Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Side 28
40
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
Merming________________________________________________________
íslenska leikhúsinu boðið í leikför til Þýskalands með Býr íslendingur hér?
Boðið að sýna á þeim slóðum
þar sem leikritið gerist
Pétur Einarsson leikur Leif Muller i Býr íslendingur hér? og Halldór Björns-
son lækni hans.
í byrjun vetrar frumsýndi íslenska
leikhúsið leikritið Býr íslendingur
hér? en verkið er leikgerð Þórarins
Eyflörð eftir samnefndri bók Garðars
Sverrissonar. Vakti sýningin verð-
skuldaöa athygh og góðar viðtökur
og eru sýningar að hefjast aftur í
Tjamarbíói.
í verkinu segir frá Leifi Muller sem
varð innlyksa í Noregi þegar Þjóð-
verjar hemámu landið. Þegar hann
ætlaði að flýja yfir til Svíþjóðar og
reyna að komast þaðan heim til ís-
lands var hann svikinn í hendur
Gestapó. Leifur var fyrst látinn
dvelja í fangelsi í Ósló, áður en hann
var sendur í útrýmingarbúðir í
Þýskalandi. Þar gekk Leifur í gegn-
um einhverja mestu þolraun sem ís-
lendingur hefur lifað.
Nýlega barst íslenska leikhúsinu
boð um að fara með sýninguna til
Þýskalands. Að boðinu stendur safn-
ið í Sachsenhausen, en þar vom út-
rýmingarbúðimar sem Leifi Muiler
var haldið í. Bandamenn frelsuðu
búöimar í apríl 1945 og er íslenska
leikhúsinu boðið að taka þátt í af-
mælishátíðinni til að minnast frels-
unarinnar. Einnig er verið að vinna
að því að sýningin fari til Berlínar
og annarra fyrrverandi útrýmingar-
búða.
Hlutverkin í leikritinu em aðeins
tvö, Pétur Einarsson leikur Leif
Muller og Halldór Bjömsson leikur
lækni hans. Leikstjóri er Þórarinn
Eyfjörð. Þar sem Tjarnarbíó er mjög
ásetið nú í byrjun árs verða aðeins
örfáar sýningar á leikritinu og er sú
fyrsta á laugardagskvöld.
-HK
Hvernig túlka
tólf karlkyns
listamenn karl-
ímyndina?
Karlmenn, hvemig upplifa þeir
sig í nútímasamfélagi með breytt-
um kröfum, hver er hin nýja karl-
ímynd og verðum viö vör við hana
í myndhst nútímans? Þessum
spumingmn er velt upp á sýningu
tólf íslenskra karlkyns hstamanna
sem koma til með að túlka karl-
ímyndina á sýningu sem opnuð
verður í Gerðubergi.
Sýning þessi er eins konar bróð-
ursýning sýningar á Mokka í nóv-
ember síðasthðnum um kven-
ímyndina, en að auki tengist sýn-
ingin aukinni umræðu um breytt
kynhlutverk sem hefur vaknað í
ýmsum Evrópulöndum og hér á
landi í nýútkominni skýrslu félags-
málaráðuneytisins um málefni og
félagslega stöðu íslenskra karla.
Verður forvitnhegt að sjá hvemig
hinir tólf hstamenn túlka karl-
ímyndina, en umræða um hana
hefur ekki átt upp á pallboröið hjá
karlmönnunum sjálfum og þó
kvenréttindabaráttan hafi verið í
einhverjum skilgreiningartilraun-
um með karlímyndina, þá hefur
það gerst algerlega út frá forsend-
um kvenna en margt bendir til þess
að breytinga sé að vænta og ætti
sýningin íGerðubergi að hreyfa við
umræðum um karhmyndina, en
nýlega var karhmyndinni einnig
velt upp á yfirborðið með útkomu
bókarinnar Karlafræðarinn sem
hefur undirtitihnn Karlmenn und-
ir beltisstað. Hefur sú bók vakið
athygli að undanfómu.
Listamennimir tólf sem taka þátt
í að túlka karlímyndina, hver á
sinn persónulega hátt, em: Bragi
Ásgeirsson, Hannes Sigurðsson,
Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Hlynur Hahson, ívar
Valgarðsson, Magnús Kjartansson,
Magnús Þór Jónsson, Óskar Jónas-
son, Sigurður Guðmundsson,
Sverrir Ólafsson og Þorvaldur Þor-
steinsson. Auk þessara hstamanna
taka þátt í sýningunni nýútskrifað-
ir myndhstarmenn og myndhstar-
nemar í Myndhsta- og handíða-
skóla íslands. Verk þeirra felst í
framlagi í einn dag frá hverjum og
einum og tekur verkið því ýmsum
breytingum á sýningartímanum.
-HK
Ingi R. Helgason, formaöur stjómar
Samtaka um Tónlistarhús.
Nýrformaður
Samtaka um
Tónlistarhús
Á fundi fuhtrúaráðs Samtaka um
Tónhstarhús, sem haldinn var fyrir
stuttu, var kosin ný stjóm og einnig
nýr formaður. Valgeir Guðjónsson,
sem gegnt hefur formannsstöðu um
nokkurra ára skeið, gaf ekki kost á
sér sem formaður og var Ingi R.
