Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
Viðskipti
Hlutabr. Eimskips
Bensín 92 okt.
Má Þr Mi Fi Fö
Gengi pundsins
107,3
107,3
107,2
107,2
KR.
Má Þr Mi Fi Fö Má
Kauph.í London
3400
3350
3300
3250“
3200
FTSE * _____
100 W'brMi Fi Fð Mó
Hamagangur
íLondon
Verö á ýsu á fiskmörkuðum fór
í 130 krónur kílóiö að meðaltali
fyrir helgi en lækkaði í 117 krón-
ur eftir viöskipti gærdagsins.
Hlutabréf í Flugleiðum eru að
hækka í verði á ný eftir að gengi
þeirra fór í 4,46 sl. fimmtudag.
92 oktana bensín í Rotterdam
hækkaði lítillega í verði í síðustu
viku þó enn sé það lágt.
Gengi pundsins í síðustu viku
breyttist lítið en lækkaði aðeins
í gærmorgun, sölugengið skráð
107,17 krónur.
Hamagangur var í kauphöllinni
i London í gær sem og öðrum
kauphöllum heims. FT-SE 100
vísitalan hefur hækkað um 3,5%
áeinniviku. -bjb
Vaxtabreytingadagur í dag:
Enn lækka vextir
Vaxtabreytingadagur er í dag. ís-
landsbanki lækkar nafnvexti útlána
um allt að 2% og Landsbanki lækkar
nafnvexti nær allra útlána um 1%.
Búnaðarbankinn og sparisjóðimir
breyta sínum vöxtum lítið sem ekk-
ert í dag en þeir lækkuðu sína vexti
11. desember sl. en hinir ekki.
Eftir breytingamar í dag er Búnað-
arbankinn með lægstu meðalvexti
almennra víxillána og sparisjóðir
með lægstu skuldabréfavextina.
Á meðfylgjandi grafi má sjá þróun
nafnvaxta almennra skuldabréfa hjá
bönkum og sparisjóðum í ár, saman-
borðiö við mánaðarlegar breytingar
á lánskjaravisitölunni á ársgrund-
velli, þ.e. mánaðarlega verðbólgu.
Eins og sjá má virðast þessar tvær
hagstærðir hafa fylgst að á árinu.
-bjb
Vextir og verðbólga 1993
* Meðaltal nafnvaxta á alm.
-n .stiuWabiéfumJaanka.MSparlsi.
•. •
*» MSnaðartegar ftreytmgar a
lánskjaravíalt miöaö viö ársgrundvöfl
1. jan.
mai
21. des^
DV
Islenskir loödýrabændur kætast:
Nú koma launin
- segir Einar E. Gíslason á Syðra-Skörðugili
„Þetta gjörbyltir öllu og maður sér
fram á að draumamir ætla að ræt-
ast. Ef allt horfir vel, og við fáum
hluta fóðurstyrks greiddan, þá mun-
um við sjá einhver laun fyrir okkar
vinnu í ár, í fyrsta sinn í 5 eða 6 ár,“
sagði Einar E. Gíslason, ráðunautur
og loðdýrabóndi á Syðra-Skörðugili
í Skagafirði, í samtali við DV í tilefni
af verðhækkunum á skinnauppboð-
inu í Kaupmannahöfn.
Ef skinnaverð heldur áfram að
hækka á næsta ári, sagði Einar, gætu
íslenskir loðdýrabændur jafnvel far-
ið að greiða öðmm laun en sjálfum
sér. „Þetta er yndislegur jólapakki.
Núna er minkaskinnið komið yfir 2
þúsund krónur en var lægst um 740
krónur. Verðið þarf að fara í 2.500-
2.700 krónur minkaskinnið til að við
séum nokkuð tryggir," sagði Einar.
Einar E. Gíslason og aðrir loðdýra-
bændur sjá núna fram á kaup fyrir
vinnu sína í fyrsta sinn i mörg ár.
Þeim hefur fækkað mjög sem
stunda loðdýrarækt á íslandi, eða um
70% á einum 7 ámm. í kringum árið
1985 vom loðdýrabændir flestir í
landinu eða um 250 talsins. í dag em
þeir orðnir á bilinu 75 til 80, þar af
em flestir í minkarækt. „Ríkisstjóm-
in hefur aðstoðað okkur við að halda
þessu og hafði trú á að ástandið batn-
aði. Það er ágætt fyrir fjölskyldur að
lifa á þessu eins og hveiju öðm.
Núna fer að muna um hverja pró-
sentuhækkun sem á sér stað. Bjart-
ast af öllu er að öll skinnin seldust í
síöustu viku. Við sjáum fram á gott
ár,“ sagði Einar, sem hefur stundað
loðdýrarækt síðan 1981 og er bæði
með ref og mink. Einar var um skeið
í forsvari fyrir loðdýrabændur.
-bjb
Skinnauppboðið í Kaupmannahöfn:
Minkaskinn fyrir 45 milljónir
Markverðustu tíðindi vikunnar af
útflutningsafurðum íslendinga em
óumdeilanlega skinnauppboðið í
Kaupmannahöfn sl. fimmtudag. Þar
seldust öll þau skinn sem íslenskir
loðdýrabændur sendu á uppboðið.
