Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Blaðsíða 2
86GI H3ffW3f!3(T JS HlTDACIUl-CTIH'l
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
Fréttir
Fjárlög með 10 milljarða halla samþykkt í nótt:
Hætt við að tekju-
tengja ekkjulífeyri
Atkvæðagreiðslu um fjárlaga-
frumvarp ársins 1994 lauk á Alþingi
klukkan að ganga fjögur í nótt. Nið-
urstöðutölur frumvarpsins eru halli
upp á rétt tæpa 10 milljarða króna.
Atkvæðagreiðslan eftir 3. umræðu
gekk hratt fyrir sig. Aldrei var beðið
um nafnakall og fáir gerðu grein fyr-
ir atkvæði sínu. Aðalátökin milli
Fjölmiðlakönnun:
DV heldur
DV heldur sínum hlut miðaö
við síðustu könnun þegar tölur
yfir lestur dagblaðanna vikuna
21.-27. nóvember eru skoðaöar í
nýútkominni fjölmiðlakönnun
Félagsvisindastoöiunar. Lestur-
inn er óbreyttur laugardag,
mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag en minnkar lítiö eitt fóstudag
sé miðað við könnunina frá í
apríl. Lestur Morgunblaðsins
minnkar einnig þann dag.
Könnun Félagsvísindastofnun-
ar er unnin fyrir DV, Morgun-
blaðið, Pressuna, íslenska út-
varpsfélagið, Ríkisútvarpið, Sam-
tök auglýsenda og Samband ís-
lenskra auglýsingastofa. Hún
nær til notkunar sjónvarps, út-
varps og lesturs dagblaöa og
vikublaða vikuna 21.-27. nóv-
ember. -hlh
Stuttar fréttir
SúpafráSamhjálp
Alls 316 einstaklingar hafa þeg-
ið 3.500 súpur i\já Samhjálp í ár.
Skv. Tímanum munu gestir Sam-
hiálpar fá 100 þúsund kaffibolla
og 5 þúsund súpur á árinu öllu.
Húsaleiga hækkar
Húsaleiga hækkar um 0,2 pró-
sent um áramótin í samræmi við
breytingu á launavísitölu. Hækk-
unin reiknast á þá leigu sem var
í desember 1993 en helst óbreytt
í febrúar og mars.
Borgarsfjómheilar
Gunnar Jóhann Birgisson hér-
aðsdómslögmaöur hefur ákveðið
að taka þátt í prófkjörsslag Sjálfs-
stæðisflokksins vegna borgar-
stjórnarkosninganna í vor.
Nýr ferðamálamálasfjóri
Samgönguráöherra hefúr ráðið
Magnús Oddsson í starf feröa-
málastjóra frá næstu áramótum
til þriggja ára. Magnús var eini
umsækjandinn um stöðuna.
Byggingarvisitalan nidur
Byggingarvíaitala fyrir janúar
lækkar um 0,1% milli mánaða og
veröur 195,5 stig. Síðasfliðið ár
hefur vísitalan hækkaö um 3,1%.
Að meðaitali var hyggingarvisi-
talan í ár 2,2% hærri en áriö 1992.
Tombólumar drjúgar
Tombólur harna hafa skilaö
Rauða krossi íslands samtals 200
þúsund krónum f ár. Upphæðin
nægir til að brauðfæða 200 böm
í mánuð í Tansaníu. -kaa
stjórnar og stjómarandstöðu fóm
fram við 2. umræðu frumvarpsins.
Þá var einnig samþykkt frumvarp
um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þar
gerðist þaö að ákveðið var að hætta
við að tekjutengja ekkjulífeyri. Þá
var þessari merkilegu setningu
breytt:
„Ríkissjóður tekur ekki þátt í
kostnaði við leit að áður óþekktum
tófugrenjum nema veiðimálastjóri
samþykki leitina fyrirfram."
Orðalaginu var breytt í „leit að
tófugrenjum...
Loks var svo frumvarpið um breyt-
ingar á búvörulögunum samþykkt.
Með því er leyfður innflutningur á
nokkrum landbúnaðarafurðum und-
ir eftirliti landbúnaðarráðherra.
Hann ræður því einnig hvert jöfnun-
argjald veröur lagt á innfluttar land-
búnaðarafurðir.
Það kom fram í umræðunum að
enn frekari breytingar þurfi að-gera
á næsta ári á búvörulögunum áður
en GATT-samningurinn tekur gfldi
1995. -S.dór
„Það flugu margar hugsanir um huga minn þegar vandræðin voru hvað mest og um tíma hélt ég að þetta væri
mitt síðasta," sagði Christopher Lavelle ferjuflugmaður en hér er hann fyrir framan flugvélina i gærmorgun. Chri-
stoper lenti í miklum hrakningum á leið til landsins i fyrrakvöld þegar ísing komst í eldsneyti flugvélar hans og
miðstöö flugvélarinnar bilaði. Þess má geta að 50 grðða frost var í þeirri hæð sem Christopher flaug. Þetta var
37. ferjuflug hans og var hugmyndin aö halda förinni áfram til iowa i Bandarikjunum um leið og búið væri að
yfirfara vélina sem er tveggja hreyfla af gerðinni Beachcraft. pp/DV-mynd GVA
flokkafrá-
Þingraenn ailra flokka nema
Kvennaiista, samþykktu í gær-
kveldi þá breytingu á skattalögg-
jöfinni að framlag tfl stjórnmála-
flokka, kirkjufélaga, líknarstarf-
semi, menningarmála og vísinda-
legra rannsóknastarfa skuli vera
frádráttarbært til skatts. Þó ekki
yfir 0,5 prósent af tekjum.
