Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 Fréttir______________________________________________ Fj ölbrautaskólinn á Suðurlandi: Verktaki neitar að gef a 10 ára ábyrgð rnálinu hugsanlega skotið til gerðardóms Ósætti hefur komið upp milli Sig- fúsar Kristinssonar, byggingaverk- taka á Selfossi, og byggingamefndar Fjölbrautaskólans á Suðurlandi, vegna kröfu byggingamefndar um tíu ára verktakaábyrgð á 1.200 fer- metra hallandi glugga í Fjölbrauta- skólanum. Byggingamefndin hefur stöðvað greiðslu til verktakans vegna þess að hann boraöi glugga- ramma í seinni helming stærsta glugga á íslandi íjórum sinnum þétt- ar en átti aö gera. Byggingamefndin er óánægð með þessi mistök og hefur krafist þess að byggingaverktakinn ábyrgist gluggann í tíu ár. „Þeir tóku upp á því fyrir tveimur og hálfum mánuði að heimta tíu ára ábyrgð á allan stóra gluggann móti suðri og stoppuðu allar greiðslur til mín um leið þó að það væri hvergi orð um þetta í útboösgögnum. Eg talaði við mann í Reykjavík sem sér um byggingar og hann sagöi að ég mætti ekki gefa þessa ábyrgð þvi að þeir ættu það til að koma tíu ára við- haldi yfir á verktakana og neita að borga,“ segir Sigfús Kristinsson byggingaverktaki. Byggingaverktakinn hefur gefið byggingarnefndinni frest fram á mið- vikudag til að greiða sex miiljónir króna fyrir gluggarammana og reyna lögfræðingar nú að ná sáttum í máiinu. Ef ekki hefur náðst sam- komulag á miðvikudag verður mál- inu skotið til gerðardóms. -GHS Niðurstöður mats Kj ararannsóknanefndar: Kaupmáttarrýrnun á seinni hluta ársins Kjararannsóknanefnd birti nýver- ið niöurstöður mats á launum á 3. ársfjórðungi hjá aöildarmönnum innan ASÍ. Helstu niðurstöður eru þær aö greitt tímakaup í dagvinnu hækkaði um 1,4% frá þriðja ársfjórð- ungi 1992 til sama tímabils 1993 hjá landverkafólki innan ASÍ. Vísitala framfærslukostnaðar hækkaði um 5% á sama tímabili, þannig að kaup- máttur greidds tímakaups í dag- vinnu minnkaði um 3,4%. Kauptaxt- ar flestra starfshópa voru óbreyttir á tímabilinu. Mánaðarlaun landverkafólks inn- an ASÍ í fullu starfi hækkuðu um 3,2% frá þriðja ársfjórðungi 1992. Kaupmáttur heildarlauna rýmaði þvi um 1,7%. Heiidarlaun hækkuðu mest hjá verkafólki og iðnaðarmönn- um en skýringin felst aðallega í því að vinnuvikan hjá þeim starfstéttum lengdist um um það bil eina klukku- stund. -ÍS 100.000 60.000 20.000 Mánaðarlaun fólks í fullu starfi — á þriöja ársfjórðungi 1992 og 1993 — Mánaöarlaun 1993 140.000 1- 0- -i: -3; -5 - Breyting á kaupmætti 1> » Hagkaup kynnir nýjar reglur: Sektar heildsala ef vörur vantar „Já, við höfum sett reglur um með- höndlun í þeim tilvikum þegar ítrek- að vantar í vörusendingar frá sama heildsalanum. Það er hluti af ráðstöf- unum sem við gerum til þess að stemma stigu við rýmun," sagði Ósk- ar Magnússon, forstjóri Hagkaups, aðspurður hvort þeir væm famir að sekta heildsala. Hann kvaðst ekki geta nefnt upp- hæðir í þessu sambandi en sagði að þær væm ekki háar og einungis not- aðar þegar ákveðið lágmark vantaði upp á pantanir. „Þetta þekkist víða erlendis og heildsalamir hér hafa tekiö þessu vel. Það em allir sam- mála um að þeir sem gera mistökin eigi að bæta fyrir þau,“ sagði Óskar. Enn hefur enginn verið sektaður enda er verið að kynna þessa nýjung um þessar mundir og verður svo hvert tilvik metið fyrir sig. -ingo Aflamiðlun: að landa úr gámunum Samheiji hf. á Akureyri og Afl- amiðlun komust aö samkomulagi um gámafiskinn sem Samherja- menn fluttu út í liðinni viku, aUs 7 gáma, í óþökk Aflamiðlunar. Samkomulagið snýst um þaö að Samherji fær að landa fiskinum gegn því að virða hér eftir niður- stöðu Aflamiðlunar um úthlutun heimilda til útflutnings á ísfiski. Þá hafa Samherjamenn dregið til baka kæru á hendur Aflamiðl- un sem send var utanríkisráðu- neytinu í síðustu viku. Aflamiðl- un hefur óskað eftir því við emb- ætti tollstjóra aö afturkalla beiðni til tollayfirvalda erlendis að koma í veg fyrir að gámunum yrðilandaðþar. -bjb Biluníborholu Helgi Jónsson, DV, ÓlaMrði: Dæla í borholu nr. 4 hjá Hita- veitu Ólafstjarðar bilaði á dögun- um. Varadæla var sett í gang en þar sem hún er afkastaminni hef- ur rennslí heita vatnsins í bæinn minnkaö um 80 prósent. Meðal annars varð að loka sundlauginni í nokkra daga vegna vatnsskorts. Alþýðuflokkurinn: Nef nd frestaði afsögn sinni Sjávarútvegsnefnd Alþýðu- flokksins hefur ákveðið að fresta afsögn sinni og skjóta máli sinu tfl flokksstjómarfundar i