Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1993, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
Afmæli
Magnús Haukur Guðlaugsson
Magnús Haukur Guölaugsson, for-
stjóri Verslunar Guðlaugs A. Magn-
ússonar, til heimiiis að Hjallalandi
13, Reykjavík, varð fimmtugur í
gær.
Starfsferill
Magnús fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann stundaði versl-
unamám í London, fór snemma að
vinna við verslunarfyrirtæki föður
síns og tók við rekstri þess árið 1963.
Magnús hefur lengi starfað í
Lionsfélagi Reykjavíkur, hefur setið
í stjóm þess um árabil, veriö gjald-
keri félagsins og er nú formaður
þess.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 29.8.1964 Kom-
elíu Óskarsdóttur, f. 16.12.1943,
verslunarstjóra. Hún er dóttir Ósk-
ars Axels Sigurðssonar, bakara-
meistara, og Guðbjargar Sigríðar
Komelíusardóttur, húsmóður.
Dætur Magnúsar og Komelíu em
Hanna Sigríður Magnúsdóttir, f.
17.7.1963, markaðsfræðingur, sam-
býlismaður hennar er Bárður Ág-
ústsson markaðsfræðingur; María
HrönnMagnúsdóttir, f. 11.7.1967
hjúkrunarfræðingur við HÍ.
Systkin Magnúsar: Reynir Guð-
laugsson, f. 3.4.1930, gullsmiður í
Reykjavík; Óttar Hermann Guð-
laugsson, f. 8.10.1931, d. 3.9.1991,
verkstjóri við siifurverkstæði Guð-
laugs A. Magnússonar; Jónína Guð-
laugsdóttir, f. 15.11.1933, húsmóðir
íGarðabæ.
Foreldrar Magnúsar vom Guð-
laugur A. Magnússon, f. 16.12.1892,
d. 13.12.1952, gullsmiður og hljóð-
færaleikari í Reykjavík, og María
Hermannsdóttir, f. 4.9.1905, hús-
móðiríReykjavík.
Ætt
Guðlaugur var sonur Magnúsar,
b. í Svínaskógi á Fellsströnd, Hann-
essonar, b. í Svínaskógi á Fells-
strönd, Hannessonar, b. í Litla-Holti
í Saiu-bæ, Guðmundssonar, b. á
Hreðavatni í Norðurárdal, Guð-
mundssonar, b. á Einifelb í Staf-
holtstungum, Ámasonar. Móðir
Guðmundar á Hreðavatni var Krist-
ín Ólafsdóttir, yngra Ásmundsson-
ar, b. á Bjamastöðum í Hvítársíðu,
Ólafssonar, sem einhver mesti ætt-
bogi í Borgarfirði er frá kominn.
Móðir Hamiesar í Litla-Holti var
Ingibjörg Ólafsdóttir, b. á Hreða-
vatni, Gíslasonar, og Ingibjargar
Torfadóttur. Móðir Hannesar í
Svínaskógi var Guðrún Jónsdóttir.
Móðir Magnúsar í Svínaskógi var
Ingibjörg Jónsdóttir, b. á Svarfhób
í Geiradal, Jónssonar. Móðir Ingi-
bjargar var Guðný Tómasdóttir,
prests í Holti í Önundarfirði, Sig-
urðssonar, sýslumanns, Sigurðs-
sonar. Móðir Tómasar var Ásta Sig-
urðardóttir, prests í Holti, Sigurðs-
sonar. Móðir Guðlaugs var Kristín
Jónsdóttir á Keisbakka á Skógar-
strönd, Guðmundssonar.
Maiía er dóttir Hermanns, út-
vegsb. í Ketilfirði í Dýrafirði og síðar
Magnús Haukur Guðlaugsson.
á Kjaransstöðum, Kristjánssonar,
og Jónu Hafliðadóttur húsmóður.
Bogi Ragnarsson
Bogi Ragnarsson pípulagninga-
meistari, Borgarlandi 11, Djúpavogi,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Bogi er fæddur í HUð á Djúpavogi
og ólst upp á Djúpavogi. Hann hóf
nám í pípulögnum við Iðnskólann í
Reykjavík og lauk sveinsprófi 1955.
Bogi vann við pípulagnir í Reykja-
vík til 1959 en fluttist þá til Djúpa-
vogs og hefur starfaö þar síðan við
iðnsínaogfleira.
Bogi hefur verið í vatnsveitunefnd
og gegnt starfi vatnsveitustjóra. Þá
var hann slökkvfiiðsstjóri Búlands-
hreppsfrá 1973-91.
