Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
Útlönd
Fatlaða stúlkan Elke J. nýtur samúðar Þjóðverja eftir árás nýnasista:
Þú sleppur ekki f rá
okkur lifandi næst
- sagði snoðinkollurinn sem skar hakakrossinn í andlit hennar ósjálfbjarga
„Þú sleppur ekki svona auðveld-
lega frá okkur næst. Við komum aft-
ur og þá verður það verra,“ sagði
snoðinkollurinn sem risti haka-
krossinn í kinn fatlaörar stúlku í
Halle í austurhluta Þýskalands fyrr
í vikunni.
Stúklan, sem í fjölmiðlum er aðeins
kölluð Elke J„ hefur sagt frá atvikum
í viðtali við blað í Berlín og greint
þar frá orðaskiptum sínumog nýnas-
istanna þriggja sem réðust gegn
henni ósjálfbjarga í hjólastól.
Elke fór á almenningssalerni um
150 metra frá skóla sínum. Þar sátu
ofbeldismennirnir fyrir henni og
kröfðust þess aö hún hrópaði slagorð
nasista gegn fötluðum. Hún neitaði
og þá dró einn tilræðismanna upp
hníf og risti hakakrossinn í vinstri
kinn hennar. Merkið er um fjórir
sentímetrar á hvem veg.
Elke segist hafa hljóðað upp yfir
sig þegar blóðið fossaði niður kinn
hennar. Þá hótaöi sá sem hélt á
hnífnum henni lífláti þegar þeir
hefðu uppi á henni öðm sinni. Svo
hlupu þremenningarnir á brott. Hakakrossinn á kinn Elke er (jórir sentimetrar á hverja hlið. Læknar segja
Elke segir að Ulvirkjarnir hafi ver- að örið hverfi með tíð og tíma. Snoðinkollarnir, sem ristu merkið á stúlk-
ið á unglingsaldri, sennilega milli 15 una, eru enn ófundnir þrátt fyrir mikla leit. Símamynd Reuter
ára og tvítugs. Þeir voru aliir með
krúnurökuð höfuð. Lögreglan hóf
þegar víðtæka leit að ódæðismönn-
unum en án árangurs enn sem kom-
ið er.
Talsmaður lögreglunnar segir að
fjöldi fólks hafi hringt og gefið upp-
lýsingar um menn sem hafi hugsan-
lega verið þama að verki. Lögreglu-
menn segja að góðar líkur séu á að
þeir náist þótt leitin dragist á lang-
inn. Þegar er búið að yfirheyra menn
á 25 samkomustöðum nýnasista.
Læknar segja að með tíð og tíma
hverfi örið af kinn stúlkunnar. Hún
muni þó bera merki árásarinnar
næstu ár.
Á undanförnum tveimur árum
hafa nýnasistar veist að um 80 fötluð-
um einstaklingum og veitt þeim
áverka í mörgum tilvikum. Samtök
fatlaðra hafa krafist aðgerða af hálfu
stjórnvalda. Dómsmálaráðherrann
lofar frumvarpi þar sem refsingar
vegna líkamsmeiðinga verða þyngd-
ar. í Þýskalandi nýtur Elke almennr-
ar samúðar en aðförin að henni hefur
vakið upp óþægilegar minningar um
útrýmingarherferð nasista gegn fötl-
uðumávaldatímaHitlers. Reuter
, Jíefitrðu séð PRESSUNA ídag... ? “
stærri og betri
fýriralla
ffPRESSANgóðan daginn“.
Nú færðu tvö blöð á verði
eins, kynntu þér B-blaðið
PRESSU-liðið hefur verið valið:
yxiewtva
19
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
Ámi Páll Árnason
Ámi M. Mathiesen
Baldur Kristjánsson
Davíð Þór Jónsson
Einar Karl Haraldsson
Einar Kárason
Flnnur Ingólfsson
Friðrika Benónýs
Gu'nnar J. Ámason
Gunnar Jóhann Birgisson
Gunnar L.. Hjálmarsson
Hallur Helgason •
lllugi Jökulsson
Indriði G. Þorsteinsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Jónas Sen
Kolbrún Bergþórsdóttir
Kristinn Jón Guðmundsson
Magnús Ólafsson
Margrét Elísabet Ólafsdóttir
Mörður Árnason
Ólafur Hannibalsson
Óli Björn Kárason
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Össur Skarphéðinsson
Stuttar fréttir x>v
Thatcherafþakkar
Margaret Thatcher hefur hafn-
að boði um að fara til Sarajevo.
Fimm féllu í Sarajevo
Fimm féllu í átökum i Sarajevo
og SÞ íhuga möguleika á loffárás-
um á Serba við tvö verndarsvæði.
Ennþámeirastríö
Izetbegovic
Bosníuforseti
sagði að stríöið
í landinu
mundi halda
áfram >þar til
Serbar hefðu
skilaö öllu
landi sem
múslimar réðu áður en átök hóf-
ust íyrir 21 mánuði.
Króatariveginum
Bosnískir Króatar tetja fram-
gang matvælalestar SÞ.
Lítið miðar
Lítið hefur miöað í viðræðum
ísraels og PLO um ágreining.
AfturtilWashington
Friðarviöræður araba og ísra-
els hefjast hugsanlega aftur í
Washington 24. janúar.
BiH Clinton vill rannsókn
Clinton vill að viðskipti lians í
Arkansas verði rannsökuð vegna
ásakana um sitthvað misjafnt.
Þotur með sprengjur
Herþotur uppreisnarmanna
réðust á stjórnarherinn í Kabúl.
Christopher og Kinverji
Warren Chri-
stopher, utan-
ríkisráðlærra
Bandaríkj-
anna, hittir
kínverskan
starfsbróður,
Qian Qichen, í
Evrópu síðar í
mánuðinum og ræðir mannrétt-
indabrot.
Vopnahlé fyrirskipað
Salinas Mexikóforseti hefur
fyrirskipað einhliða vopnahlé í
bardögum við bændur.
Ciampiferfrá
Búist er við afsögn Ciampis,
forsætisráðherra ítaliu, í dag.
IRAgerúárás
írskir skæruliðar hentu
sprengju á lögreglusveit.
Þyiia hrapar
Þrettán fórust þegar þyrla með
hermenn fórst í Perú.
Frakkargefaloforð
Frakkar hafa lofað Kínverjum
að selja ekki vopn til Taívan.
Gagnrýnir niðurskurð
Norskur herforingi gagnrýnir
niðurskurð á fé til varnarmála.
Vinsældir Rehn aukast
Elisabeth
Rehn, forseta-
frambjóðandi í
Finnlandi, hef-
ur lýst ánægju
sinni með
auknar vín-
sældir en sam-
kvæmt nýrri
könnun nýtur hún stuðnings 18
prósenta kjósenda.
Bankastjóri i steininn
Fyrrum bankastjóri í Noregi
var dæmdur í sex ára fangelsi
fyrir tjársvik.
Styðja Þjóðverja
Bandaríkin styðja setu Þýska-
lands i Öryggisráði SÞ.
Reuter, FNB, NTB