Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 Viðskipti Verðhækkun áýsu Óslægö ýsa á fiskmörkuðum hefur farið lækkandi á fiskmörk- uðum að undanfómu en hækkaði þó í gær. Þá kostaði kílóið rúmar 210 krónur en var daginn áöur í 136 krónum. Sjómannaverkfaílið hefur þarna eflaust áhrif. Þá var aðeins uppboð hjá Fiskmarkaði Suðumesja hf. Sl. þriðjudag lækkaði gengi hlutabréfa Flugleiða úr 1,17 í 1,03, eða um 12%. í gær áttu sér ekki stað nein viðskipti með hlutabréf- in og hélst því gengið stöðugt. Svartolía hefur verið að hækka jafnt og þétt í verði í Rotterdam en á þriðjudaginn hækkaði svart- olían um 12 sent. Vísitala helstu hlutabréfa í kauphöllinni í Párís hefur hækk- að í kjölfar mikilla viðskipta þar og hélt sú hækkun áfram í gær. -bjb/GHS Happdrættisvélamar fá hóflegar viðtökiir: Afkoman viðunandi segir Ragnar Ingimarsson, forstjóri Happdrættis Háskólans Happdrættisvélar Háskólans hafa fengið hóflegar viðtökur almennings. Að sögn Ragnars Ingimarssonar, forstjóra Háskólahappdrættisins, er afkoman fyrstu vikurnar þó viðunandi. DV-mynd GVA „Maður vissi aldrei nákvæmlega hvernig þetta yrði en í mínum huga er útkoman þessar fyrstu vikur í ætt við það sem ég hafði reiknað með og er ánægður með. í haust töluðum við um að við yrðum mjög ánægð ef tekj- ur happdrættisins ykjust um 150-200 milljónir á ársgrundvelh. Miðaö við stöðuna það sem af er virðist allt stefna í það. Það er ekki tímabært að vera með yfirlýsingar en afkoman fyrstu vikumar er mjög viðunandi," sagöi Ragnar Ingimarsson, forstjóri Happdrættis Háskóla íslands, í sam- tali við DV. Um miðjan desember gangsetti Háskólahappdrættið á þriðja hundr- að happdrættisvélar, Gullnámur, á 26 stöðum víðs vegar um landið, á krám, skemmtistöðum og í sérstök- um spilasölum. Eftir því sem DV kemst næst hafa viðtökur almenn- ings verið í rólegri kantinum. En á það er að hta að fyrsti mánuðurinn er óvenjulegur þar sem fólk hefur haldið jól og áramót og því ekki mik- ið fé aflögu fyrir peningaraufar spila- kassanna. Ragnar sagði að tölur um veltu lægju brátt fyrir. Hann sagði enn- fremur að fyrstu vikurnar yrðu not- aðar til að endurskoöa eitt og annað varðandi rekstur happdrættisvél- anna, dreifingu þeirra, markaðssetn- ingu og fleira. Eftir eigi að koma upp skiltum við vélarnar og gera kynn- ingarefni til að auðvelda fólki spila- mennskuna, sumir kynnu ekki á vél- arnar. Happdrættisvélamar eru sam- tengdar og safnast fé í potta sem fólk getur unnið. Svokallaður silfurpott- ur hefur gengið 12-14 sinnum út en vinningarnir hafa verið á bihnu 70-200 þúsund utan fyrst þegar pott- urinn gaf rúm 400 þúsund. Gullpott- urinn hefur enn ekki gengið út en hann getur orðið mun stærri en silf- urpotturinn. -hlh Ný íslensk tækni: Ammoníak- og freonskynjarar frá Sauðárkróki Markaðssetning og sala á nýjum skynjarakerfum fyrir ammoníak og freon er hafin en skynjararnir byggja á hálfleiðaratækni. Framleiðslan fer fram af RKS-Skynjaratækni á Raf- magnsverkstæði Kaupfélags Skag- firðinga á Sauðárkróki. Upphafs- maður verkefnisins var dr. Þorsteinn I. Sigfússon en vöruþróunin hefur tekið um eitt ár. Ammoníak og freon era mest not- uðu kæliefnin í frystihúsum og frystitogurum. Bæði efnin geta reynst mjög hættuleg ef þau sleppa óhindruð út í andrúmsloftið og geta skynjaramir komið í veg fyrir mikið tjón á því dýrmæta hráefni sem fisk- urinn er. -bjb Rögnvaldur Guðmundsson iðnrekstrarfræðingur heldur hér á skynjurunum frá RKS-Skynjaratækni sem framleiddir eru á Sauðárkróki. Fyrir aftan hann eru Jón E. Friðriksson frá Kaupfélagi Skagfirðinga og dr. Þorsteinn I. Sigfús- son. DV-mynd BG Bensín og olía að hækka Bensin og olía á Rotterdam-mark- aði fara hægt og bítandi hækkandi í verði ef mið er tekið af þróuninni undanfarna viku. Á einni viku hefur tonniö af 92 oktana bensíni hækkað um 6 dohara, er komið í 136 dollara, og sömuleiðis hækkar svartohan ört í verði. 