Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
13
Neytendur
Hvemig á að halda sér í formi?
Stanslaus hreyfing
og gott kynlíf
- segir Sigmundur Emir varafréttastjóri
Sigmundur Ernir í eldhúsinu.
DV-mynd BG
„Eg nota eitt trix, ég drekk mjög
mikið af vatni. Fæ mér a.m.k. tvö
glös á morgnana því ég hef trú á því
að vatnið hreinsi líkamann og komi
meltingunni af stað, vinni á því sem
situr eftir frá gærdeginum. Eins
drekk ég mikið vatn með mat,“ sagði
Sigmundur Emir Rúnarsson, vara-
fréttastjóri Stöðvar 2, aðspurður um
ráðleggingar varðandi mataræði.
Hann segist ekki fá sér morgun-
mat, allur tíminn fari í að gefa böm-
unum íjórum að borða. „Ég legg
meiri áherslu á að bömin nærist
heldur en ég. Fyrsta máltíð dagsins
hjá mér eru yfirleitt tveir kaffibollar
með mjólk og sykri en ég drekk
óheyrilega mikið kaffi. Svo fæ ég mér
staðgóðan hádegisverð í vinnunni.
Ég hef hreinlega ekki tíma fyrir
aukabita. Þó fæ ég mér stundum góða
samloku um fimmleytið þegar ég er
orðinn svangur," sagði Sigmundur.
Þegar hann vill láta eitthvað vem-
lega gott eftir sér fær hann sér rauð-
vín og osta eða ijóma. Hann viöur-
kenndi aö hann væri rjómafíkill.
„Á kvöldin leggjum við áherslu á
hin gömlu gildi annars vegar, borð-
um mikið af nýjum íslenskum fiski
og allskyns súpum, brauði og áleggi,
og erum mikið fyrir ítalskan og mexí-
kóskan mat hins vegar. Ég er sér-
fræðingur í hinum eþnísku réttum
en konan er meira í íslensku réttun-
um.“ Hann sagðist sjálfur annast
meirihluta máltíðanna en bæöi hjón-
in vinna vaktavinnu og það þeirra
eldar sem fyrr er komið heim. Oft
borða þau á milli klukkan átta og níu
á kvöldin.
„Matreiðslan einkennist mikið af
því að nýta það sem til fellur. Það
er t.d. sniðugt að eiga til súpuupp-
skriftir sem maður getur notað af-
ganga í. Við borðum ákaflega lítið
kjöt, nánast aldrei stórar steikur. Það
kemur þó fyrir að við borðum hakk
eða kjúklingakjöt." Hann sagðist þó
gera undantekningu á jólunum því
þá er alltaf svínabógur í matinn.
Aðspurður hvort hann stundaði
einhveija likamsrækt sagðist hann
vera á stanslausri hreyfmgu allan
daginn í vinnunni og stunda gott
kynlíf.
Holl skammdegissúpa
Hversdagsuppskriftin hans Sig-
mundar Emis er súpa fyrir 12 manns
og segist hann oft borða hana þrjá
daga í röð.
Aðferð: bræðið 2 msk. af smjöri
saman við 2 msk. hveiti og bakið upp
sósu með 1 Utra af vatni. Látið suðuna
koma upp og setjið 2-3 grænmetisten-
inga útí. Skerið niður blómkál, hráar
kartöflur og gulrætur sem nemur 1 'Á
Utra máU (niðurskorið). Sjóðið í 15
mínútur og bætið þá 1 Utra af vatni
útí og 1 Utra af mjólk. Látið suðuna
koma upp, kryddið með pipar og ta-
basco-sósu, skerið niður 5 hvítlauks-
rif og steinselju og bætið útí. Sjóðið í
10 mínútur. Berið fram með ristuðu
eða ofnbökuðu brauði. -ingo
Kaupmenn og veiðimenn deila um verð á rjúpu:
Ólöglegt verðsamráð
kaupmanna
„Það Uggur nokkuð ljóst fyrir að
kaupmenn hafa með sér ólöglegt
verðsamráð um rjúpuna og aldrei
eins og nú. Þeir virðast hafa rottað
sig saman um að greiða ekki meira
en 600 kr. fyrir stykkið á þeirri for-
sendu að nóg sé til af ijúpu. Ég er
sannfærður um að svo er ekki og
held að það sem til er sé aUt komið
í verslanir nú þegar,“ sagði Snorri
Jóhannesson ijúpnaveiðimaður á
Augastöðum í Hálsahreppi.
