dæmi er að sögumað- ur kemur að pari í samförum. Skömmu síðar talar hann sérstak- Kristján Jóhann Jónsson. lega við hvort þeirra til að fá þau til að hittast og ræða málin á til- teknum stað og stundu. Það er eins og þau geti ekki talast við án mifli- göngu sögumanns! Þetta er svo frá- leitt að önnur persónan hefur orð á því (bls. 240), en ekki fást skýring- ar að gagni. Þessi vandræðagangur er þó mikilvægt atriði í fléttu sög- unnar. Þetta sýnir bara að minni hyggju að höfundur hefur ekki lif- að sig inn í persónurnar og því verða þær ekki lifandi. Og þá verð- ur aðalpersónan það ekki heldur. Skilja má að hann verði verri mað- ur af því að láta fortölur óviðkom- andi spilla nýbyijuðu ástarsam- bandi sínu við endurfundna æsku- vinkonu. Eftir það gefur hann sig af alhug í taflmennsku, sem birtist sem hreinræktuð valdabarátta, eðlisandstæð ástinni. En hugar- stríð sögumanns er lesendum yfir- leitt bara tilkynnt um. Auk þess á það að sjást í margendurtekinni mynd af risastórum svörtum hundi sem hann hræddist í bernsku, í upphafl bókar. En þetta virðist mér ósannfærandi mynd af þráhyggju enda vinnur þessi persóna illvirki sín af vanmetakennd og öfund, eins og áður segir, en ekki af því að hún sé að flýja undan einhverri ógn. Fyrir sögu sem fyrst og fremst snýst um sálarlíf og þroskaleiðir er öll þessi vanræksla á persónu- sköpun ansi óheppileg. Kristján Jóhann Jónsson. Patt. Bókaútgáfan Lesmál 1993. 246 bls.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.