Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
23
Menning
s<‘ IMOKIA
SJÓNVÖRP FRAMTIÐARINNAR
BJÓÐAST ISIÚ Á FRÁBÆRU VERÐI
SUB-WOOFER *
DJÚPBASSAHÁTALARI
BLACK-PLAIMIGON WT-S *
FLATSKJÁR NÝ TÆKWI
Glæsileg og kærkomin handbók
Michael Jordan. Hann er einn margra snillinga sem fjallað er um í
bókinni NBA - þeir bestu eftir Eggert Þór Aðalsteinsson.
Áhugi landsmanna á körfubolta-
sniUingum NBA-deildarinnar
bandarísku er mikUl og sívaxandi.
Til þessa hafa áhugamenn um
þessa bestu og frægustu atvinnu-
mannadeild íþróttanna ekki haft
aögang að upplýsingum og öðrum
fróöleik varðandi NBA-deildina.
Nú er hins vegar komin á markað-
inn bók, NBA - þeir bestu, sem
hefur að geyma ótrúlegan fjölda
gagnlegra upplýsinga og mikinn
fróöleik fyrir alla körfuknattleiks-
unnendur.
í vor var ungur maður að leita
sér að atvinnu. Rla gekk og það var
þá sem hugmyndin varð til. Eggert
Þór Aöalsteinsson og Þórhndur
Kjartansson fengu þá góðu hug-
mynd að skrifa bók um NBA. Egg-
ert sá að mestu um verkið og út-
koman er glæsileg, ekki síst þegar
þaö er haft í huga að Eggert er að-
eins 17 ára gamall.
I bókinni er ítarleg umfjöllun um
öh Uð NBA-deUdarinnar og saga
þeirra rakin frá upphafi ásamt
tölulegum upplýsingum, saga NB A
er rakin, flallað um háskólavaUð,
þjálfara, dómara og margt fleira.
Að auki er í bókinni aragrúi tölu-
legra upplýsinga sem ekki hafa
birst áður á prenti hér á landi. í
bókinni eru á annað þúsund smá-
fréttir úr NBA sem gefa henni auk-
ið gUdi.
Nokkuö hefur verið um útgáfu í
tengslum við NBA að undanfomu
hér á landi. Fer þar mest fyrir bók-
Bókmeimtir
Stefán Kristjánsson
um um kunna einstakUnga. Þær
bækur eru uppfuUar af Utmyndum
en kannski minna um gagnlegar
upplýsingar.
Bók Eggerts Þórs er aUt annars
eðUs. Hún er án Utmynda en þeim
mun meira er af fróðleik. Innihald
hennar er meira og merkUegra en
annarra bóka sem tengjast NBA-
deUdinni og gefnar hafa verið út
fyrir þessi jól. Margar mjög góðar
svarthvítar myndir eru í bókinni
sem er Upurlega skrifuð og að-
gengUeg. Bókin er vel upp sett og
hreint ótrúlega vel heppnuð.
Fjölmargir íslenskir áhugamenn
um NBA-deUdina hafa lengi beðið
efdr svona bók. Áhugi landsmanna
á NBA-deUdinni hefur ekki síst
verið á meðal unglinga. Þeir hafa
ef til viU veriö misjafnlega vel í
stakk búnir tU að meðtaka fróðleik
um NBA-deUdina úr erlendum
blöðum og tímaritum. Hér er kom-
in glæsUeg bók sem aUir geta lesið
og skiUð. Ber hún höfundi og útgef-
anda gott vitni og vonandi eiga
unnendur NBA-deUdarinnar eftir
að fá í hendur fleiri svona bækur
frá þessum unga og efnUega höf-
undi í framtíðinni.
NBA - þeir bestu
Eggert Þór Aðalsteinsson
119 bis.
Fróði
AUÐVELD STJORNUIM
MEÐ VALMYNDUM
MÚSARFJARSTÝRING
FÁIR TAKKAR
TEXTAVARP
LEIÐANDI Á SÍNU SVIÐI
UMFRAM ALLT GERÐ
MEÐ ÞIG í HUGA
VÍÐQMUR (NICAM
STEREO) 2x30W
UPPFYLLIR STRANGAR
KRÖFUR UM GÆÐI
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
Bókin Utan marka réttlætis fjallar um
einstaklinga og fjölskyldur sem hafa lent
í erfiðri viðureign við stjórnvöld um for-
sjá barna sinna eða umgengni við þau.
Hér er fjallað um sjö mál sem hvert með
sínum hætti lýsir því hve berskjaldaðar
íslenskar fjölskyldur eru gagnvart af-
skiptum barnaverndaryfirvalda. Sum
þessara mála vöktu mikla athygli á sín-
um tíma vegna harkalegra aðgerða
stjórnvalda.
Fjölskyldur í hlekkjum barnavernd-
arkerfís.
í eftirmála fjallar höfundurinn, Pétur
Gunnlaugsson lögfræðingur, um þær
ástæður sem liggja að baki því að fjöl-
skyldur lenda í fjötrum barnaverndar-
kerfisins. Eftirmálinn er fersk og bein-
skeytt ádeila á ástand þessara mála. Að
lokum er nafnaskrá yfir þá sem koma
við sögu í bókinni.
PÉTUB
BÉTTV-ffiTlS
Fja6u^‘'"eW,íum
w,oave«o<i»W.I»*
★ Ung móðir flýr Fæðingarheimilið af ótta við
yfirvöld og fer í felur með nýfætt barn sitt.
★ Átakanleg reynsla eyðnismitaðrar konu af
miskunnarleysi samfélagsins og örvæntingar-
full barátta hennar fyrir forsjá dóttur sinnar.
★ Ung hjón leita læknismeðferðar fyrir son sinn
en uppgötva sér til skelfingar að yfirvöld
hyggjast taka af þeim öll börnin.
★ Barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar kemur
stúlkubarni í fóstur þar sem hún er kynferðis-
lega misnotuð.
★ Kona segir frá sjö ára stíði við yfirvöld sem
stefndu að því að taka dótturson hennar af
heimilinu með valdi.
★ Réttleysi níu ára stúlku gagnvart valdbeiting-
aráformum stjórnvalda sem hugðust flytja
hana nauðuga til Spánar.
★ Faðir berst árangurslaust í heilan áratug við
stjórnvöld fyrir eðlilegri umgengni við einka-
dóttur sína.