Sjálfur hefur Snorri selt aUar sínar
ijúpur, 500 stykki, og fengið fyrir þær
sæmflegt verð. Hann segir að ef
veiðimenn bíði of lengi með að selja
sitji þeir uppi með fuglana.
Kaupmenn hafa aðra sögu að segja
og telja veiðimenn sitja á bráðinni
og bíða eftir að kaupmenn lendi í
vandræðum með að uppfyUa pantan-
ir. Þá krefjist þeir hærra verðs, aUt
að 850 krónum fyrir ijúpuna. Dæmi
eru um að kaupmenn greiði með
rjúpunni tfl þess eins að tryggja við-
skiptavinum sínum þessa þjónustu;
kaupi jafnvel ijúpuna á rúmar 800
krónur en selji hana á 750 krónur.
Einnig eru dæmi um að kaupmenn
fari í aörar verslanir til að hafa upp
í sínar pantanir.
„Þeir heimta aUtof hátt verð. Við
erum líka að hugsa um viðskiptavini
okkar, að þeir þurfi ekki að greiða
hátt í þúsund krónur fyrir ijúpuna.
Viö erum því ekki að stuðla að verð-
hækkunum nema síður sé,“ sagði
kaupmaður sem ekki vUdi láta nafns
síns getið. Hann viðurkenndi að
kaupmenn hefðu eitthvert verösam-
ráð en spurði í staðinn hvort það
væri ekki samráð hjá veiðimönnum
að heimta þetta verð fyrir rjúpuna.
-ingo
Hamborgarhryggimir frá Meist-
aranum hf.
Nýttfrá
Meistar-
anumhf.
Meistarinn hefur sent frá sér
tvær nýjar tegundir af hamborg-
arhrygg, appelsfnu og hunangs.
Hryggjunum fylgja nákvæmar
leiðbeiningar um matreiðslu og
uppskriftablað jiar sem m.a. er
gefin uppskrift að rauðvínssósu.
Hamborgarhryggina þarf ekki
að sjóða heldur eru þeir settir
beint inn í ofn og penslaðir reglu-
lega með sérstakri appelsínu- eða
karameUubráð sem fylgir. Ef
keyptur er einnota álbakki fylgja
matreiðslunni engin óþrif og hún
tekur ekki nema 1'/% klukku-
stund. Að sögn Þórarins Guð-
laugssonar matreiðslumeistara
eru hryggirnir minna saltaðir,
marineraðir og aðeins reyktir.
Hann sagði þessa vöru vera í
stööugri þróun svo nýjar aöferðir
væru nú aö líta dagsins ljós sem
væru engu síðri en þær gömlu.
lamba-
Eins og fyrir jólin í fyrra er
hægt að kaupa ferskt lambakjöt
fyrir þessi jól. Kjötið er bæði selt
í neytendapakkningum og í heil-
um skrokkum.
Hér er um tílraun aö ræða þar
sem þetta er óhefðbundin fram-
leiðsla og óljóst hvort nægUegur
markaður er fyrir hendi. Magnið
verður því takmarkað, einungis
50 skrokkar, og kjötið eingöngu
selt hjá Kaupfélagi Borgfiröinga,
Borgarnesi, og í verslun Hag-
kaups i Kringlunni.
Ferska lambakjötiö verður selt
á sama verði og i fyrra og stefnt
er aö því að setja þaö á markað
tvisvar tíl þrisvar í vetur þar sem
æ fleiri taka ferskt kjöt fram yfir
frosið.
-ittgo
kaupauki
- sparaðu með
kjaraseðlum
Kjaraseðillinn gildir
í versluninni sem
tilgreind er hér til
hliðar. Einn seðill
gildir fyrir eitt eintak
af vörunni.
Gildirtil:
31. desember 1993
eða á meðan birgðir endast
Afsláttur
kr.
15.4001
COMET HÆGINDASTOLL
Svartur - dökkbrúnn -
ljósbrúnn - rauðbrúnn
Verð kr. 35.300
+ kjaraseðill 15.400
Samtals;
19.900
TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 — sími 68-68-22
Kjaraseðillinn gildir
í versluninni sem
tilgreind er hér til
hliðar.
Gildir til:
31. desember 1993