Helgason, stjómarformaður Vá-
tryggingafélags íslands, kosinn
formaður og Ólafur B. Thors vara-
formaður. Aðrir sem kosnir vom í
stjóm em: Bjöm Th. Ámason, Elfa
Björk Gunnarsdóttir, Erlendur Ein-
arsson, Jón Þórarinsson, Rósa
Hrund Guðmundsdóttir, Runólfur
Birgir Leifsson og Vemharður Linn-
et. Erindreki samtakanna er Þórhah-
ur Vilhjálmsson.
Með nýju ári hefur færst mikiö fjör í sýningar á myndlist og voru margar
sýningar opnaöar um síöustu helgi, þar á meðal þrjár á Kjarvalsstöðum.
Hinn kunni myndlistarmaður Magnús Kjartansson sýnir verk sem fjalla um
pislarsöguna, verk sem þegar hafa vakið athygli og Finnbogi Pétursson
sýnir hljóðskúlptúra. Þriðji sýningaraðilinn er Geoffrey Hendricks sem varð
einn af meðlimum Fluxus-hreyfingarinnar í Bandarikjunum og Evrópu á
miðjum sjöunda áratugnum og hefur haldiö tryggð viö þann félagsskap
siðan og er hann einn af þekktustu listamönnum sem kenna sig við hreyf-
inguna. Á sýningu hans á Kjarvalsstööum eru mörg málverk af himnl sem
eru, þegar betur er gáð, hluti af víðara samhengi. Á myndinni litur Hendricks
upp eftir einni himnamyndröö sinni. DV-mynd ÞÖK
Fastur liöur á Kjarvalsstöðum
undanfarin misseri hefur verið
sýning á ljóðum og hefur þetta
form mælst vel fyrir. Áhorfendur
og lesendur þurfa ekki að hafa
mikiö fyrir lestrinum á Kjarvals-
stöðum en því er öðruvísi farið
með ljóö Þorsteins Joö Vhhjálms-
sonar, útvarpsmanns og Ijóð-
skálds, sem sundlaugargestum í
sundlauginni í Laugardal verður
boðið upp á frá og með næsta
laugardegi. Lióðinu Djúpt. Djúpt
verður'komið fyrir á glergluggum
undir vatnsborðinu í djúpu laug-
inni þannig að gestir þurfa að
draga andann djúpt og kafa th aö
komast í snertingu við ljóðið.
Heimsklúbbur
Heimsklúbbur Ingólfs gerir ráð
fyrir um milijón króna framlagi
th menningar en samkvæmt sér-
stakri skipulagsskrá rennur
hagnaður af Heimsklúbbnum, aö
frádregnum launum og rekstrar-
gjöldum, 1 Listasjóð Heims-
klúbbsins til styrktar og viður-
kenningar á frábærum árangri i
listflutningi og hstsköpun eöa th
örvunar listsköpunar eða örvun-
ar hststarfsemi sem líkleg er til
afreka á sviði íslensks þjóölífs.
Þegar hefur mestu af fénu verið
ráðstafað til hljóðfærakaupa, í
námsstyrk og útgáfustyrk. Meðal
þeirra sem styrk hafa hlotið eru
orgelsjóður Hallgrímskirkju,
fiðlusjóðiu- Sigrúnar Eðvalds-
dóttur og Kammersveit Reykja-
víkur.
Nína Margrétfékk
styrkúr
ntinningarsjóði
Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari fékk úthlutað 250
þúsund króna styrk úr Minning-
arsjóði Gunnars Thoroddsen en
úthlutaö var úr honum í áttunda
sinn. Nína Margrét hefur iokið
einleikaraprófi frá Tónhstarskói-
anum í Reykjavík. Hún hefur lok-
ið prófum frá tónhstarskólum í
London og New York og hlaut á
þessu ári styrk frá Helena Rubin-
stein Foundation th doktorsnáms
í píanóleik við aty University of
New York. Nina Margrét vinnur
meðal annars að rannsóknum á
þróun píanóleiks á íslands. Hún
hefur oit komið fram opinberlega
á tónleikum að undanfórnu, bæði
her heima og erlendis, og ávaht
hlotið góða dóma.
JanErícGustafs-
sonleikurmeð
Sinfóníunni
Tónleikar í Rauöri áskriftarröð
verða í kvöld á vegum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands en rauð tón-
leikaröð merkir að frægur ein-
leikari leikur með hljómsveitinm
og í þetta sinn er það Jan Erik
Gustafsson sellóleikari, ungur og
mjög efiirsóttur. Hann var aðeins
sextán ára þegar hann vann
þriðju verðlaun í samkeppninni
Young Musician of the Year og
hafa síðan streymt th hans thboð
frá helstu hljórasveitum heims.
Síðasta afrek hans á hstabraut-
inni var að vinna önnur verðlaun
í Leonard Rose keppninni í Was-
hington síðastliöið sumar og opn-
aði það honum flestar dyr í
bandarísku tónhstarhfi. Gustafs-
son leikur einleik i tveimur verk-
um, Kol Nidrei eftir Max Bruch
og Rókókóthbrigðum eftir
Tsjajkovskíj. Þess má geta að
fyrsta verkið á efnisskránni er
Ys og þys eftir Þorkel Sigur-
bjömsson sem hann samdi i sam-
keppni um stutt verk th flutnings
á Listahátíð í Reykjavík 1970.