Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
Spumingin
Hefurðu fengið eitthvað í
skóinn?
Eva Lind Herbertsdóttir: Já, ég fékk
trópí og tyggjó.
Ásgrímur Einarsson: Já, ég fékk
þessa sokka og þessar buxur sem ég
er í.
Hlín önnudóttir: Já, jólasveinninn
gaf mér súkkulaöi. Ég er búin aö
borða það.
Línus örn Gunnarsson: Já, ég fékk
tvo banana og svo man ég ekki meir.
Amar Björgvinsson: Já, ég fékk
strumpaópal frá jólasveininum.
Björgvin ívarsson: Já ég fékk jóla-
svein og Mikka mús í skóinn.
Lesendur
Varanleg endurskipulagning í kreppu:
Hugmyndir til
umhugsunar
Bifreiðatryggingar í bensinverði og hraðahindranir aflagðar í þéttbýli. -
Þetta ásamt öðru telur bréfritari flokkast undir umbætur og varanlega endur-
skipulagningu.
Gisli Óskarsson, Þórshöfn, skrifar:
Þegar kreppir aö í þjóðfélaginu,
tönnlast allir á hagræðingu, spam-
aði, samruna og endurskipulagn-
ingu. Lítið sem ekkert er þó aðhafst
og fyrirtæki jafnt sem heimili verða
gjaldþrota vegna þess að fólk kann
ekki tökin á því að draga saman segl-
in. Kreppa er þó ekki alvond og hefði
betur skolliö á fyrr og oftar til þess
aö opna augu okkar fyrir því að ekki
gengur til lengdar aö eyða meira en
aflað er.
Eftirfarandi hugmyndir, sem ég tel
ekki fáránlegri en margar aðrar sem
fram hafa komið hér, legg ég fram
tilumhugsunar.
Ég legg til samruna allra pólitísku
dagblaðanna í eitt stórt, þar sem hver
flokkur (sérhvert blaðið) hafi sínar
fostu síður tif afnota.
Ég legg til aö ÁTVR verði lögð nið-
ur í núverandi mynd. Áfengi verði
selt í matvöruverslunum eða stór-
mörkuðum um alft fand. - Eöa lands-
byggðarsala áfengis verði leyst með
þeim hætti aö strandferðaskipin
veröi gerð að fljótandi áfengisversl-
unum, eða þá að afgreiðslur skipafé-
faganna úti á landi verði birgða-
geymsfur áfengis. Neytandinn færi á
pósthús staðarins, sýndi persónu-
skifríki vegna aldurs og keypti út-
tektarmiða áfengis sem hann færi
síðan með í vöruskemmu skipafé-
lagsins og fengi þar vöruna afhenta.
Það er algjörlega óþolandi að íbúar
smærri staða á landinu þurfi að
greiða mun hærra verð fyrir vöru
þessa en þeir sem hafa áfengisútsölu
á staðnum (póstkröfukostnaður,
umbúðir, fyrirhyggja, tími o.fl.). Þar
á ofan er áfengi forgangsfrakt í flugi
og gengur fyrir farþegum.
Ég legg til að bifreiðatryggingar
verði innheimtar í bensínverði. Með
því fæst réttiátari skipting iðgjalda;
fólk greiðir eftir eyðslu, trygginga-
báknið og pappírseyðslan minnkar,
enginn er ótryggður. Óþolandi er að
fólk sem htið ekur og er því að öllu
löfnu í minni áhættuhópi greiði jafnt
og hinir (t.d. Grímseyingar og Hrís-
eyingar, svo dæmi sé tekið).
Ég legg til að hraðahindranir í þétt-
býli verði allar aflagðar. Þær gera
ekkert annað en að auka sht öku-
tækja. Grátbroslegt er að sjá sjálfan
sig og aðra í bullandi ófærð og stór-
hríð mjaka bílnum áfram þar til við
stöðvumst á hraðahindrun og kom-
umst ekki lengra. Nær væri aö sekta
duglega þá sem bijóta hámarkshraða
í þéttbýh. - Þótt ekki væri farið að
nema þessum örfáu uppástungum er
ég viss um að þetta væru skref til
umbóta-og mætti flokka undir varan-
lega endurskipulagningu.