Um var að ræða rúmlega 21 þúsund
íslensk minkaskinn fyrir að meðal-
tali um 2.100 krónur hvert skinn. Um
1.300 íslensk blárefaskinn seldust og
meðalverð á hvert skiim var um 4.800
krónur. Alls vom íslensk refa- og
minkaskinn seld á uppboðinu fyrir
52,5 milljónir króna, þar af minka-
skinn fyrir 45 milljónir.
Miðað við uppboð í september sl.
hafa íslensk minkaskinn hækkaö í
verði um 40% að meðaltali. Meðal-
hækkun á refaskinnum nemur um
6% frá því í september. En sé tekið
mið af febrúar sl. hafa blárefsskinn
hækkað um 140% í verði. Svart-
minkur hefur á einu ári hækkað í
verði um 133% að meðaltali.
Hvað aðrar útflutningsafurðir
snertir hefur verð á loðnumjöli og
-lýsi hækkað lítillega í verði, þrátt
fyrir að viðskipti vom lítil sem engin
í síðustu viku. Álverð lækkar aftur
á ný og staðgreiðsluverð á fijálsum
markaði var komið niður fyrir 1.100
dollara tonnið sl. föstudag.
Meðalverð fyrir þorsk á fiskmörk-
uöum hér innanlands hækkar milli
vikna um 3 krónur kílóið en hins
vegar lækkar karfinn verulega í
verði milli vikna, eða um 25 krónur
kílóið.
-bjb
DV
Uppsagnirhjá
Kísiliðjunni
Stjórn Kísiliðjunnar hf. við
Mývatn hefur ákveðiö að segja
upp öllum starfsmönnum fyrir-
tækisins, 55 að tölu, frá og meö
næstu áramótum. Áformað er að
fækka stöðugildum um allt að 13
þannig að ekki munu allir fá end-
urráðningu. Þetta kemur í kjölfar
úttektar og endurskoðunar á
rekstri og mannahaldi sem Kisil-
íðjan ákvað að láta fara fram sl.
haust.
Á þessu ári hefur framleiðslan
dregist saman um 25%, saman-
borið víð meðaltal áranna 1987-
1991. Undanfarin 3 ár hefur halli
verið á rekstrinum og er sam-
drátturinn rakinn til efnahags-
kreppu í Evrópu og hærri fram-
leiðslukostnaðar. Semja á viö alla
helstu birgja fyrirtækisins um
kostnaðarlækkun.
Hlutabréf fyrir
500milljónirí
næstuviku?
Hlutabréfaviðskipti á Verð-
bréfaþingí íslands fóru fram fyrir
rúmar 32 milljónir króna í síð-
ustu viku. Þar af voru hlutabréf
í Olis keypt fyrir'rúmar 10 millj-
ónir króna. Næstmestu viðskipt-
in voru með hlutabréf íslenska
hlutabréfasjóðsins, eða fyrir tæp-
ar 5 milljónir.
Framboð hlutabréfa hefur veriö
meira en eftirspurnin að undan-
fórnu en sámkvæmt reynslu fyrri
ára er búist við að eftirspumin
aukist verulega i næstu viku og
geti numið allt að 500 milljónum
króna. Sl. fóstudag höfðu alls átt
sér stað hlutabréfaviðskipti á ár-
inu fyrir 869 miiljónir króna.
Skýrslaumvan-
nýttartegundir
Útflutningsráð íslands hefur
látið gera markaðsathugun á
fimm tegundum vannýttra botn-
lægra sjávardýra sem finnast i
miklu magni viö landiö. Tegund-
irnar sem um ræðir eru ígulker,
kúskel, trjónukrabbi, beitukóng-
ur og kræklingur.
í athuguninni er gerö grein fyrir
stofnstæröum tegundanna, hvar
þær finnast við landið, veiðum og
vinnslu og þeim rannsóknum sem
gerðar eru i tengslum við þær.
Góðreynslaaf
beinhreinsivél
Góð reynsla er komin á nýja
útfærslu af FTC beinhreinsivél
sem hefur verið í notkun í SP
fiskvinnslu í Þorlákshöfii við
beinhreinsun á söltuðum þorsk-
flökum. í nýju vélinni eru beinin
skoluö frá vélinni eftir bein-
hreinsun í stað þess að vera soguð
frá með sérstakri loftsugu, eins
og gert var í eldri útfærslu af
vélinnl Afköstin eru um 10-15
flök á mínútu og taliö að nýtingin
af flökunum aukist um 4%.
Ostarúllurfrá
Ostahúsinu
Ostahúsið hf.
í Hafnarfiröi
hefur samiö við Osta- og smjör- \t \ ^
söluna um tn H » <
dreifingu á 5 f *
nýjum tegund- um af svoköll- uðum ostarúll- <
um. Ostarúllumar má fá með
beikon-, hvítlauks-, koníaks- og
piparostsbragði. Auk þess að
vera með ostategundir frá Osta-
og smjörsölunni býður Ostahúsið
ýmiss konar veisluþjónustu. Eig-
endur Ostahússíns eru Þórarinn
Þórhallsson og Maria R. Ólafs-
dóttir. -bjb