98 oktana bensín hefur hækkað um tæpa 5 dollara tonnið og 95 oktana bensín sömuleiðis. Gasoha oghráoha hafa hækkaö minna. Meðal ástæðna fyrir olíu- og bensínverðshækkun er að eftirspurn frá Bandaríkjunum hefur aukist mjög í kjölfar mikiha vetrarharka þar. Hins vegar hefur gull lækkað í verði milli vikna á markaði í Lon- don. Á einni viku hefur únsan lækk- að um eina 8 dollara, niður í 385 doll- ara. Blaðinu hafa ekki borist upplýs- ingar um nýtt verð á sykri, hveiti og kaffi. -bjb Vöruverð á erlendum mörkuðuml Innlání íslandsbanka jukustum5,4% Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir síðasta ár jukust innlájt í íslandsbanka um 5,4 prósent. Ef bankabréf eru talin með jukust innlánin um 6,2 prósent. Á sama tima var aðeins 0,3 prósenta aukning í hefidarútlánum. LausaQái-staða íslandsbanka batnaði mjög á síðasta ári og var lausafjárhlutfallið síðustu mán- uði ársins 16-17 prósent. Bankaútibúum fækkaði Heildarrekstrarkostnaöur ís- landsbanka lækkaði urn 7,7 pró- sent eða 250 milljónir króna frá þvi árið 1992. Síðustu tvö árin hefur rekstrarkostnaðurinn lækkað um 480 mihjónir króna samtals. Liðir í lækkun rekstrar- kostnaðar var feekkun banka- útibúa um ijórðung en þijú bankaútibú voru sameinuð öðr- um á siðasta ári. Þá fækkaði stöðugildum innan bankans um 46. Almennings- vagnarvifja sameinastSVR Stjómamefnd Almennings- vagna Itf. hefur sent Markúsi Emi Antonssyni borgarstjóra bréf þar sem óskað er eftir við- ræðum um sameiningu Almenn- ingsvagna hf. og stjórnarnefndar um rekstur SVR hf. eða nánara samstarfi milli fyrirtækjanna. Borgarstjóri hefur fengið Svein Andra Sveinsson, formann stjórnarnefndar almenningssam- gangna, og Hörð Gíslason for- stöðumann tíl að ræða viö full- trúa Almenningsvagna í fram- haldiaferindinu. -GHS Héraðsdómur Vestíjarða: 65 gjaldþrota^ beiðnir Sigurjón J. Sigurðsson, DV, Isafir& Héraðsdómur Vestfjarða kvað upp úrskurð í 36 gjaldþrotamál- um 1993 en ahs bárust embættinu beiðnir um gjaldþrotaskipti. frá 65 aðilum. 11 einstaklingar voru úrskurðaðir gjaldþrota 1993 og 25 fyrirtæki. Niu málum. sem tekin voru til gjaldþroiaskipía á árinu, eT enn ólokið og því ekki hægt að birta neinar tölur um hvaða mál eru stærst að umsvifura. Þau fyrirtæki sem þegar hafa verið úrskurðuð gjaldþrota eru Einar Guðfinnsson hf., Hólar hf. og Júpíter hf., öh í Bolungarvík, Arnarvör hf. á ísafirði, Kaupfélag Strandamanna á Norðurfirði, Út- gerðarfélag Bílddælinga hf. á Bíldudal og Steinbjörg hf. og Auðna hf. á Tálknafirði. Atvinnuleysi eykst á Héraði Sigrún Björgvinsd., DV, Egilsstöðum; Övenjumargir voru á atvinnu- leysisskrá hjá Verkalýðsfélagi Fljótsdalshéraðs nú um áramótin eða 66 manns. Þar af voru karlar 42. Þetta gefur jrá ekki raunsanna myntí af atvinnuástandinu þar sem margir véla- og byggtnga- merui komu inn rétt fyrir hátíð- arnar og einhverjir af þeim sem voru á skrá ætluðu í skóla eftir nýár. Þá eru og margir í íhlaupa- • vinnu eða hlutastarfi. Af þessum 66 vorú 32 búséttir í i Egilsstaðabæ, 17kariarogl5kon- ur, og þriðjungur skráður 1 hluta- starf eða íhlaupavinnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.