Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Side 36
Forsætisráðherra útilokar ekki lagasetningu til lausnar sjómannadeilunni:
Lög breyta engu ef
samstaðan heldur
„Ég mótmæli því harölega að
sett verði lþg sera banni verkfall
sjómanna. Ég bendi líka á að laga-
setning leysir ekki þessa deilu ef
samstaða sjómanna heldur,“ sagði
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Farmannasambandsins, í samtali
við DV 1 morgun. Hér á hann viö
að um hver áramót þarf að lögskrá
áhafhir á skip. Nú er enginn sjó-
maöur, sem er í verkfalli, lögskráð-
ur. Þess vegna er enginn þeirra
skráður né ráðinn á nokkurt skip
og þess vegna þvinga lög menn
ekki um borö í skipin gegn vilja
sínum.
Davíö Oddsson forsætisráðherra
sagði í samtali við DV í morgun,
fyrir fund sem hamr og Þorsteinn
Pálsson áttu með útvegsmönnum,
að í ljósi þess hve deilan hefur stað-
iö lengi kæmi allt til greina, líka
lagasetning, til að leysa hana. En
með hvaða liætti nákvæmlega það
yrði vildi hann ekki tjá sig um.
Þorsteinn Pálsson vildi ekki segja
neitt fyrir fundmn. Ráðgerður var
síöan annar fundur með ríkissátta-
semjara og sjómönnum í dag.
Guöjón A. Kristjánsson sagðist
tilbúinn að ræða um lagasetningu
sem kæmi í veg fyrir að sjómcnn
tækju þátt í kvótabraski og sem
styrkti lagalegan grunn þeirra.
Aðspuröur hvort samningar væru
komnir í óleysanlegan hnút sagði
Guðjón:
„Þegar útvegsmenn virðast hafa
það á tilfmningunni að sett verði
lög til að leysa deiluna þá er ekki
von að hægt sé að semja. Þeir feng-
ust ekki til að leysa eitt einasta atr-
iði í deilunni, Þeir virtust treysta
því að ef þeir segðu nei við öllu
nógu lengi yrði deilan leyst með
lögmn. Þetta eru svívirðileg vinnu-
brögð," sagði Guðjón A. Kristjáns-
son.
„Það er ekki að okkar ósk að far-
ið er að tala um lagasetningu, Þaö
eru þvert á móti uppi alvarlegar
grunsemdir um að sjómannafor-
ystan hafi treyst á það að vera skor-
in niður úr snörunni með lagasetn-
higu. Hún hafi ekki þorað aö horf-
ast i augu við aö leysa deiluna með
samningum en treyst á að stjórn-
völd myndu leysa hana frá því.
Ástæðan fyrir því að við erum að
fara á fund ráðherra er einfaldlega
að gefa þeim skýrslu um stöðu
málsins,," sagði Þórariim V. Þórar-
insson, formaöur VSÍ, i morgun.
-S.dór/kaa
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994.
Sjómamafundurinn:
Eyfirðingar
komast ekki
Kristjánsson, DV, Akureyri:
Um 50 sjómenn úr Eyjafiröi, sem
mættir voru á skrifstofu Sjómanna-
félags Eyjafjarðar í morgun og ætl-
uðu í bifreiö til Reykjavikur á sjó-
mannafundinn þar í dag, komust
ekki vegna ófæröar á Öxnadalsheiði.
Um 200 sjómenn í Eyjafirði mættu
á fund á Akureyri í gærkvöldi þar
sem staöa samningamálanna var
kynnt og málin rædd. Það sem ein-
kenndi fundinn var mikil samstaða
og var skorað á samninganefnd sjó-
manna aö hvika í engu frá ýtrustu
kröfum sínum í viðræðunum við út-
vegsmenn.
Veðrið á Öxnadalsheiðinni í morg-
un var þess eðlis að ekki var hægt
Uð hefja mokstur þar. Á heiðinni var
stór flutningabíll sem valt út af veg-
inum í gærkvöldi nærri Bakkasels-
brekku. Meiðsli urðu engin í því
óhappi.
Veðriðámorgun:
Hæg
norðaust-
anátt
Á morgun verður fremur hæg
norðaustanátt á landinu. Smáél á
annesjum vestan-, norðan- og
austanlands en bjartviðri sunn-
anlands.
LOKI
VarZhírínovski ekki boðið?
ÞREFALDUR 1. vinningur
Bretland:
Björk komin
í 5. sæti
Plata Bjarkar Guðmundsdóttur,
Debut, hefur átt góðu gengi að fagna
á breska breiðskífulistanum undan-
famar vikur. Hún er á stöðugri upp-
leið, var í 14. sæti listans fyrir hálfum
mánuði, 8. sæti fyrir einni viku og
er nú í 5. sæti listans. Enginn íslensk-
ur listamaður hefur áður komist svo
háttáerlendumvinsældalistum. -ÍS
- Sjá nánar á bls. 20
Akureyri:
Matvöru-
markaðurinn
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Allt bendir til þess að matvöru-
verslunin Matvörumarkaðurinn á
Akureyri verði gjaldþrota í dag en
versluninni hefur verið neitað um
framlengingu greiðslustöðvunar og
kröfur gerðar um gjaldþrotameðferð.
Skuldir Matvörumarkaðarins
nema um 100 milljónum króna og eru
kröfuhafar flestir á Akureyri, stærst
er Heildverslun Valgarðs Stefáns-
sonar með rúmlega 20 milljónir
króna. Kröfur Akureyrarbæjar og
Landsbanka íslands á hendur versl-
uninni nema 13 milljónum frá hvor-
■am aðila.
Bergvík
náðist út
ínótt
Bill Clinton Bandarlkjaforseti er kominn til Moskvu og i morgun tók Borís Jeltsín Russlandsforseti á móti honum í
sal heilags Georgs i Kreml. Clinton sagði aö Bandaríkjamenn yrðu að hjálpa Rússum við að skilja kosti frjálsra
viðskipta en annars munu forsetarnir einkum ræða hermál og heimspólitík. - Sjá nánar á bls. 9. Símamynd Reuter
Emil Thorarensen, DV, F.skifirði:
„Það tókst mjög vel að ná Bergvík-
inni af strandstaðnum. Skipið bók-
staflega þaut út enda var mikið brim
sem hjálpaði verulega til,“ sagði
Magnús Guðjónsson, skipverji á
varðskipinu Tý, í samtali viíV DV
snemma í morgun.
Varðskipinu Tý tókst að ná Bergvík
VE af strandstað í Vaðlavík um
hálffjögurleytið í nótt.
Meiningin var að draga skipið til
Neskaupstaðar en vegna veðurs var
hætt við það. Menn vildu ekki taka
neina áhættu og því var haldið til
næstu hafnar, á Eskifirði. Tók sigl-
ingin þangað um tvær klukkustundir
og voru skipin komin til hafnar um
áttaleytið i morgun.
Hvorki aðal- né ljósavél Bergvíkur
var í gangi en skipið hefur legið á
strandstað í nokkrar vikur. Farið
verður með skipið í slipp á Neskaup-
staðþegarveðurleyfir. -hlh
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar - Áskri Á Á. ' .Á. ■
s. 814757
HRINGRÁS
ENDURVINNSLA
Kaupum kapla
og rafmagnsvír