Kjör íþróttamanns ársins
Rúnar skrifar:
Nú hður senn að kjöri íþrótta-
manns ársins hjá DV og íþrótta-
fréttariturum fjölmiðlanna. - Einn
er sá íþróttamaður sem ég tel að eigi
skihö þennan titil öðrum fremur, en
það er Sigurbjöm Bárðarson hesta-
íþróttamaður. Ég held að á engan sé
hallaö þótt ég segi að hann beri ægis-
hjálm yfir aha sína mótherja og hafi
gert það í mörg undanfarin ár.
Ég var í Hohandi á heimsmeistara-
móti í hestaíþróttum sl. sumar. Þar
voru samankomnir færustu knapar
og hestar víðsvegar að úr heiminum.
Það yljaði mörgum íslenskum hjört-
um þegar íslenski fáninn var dreginn
að húni aftur og aftur, og þjóðsöngur-
inh leikinn, þegar verðlaun voru
veitt fyrir bestan árangur. - Heim ffá
HoUandi kom Sigurbjöm með þijá
heimsmeistaratitla í íþrótt sinni.
Ef það nægir ekki til að vera valinn
íþróttamaður ársins, hvað þarf
íþróttamaður þá að vinna til að bera
þann titil? - Fyrir utan aUa þá sigra
sem hann hefúr unnið hér heima á
árinu. Hann er margfaldur íslands-
meistari og margfaldur Reykjavíkur-
meistari í ár sem undanfarin ár.
Ég held að við megum fara að beina
sjónum okkar að þessum frækna
íþróttamanni fyrir hans ljúfu fram-
komu og glæstu afrek. Hver annar
getur státað af slíkum afrekum þetta
árið? Það era auðvitað margir kaUað-
ir en fáir útvaldir, og þó svo að hans
íþróttagrein sé hvorki handbolti né
fótbolti þá tel ég að tími sé kominn
til að Sigurbjöm Bárðarson hljóti tit-
ilinn íþróttamaður ársins.
Jólaljós í miðbænum standi áfram
Þetta eru nú einu sinni versiunargötur“, segir m.a. í bréfinu.
Guðjón Sigurðsson skrifar:
Fátt er ógeðfeUdara en að fara í
miðbæinn fyrstu dagana eftir aö öU
jólaljósin og skreytingamar hafa
verið teknar niður eftir áramótin. í
þetta sinn finnst mér vel hafa tekist
til með skreytingar fyrir jólin í borg-
inni. Innanverður Laugavegurinn er
vel bjartur og svo er og um Lækjar-
götuna. Neðri hluti Laugavegar er
hins vegar ekki nógu vel upplýstur.
Þótt faUeg séu Utiu ljósin á tijánum
vantar meiri birtu á þennan fjölfama
kafia götunnar. Lækjargatan, Aust-
urstræti, Hafnarstræti og Skóla-
vörðustígur em hins vegar gott
dæmi um hvemig á að setja upp ljós
sem bæði lýsa og skreyta í senn.
í byijun árs verður þetta líklega
aUt tekið niður að venju. Við því
væri ekkert að segja ef ekki væri
þvílíkt óhugnaðarmyrkur hér. Marg-
ir era orðnir afskaplega leiöir á þessu
myrkri sem drepur aUt í dróma.
Dagsbirtan hangir varla í tveimur
Hringið í síma
63 27 00
millikl. 14ogl6~eðaskriíið
Nafn og slmanr. v«*«r <0 fylgja brMum
klukkustundum á dag. - Því legg ég
til að í þetta sinn verði gerð sú breyt-
ing að ljósin sjálf (ekki þó jólaskreyt-
ingamar) verði látin halda sér eitt-
hvaö fram í febrúar a.m.k. Þetta ætti
ekki aö kosta okkur mikið. Þama er
nú einu sinni um að ræða verslunar-
götur og þar á aö vera bjart og aölað-
andi. Raunar þyrfti að vera þama
ljósadýrð á borð við þá sem nú er
alla vetrarmánuðina.