janúar. Magnús Jónsson, formaður nefndarinnar, segir að nokkrir nefndarmenn telji að við núver- andi aðstæöur sé hlutverki nefndarinnar sem „yfirfrakka á tvíhöfðane£nd“ lokið en forystu- sveit flokksins sé þeirrar skoðun- ar að hlutverki hennar sé ekki lokið. Á flokksstjórnarfundi í jan- úar fáist á hreint hvernig landið liggur. -GHS I dag mælir Dagfari______________ Áfengismeðferðargjald Óbærileg spenna hefur ríkt í röð- um drykkjumanna að undanfornu. Eitt af því sem fjármálaráðherra hafði lagt til við meðferð fjárlaga á Alþingi var að leggja á svokallað áfengismeðferðargjald tfl að drýgja tekjur ríkissjóðs. Satt að segja var ráðherrann búinn að leita dyrum og dyngjum að einhveiju bitastæðu til að skattleggja tfl viðbótar við alla hina skattana en hafði ekkert fundið nema þetta áfengismeðferð- argjald. I raun og veru hefur það lengi farið í taugamar á ríkisstjóminni að áfengissjúklingar hafa komist upp með það að láta leggja sig inn á Vog og aðrar skyldar stofnanir án þess að borga fyrir þá þjónustu sem heitið getur. Menn hafa sem sagt komist upp með það að detta í það og vera fullir lengi og geta svo látiö renna af sér ókeypis, án þess að ríkissjóður njóti góðs af afvötn- uninni. Svona gat þetta ekki gengið enda- laust, enda sífellt nýir menn að bætast í hóp þeirra sem þurfa á því að halda aö láta renna af sér og engin hemja að halda þessari af- vötnunarþjónustu uppi án þess að menn borgi skatt fyrir að vera edrú. Það er búið að skattleggja nánast hvaðeina í þjóðfélaginu og þá aðal- lega ódrukkið fólk og raunar líka þá sem detta í það, vegna þess að menn borga skatt tfl ríkisins þegar þeir kaupa sér áfengi í ÁTVR. Nú hefur það færst í vöxt í seinni tíð að einstaklingar og heflar fjöl- skyldur brugga landa í gríð og erg, og lögreglan hefur ekki undan og allur er þessi-landi drukkinn án þess að ríkið njóti góðs af því og ef fólk kemst upp með það að vera drukkið, þá er aö minnsta kosti ófært að láta það líka komast upp með það ókeypis að láta renna af sér inni á stofnunum sem ríkið kostar. Þetta er sem sagt skýringin á því að fjármálaráðherra fann upp áfengismeðferðargjaldiö sem er í því fólgið að þegar menn komast í slíkt óvit af langvarandi áfengis- drykkju og vilja verða afturbata, þá verða þeir að borga gjaldið í rík- issjóð. Að öðrum kosti er ekki tekið við þeim á endurhæfinguna og þeir verða að vera fullir áfram. Eitthvað hafa óbreyttir þing- menn og þá aðallega stjómarand- stöðuþingmenn haft við þetta með- ferðargjald að athuga og menn hafa verið að karpa um það niðri í þingi að undanfomu hvort hleypa eigi þingmönnum í jólafrí ef meðferðar- gjaldinu er haldið tfl streitu. Þing- menn vita sem er að margir kjós- enda þeirra munu mótmæla því kröftuglega ef þeir geta ekki látið renna af sér ókeypis, því nógu and- skoti dýrt hefur það verið fyrir þá að drekka áfengið. Jafnvel landinn er ekki ókeypis. Fjármálaráðherra var búinn að láta það berast tfl framsóknar- mannanna í þinginu að áfengis- ’ meðíerðargjaldið væri út af borö- inu ef framsóknarmennimir hög- uðu sér vel og létu af málþófi og þingið kæmist heim á skikkanleg- um tima. En framsóknarmenn tóku ekki nægilega mikið mark á ráðherranum og þannig hefur þetta meðferðargjald verið bæði úti og inni, eftir því hve framsóknarmenn hafa talað lengi. Það er þess vegna sem forfallnir drykkjurútar og langdrykkjumenn hafa þurft að halda áfram drykkju sinni og ekki getað látið verða af því að fara í meðferð, vegna óvissunnar um það hvort þeir hafa efni á afvötnuninni. Menn hafa jafnan efni á drykkju- skapnum en þeir hafa ekki efni á afvötnun ef þetta meðferðargjald leggst á. Fjármálaráðherra lagði í fyrstu til að gjaldið yrði lagt á. Svo dró hann það tfl baka tfl að bhðka stjórnarandstöðuna, en þegar stjórnarandstaðan lét ekki blíðka sig lét ráðherrann heldur ekki blíðka sig og síðast þegar fréttist var áfengismeöferðargjaldið í limbói í umræðunni í þinginu og úrsht ráðast algjörlega af því hvort ráðherrann verður í góðu skapi gagnvart framsóknarmönnum eða ekki. Sem þýðir að drykkjumenn sem vilja taka sig á eiga þaö undir skaplyndinu hjá fjármálaráðherra hvort þeir þurfa að borga fyrir að láta renna af sér. Meðferðargjaldið er sem sagt skiptimynt í þinginu, eftir því hvemig hggur á ráðherr- um og þingmönnum. Vonandi er að reiðin renni af þeim, svo aðrir geti látið renna af sér, án þess að það verði þeim fjárhagslega ofviða. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.