Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Page 32
s F Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 63 2700 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994. Sjómannaverkfallið: Ekkert þokast í viðræðunum „Ég fæ ekki séð að viðræðurnar um sérsamninga hafi þokast neitt fram síðan við hættum í desember, nema síður sé. Og í kvótamáhnu hef- ur engin lausn fundist," segir Hólm- geir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjó- mannasambands íslands. Sjómenn og útgerðarmenn hittust í gær hjá Ríkissáttasemjara til að ræða lausn sjómannaverkfallsins. Ekkert þokaðist í samkomulagsátt, hvorki varðandi kröfu sjómanna um sérkjarasamning vegna óhefðbund- inna veiða né kröfuna um að sjó- menn taki ekki þátt í kaupum eða leigu á veiöiheimildum. Deiluaðilar hittust að nýju hjá Rík- issáttasemjara í morgun og ætla að ■íunda fram á kvöld. Að sögn Hólm- geirs er með öhu ótímabært að spá fyrirumlausndeilunnar. -kaa SVRhf.: Verkfallsheim- ild samþykkt „Við fundum seinni partinn í dag, skoðum máhð og ákveðum næstu —íkref. Þetta var auðvitað glæsheg niðurstaða. Það þarf enginn að efast um vilja starfsmanna SVR hf.,“ segir Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. 93 af 128 starfsmönnum SVR hf. samþykktu í atkvæðagreiðslu nýlega að veita Starfsmannafélaginu og samninganefnd starfsmanna heimhd til verkfahsboðunar. Sex voru á móti og fjórir seðlar auöir og ógildir. -GHS Sérhæfður bílaþjófur Lögreglan í Reykjavík handtók í ■fiótt 22 ára Reykvíking á Mitsubishi Lancer bh. Maðurinn var stöðvaður við Suðurhóla en til hans hafði sést við Vesturberg þar sem hann var að eiga við þrjá sams konar bíla á bíla- plani fyrir framan fjölbýlishús. í Ijós kom að bílnum, sem maðurinn ók, hafði verið stohð frá Skeiðarvogi í fyrrinótt. Einnig fundust í fórum mannsins verkfæri th aö brjótast inn í bíla. Maöurinn var í haldi lögreglu í morgun og var eftir að yflrheyra hann. Grunur leikur á að hann eigi þátt í hvarfi fleiri Lancer bha en fyrir rúmlega hálfum mánuði hvarf Mitsubishi Lancer bhl, með skrán- -’iiigamúmerið R-37722, einnig frá Skeiðarvogi og hefur ekkert th hans spurstsíðan. -pp LOKI Svona er það í hinu villta vestri nútímans. ísaflörður: táragasi til að stöðva uppþot Sjgurjón J. Sigurðssoii, DV, feafirði: Tveir ökumenn voru teknir grun- aðir um ölvun við_ akstur aðfara- nótt nýársdags á ísafirði, sá fyrri um kl. 4 og sá síðari klukkustund síðar. Þurfti lögreglan að beita táragasi th að stöðva uppþot sem urðu í framhaldi af handtöku þeirra. Lögregiumenn heyrðu hávaða við gatnamót Austurvegar og Hafn- arstrætis og fóru tveir á staöinn. Mættu þeir þar tveimur hópum, annars vegar fjórum gangandi veg- farendum og hins vegar ökumanni og farþegum bifreiöar. Þeir gangandi báru að ökumað- urinn hefði reynt að aka þá niður. Við athugun var ökumaðurinn tal- inn öivaður og ætlaði lögreglan því að færa hann á stöðina. Hinir voru ekki ánægðir meö það og reyndu að ganga í skrokk á öku- manni og hófust slagsmál. Lög- reglumönnunum tókst að koma ökumanninum á stöðina og réðust þá mennimir fimm á þá tvo, Þegar ekki tókst að tala þá th ákváðu lög- reglumennimir aö sprauta tára- gasi á þá og leystust þá slagsmálin upp. Aimar lögreglumaimanna fékk spark í höfuðið og hinn slasaðist á öxl og var frá vinnu í tvo daga fyr- ir vikið. Tveir þeirra sem verst létu fengu aö gista fangageymslur iögregl- unnar en ökumaðurinn fékk að fara heim að lokinni hefðbundinni meðferð. Málið er í rannsókn og gert er ráö fyrir að mennirnir verði kærðir fyrir árásina á lögreglu- mennina tvo. Veðriðámorgun: Norðaustan 5-7 vindstig Á morgun verður norðaustan- átt, 5-7 vindstig. É1 verða um norðanvert landið en þurrt syðra. Frost verður, 1-7 stig. Veðrið 1 dag er á bls. 28 Keflavíkurflugvöllur: 3-400 pössum ekkiveriðskilað Þrjú til fjögur hundruö að- göngupössum að vamarsvæðinu á KeflavíkurflugveUi hefur ekki verið skhað inn í kjölfar þess að fjölda starfsmanna hefur verið sagt upp störfum á svæðinu á síðasta ári. Dæmi em um að þeir séu misnotaðir. Að sögn Sævars Lýðssonar, fuh- trúa lögreglustjórans á Keflavíkur- flugvelli, hefur verið lagt að vinnu- veitendum, íslenskum aðalverktök- um og undirverktökum þeirra að beina þeim tilmælum th starfsmanna að skha pössunum þegar og eftir að fólk hættir að starfa á vellinum. Margir passanna eru í gildi til 1995. Aðspurður sagði Sævar aö ein- hverjar aðgerðir væm yfirleitt í gangi th að innheimta passana sem ekkihefurveriðskilað. -Ótt Slippstöðin Oddi: Ekki hlutafé frá bæjarráði Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Bæjarráð Akureyrar hefur hafnað erindi stjórnar Shppstöðvarinnar Odda hf. um að Akureyrarbær leggi fram 20 mihjóna króna hlutafé í fyr- irtækið. í svari sínu ítrekaði bæjarráðið samþykkt bæjarstjórnar frá 14. des- ember sl. varðandi aðgerðir til styrktar íslenskum skipasmíðaiðn- aöi. Jafnframt er bent á að björgun- araðgerðir gagnvart einstökum fyr- irtækjum dugi skammt. Sérstök áhersla er lögð á mikhvægi þessarar starfsemi í atvinnulífi á Akureyri og lýsir bæjarráð sig reiðubúið th við- ræðna viö aðra eigendur um framtíð fyrirtækisins. Bæjarráð beinir því til stjórnar fyrirtækisins að það hafi forgöngu um shkar viðræður. Japanskir dagar eru nú í Reykjavík og í tilefni þeirra þjónuðu japanskar stúlkur gestum i kaffihúsi Ráðhússins í gær. Hér sýnir ein stúlknanna öldruðum islendingi hvernig Japanir drekka te en honum þótti vanta hanka á bollann. DV-mynd Brynjar Gauti Samkvæmt upplýsingum Thkynn- ingaskyldu voru 67 skip á sjó klukk- an sjö í morgun. Þar af voru 18 togar- ar, um 20 fragtskip og á þriðja tug minni báta þar sem eigendur róa sjálfir. Samkvæmt sömu upplýsingum eru að jafnaði um 600 skip úti á þessum tíma í góðu tíðarfari þannig að ætla má að rétt rúmlega tíundi hluti þeirra báta, sem venjulega eru á sjó, séu á sjó núna. s. 814757 HRINGRÁS HF. ENDURVINNSLA Tökum á móti brotajárni TVOFALDUR1. vinninqur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.