Smuganbjarg-
aöieftirailt
Gunnar skrifar:
Ég er aUtaf að bíða eítir því að
þeir sem ólmuðust mest út í veiö-
ar skipa okkar í Smugunni á sín-
um tíma komi ftam á sjónarsviðið
og viðurkenni mistök sín, játi að
þeir hafi haft rangt tyrir sér. Nú
kemur bara í Jjós að hagnaðurinn
af veiðunum í Smuguimi lækkar
tjárlagahaUann um rúma tvo
miUjarða króna, ef mig minnir
rétt. -Eigum við nú ekki í framtíð-
irrni bara að reyna að tara eftir
hyggjuviti sjómannanna fremur
en ettir boðum og bönnum misvit-
urra fiskifræðinganna?
Ásókníopin-
beralífeyrssjódi
K.L.P. skrifar:
Deilurnar hjá SVR-starfsmönn-
unum snúast mest um það í
hvaöa stéttarfélagi þeir verða.
Búið var aö gera þdm ljóst að
þeir myndu ekki verða innan
opinberra starfsmanna eftir
einkavæðinguna. En það er ekki
aUt fengið með því að vera opin-
ber starfsmaður nema menn
haldí að lífeyrissjóðir þeirra séu
svona öflugir. Þaö mun þó breyt-
ast hjá þeim eins og öðrum ef eitt-
hvað harðnar á dalnum. Ásóknin
í opinbera lífeyrissjóðina ætti þvi
brátt að snarminnka.
Sektirspifavítis-
manna lækka
Guðný skrifar:
Nú les maður um að dómstólar
lækka sektír spilavítismanna
rækilega. Það skyldi þó ekki vera
eitthvert samband á miUi þess,
og svo hins að nú er Háskólinn
kominn í klemmu meö sitt nýja
spUavíti, sem löggjafinn viU telja
betri tegund spilavíta en aUar
aðrar hér á landi. Það er greini-
lega ekki sama hver í hlut á þegar
dómskerfið okkar er annars veg-
ar, það er sífeUt aö koma betur
og betur í Ijós.
Skórhurfuaf
Mánudagskvöldið 13. des. si.
voru gestir í einni íbúöanna í fjöl-
býUshúsinu Stóragerði 32 hér í
borginni. Gestir höfðu farið úr
vetrarskóm og skiUð þá eftir á
stigapaUinum eins og gerist. Vit-
að var að einhverjir sölumenn
höfðu verið á ferU í húsinu þetta
kvöld, m.a. tU að selja harðfisk.
Eina íbúðin sem ekki var boðin
söluvara í þetta kvöld var sú þar
sem skómir voru fyrir framan,
þ.e. eina íbúðin sem fólk var aug-
ljóslega heima. Þaö má því spyrja
hvort varhug þurfi að gjalda við
sölumönnum 1 fiölbýlishúsum.
En spánnýir vetrarskór, merktir
Þóri Ólafssyni, hurfu þetta kvöld.
Ef einhver telur sig vita um af-
drif skónna er hann vmsamlega
beöinn að koma þeim á sama staö
eða hringja í síma 678902 tii að
láta vita um þá.
Vitnivantarað
árekstri
Anna hringdi:
Fimmtudaginn 2. des. sl. um kl.
23 aö kvöldinu varð árekstur
miUi tveggja bUa á mótum
Kringlumýrarbrautar og Háaleit-
isbrautar. Þama var um að ræða
bUreiðategundirnar Mitsubishi
Colt með númerinu A-11979 og
Volvo með númerinu A-3060. Til-
finnanlega vantar vitni aö þess-
um árekstri vegna tjónauppáörs,
og því em þeir eða sá sem kynni
að hafa orðið vitni að þessum
árekstri vinsamlega beðinn að
hafa samband við Önnu í sima-
númerinu 35991 viö fyrstu hent-
ugleika.