Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Blaðsíða 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
íþróttir
Steaua heldur sjö stiga forystu
í rúmensku knattspymunni þrátt
fyrir 1-1 jaftxtefli við Farul Const-
anta um helgina, því Dinamo
Búkarest gerði einnig 1-1 jaíh-
tfifli, við Gloria Bistrita.
BenRca vann Sportfng
Benfica vann Sporting, 2-1, í
stórleik portúgölsku l. deiidar-
innar á laugardaginn en Porto og
Guimaraes skildu jöfn, 1-1.
Benfica er meö 21 stig, Sporting
19, Porto 17 og Guimaraes 16 stig.
AEKátoppnum
AEK vann Kalamaria, 3-0, og
er raeð þriggia stiga forystu í
grísku 1. deildinni, en næst kera-
ur Panathinaikos.
ftalalaeawHi tawaAi
í Tyrklandi tapaði Galatasaray
í annað sinn í vetur, 2-1, fyrir
Bursaspor og forysta liðsins fór
niöur í þijú stig þar sem Fen-
erbache sigraði Rarsiyaka, 1-0.
Leik QPR og Chelsea í urvals-
deildinni var frestað í gær. Mikið
rigndi í London i gær og eftir aö
dómarinn skoðaði Loftus Road
ákvað hann að fresta leiknum.
Nýr þjálfari Pótverja
Henryk Apostel var í gær ráð-
inn þjáífari pólska landshðsins í
knattspymu. Apostel tekur viö
starfinu af Andrzej Strejlau sem
hætti i októher eftir að ljóst varð
að Pólveijar kæmust ekki úr-
slitakeppnina í Bandarikjunum.
Venables efstur á biadi
Enska landsliöið í knattspyrnu
er enn þjálfaralaust og ekki er
talið lildegt að nýr þjálfari verði
ráðinn fyrir áramót. Flestir veðia
á Terry Venabies þessa stundina
samkvæmt veðbönkum. Stjóm-
armenn innan enska knatt-
spymusambandsins verjast aiira
frétta en segja að viðræður við
ákveðna menn séu ekki hafiiar.
Argentínumenn sælír
Argentínskir fjölmiðlar era í
sjöunda hfinni með niðurstöðuna
í drættinum í Las Vegas. 1 gær
mátti sjá fyrirsagnir í argentínsk-
um dagblöðum á borð við „Bingo
í Vegas". Diego Maradona sagði
einnig að Argentínumenn mættu
vel við una þó ekkert væri
ómögulegt þegar fótbolti væri
annars vegar.
Þróttur ef stur
í stööuna í 1. deild karla í blaki,
sem birtist í blaöinu í gær, vant-
aöi leik HK og Þróttar R. sem leik-
inn var í síöustu viku og lauk 0-3
fyrir Þróttara. Þeir em því efstir
í deildinni og staöan er þannig;
Þróttur R...11 9 2 28-14 28
ÍS..........11 7 4 26-16 26
KA.......... 8 4 4 19-15 19
HK.......... 8 4 4 16-14 16
Stjaman..... 8 4 4 15-17 15
ÞrótturN....10 0 10 2-30 2
-VS/JKS
Skíðasvæðin opnuð á næstu dögum ef tíðarfar verður gott
„Þurfum eina góða
nótt við rétt skilyrði“
- segir Þorsteinn Hjaltason, forstöðumaður skíðasvæðisins í Bláfjöllum
„Ástandið er orðið mjög gott neðan
til í fjafiinu en því miður hefúr mikið
af nýfallna snjónum fokið úr fjallinu
ofanverðu enda er hann mjög léttur
í sér. Þetta er orðið þokkalegt öðrum
megin við stólalyftuna en herslu-
muninn vantar á öðrum stöðum,"
sagði Þorsteinn Hjaltason, forstöðu-
maður skíðasvæðisins í Bláfiöllum, í
samtah við DV í gær.
Starfsmenn í Bláfjöllum og Skála-
felli hafa unnið hörðum höndum við
að troða skíðabrekkur síðustu vik-
una og að sögn Þorsteins vantar
herslumuninn á báðum stöðum:
„Það má segja að okkur vanti aðeins
eina góða nótt við rétt skilyrði. Þessi
nýfallni snjór er afskaplega laus í sér
og fýkur burt við minnsta vind.“
- Er möguleiki á að opna í Bláfjöll-
um og Skálafelli um jólin?
„Við stefnum ákveðið að því að
opna á milli jóla og nýárs. Mér skilst
að það sé von á snjógusu á aðfanga-
dag og vonandi gengur það eftir. Það
er vonandi að snjórinn verði blautur
og slydda er efst á óskalistanum
þessa dagana," sagði Þorsteinn.
Skíðafólk æfði í fyrsta skipti í Blá-
fjöllum í gærkvöldi og ef spádómar
og draumar Þorsteins rætast gæti
almenningur mætt í skíðabrekkum-
ar á næstu dögum. Og að sögn Þor-
steins bíður margt áhugasamt skíða-
fólk óþreyjufullt eftir grænu Ijósi. í
fyrra var skíðasvæðið opnað í Blá-
fjöllum 7. nóvember en í verstu til-
fellum eru dæmi um að opnað hafi
verið síðari hluta janúar.