Það var Vilhjálmur Egflsson
sem mælti fyrir þessari tillögu
meirihluta efnahags- og við-
skiptanefhdar. Hann var spurður
hvort þetta opnaði ekki fyrir
spillingu meöan bókhald flokk-
anna væri ekki opið og þeir ekki
framtalsskyldir:
„Ég tel að í þessu efni gildi ekk-
ert annað um stjórnmálaflokk-
ana en félög alraennt. í öllum
flokksfélögum eru reikningar
þeirra afgreiddir á aöalfundi og
aö þvi leyti er bókhaldið opið. Þá
eru stjómmálaflokkar framtals-
skyldir fýrir allt sem þeir eru
skattlagöir fyrir eða þeir ra starfs-
fólk. Þeir eru að visu hvorki
tekju- eöa eignaskattsskyldir,“
sagði Vilhjálmur.
Forsætisráðherra lýst því yfir
að skipuð yrði nefnd sem færi
yfir alla starfsemi stjómmála-
flokkanna og gerði tillögur í þeim
efnum. -S.dór
FramlagtiB
stórhækkað
Alþingi samþykkti í gær að
hækka framlag til þingflokkanna
úr 25 milljónum króna í 36 millj-
ónir á næsta ári. Þetta er kaliað
séríræðileg aðstoö fyrir þing-
flokkana.
Þá var einnig samþykkt að
kaupa 100 eintök af dagblöðum
eða málgögnum þingflokka. Hér
er fyrst og fremst um að ræða
blaö AJþýðubandalagsins, Viku-
blaðið, og rit Kvennalistans,
Veru. s
Tillagan um þetta var sam-
þykkt samhljóöa viö afgreiðslu
íjárlaga. -S.dór
Spor í myrkri enn í fyrsta sæti bóksölulista D V:
Framar björtustu vonum
- segir Matthías Bjamason, „Jámkarlu, sem er 1 öðm sæti
„Eg get ekki verið annaö en
mjög ánægður meö viðtökurnar.
Þær eru framar mínum björtustu
vonum,“ sagði Matthías Bjama-
son en viötalsbók Ömólfs Áma-
sonar viö hann, Jámkarlinn, er
í öðm sæti á lista DV yfir sölu-
hæstu bækumar undangengna
viku.
Unglingabókin Spor í myrkri,
eftír Þorgrím Þráinsson, er þó
enn efst á lista DV yfir söluhæstu
bækumar fyrir þessi jól, þriðju
vikuna í röð.
Jámkarlinn skipti á sæti viö
Perlur og steina eftir Jóhönnu
Kristjónsdóttur sem nú er í þriðja
sæti.
Bjöm Th. Bjömsson sækir í sig
veðriö, er í fjóröa sæti með heim-
fldaskáldsögu sína, Falsarann.
Þar á eftir kemur bókin um
körfuknattleikssnfllinginn Mic-
hael Jordan, þá þýdd unglinga-
bók, Fleiri athuganir Berts. I 9.
og 10. sæti em tvær bamabækur,
Stafrófskver, eftír Þórarin og Sig-
únu Eldjám, og Litlu greyin, eftir
Listi
yfir söluhæstu bækur
- síöustu viku -
1. Spor í myrkri - Þorgrímur Þráinsson
2. Járnkarllnn - Örnólfur Árnason
3. Perlur og steinar - Jóhanna Kristjónsdóttir
4. Falsarinn - Björn Th. Björnsson
5. Michael Jordan - Jack Clary
6. Athuganlr Berts - A. Jacobsen og S. Olsson
7. Eldhress i hella öld - Gylfi Gröndal
8.
Guðrúnu Helgadóttur.
Næstar tíu söluhæstu bókunum
undangengna viku em Vínin í
ríkinu eftír Einar Thoroddsen,
Manga meö svartan vanga eftir
Ómar Ragnarsson og NBA, þeir
bestu, eftír Eggert Þór Aðal-
steinsson.
Bókaverslanir sem þátt taka í
sölukönnun DV, em: Allar versl-
anir Eymundssonar í Reykjavík,
Penninn í Hallarmúla, Hagkaup
í Skeifumú, Kringlunni, Njarðvík
og á Akureyri, Bókaverslun Sig-
urðar Jónssonar í Stykkishólmi,
Bókhlaðan á ísaflrði, Bókabúð
Brynjars á Sauðárkróki, Bóka-
búö Jónasar á Akureryri, Bóka-
búð Sigbjörns Brynjarsonar á
Egilsstöðum, Kaupfélag Ámes-
inga á Selfossi og Bókabúð Kefla-
víkur.
Fengnar em sölutölur liðinnar
viku og geröur listi yfir 10 sölu-
hæstu bækumar í hverri versl-
un. Eru gefm stig, 1-10, eftir röð-
inni á listanum.
-hlh