Fjölskylda
Bogi kvæntist 27.6.1954 Erlu Jó-
hannsdóttur, f. 29.1.1937, verslunar-
manni. Foreldrar hennar: Jóhann
Kristmundsson, bóndi í Goðdal í
Bjamarfirði í Strandasýslu, og
Svanborg Ingimundardóttir.
Börn Boga og Erlu: Svandís
Guðný, f. 3.8.1954, skrifstofumaður,
maki Reynir Amarson, vélstjóri,
þau eiga þrjá syni; Ragnar Jóhann,
f. 21.10.1957, viðskiptafræðingur,
maki Jóhanna Eiríksdóttir, þau eiga
þijá syni; Ágúst, f. 3.8.1959, pípu-
lagningamaður, maki Ágústa Valdi-
marsdóttir, þau eiga tvær dætur;
Ómar, f. 30.6.1960, skrifstofustjóri,
maki Margrét U. Snorradóttir, þau
eiga þrjú böm; GísU Borgþór, f. 5.9.
1961, útibússtjóri, maki Eyrún Ósk-
arsdóttir, þau eiga þrjá syni; Gunn-
laugur, f. 27.10.1962, verkstjóri,
maki Kolbrún Eiríksdóttir, þau eiga
tvær dætur; Hafdís Erla, f. 24.3.1965,
hárgreiðslumeistari, maki Guðlaug-
ur Harðarson, þau eiga tvo syni.
Systur Boga: Svanhvít, f. 9.12.1929,
malú Ófeigur Pétursson, rafvirki,
þau eiga tjögur böm; Hrefha, f. 18.7.
1931, maki Axel Sölvason, rafvéla-
virki, þau eiga fiögur böm.
Foreldrar Boga: Ragnar Eyjólfs-
son, f. 22.8.1891, d. 30.1.1965, sjómað-
ur, og Guðný Finnbogadóttir, f. 4.1.
1894, d. 23.7.1987, húsmóðir, þau
bjuggu á Djúpavogi.
Ætt
Ragnar var sonur Eyjólfs Jóns-
sonar og Sigurbjargar Einarsdóttur
en þau bjuggu í Hlíð á Djúpavogi.
Guðný var dóttir Finnboga Ein-
arssonar og Haildóm Eyjólfsdóttur
en þau bjuggu að Hofi í Óræfum.
Bogi tekur á móti gestum á afmæl-
Bogi Ragnarsson.
isdaginn í húsi Verkalýðs- og sjó-
mannafélagsins, Sam-Búð, eftir kl.
20.
Andlát
Þóra Eyjólfsdóttir
Þóra Eyjólfsdóttir húsmóðir, Hjall-
aseb 55, Reykjavik, lést 9. desember.
Útför hennar var gerð frá Sel-
jakirkjuígær.
Starfsferill
Þóra var fædd 18.9.1907 í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hún stundaði
nám við Kvennaskólann 1923-25.
Á unghngsárunum stundaði Þóra
afgreiðslustörf í brauðbúð og var
síðan síma- og skrifstofustúika hjá
Sláturfélagi Suðurlands þar til hún
giftisig.
Fjölskylda
Þóra giftist 6.9.1936 eftirlifandi
eiginmanni sínum, Sigurði Sveins-
syni, f. 17.10.1904, fyrrv. aðalbókara
hjá Skipaútgerð ríkisins. Hann er
sonur Sveins Finnssonar, b. á Kol-
stöðum í Dölum, og konu hans,
Helgu Eysteinsdóttur húsfreyju.
Sigurður er nú búsettur í Seljahlíð
íReykjavík.
Böm Þóm og Sigurðar era Ey-
steinn Sigurðsson, f. 11.11.1939, ís-
lenskufræðingur í Reykjavík og
kennari í Stýrimannaskólanum,
Eysteinn á tvær dætur; Helga Sig-
urðardóttir, f. 30.12.1941, d. 26.3.
1985, húsmóðir og bankastarfsmað-
ur í Reykjavík, var gift Kristni
Helgasyni kortagerðarmanni og eru
böm þeirra fjögur; Auður Sigurðar-
dóttir, f. 27.2.1944, hjúkrunarfræð-
ingur á Akureyri, gift Vigfúsi Þor-
steinssyni lækni og eiga þau þijú
böm; Hallsteinn Sigurðsson, f. 1.4.
1945, myndhöggvari í Reykjavík.