„Rosalega lítill snjór“
ivar Sigmundsson í Hlíðaríjalli við
Akureyri var bjartsýnn þegar DV
hafði samband við hann í gær: „Það
er rosalega lítUl snjór héma núna
og mun minni en niðri í bæ. Við erum
ennþá stopp en það vantar samt ekki
mikið á að við getum farið í gang
með tvær lyftur. Það er þó ljóst að
við opnum ekki fyrir jólin. í fyrra
opnuðum við um miðjan nóvember
og vorum aö fram að Þorláksmessu.
Þá fór allur snjór í hvelli í einhverju
mesta vatnsveðri sem ég man eftir.
Við erum bjartsýnir á framhaldið.
Það er ekki spuming hvort heldur
hvenær og hversu mikfil snjór kem-
ur,“ sagði ívar Sigmundsson.
-SK
NB A-deildin í nótt:
Nítjánda
tapið hjá
Dallas í röð
- Pippen fór á kostum gegn Charlotte
Sex leikir fóm fram í nótt í NBA-
defidinni í körfuknattleik og urðu
úrslitin þessi:
NewYork-Dallas............101- 92
Phfiadelphia-Detroit......121- 92
Minnesota-Washington.......84- 99
ChicagoBulls-Charlotte....109- 97
Phoenix-Indiana...........102- 94
LAClippers-Mfiwaukee......92-105
Scottie Pippen átti einn besta leik
sinn á ferlinum þegar Chicago vann
ömggan sigur gegn Charlotte. Pipp-
en skoraði 22 stig, tók 11 fráköst og
átti að auki 10 stoðsendingar. Þetta
er í tólfta skiptið á ferlinum sem
Pippen nær þrennunni. Larry John-
son var langbestur í hði Charlotte
og skoraði 28 stig. Er það met hjá
honum í vetur.
Dallas er komið í nákvæmlega
sama farið og í fyrra. Liðið vinnur
ekki leik og í nótt tapaði það fyrir
New York Knicks. Patrick Ewing
skoraði 21 stig fyrir New York og
Charles Oakley 20. Derek Harper var
sá eini með lifsmarki hjá Dallas og
skoraði 16 stig. Þetta var nitjánda
tapið hjá Dallas í röð í defidinni.
Sir Charles Barkley var í banastuði
þegar Phoenix vann Indiana. Bark-
ley skoraði 27 stig en hjá Indiana
vom þeir Rik Smits og Reggie Miller
stigahæstir með 16 stig hvor.
Philadelphia 76ers vann yfirburða-
sigur gegn Detroit. Tim Perry skor-
aði 29 stig fyrir 76ers og er það per-
sónulegt met hjá honum í defidfiini.
Terry Mfils skoraöi 16 stig fyrir
Detroit og Greg Anderson 15.
Shauwn Bradley skoraði einnig 15
stig fyrir 76ers en tók að auki 14 frá-
köst, stal 4 boltum og varði 5 skot.
Eftir tíu ósigra í röð vann Washing-
ton loks sigur gegn Minnesota á úti-
velli. Don MacLean skoraði 24 stig
fyrir Washington, Tom Gugliotta var
með 16 stig og 14 fráköst og Michael
Adams skoraði 14 stig og átti 13 stoð-
sendingar. Hjá Minnesota var
Christian Laettner stigahæstur með
25 stig og 12 fráköst.
Ken Norman, áður leikmaður með
Clippers, skoraði 20 stig gegn sínum
gömlu félögum og miðherjinn Blue
Edwards var með 17 stig. Hjá Clipp-
ers var Ron Harper stigahæstur með
20 stig og Danny Manning kom næst-
urmeðl9stig. -SK
Pete Meyer í liöi meistara Chicago Bulls skorar fyrir lið sitt gegn Charlotte
Hornets i nótt. Símamynd Reuter
íþróttam
Nafn íþróttamanns:
1
Sondið tll:
iþróttamaöur ársins
DV - Þverholti 11
105 Reykjavtk
Landsmót í skotfínii:
Hannes númer eitt og tvö
Hannes Tómasson, Skotfélagi
Kópavogs, varð í fyrsta og öðru
sæti á landsmóti í skotfimi sem
haldið var í Digranesi á laugardag-
inn. Hannes sigraði í keppni með
loftskammbyssu, hlaut 561 stig, og
varð annar í staðlaðri skammbyssu
á eftir Carh J. Eiríkssyni úr Aftur-
eldingu. Carl fékk 548 stig en Hann-
es 544.
Jónas Hafsteinsson, Skotfélagi
Kópavogs, varö annar í loftskamm-
byssu með 557 stig og Carl fékk 552
stig. SK fékk 1.648 stig í liðakeppni
en Afturelding 1.619.
Það var Bjöm Birgisson, Aftur-
eldingu, sem varð þriðji í staðlaðri
skammbyssu með 535 stig. Aftur-
elding fékk þar 1.599 stig í liða-
keppni en SK 1.576 stig.
Carl yfir lágmarki
Á landsmóti í riSilskotfimi, sem
fram fór í Digranesi á dögunum,
fékk Carl J. Eiríksson 592 stig og
sigraði. Hann var tveimur stigum
yfir ólympíulágmarki í greininni.
-VS/GH