Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
41
Sviðsljós
Ástfanginn af
myndavélinni
Spænski leikarinn Antonio
Banderas hefur leikið í fjölmörg ár
en er nú loks að slá í gegn í Banda-
ríkjunum og þá um leið um allan
heim. Hann hefur nýlokið við að
leika í myndunum Philadelphia og
Húsi andanna (The House of the
Spirits) og er nú að vinna að þeirri
þriðju sem er hin margumtalaða
Interview with the Vampire.
Antonio hefur hka hlotið mikið
umtal og athygli sökum úthtsins.
Dæmi um það er umsögn mótleik-
ara hans í Philadelphia, Tom
Hanks, þar sem hann segir frá því
að hann hafi líklega verið öfundað-
ur af 95% kvenna um allan heim
og ca 22% karla fyrir að fá tæki-
færi til að dansa vangadans við
Antonio.
Antonio vakti fyrst á sér athygli
fyrir þær fimm myndir sem hann
lék í undir stjóm Spánverjans
Pedro Almodóvar. Þar á meðal
vora Konur á harmi taugaáfalls
(Women on the Verge of a Nervous
Breakdown) og Tie Me up! Tie Me
down! Hann hætti síðan viö að
leika í sjöttu mynd Pedros, High
Heels, til að reyna fyrir sér í Banda-
ríkjunum. Myndin var The Mambo
Kings, en þrátt fyrir þann metnað
sem var lögð í hana náði hún ekki
þeim vinsældum sem við var búist.
Þegar Antonio tók að sér hlut-
verkið í Mambo Kings talaði hann
varla orð í ensku. Hann var samt
ráðinn og settur á mánaðar ensku-
námskeið í New York þar sem
skólafélagar hans vora franskir og
japanskir viðskiptajöfrar.
Þó að Mambo Kings næði ekki
tilætluðum vinsældum vakti hún
athygh bandarískra leikstjóra á
Antonio. Honum buðust margvís-
leg hlutverk, þar á meðal aðalhlut-
verkið í Bram Stoker’s Dracula,
sem þó áendanum féll honum ekki
í skaut. í staðinn lék hann eitt af
aðalhlutverkunum í Húsi andanna
sem gerð er eftir samnefndri sögu
Isabel AUende og leikstýrt af ósk-
arsverðlaunahafanum Bille Aug-
ust og Philadelphia þar sem hann
leikur Miguel, elskhuga Tom
Hanks, sem er sýktur af eyðni.
Antonio Banderas kunni varla orð í ensku 1989 þegar hann tók að ser
hlutverkið í The Mambo Kings en hefur varla undan að leika i Holly-
wood-myndum nú.
Antonio lítur ekki á sjálfan sig
sem stórstjörnu, hann er fyrst og
fremst leikari sem er ástfanginn af
myndavélinni og góðu handriti.
Hann segist ekki sækjast eftir límó-
sínum og ríkidæmi, ef einhver
hringdi í hann frá Indlandi með
gott handrit þá myndi hann pakka
saman og fara þangað.
Tónleikar
KK-bandið á
Blúsbarnum
KK-bandið heldur tónleika á Blúsbarnum
í kvöld. Það leikur lög af nýja diskinum
í bland við gamalt. Tónleikarnir hefjast
um kl. 22.
40 sýning á Elínu Helenu
í kvöld, 13. janúar, verðurfertugastasýn-
ing á leikritinu Elín Helena eftir Áma
Ibsen, uppselt hefur verið á svo til allar
sýningar. Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýndi verkið í byrjun október á litla svið-
inu í Borgarleikhúsinu. Enn eru eftir
nokkrar sýningar á Elinu Helgu og verða
næstu sýningar 14. og 15. janúar.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Kvöldvaka í kvöld kl. 20.30 að Fannborg
8 (Gjábakka). Blandaður kór, söngvinir
og konur úr Kópavogi syngja og margt
fleira. Húsið öllum opið.
Breiðfirðingafélagið
Þorrahátíð 22. jan. nk. Afhending miða
verður í Breiðfirðingabúð sunnudaginn
16. janúar frá kl. 13-15 og miðvikudag 19.
jan. kl. 18-20. Upplýsingar í síma 74997,
Sigríður, og 11961, Sæunn.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Bridgekeppni, tvímenningur kl. 13 í dag
í Risinu. Leikritiö Margt býr í þokunni
sýnt í Risinu miðvikudaga og laugardaga
kl. 16 og sunnudaga kl. 20.30. Miðar á
skrifstofu og við inngang.
Nýjar bækur
Bækur frá íslenska
kiljuklúbbnum
íslenski kiljuklúbburinn hefur sent frá
sér fjórar nýjar bækur: Sól í Norður-
mýri, píslarsaga úr austurbæ eftir
Þórunni Valdimarsdóttur og Megas.
Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonar-
son. Leynihringurinn, spennusaga eftir
enska rithöfundinn Michael Dibdin og
Jólaóratorían eftir sænska rithöfund-
inn Göran Tunström.