Þóra átti fimm systkin en þau em
öll látin nema Ásta. Systkin Þóra:
Högni Eyjólfsson, rafvirki í Reykja-
vík, kvæntur Sigríði Einarsdóttur
og era böm þeirra tvö; Ásta Eyjólfs-
dóttir, lengi gjaldkeri Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur og síðar hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins, býr nú í Eski-
hlíð í Reykjavík; Friðbjörg Helga
Eyjólfsdóttir, húsmóðir í Reykjavík,
var gift Eðvarð Ámasyni raffræð-
ingi en þau áttu einn uppeldisson;
Guðmundur Eyjólfsson, háls-, nef-
og eymalæknir í Reykjavík, kvænt-
ur Guðríði Siguijónsdóttur Mýrdal
og era synir þeirra þrír; Ásgeir Eyj-
ólfsson sem dó í bamæsku.
Foreldrar Þóra vora Eyjólfur
Friðriksson, f. 2.12.1878, d. 27.6.1931,
verkstjóri hjá Sláturfélagi Suður-
lands í Reykjavík, og Helga Guð-
mundsdóttir, f. 29.1.1883, d. 9.7.1982,
húsmóðir. Þau bjuggu í Bankastræti
6, Þingholtsstræti 1, á Hverfisgötu
56 en lengst af á Njálsgötu 25. Eyjólf-
ur var fæddur í Gaulveijabæ en ólst
upp að Björk í Sandvíkurhreppi í
Flóa. Helga var fædd í Yrpuholti í
Þóra Eyjólfsdóttir.
Viliingaholtshreppi en ólst upp í
Skálmholtshrauni. Eyjólfur og
Helga vora búsett í Reykjavík frá
1904.
Ætt
Eyjólfur var sonur Friðriks
Eyjólfssonar, bónda að Björk í Sand-
víkurhreppi í Flóa, og Bessabe
Gísladóttur.
Helga var dóttir Guðmundar
Gestssonar, bónda í Yrpuholti í Vill-
ingaholtshreppi, og Þóra Bjama-
dóttur frá Sandlækjarkoti.
asmiftauiminn
mui iandsbyggmna:
1^9M270
- talandi dæmi um þjónustu
Til hamingju með af-
90 ára
Valdimar Hildibrandsson,
Dunhaga 17, Reykjavík.
Haraldur Jóhannesson,
Bakka, Viðvíkurhreppi.
Sigríður Ólafsdóttir,
Eystri-Sólheimum, Mýrdalshreppi.
Bergþóra Jónsdóttir,
Skinnum, Djúpárhreppi.
Þorsteinn Gestsson,
Nónási 2, Raufarhöfii.
Kleppsvegi 4, Reykjavík.
Húneraðheiman.
Þórunn Jónsdóttir,
Álfaskeiði 96, Hafnarfirði.
Jón HelgiHáJf-
danarson,
vaktmaðurhjá
NLFÍogumsjón-
armaöurútfarar-
þjónustuSuður-
lands,
Heiðarbrún 16,
Hveragerði.
80 ára
er Jóna Einarsdóttir.
Þaueraaðheiman.
Gunnar Gunnarsson,
Bitru, Glæsibæjarhreppi.
Guðmunda Phroso Oddsdóttir,
Höröalandi 20, Reykjavík.
Margrót Jónsdóttir,
Hraunbæ 152, Reykjavík.
50 ára
Brávöllum6, Egilsstöðum.
Eirikur K. Kristófersson,
Grafarbakka lb, Hrunamanna-
hreppi.
Vaidimar Karlsson,
Vallarbraut24, Seltjarnamesi.
Erla Sverrisdóttir,
Kögurseli 50, Reykjavík.
Pálmi Friðriksson,
Háuhlíð 6, Sauðárkróki.
70 ára
40 ára
Sigmuudur
Leifsson,
Hamarsgerði2,
Reykjavík.
Konahanser
GuðbjörgJó-
hannsdóttir.
Þautakaámóti
gestumáheimili
sínu 26.desemb-
60 ára
Ingvar Einar Valdimarsson,
Sólvöllum 2, Grundarfirðí.
Sigrún S. Waage,
Kristín Gylfadóttir,
Ránargötu 4, Reykjavík.
Friðrik Pétur Sigurðsson,
Leirubakka 12, Reykjavik.
; Finnbogi U. Gunnlaugsson,
Fjarðargötu 30, Þingeyri.
Jóhann Svanur Hauksson,
Skipasundi 52, Reykjavík.
Sighvatur S veinbjörnsson,
Lyngási Ib, Holtahreppi.
Þórdís Guðmundsdóttir,
H.aðhömmm24, Reykjavik.
Pétur Haukur Ólafsson,
Ökrum 2, MosfeUsbæ.
Anna Kristin Ólafsdóttir,
Krummahólum 6, Reykjavik.