K J A RTA N Ól-A/SNÖH
,UNAR§ÉÉ
Hundrað ára verslun
í Vík I Mýrdal
Verslunarsaga Vestur-Skaftfellinga,
þriðja bindi, eftir Kjartan Ólafsson, fv.
ritstjóra, er komið út. Útgefandi er Vest-
ur-Skaftafellssýsla. Er þetta lokabindi
verksins sem fjallar ítarlega um verslun
Vestur-Skaftfellinga. Bókin verður send
í póstkröfu til áskrifenda, einnig er hægt
að vitja hennar hjá Björgvini Símonar-
syni, Skeiðarvogi 29, Rvk. s. 681827.
Leikhús
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið
Sími 11200
Smíðaverkstæðið kl. 20.30.
BLÓÐBRULLAUP
eftir Federico Garcia Lorca
Frumsýning fös. 21. jan., mið. 26. jan.,
fim. 27. jan.
Sýning er ekki við hæfi barna. Ekki er
unnt að hleypa gestum i salinn eftir að
sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.
SEIÐUR SKUGGANNA
eftir Lars Norén
Frumsýning iau. 15. jan., uppselt, sud.
16.jan.,föd. 21.|an.
Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum í
salinn eftir að sýning er hafin.
Stóra sviðið kl. 20.00
MÁVURINN
eftir Anton Tsjékhof
7. sýn. lau. 15. jan., nokkur sæti laus, 8.
sýn. sun. 23 jan., 9. sýn. sun. 30. jan.
ALLIR SYNIR MÍNIR
eftir Arthur Miller
Fös. 14. jan., fáein sæti laus., fim. 20.
jan.,fös. 21. jan.
KJAFTAGANGUR
eftir Neil Simon
j kvöld, uppselt, lau. 22. jan., fös. 28. jan.
Ath. Fáar sýningar eftir.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Lau. 15. jan. kl. 14.00, fáein sæti laus,
sun. 16. jan. kl. 14.00, fáein sæti laus,
sud. 23. jan., fáein sæti laus, lau. 29.
jan. kl. 13.00.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekið
á móti símapöntunum vlrka daga
frá kl. 10.
Græna linan 99 61 60.
Leikfélag Akureyrar
*mww
mi/
.MaKaSAGA...
Höfundur leikrita, laga og söngtexta:
Ármann Guðmundsson, Sævar Slgur-
geirsson og ÞorgeirTryggvason
Leikstjórn: Hlin Agnarsdóttir
Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórs-
son
Lýsing: Ingvar Björnsson
Leikendur: Saga Jónsdóttir, Aðalsteinn
Bergdal, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigur-
þór Albert Heimisson, Ingibjörg Gréta
Gísladóttir, Skúli Gautason, Sigurveig
Jónsdóttir, Sigurður Hallmarsson, Dofri
Hermannsson og Oddur Bjarni Þorkels-
son.
Undirleikari: Reynir Schiöth
Föstud. 14. jan.kl. 20.30.
Laugard. 15. jan. kl. 20.30.
Miðasalan er opin alla virka kl. 14-18
og fram að sýn. sýningardaga.
Sunnud. ki. 13-15.
Símsvari tekur við pöntunum utan af-
greiðslutima. Simi 24073.
Greiðslukortaþjónusta.
EVALUNA
Eva Luna eftir Kjartan Ragnarsson og
ÓskarJónasson
4. sýn. fimd. 13. jan., blá kort gilda, uppselt.
5. sýn. sund. 16. jan., gul kort gilda,
uppselt.
6. sýn. fimd. 20. jan., græn kort gilda, fáein
sæti laus.
7. sýn. föd. 21. jan., hvit kort gilda, uppselt.
8. sýn. sund. 23. jan., brún kort gilda, upp-
selt.
Fim. 27. jan., fös. 28. jan., uppselt, sun. 30.
jan.
Stóra svið kl. 20.00.
SPANSKFLUGAN
eftir Arnold og Bach
35. sýn. föstud. 14. jan., laugard. 15. jan.
Fáarsýningareftir.
Stóra sviðið kl. 14.00
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sunnud. 16. jan. sunnud. 23. jan., næstsið-
asta sýning. 60. sýn. sunnud. 30. jan. síð-
asta sýning.
Litla sviðið kl. 20.00.
ELÍN HELENA
eftir Árna Ibsen
40.sýn. fimmtud. 13. jan., föstud. 14. jan.,
laugard. 15. jan.
Ath.l Ekki er hægt að hleypa gestum inn i
salinn eftir að sýning er hafin.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miöapöntunum i sima 680680 kl.
10-12 alla virka daga.
Bréfasími 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús.
fSLENSKA ÓPERAN
__iini
É VGENÍ ÖNEGÍN
eftir Pjotr I. Tsjajkovski
Texti eftir Púshkín í þýðingu
Þorsteins Gylfasonar.
Sýning laugardaginn 15. janúar kl. 20.
Laugardaglnn 22. janúar kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega.
Sýningardaga til kl. 20.
SÍM111475-
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
Nýtt kortatimabil!
Munið gjafakortin okkar
LEIKFÉLAG
MOSEELLSSVEITAR
„PETTA
REDDASTT
i Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ
Kjötfarsi meöeinum sálmi
eftir Jón St. Kristjánsson.
3. sýn. fös. 14. jan., uppselt, 4. sýn.
sunnud. 16. jan. kl. 20.30.
Miðapantanir i sima 667786
allan sólarhringinn.